NT - 17.12.1985, Page 7
ffl [7 Þriðjudagur 17. desember 1985 7
LL L Útlönd
Perú:
Milljarðahagnaður
af kókaínútflutningi
■ Stjórnvöld í Perú segja að heild-
arverðmæti ólöglegs kókaínútflutn-
ings á þessu ári sé kominn yfir tvo
milljarða dollara (83 milljarða
ísl.kr.) sem þrisvar sinnum meira en
útflutningsverðmæti olíu, sem er
mikilvægasta löglega útflutningsvara
Perúmanna.
Til samanburðar má nefna að árið
1983 flutti þessi tuttugu milljón
manna þjóð út löglegar vörur fyrir
um þrjá milljarða dollara. Kókaín-
framleiðsla er þannig orðin lang-
mikilvægasta atvinnugrein í Perú
enda er talið að um helmingur alls
kókaíns í heiminum sé upprunninn í
landinu.
Þrátt fyrir þetta eru stjórnvöld
staðráðin í að eyðileggja þessa blóm-
legu atvinnugrein. Stjórnin áætlarað
veita um 30 milljón dollurum til bar-
áttunnar gegn kókaíniðnaðinum á
næstunni. Herferðin gegn kókaíni
verður að mestu fjármögnuð með
bandarískum framlögum enda fer
meirihlutinn af kókaíninu á banda-
rískan markað.
Abel Salinas öryggismálaráðherra
Pcrú segir að keyptar verði 10.000
nýjar vélbyssur, 10.000 rifflar og
20.000 skammbyssur fyrir lögregl-
una til að nota gegn kókaínsmyglur-
um sem eru vel vopnaðir.
■ Lögreglumenn í Perú brenna kókaínrunnum en kókaínrækt er orðin
mikilvægasta landbúnaðargrein Perúmanna þótt hún sé þrælólögleg.
ísraelsmenn keyra
verdbólguna niður
Jcrusalcm-Reutcr
■ Verðlag í fsrael hækkaði aðeins
um 0,5% í nóvember sem er minnsta
verðbólga í einum mánuði f næstum
því níu ár.
Yitzhak Modai fjármálaráðherra
ísraels segir þessa litlu hækkun fram-
færsluvísitölunnar sýna þann frá-
bæra árangur sem aðhaldsaðgerðir
stjórnarinnar hafi náð.
Verðbólga á fyrstu ellefu mánuð-
um þessa árs var 181,5% samanborið
við 44,9% verðbólgu í fyrra. Fram-
færsluvísitalan hefur að meðaltali
hækkað um 3% í ísrael á mánuði frá
því í ágúst, þegar laun voru fryst og
verðstöðvun sett á, samanborið við
14% hækkun á mánuði fyrir þann
tíma.
Margir hagfræðingar vara við
hættunni á því að verðbólgan skjótist
aftur af stað þegar slakað verður á
verðstöðvuninni í mars næstkom-
andi.
Gjaldþrota tímarit:
13.000 „blaðamenn<(
bjarga fjárhagnum
Peking-Reuter
■ Kínverskt tímarit, sem var í
Jólasveinn
stelur úr
stórmarkaði
Sydney-Reuter
■ Ástralska lögreglan handtók í
gær jólasvein sem hafði troðfyllt
pokann sinn í stórmarkaði í Sydney
með vörum sem hann sagðist ætla að
gefa fátækum og svöngum börnum.
Viðskiptavinir verslunarinnar
horfðu með ánægju á þegar jóla-
sveinninn sópaði matvælum og
gjafavörum í pokann sinn. En versj-
unarfólkið kallaði á lögregluna sem
handtók jólasveininn fyrir tilraun til
þjófnaðar.
Jólasveinninn sagði að sér hefði
fundist þetta góður tími til að minna
fólk á börnin sem syltu í Eþíópíu og
öðrum löndum.
fjárhagskröggum, greip til þess
ráös að selja 13.000 blaða-
mannaskírteini til að halda
rekstrinum gangandi að sögn
Guangming-dagblaðsins í Kína.
Skírteinasalan gekk svo vel
vegna þess að blaðamenn njóta
ýmissa fríðinda í Kína. Þeir fá til
dæmis frímiða á leikhús og þeir
geta notað blaðamannaskírtein-
ið til að koma sér í mjúkinn hjá
embættismönnum úti í sveitum
og í smábæjum.
Hagnaður tímaritsins, sem
hét Upplýsingatímaritið, var um
64.000 yuan (tæp milljón ísl kr.)
þar til önnur blöð komu upp um
svindlið í ágúst síðastliðnum.
Nú hafa verkamennirnir þrír,
sem stofnuðu tímaritið, verið
sendir til upphaflegra vinnu-
staða sinna. Þannig hefur „hin
göfuga virðing fyrir blaða-
mennsku verið varðveitt" að
sögn Guangmingdagblaðsins.
BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 simi 28600 STÓRHÖFÐA simi 671100
Renndu við eða hafðu samband
Jólatilboð!
r m m
STAKAR
Stærð 68x120 cm.........Verð 880,-
Stærð 68x220 cm.........Verð 1.560,-
Stærð 138x212 cm.........Verð 2.700,-
Motturnar eru með gúmmíundirlagi sem gerir þær stamar
á parketi, dúk eða flísum.
Ath.: Við sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
Opið laugardag til kl. 18.
Ofnæmi eykst
í iðnríkjum
Vestur-Bcriín-Reutcr
■ Á læknaráðstefnu, sem
haldin var í nóvemberlok í
Vestur-Berlín, kom fram að
ýmiss konar ofnæmi verða
stöðugt algengari í iðnríkj-
um.
Svissneski ónæmissérfræð-
ingurinn Alain De Weck
sagði á ráðstefnunni að fjöidi
þeirra, sem þjást af ofnæmi í
iðnríkjum, hefði aukist um 30
til 40% frá því árið 1975.
Margir sérfræðingar töldu að
þetta stafaði af umhverfis-
breytingum, sem yrðu vegna
mikillar iðnvæðingar. Þeir
sögðu samt nauðsynlegt að
gera frekari rannsóknir á
samanbandinu þarna á milli.
Sérstaklega er áberandi
livað svokölluð heymæði er
orðin algeng en hún er of-
næmi fyrir frjókornum
blóma. Tíundi hver Sviss-
lendingur þjáist nú af þessari
tegund ofnæmis á móti tæp-
legaeinum afhverjum hundr-
að árið 1926.
Margir hafa líka ofnæmi
fyrir ýmsum tegundum iyfja
og algengum efnum. Þannig
kom t.d. fram á ráðstefnunni
að u.þ.b. 3% versturþýskra
kvenna hefur ofnæmi fyrir
nikkeli í skartgripum og buxna-
hnöppum.
íffll BVCGlMGÁýQRDBl
á ótrúlega
hagstæðu verði: