Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Qupperneq 3

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Qupperneq 3
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004 | 3 E inangrun og smæð stóðu lengi í vegi fyrir því að hérlendis næðu að skjóta rótum og dafna straumar og stefnur í myndlist sem höfðu unnið land í gjörvallri Evrópu; en í upphafi 6. áratugar 20. aldar kom hópur íslenskra myndlistarmanna heim frá námi með ab- straktlistina í föggum sínum. Móttökur voru óblíðar og þótti mörgum sem landar þeirra hefðu elt uppi erlendar stefnur í ósjálfstæði sínu og áhrifagirni; enn verra þótti að snúa baki við rótgrónu og þjóðlegu landslagsmálverki, á þeim tíma sem „ekkert málverk var tekið gott og gilt nema það væri Þingvallamynd“. Hin óhlutbundna myndlist var ekki ein- ungis kúvending í íslenskri listasögu heldur var kominn í fyrsta sinn fram samstilltur hópur myndlistarmanna sem í listsköpun sinni sló í takt við það sem hæst bar í myndlist ytra. Því var von að m.a. hinir ís- lensku „sans-culottes“ frá Frakklandi sæju sig knúna til að slá skjaldborg um fagnaðarerindið, hina óhlutbundnu list, svo hún gæti skotið rótum. I. Segja má að Guðmunda finni vegvísi til óhlutbundinnar tján- ingar þegar hún uppgötvar ljóðræn abstraktverk Svavars Guðnasonar á tímamótasýningunni í Listamannaskálanum ár- ið 1945. Svavar var þá nýkominn frá Kaupmannahöfn eftir tíu ára dvöl og virtur myndlistarmaður í alþjóðlegum skilningi; þótt sú frægð mætti sín lítils hérlendis, að mati Guðmundu og annarra myndlistarmanna var sýningin sem „sprengja inn í okkar þrönga heim“. Finnur Jónsson (1892–1993) hafði verið enn fyrr á ferð, og hafði þegar 1925 haldið fyrstu abstraktsýn- inguna hérlendis, sýnt framsækin verk í anda konstrúktívisma og fútúrisma, sem mörkuðu þáttaskil í íslenskri listasögu en mættu aðkasti og skilningsleysi. Leið ekki á löngu að Guðmunda fylltist útþrá og lagði land undir fót ári eftir sýningu Svavars. Hún fór í Konstfack- skólann í Stokkhólmi en var samhliða í læri hjá listmálaranum Otte Sköld (1894–1958). Við heimkomuna frá Svíþjóð 1948 kenndi Guðmunda teikningu áður en hún hélt til Parísar árið 1951. Guðmunda hóf nám í hinum þekkta skóla Académie de la Grande Chaumière, en undi ekki vist sinni þar og fór í hina virtu Académie Ranson. Þar stóð abstraktlistin styrkum fót- um og kenndu þar margir þekktustu listamenn 5. og 6. ára- tugarins. París var á þessum tíma einnig höfuðborg geómetrí- unnar, konkretlistarinnar, og hafði sú liststefna djúpstæð áhrif á íslensku myndlistarmennina. II. Á septembersýningunni 1951 í Reykjavík sýndi Valtýr Pét- ursson eitt fyrsta konkretlistaverkið í íslenskri nútímalist og þótti ná ótrúlegu valdi á þeirri gerð þegar í upphafi. Guð- munda sýndi sín fyrstu geómetrísku verk á septembersýning- unni 1952, þá nýkomin frá París. Á þessu fyrsta eiginlega tímabili á listferli Guðmundu má greina hvernig hin geómetr- íska hugsun krafðist aðlögunar jafnvel hjá myndlistarmönn- unum framsæknu áður en taki á ytri veruleika væri sleppt, enn sterklega undir áhrifum frá kúbismanum. En um leið gef- ur þetta tóninn um það sem koma skyldi á listferli Guðmundu; hún dvelur á milli geómetrískrar myndhugsunar, notar hrein geómetrísk form, og ljóðrænni abstraksjónar, sem einkennast af sveiglínum sem skerast eins og sést í olíumálverki eftir hana frá 1952. Guðmunda notar á næstu árum stranga geómetríu, að- greind og fá form. Litanotkun einkennist af heitum litum, rauðum og gulum, og eykur þannig áhrif flatarverkunar og tvívíðrar myndbyggingar. Hinir hreinu, stingandi heitu