Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Síða 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004 ! Persónuleg bílnúmer þóttu merkileg nýjung fyrir fáein- um árum þegar þau urðu val- kostur hér á landi. Að vísu höfðu menn eitt sinn átt sín prívat númer, X 26, M 12 eða R 4007 – og þau númer héld- ust árum saman í fjölskyldum þótt skipt væri reglulega um bíl. En þau voru ekki persónuleg í þeim skiln- ingi að eigendur gætu ráðið þeim alfar- ið eða teflt þeim fram sem táknmynd um eigin manngerð, hæfileika eða drauma. Nú er hins vegar hægt að velja sér og kaupa allt að sex stafa númer á einkabílinn og snilldin felst í því að úr öllu heila stafrófinu er að velja, auk talna (alls á fimmta tug tákna, að með- töldum broddstöfum). Þetta eru lesendum auðvitað ekki nýjar fréttir, enda hafa einkanúmer tíðkast hér í ein átta ár. Hins vegar er það eiginlega fyrst núna sem útbreiðslan er orðin slík að hægt er að lesa hinar flakkandi línur í ein- hverju samhengi. Þannig má núna mæta VILLA á ljósunum á Höfðabakkabrúnni, hann er ljóslaus líkt og hann sé nývaknaður. Fast á hæla hans læðist tilkeyrð og ný- lökkuð ALMA sem hefur reyndar ver- ið að eltast við hann á þessum ljósum um langa hríð. Neðar í Ártúnsbrekk- unni lúrir REBBI úti í kanti, eins og hann sé að bíða eftir einhverjum. Kannski MÝSLU? Hann blikkar þegar framhjá geysist kunnuglegt trýni: NEI HÆ. Gljáandi snarfari leggur í stæði á Laugaveginum, 26Y4U, enda ekki pláss á plötunni fyrir yfirlýsinguna: Ég er tvímælalaust of kynþokkafullur fyr- ir þig! Umferðartafir valda því að hann mætir ekki hreinum sveini, HR1SV1, sem var að koma úr smurningu. Ofar í götunni er verið að sekta GLANNA og kemur ekki á óvart, hann er hálfur uppi á gangstétt og heftir för ÖMMU sem er orðin of sein til AFA. Á Kringlumýrarbrautinni sönglar SMALI fyrir kafrjóða MAGGÝ, en heimildir herma ekki að þau þekkist náið. Annað gildir hins vegar um 1X2 sem krúsar um Skerjafjörðinn í leit að LUKKU. Og líkt og fyrir töfra samtímans rýkur LENNON fram úr sjálfum MOZART á þjóðvegi 51, en spyrnan hafði fram að því verið tvísýn. Und- arlegt samt að löggan taki aldrei eftir því þegar MAFÍAN fer af stað fyrir austan fjall, í skjóli nætur. Á Siglufirði er SÍLDIN komin og farin út eftir Hvanneyrarbrautinni, eins og gengur. Einhver PÚKI samt á kreiki, og mað- ur í grænum jakka leggur PARKET í stæði. Þá er upplit á mörgum þegar sjálft ÍSLAND tekur undir sig stökk til Færeyja, með Norrænu. Og alltaf jafn- skrýtið þegar ÞORRI þokast eftir af- leggjaranum að Hvammstanga, um miðjan júlí. En konan, sem varð fyrir DEJAVU á hringtorginu í Hveragerði, er hins vegar að hugsa um að taka sér far með UFO áður en ÓLI JÓ kemur aftur nið- ur Kambana. Einmitt. Svona geta nú bílstjórar landsins skemmt sér við að (mis)lesa umferðina – og oftúlka – líkt og hverja aðra ástarsögu eða ljóð. Þá má frá ýmsum hliðum íhuga þessa persónu- gervingu farartækja í samhengi við þá blindu trú, einkabílismann, sem sumir kalla svo. Allt er þetta hin skemmtilegasta af- þreying undir stýri – rétt þegar grá- móska haustsins leggst yfir og allt var um það bil að virðast merkingarlaust. Villi + Alma Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf. Nýlega mátti sjá hér í Sjónvarpinualveg ágæta danska þáttaröð,Málsvörn, eða Forsvar, semNordisk Film framleiddi fyrir hina hálfopinberu sjónvarpsstöð TV2. Einn aðalhöfunda þessa sjónvarpsefnis er Svein- björn okkar Baldvinsson og fór ómaklega lítið fyrir þeirri merkilegu staðreynd í íslenskum fjöl- miðlum. Bókaforlagið Vaka-Helgafell hefði áreiðanlega komið annarri eins frétt á útsíð- ur dagblaðanna ef höfundurinn hefði til að mynda gegnt nafni íslensks forstjóra í New York. Þetta minnir dálítið á árin undarlegu þeg- ar Jóhannes Eðvaldsson, knattspyrnumaður í Skotlandi, var nánast daglegt fréttaefni af hverju smávægilegu tilefni á íþróttasíðum íslenskra dagblaða, meðan Ásgeir Sig- urvinsson kom sér með hæglátri ástundun í fremstu röð knattspyrnumanna í Þýskalandi án þess að fregnaðist hér heima, fyrr en við stóðum allt í einu uppi með „óþekkta“ stór- stjörnu. En svona er þetta víst, yfirburða- kunnátta er lítils metin nema fjölmiðla- fulltrúar séu ráðnir til að smíða orðspor og halda því á lofti. Danska þáttaröðin var unnin af menntuð- um og reyndum fagmönnum á fullum, eðli- legum launum við bestu aðstæður. Það skýrir vitaskuld gæðin. Danir leggja mikinn metnað í að framleiða fyrsta flokks leikið sjónvarpsefni og hefur með því tekist að gera Svía græna af öfund, þó það hafi senni- lega ekki verið megintilgangur þeirra með því að efna til framleiðslu leikins sjónvarps- efnis. Nú orðið selja Danir sjónvarpsefni sitt út um allan heim, sem vekur grun um að gæði borgi sig sennilega. Sjónvarp allra landsmanna hefur nú boð- að framleiðslu á íslenskri leikinni þáttaröð um lögfræði og réttarfar, enda er drama- tískt efni af þessu tagi ákaflega vinsælt. Ég hef oft amast við gæfuleysinu og marg- víslegri fátæktinni sem snýr að framleiðslu leikins sjónvarpsefnis hér á landi og ætti þess vegna að kætast við þessi tíðindi. Ég get hins vegar ekki að því gert að þau gerðu mig ákaflega dapran og niðurdreginn. Á frumbýlisárum Sjónvarpsins var stundum á dagskrá þáttur laganema sem bar heitið Réttur er settur, og spannst utan um leikin málaferli. Var stundum bærileg skemmtun að uppátækinu, ekki síst vegna viðvaningsbragsins í leiktúlkun, leikstjórn og handritsgerð. Kom jafnvel fyrir að búkur minn skókst af óstöðvandi hlátri. Hin nýja þáttaröð ber heiti gömlu þátt- anna, þ.e. Réttur er settur, og mun vera samin og leikin af lögfræðinemum! Það á sumsé að endurvekja smánarlegt fúsk í gerð sjónvarpsefnis. Lögfræðingum er ýmislegt til lista lagt, bæði jákvætt og neikvætt, en það er ekkert annað en frekleg yfirtaka á atvinnu annarra starfsstétta sem hér á sér stað með undirboði. Ég gef mér það að Sjónvarpið ætli ekki að greiða handritshöfundum eða leikendum nein laun að marki, enda naumast hægt kinnroðalaust að greiða fyrir fúsk og kunnáttulaust fálm. Laganemar vita kannski ekki, þó Sjón- varpið eigi að vita það, en svo vill til að á þessu landi búa sérmenntaðir leikarar, sér- menntaðir leikstjórar, sérmenntaðir hand- ritshöfundar, allt fólk sem þjóðin hefur menntað með ærnum tilkostnaði, allt fólk sem sárlega skortir fleiri atvinnutækifæri, og stór hópur þess er aukinheldur fyrirtaks fagfólk. Ég bíð þess í ofvæni að Félag íslenskra leikara bjóði almenningi upp á ókeypis lög- fræðiaðstoð, að Félag leikstjóra á Íslandi bjóði Hæstarétti þjónustu félagsmanna sinna á mun lægri launum en lærðir lög- menn þiggja og mundi þá ugglaust linna karpi manna um hæfi. Ég bíð þess líka að Rithöfundasamband Íslands og Leikskálda- félag Íslands stofni lagadeild þar sem eng- inn þiggur laun fyrir kennsluna. Ó, gós- entíð! Það er vitaskuld ósæmilegt með öllu að Sjónvarp allra landsmanna skuli púkka und- ir fúsk af þessum toga eftir nærri 40 ára starf. Það er auk heldur siðferðislega óvið- unandi að laganemar skuli efna til ranginda af þessum toga gagnvart öðrum starfs- stéttum. Legg ég til að nafni þáttarað- arinnar verði breytt og hún nefnd Rangur er settur. Rangur er settur ’Hin nýja þáttaröð ber heiti gömlu þáttanna, þ.e. Rétt-ur er settur, og mun vera samin og leikin af lögfræði- nemum! Það á sumsé að endurvekja smánarlegt fúsk í gerð sjónvarpsefnis. ‘Fjölmiðlar eftir Árna Ibsen aibsen@internet.is OG SAGAN, ágætu hlustendur, hún er þessi, að einn virtasti rithöfundur þjóðarinnar hafi tekið sig til og skilað með handriti að nýjustu skáldsögu sinni skotheldri áætlun um markaðssetningu bókarinnar. Í svæsnustu gerð þessarar sögu kemur fram að markaðsáætlunin hafi verið töluvert lengri en skáldsagan sjálf og jafnvel ívið betur stíluð. Sagan segir að umrædd markaðsáætlun sé í nokkuð mörgum liðum, sumir segja 15 aðrir 30, þeir allra hörðustu á götum borgarinnar geta þulið upp liðina frá ein- um og uppí 20, menn fara með þetta eins og ljóðmæli. Sagan segir einnig að viðkomandi útgáfustjóri hafi tekist á loft þegar hann sá mark- aðsáætlunina og haft stærri orð um áætlunina en söguna. Höfundurinn á nokkrum dögum síðar að hafa spurt hvort útgáfustjórinn hefði ekki lesið söguna sjálfa, og þá á útgáfustjórinn að hafa sagt: jú ég las hana en það er markaðsáætlunin sem er alger- lega að gera daginn fyrir mig. Höfundurinn þykir hér hafa hitt naglann á höfuðið – í útgáfubransanum er talað um að markaðsáætlunin ein og sér ætti að duga til þess að halda nafni hans á lofti um ókomna tíð. Já þannig gerast kaupin á eyrinni, ágætu hlustendur, og það verður að segja það eins og er, að það eru ekki allir jafn sáttir og fyrrnefndur útgefandi sem tókst á loft þegar hann sá höfundinn koma með tvö handrit í einu. Þeir eru sannarlega fjölmargir sem finna þessu framtaki höfundarins allt til foráttu. Markaðsáætlanir þykja saurga skáldið, og menn spyrja: hvað á að segja um mann sem getur bæði skrifað skáldskap og hugsað um markaðinn á sama tíma? Skáld sem hefur vit á markaðnum, slíkur mað- ur getur ekki verið skáld, þetta brýtur í bága við hugmyndir fólks um skáldskapinn. En þeir sem halda því fram að þetta sé ótækt, og viðkomandi höfundur ekki annað en vinsældapoppari og athyglissjúklingur, sjá ekki fegurðina í þessu atviki, þegar höf- undur heldur af stað að morgni dags, með tvö handrit í leðurskjóðu: eina skáldsögu og eina markaðsáætlun. Þeir sem gagnrýna höfundinn – og hér er maður kominn á svolít- ið grátt svæði, því ekkert er hér í hendi, ekkert nema orðrómur, upphrópun hér, þus þar, og allt eru þetta staðlausir stafir – en sumsé þeir sem gagnrýna höfundinn átta sig ekki á því að svokallaðir tveggja heima menn eru án efa framtíðin, menn sem hafa ekki lokast inni í sínu fagi heldur hafa útsýni til annarra átta, eins og það er kallað. Eiríkur Guðmundsson www.bjartur.is Markaðsáætlun skálds Morgunblaðið/Ómar Við erum farin! I Eru til íslensk hugvísindi? Svarið við þessarispurningu virðist liggja í augum uppi. Auðvit- að eru til íslensk hugvísindi. Það eru þau hug- vísindi sem Íslendingar leggja stund á. En spurningin leynir kannski svolítið á sér. Í henni felst einnig spurningin hvort til séu íslensk hug- vísindi í þeim skilningi að þau hafi orðið til hér á landi, séu sprottin af íslensku hugmyndalífi, séríslensk á einhvern hátt. Eru með öðrum orðum til hugvísindi hér sem voru einhvern tímann hvergi annars staðar til? Íslenski skólinn kemur fyrst upp í hugann; sú kenning Sigurðar Nor- dals, Einars Ólafs Sveinssonar og fleiri frá fjórða áratug síðustu aldar að Íslendingasög- urnar séu höfundarverk. Það þarf hins vegar ekki að kafa langt ofan í þá kenningu til þess að sjá að hún er sprottin af evrópskri skáldskap- arfræði rómantíska tímabilsins. Og sennilega er alveg sama hvaða hugmynd íslenskra hugvís- indamanna við myndum nefna, hún hefur að öll- um líkindum orðið til í samræðu við erlenda hugsun ef hún er ekki beinlínis þýdd og stað- færð úr erlendu máli. II Gauti Kristmannsson þýðingafræðingurheldur því fram í viðtali í Lesbók í dag að þetta eigi við um flesta hluti. Ekki aðeins bók- menntir eru þýddar á íslensku af erlendum mál- um, listform og samfélagsstofnanir eru einnig þýddar, auglýsingar eru þýddar, lögin eru þýdd og þannig mætti áfram telja. Þetta gera þjóðir til að komast upp á sama stig og aðrar þjóðir, verða hámenningarþjóðir. „Að þýða er sam- stofna orðinu þjóð. Að þýða er að vissu leyti að þjóðgera, það er tilraun til þess að vera þjóð meðal þjóða,“ segir Gauti. III Þjóðir, tungumál þeirra og hugmyndalíf,þrífast því á öðrum þjóðum. Þó að hver þjóð eigi sín sérkenni þá eiga þær ansi mikið undir því komið að eiga í góðum og lifandi sam- ræðum við aðrar þjóðir. Í þeim tilgangi eru þýð- ingar nauðsynlegar. Hér á landi er þrátt fyrir allt ekki nægilega mikill skilningur á þessu. Oft og mörgum sinnum hefur verið bent á þá skammarlega litlu upphæð sem ríkið lætur renna til bókaþýðinga í landinu. Sjö milljónir eru eins og dropi í hafið þegar litið er til þeirra verkefna sem fyrir liggja. Og þá er ekki aðeins átt við allar þær erlendu bókmenntir sem við eigum ekki á íslenskri tungu, en þurfum svo nauðsynlega á að halda til þess að halda í okkur lífinu, heldur einnig þau endalausu verkefni sem fyrir liggja við að koma útlenskri fræði- hugsun á íslenska tungu. Ef eitthvað hrjáir ís- lensk hugvísindi nú um stundir er það óbæri- lega lítil snerting tungunnar við erlenda hugmyndastrauma. Eins og Gauti bendir á er fyrir vikið ekki til íslensk orðræða á mörgum sviðum. Við lærum um ýmsar hugmyndir á er- lendum málum, við skiljum þær en við getum ekki tjáð okkur um þær á íslensku vegna þess að það vantar texta. Hugsanlega séu til orð til að lýsa hugmyndunum en oft skorti sam- komulag um þau. Og það er ekki fyrr en orðin hafa verið notuð í fimm til tíu útgefnum textum að það verður til ákveðið samkomulag um að þau eru hluti af tungumálinu. Margt gott hefur verið unnið í þessum efnum á síðustu árum en það er líklega eitt af mest aðkallandi verkefnum fyrir hugmyndalíf íslenskumælandi fólks að huga betur að þýðingum. Neðanmáls

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.