NT - 10.12.1985, Side 13
■ Stúdínur reyna hér að blokka skell frá Þróttarastúlku. Stundum heppnaðist það. NT-mynd: Róbeti.
Íslandsmótið í blaki:
Þróttarar heppnir
Unnu nauman sigur á Stúdentum 3*2 á sunnudaginn
■ Hann var bráðskeniintilegur
leikur ÍS og Þróttar í 1. deild karla í
blaki sem fram fór í Hagaskóla á
sunnudaginn. Það var ekki fyrr en í
fimmtu hrinu sem Þrótti tókst að
tryggja sér sigur í leiknuni 3-2.
Þessi lið hafa á undaniórnum áruin
verið í sérflokki í blakinu og viður-
eignir þeirra jafnan langar og
skemmtilegar. Svo var einnig á
sunnudaginn.
f>að stefndi allt í léttan Þróttar-
sigur til að byrja með. Liðið vann
fyrstu hrinuna 15-11 eftir að hafa
verið köninir í 6-0 í byrjun. Næsta
.hrina v'ar jafnari en Þróttur vann
samt aftur 15-11. Þá var komið að
Stúdentum. í þriðju hrinu sýndu
þeir mikla baráttu og sneru 1-6
stöðu sér í vil og sigruðu 15-8. Síð-
an kom fjórða hrinan og henni
stjórnuðu Stúdentar allan
■ Everton var valið lið ársins hjá
stjórnarmönnum í knattspyrnufé-
lögunum í Englandi. Fáum kom
þetta val á óvart. Everton vann
deildina með miklum yfirburðum
og vann cinnig F.vrópukeppni
bikarhafa með yfirburðum. Þá
■ „Það verður að segjast eins og
er að við vorum mjög heppnir að ná
sigri gegn Nottingham. Það lá tölu-
vert á okkur, sérstaklega í fyrri
hálfleik. Annars gengur mjög vel
og við hölum inn stigum," sagði
Sigurður Jónsson í stuttu samtali
við NT í gærkvöldi.
Sheff. Wed sigraði Nott. For. 2-
1 á Hillsborough um helgina. Siggi.
tímann og sigruðu 15-8. Urslita-
hrinan varð löng og ströng. Stúdent
ar byrjuðu vel og höfðu yfir 12-7 og
13-10 en þá fóru Þróttarar að síga
á. Eitt stig í einu og liðið komst í
rass Slúdenta í stöðunni 14-12 fyrir
ÍS. Síðustu stigin voru síðan Þrótt-
ar og sigurinn 16-14 í fimmtu hrin-
unni.
Leikurinn var spennandi og góð
tilþrif sáust. Það var mjög áberandi
í þessum leik hve margar uppgjafir
fóru í netið cða afturfyrir. Nánast
eins og unt barnaskólablak væri að
ræða á stundum. Þess á milli sáust
góðir skellir.
Á undan þessum leik léku sömu
lið í kvennaflokki og þar sigruðu
Stúdínur örugglega 3-1. Hrinurnar
fóru 15-11, 15-4, 9-15 og 15-4. ÍS
stúlkurnar voru sterkari á öllum
sviðunt og þó sérstakiéga í móttök-
unni.
komst liðið í úrslit ensku bikar-
keppninnar en tapaði þar fyrir
Man. United. Aðsókn hjá liðinu
fór vaxandi og áhorfendur þess cru
prúðir. Allt þetta gerir liðið aö
„Liði ársins" hjá enskum.
lék ekki með en sagðist vonast eftir
að fá sitt tækifæri bráðlega. Hann
hefur komið inná fyrir Andy Blair í
tvö skipti nú nýlega.
Sigurður er að flytja í nýtt hús í
Sheffield og sagðist vera að puða í
innkaupum þessa dagana. Samn-
ingur hans við Sheffield er til ársins
1988.
Þá léku Víkingar og HK í 1.
deild karla strax á eftir leik Þróttar
og ÍS og lauk þeint leik með sigri
Víkinga 3-0. Var það léttur sigur.
í Neskaupstað léku Þróttur
Nes. og Fram á föstudagskvöldið.
Þeim leik lauk með öruggum sigri
heimamanna 3-1.
Þýski fótboltinn:
Ásgeir meiddist
Frá Guilinundi Karlssyni frétta-
rílara NT í Þvskalandi:
■ Ásgeir Sigurvinsson
þurfti að fara útaf á 72. mín-
útu í 1-1 jafnteflislcik
„Gladbach“ og Stuttgart.
Ásgeir er lítillega tognað-
ur á læri og ætlaði reyndar
ekki að vera tneð á laugar-
daginn. Hann fékk þó
sprautu fyrir leik, leið bctur
og harkaði af sér nicst allan
leikinn. Ásgeir sagði í sam-
tali við NT að mciðslin væru
ekki alvarleg og hann myndi
reyna að hefja æftngar aftur
á miðvikudaginn. Hann var
að vonunt ánægður með
stigið útúr viðureigninni við
„Gladbach“.
Lárus Guðmundsson og
Atli Eðvaldsson byrjuðu
báðir á niófi Bayern, en
leikið var í Munchen.
Heimaménn gerðu fljótlega
út um lcikinn, skoruðu þrjú
mörk á 12 mínútna kafla í
fyrri hálfleik og sigruðu 5-1.
Lárus var skipt út af í síðari
hálfleik.