litir lagðir á sléttir hjá Guðmundu minna á formbyggingu Serge Poliakoffs (1906–1969), sem þróaði mjög persónulegan stíl, með sléttum, einföldum og hreinum flötum sem skarast. Í verki Guðmundu Komposition, frá árinu 1955, er formskipan hins vegar lokaðri og miðlægari, hér skarast oddhvöss óreglu- legri form, einkum þrístrendingar, svo úr verður lagskipting lita og forma; myndbyggingin er þeim mun flóknari því lit- urinn og formin hafa tvíþætt gildi, sem rými og flötur; annars vegar eru formin aðgreind með skýrum útlínum og hins vegar myndar liturinn hér sjálfstætt form innan þess, með gulum, svörtum og grátónuðum litum á dökkbláum myndfleti. Guðmunda sýndi verk sín á Vorsýningunni í Reykjavík árið 1953, þegar mest bar á geómetríunni. Þrátt fyrir andúð margra náði geómetrían fótfestu og mátti einkum þakka það samstöðu listamannanna og harðra málsvara, rithöfunda og annarra listvelunnara, að hún varð boðberi módernismans fram eftir sjötta áratugnum. III. Eftir hið geómetríska tímabil Guðmundu tekur við annað tímabil árið 1956 og má segja að þar hefjist úrvinnsla á þeim margbrotnu hughrifum sem hún varð fyrir í París. Hún hverf- ur þá frá geómetrískri myndbyggingu yfir í nokkurs konar grindverk sem samanstendur af þéttriðnu neti. Hárfínar ská- línur, blýantslínur, liggja samhliða þvert yfir myndflötinn, skerast og rofna á milli tveggja punkta, og mynda misgleiða þríhyrninga. Með sparlegri notkun ljósra lita næst fram ljós- tíra innan um dekkri liti. Belgíski listmálarinn Gustave Singier (1909–1984) var aðal- kennari Guðmundu í Ranson-akademíunni í París og hafði mikil áhrif á listhugsun hennar. Auk Singier tilheyrði svoköll- uðum Parísarskóla annar kennari við Ranson og áhrifavaldur í list Guðmundu, Alfred Manessier (1911–1993), nemandi hins þekkta listmálara Roger Bissière (1888–1964). Þéttriðna netið sem Guðmunda dregur fram reglulega á ferli sínum til endur- skoðunar má því að hluta rekja til áhuga þessara listamanna, þá sérílagi kennara hennar Singier, á steinglerslist miðalda, þegar gegnlitaðar eða málaðar glerflísar voru greyptar í blý- bönd. Í verki Guðmundu, Komposition, 1959, birtist sterk efn- iskennd sem minnir á blýbönd og glerflísar steinglerslist- arinnar. Hinn blái litur ýtir undir trúarleg hughrif í anda steindra glugga, einkum með ljóstíru frá gula litnum og þeim rauða. Hér koma frumlitir fram sem fyrr en svartir þrístrend- ingar auka á efniskennd verksins og örlar á leik ljóss og skugga. Í vatnslitamyndum Guðmundu sem byggjast á sömu myndskipan með þéttriðnu neti kemur fram öllu meiri létt- leiki, frjálslegri form og líflegri litanotkun. Ekkert bendir þó til þess að um trúarlega skírskotun sé að ræða í þessum verk- um Guðmundu, hvorki í litanotkun né í titlum verka hennar sem sjaldnast eru hlutstæðir eða frásagnarlegs eðlis eins og hjá fyrrnefndum abstraktmálurum. Guðmunda takmarkar litaspjaldið heldur ekki við hreina frumliti, harðlínuliti geó- metríunnar sem henni eru þó ávallt kærir, heldur verður mun ljóðrænni í litanotkun; notar einnig hlutlausa liti, gráa, hvíta, og svo dekkri tregafyllri liti, brúna og svarta liti. Ef til vill mætti segja að litanotkunin verði náttúrutengdari í verkum Guðmundu, að sjá megi hér birtu og jarðliti á meðan þeir gætu allt eins vísað einvörðungu í sjálfa sig. Ljóðrænna form abstraktlistarinnar sem einkenndi Ranson-skólann virðist henta Guðmundu mun betur en hrein geómetría; hún leyfir sér meiri djörfung í átt að persónulegri list sem þó er beisluð með geómetrískum formum. IV. Það er eins og grunnt sé á því að kvikni líf í hinu