NT - 17.12.1985, Side 17
Þriðjudagur 17. desember 1985 17
■ Þetta er ekki brúA-
kaupsmynd, því iniður
heidur mynd sem tekin var
af þeim Stallone og Brigitte
Nielsen í byrjun tilhugalífs-
„Rocky“ gengur í það heilaga á ný
■ Frá Los Angeles komu þær fréttir sl.
sunnudag, að Sylvester Stallone, stjarnan
úr „Rocky“-myndunum og „Rambo“,
hefði gengið í það heilaga á ný, en hann og
Sasha, fyrri kona hans, höfðu gengið frá
skilnaði í sumar.
Brúðurin var auðvitað hin fagra og um-
talaða Brigitte Nielsen, dönsk leikkona,
sem segist hafa verið skotin í Stallone síð-
an hún, II ára gömul, sá hann í fyrstu
Rocky-myndinni. Pað er 17 ára munur á
brúðhjónunum, en Brigitte er nú 22 ára.
Hún kom fram í smáhlutverki í Rocky IV,
og lék þá eiginkonu sovéska boxarans,
sem keppti við hetjuna Rocky.
Brúðkaupið fór fram á heimili Irwins
Winkler, sem er framleiðandi Rocky-
myndanna, í stórhýsi á Malibuströndinni
við Los Angeles. Þar var allt fullt af örygg-
isvörðum og meira að segja var skoðað í
alla bíla sem komu með boðsgesti.
Brúðurin var sveipuð hvítum minka-
pels og hin glæsilegasta, að sögn við-
staddra.
Stallone hafði verið 10 ár í hjónabandi
með konu sinni Sasha og þau eiga saman
tvo syni. Hjónaband þeirra gekk ekki
nema í meðallagi vel, að sögn, og tvisvar
Sasha og Sylvester með son sinn Seargoah
skildu þau í smátíma. Sagt var að það sem
hélt Stallone-hjónunum í hjónabandinu
hafi verið sameiginleg barátta fyrir bata
sonar þcirra, Seargoah, en hann er einn af
þeim börnum, sem eru einhverf (autistic)
og er oft mjög erl'itt að hjálpa. Sú sameig-
inlega barátta dugði þó ekki til að bjarga
hjónabandinu, og var gengið frá skilnaði í
sumar, en Sasa hefur báða syni þeirra hjá
sér.
Sagt er aö Brigitte Nielsen hin danska
hafi vcrið ákveðin í að kynnast hetjunni
Rocky, sem hún hafði dáð frá barnæsku,
og því leitað hann uppi á hóteli í New
York. Hún lét hringja upp til leikarans og
tilkynna honum, að kominn væri aðdáandi
hans alla leið frá Danmörku til að heilsa
upp á hann, - en allt korn fyrir ekki. Syl-
vester hafi ekki áhuga. Þá skrifaði hún
honum aðdáendabréf og sagðist bíða niðri
og lagði í umslagiö mynd af sjálfri sér. Það
hreif, og henni var boðið upp til Stallone,
og sagt er að síðan hafi þau vcrið óað-
skiljanleg. Nú eru þau svo gengin í hjóna-
band, og hún stendur í rokna-líkatnsæf-
ingum til þess að vera fær um að leika stórt
hlutverk í næstu Rocky-mynd með eigin-
manninum.