Werder Bremen heldtir
efsta sætinu í deildinni eftir
3-1 sigur á Schalkc. Liðið er
með 27 stig en Bayern kem-
ur næst ineð 24 stig.
Everton valið lið ársins
„Viðvorum heppnir"
- sagði Sigurður Jónsson hjá Sheffield
Opna ástralska í tennis:
Edberg kom á óvart
- sigraði landa sinn Wilander í úrslitum - Navratilova vann Lloyd
■ Sænski táningurinn Stefan
Edberg varð fjórum milljónum
króna ríkari í gær en þá sigraði
hann landa sinn Mats Wilandcr í
úrslitaleiknum á Opná ástralska
mcistaramótinu í tennis.
Hinn 19 ára gamli Svíi, sem er
sjötti á lista yfir sterkustu tennis-
spilara heims, sigraði Wilander 6-
4,6-3 og 6-3 og tók leikurinn minna
en tvær klukkustundir: „Þetta er
stærsta stundin í mínu lífi,“ sagði
Edberg eftir sigurinn og skal engan
undra. Edberg hafði áður lagt að
velli sjálfan Ivan Lendl í undanúr-
slitum mótsins og Wilander, sem
sigraði á þessu móti í fyrra, hafði
lítið að gera í ákafa og sterka bak-
hönd landa síns í úrslitaleiknum.
í kvennaflokki áttust þær stöllur
Martina Navratilova og Chris
Evert Lloyd við í úrslitaleiknum óg
sigraði Navratilova 6-2, 4-6 og 6-2.
Þessar konur hafa mæst 67 sinnum
um ævina, Navratilova hefur unnið
í 35 skipti en Lloyd í hin 32 skiptin.
Þriðjudagur 10. desember 1985 13
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Stemmningarlaust
> er UMFN sigraði KR léttí Hagaskóla
■ Njarðvíkingar sigruðu KR í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í
Hagaskóla eins og búist hafði verið
við. Lokatölur urðu 83-69 fyrir
Njarðvík.
Hann var algjörlega stemmn-
ingarlaus þessi leikur. Áhorfendur
voru nánast engir enda við að
keppa beina útsendingu úr ensku
knattspyrnunni og beina lýsingu á
viðureign íslendinga og V-Þjóð-
verja á Akureyri. Þessi laugardag-
ur var því ekki sá besti fyrir þessi
lið til að spila á ef ná átti upp
stemmningu fyrir áhorfendur. Síð-
an er það alltaf jafn slæmt aðspila í
Hagaskóla. Áhofendur sjá ekki
nema hluta vallarins og á laugar-
daginn var engin skotklukka í
gangi en hún er þó íyrir hendi í
Hagaskóla. Það var ekki boðið
uþpá eitt eða neitt fyrir áhorfendur
og ef svo er þá koma þeir ekki.
Nú leikurinn var ekkert fyrir
augað. Njarðvíkingar voru hinir
öruggu sigurvegarar. Valur Ingi-
mundarson sá um það. Hann skor-
aði 30 stig í leiknum. Vörn UMFN
var góð og máttu KR-ingar sín
ljtils. Helst að Matthías Einarsson
sýndi einhver tilþrif. Staðan í hléi
var 47-34 fyrir Njarðvík og ekki
minnkaði bilið í seinni hálfleik.
Lokatölur 83-69 fyrir Suðurnesja-
liðið.
KR-ingar, scm margir spáðu
góðum árangri í deildinni í vetur,
þurfa nú að fara að taka sig alvar-
lega saman í andlitinu ef þeir ætla
að komast í úrslitakeppnina.
þb
Kraftlyftingar:
íslandsmet Harðar
- í bekkpressu og samanlögðu
■ Jötnainótið í kraftlyftingum
var haldið í Æfingamiðstöðinni
Engihjalla í Kópavogi um helgina.
Tvö íslandsmet voru sett á mótinu.
Hörður Magnússon setti íslands-
met í bekkpressu í 110 kg flokki er
hann lyfti 202,5 kg. Þetta dugði
honum einnig til að setja íslands-
met í samanlögðu er hann tók 330
kg í réttstöðulyftu. Samanlagða
metið viirð því 867,5 en hann tók
335 kg í hnébeyju.
Magnús Ver Magnússon setti
þrjú unglingamet á mótinu. Hann
lyfti 160 ;i bekknum. 267,5 í hné-
beygju og var samanlagt með 682,5
kg-
...Unt helgina var dregið í 8-liða
úrslit í bikarkeppni Körfuknatt-
leikssambandsins. Drátturinn fór
fram í beinni útsendingu í sjón-
varpinu og er það vcl. Leikið verð-
ur heima og heiman í 8-liða úrslit-
unum. Þessi lið drógust saman og á
fyrrnefnda liðið heimaleik fyrst:
KR-UMFN
tR-lBK
Haukar-lS
Valur-Fram
...Tveir leikir voru i 1. deild kvenna i körfu-
knattleik um helgina. ÍR tapadi heima fyrir
UMFN 30-31 og Keflavíkurstúlkurnar sigr-
udu ÍS á heimavelli 48-45.
Þá er rétt í þessu sambandi ad benda á tvo
stórleiki í körfunni i kvöld. Þeir veröa báðir
í Seljaskóla og hefst fyrri leikurinn kl. 20.00.
Þá leika Valur og KR en strax á eftir spila ÍR
og ÍBK. Þessir leikir skipta miklu máli í
deildinni bæði í botninum og á topnum...