sjálf- sprottna, einkum á tímabilinu 1962–1967, þegar andstæður hins lífræna og hins reglubundna takast á á myndfletinum. Á þessu lítt þekkta en markverða tímabili í list Guðmundu má sjá ólíka myndhugsun sem tilbrigði við svipaða myndbygg- ingu. Þetta ferli hefst snemma, því vatnslitamyndir frá um 1960–1962 sýna að Guðmunda hefur verið farin að velta hring- forminu fyrir sér, sem hún tekur svo upp til frekari úrvinnslu undir lok áratugarins. Hringformið í verkum Guðmundu verð- ur óljósara, tekur á sig lífrænni, organískari mynd, verður ljóðrænt: dökkir litir smeygja sér inn á miðlægan myndflöt- inn, líkt og þyngd efri myndflatar láti undan þunga þeirra. Þessi umbreyting og hreyfing er undirstrikuð með sveiglínum niður á neðri myndflöt og undir frumuformið. Freistandi er að tengja þessi verk Guðmundu formleysu (art informel) í anda Wols (1913–1951) og Jean Fautrier (1898–1964), og enn ljósari merki um sjálfsprottnari list sé að finna í vatnslitamyndum hennar frá þessu tímabili. Á næsta stigi hverfur sporöskjulaga frumuformið úr miðju myndflatar sem og tvískipti myndflöturinn. Guðmunda ýtir einráðum brúnum lit yfir í efri og neðri mörk myndflatarins, notar sparlega bláan og rauðan lit og örlítinn gulan lit, sem ljós í myrkri. Þéttriðna netið birtist í stað hringformsins, und- ir þunnu hvítu lagi í miðlægum myndfleti, og fær enn meira vægi. Í verkum í lok þessa myndskeiðs takmarkar Guðmunda ennfremur litanotkun, notar einungis tvo liti, hvítan og svart- an, eða þrjá liti sem umgjörð um ljósan miðlægan myndflöt- inn. V. Guðmunda hverfur frá netbyggingunni yfir í annað rannsókn- arferli, á formi, hreyfingu og litum um 1969. Hún leitar að sterkari formum vel afmörkuðum sem „gripu með sér litinn“. Þannig verður hringformið, hreyfigildi þess, flatarkennd og rýmisverkun á myndfleti að grunnstefi rannsóknarferlis næstu þrjá áratugi. Vísun í tónlistina í verkum Guðmundu er augljós og má að hluta rekja til rannsókna Robert Delaunay (1885–1941) og František Kupka (1871–1957), litanotkun Guð- mundu virðist þó oftlega vera hugsuð með hreyfigildi hring- formsins í huga, til að auka eða draga úr því, fremur en um litfræði, innri veruleika og samband lita. Sem fyrr má greina tilhneigingu til sjálfsprottnari listar á stundum sem nær þó aldrei að raska jafnvæginu á myndfletinum. Í Átrúnaði frá árinu 1971 byggir Guðmunda á tvískipta myndfletinum aftur og byggir á láréttri myndskipan. Láréttar línur liggja samhliða þverar og endilangar yfir myndflötinn: þær mynda nokkurs konar stöðug misbreið nótnastrik. Til að hleypa hreyfingu í hringformið og hraða, sjálfan útgangs- punktinn í rannsóknarferlinu, notar Guðmunda boga og sveig- línur undir og yfir kyrrstæðu hringformi til að magna upp kraftinn og hreyfigildið: grannar línur tengja einnig hring- formin innbyrðis og við bakgrunninn, ganga frá hringunum niður á ljóslitan neðri myndflöt. Guðmunda brýtur þá reglu að hringformið sé lokað í sjálfu sér, það elur af sér aðra hringi, afmarkaða með skýrum útlínum; leiðarstefið verður einnig spíralformið, líkt og gárur á vatni sem ganga út frá þeim punkti sem finna má í miðju hringformsins. Hreinir frumlitir, gulur, rauður og blár, auka á fjörleika hringformanna sem dansa upp eftir myndfletinum, líkt og ærslafullar nótur sem tónstiginn reynir að beisla. Í verkinu Húm, 1976, er hringformið stakt og aðgreint, hef- ur öðlast meira rými en er orðið kyrrstætt. Bylgjuform, sveigðar línur líkt og umritun hljóðfalls hlykkjast um mynd- flötinn á meðan hringformið fær flatarverkun; hreyfingin fær- ist þess í stað inn í hringinn. Vísun í tónlist og hrynjandi er einna augljósust hjá Guðmundu á Septem-sýningunni árið 1978 í titlum verka sinna: Tilbrigði, Trio, Koncert, Fuga, Bolero, Sonnetta og Andante. VI. Það var fyrst með yfirlitssýningu á verkum Guðmundu á Kjarvalsstöðum árið 1990, þegar færi gafst á að líta stóran hluta listferils hennar, að í ljós kom hversu þróunin var sam- felld, þar sem á takast grunnstef og endurtekningar sem hluti af heilsteyptu verki. Yfirlitssýningin gaf henni byr undir báða vængi því ári síðar virðist hún, þá komin á áttræðisaldur, taka aðra stefnu en þegar betur er að gáð er þetta tilbrigði við kunnuglegt grunnstef hjá Guðmundu sem hún útfærir hér til ársins 1998; hún lýkur hér vangaveltum um þróun og einföld- un þéttriðna netsins sem hún hóf fjórum áratugum áður. Segja má að þessi drápa Guðmundu, sem einkennist af stefi og endurtekningum með reglulegu millibili, sjáist einnig skýrt þegar bornar eru saman vatnslitamynd eftir hana frá 1962 og olíukrítarteikning frá 2001, þar sem í báðum tilfellum hlykkj- ast bylgjuform yfir stakt hringform. Guðmunda útfærir og einfaldar myndmálið til hins ýtrasta og vakti myndmálið í of- ureinföldun sinni furðu margra, minnti mun meira á verk yngri listamanna í ætt við konseptlist en hjá fulltíða myndlist- armanni sem var að ljúka listferli sínum: hin knöppu form líktust myndleturstáknum af sjálfum frumefnunum, hring- formið sem jörð og bylgjuformið vatn. Hringur sem sól og tungl, upphaf og endir. VII. Líta má á listferil Guðmundu Andrésdóttur sem langt rann- sóknarferli, þar sem formræn stef eru tekin upp með reglu- legu millibili, í nokkuð vel aðgreindum tímabilum; þannig hverfur Guðmunda frá geómetríu yfir í ljóðrænni abstraktlist, einfaldar og þróar hið þéttriðna net og hefur síðan rannsókn- arferli á hringforminu, hreyfigildi þess og kyrrstöðu. Guð- munda margvinnur viðfangsefnið, form, liti og hreyfingu og nálgast verkin jafnan upp á nýtt síðar á ferlinum. Fjölmargar hugleiðingar vakna í kjölfar rýni í listferil Guðmundu sem í raun vekur fleiri spurningar en svarað verður, opnar fleiri gáttir og hvetur til margþættari túlkunar á verkum hennar. Þannig má til að mynda í síðustu verkum Guðmundu greina vissa leit handan við viðfangsefnið, að vissum kjarna. Felst í verkunum annað og meira en einungis rökhugsun abstrakt- listarinnar sem aðeins vísar í sjálfa sig? Merkur listferill Guðmundu og ekki síst sá styrkur sem fram kemur síðustu æviárin í listsköpun hennar sýna með óyggjandi hætti að lokaverkin virðast, líkt og hringformið, allt eins vera endir á löngu ferli og upphafið á öðrum. Tónauga Litbrigði við stef nefnist yfirlitssýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur sem opnuð verður í Listasafni Íslands í dag. Listferill Guðmundu var merkilegur og líktist kannski einna helst löngu rannsóknarferli þar sem form og hugmyndir voru til umfjöllunar. Eftir Hönnu Guðlaugu Guðmundsdóttur hanna. bertrand@isl.is Átrúnaður / Belief Verk eftir Guðmundu á sýningunni frá 1971 (Olía / Oil, 110 x 120, LÍ 1605). Höfundur er listfræðingur. Á sýningu um forvörslu í Listasafni Íslands sem stendur dagana 25. september til 31. október nk. verður brugðið upp nokkrum þáttum þeirrar vinnu sem unnin er á forvörsludeild safnsins. Sýningin lýt- ur að helstu þáttum um varðveislu, þ.e. viðgerðum listaverka, fyrirbyggjandi forvörslu og geymslu þess listræna arfs sem safninu er skylt að varðveita. Einng verður gerð grein fyrir nokkrum rannsóknum sem unnar hafa verið á vegum forvörsludeildar Listasafns Íslands vegna fölsunarmálsins svokallaða og sýnd dæmi um fölsuð málverk og aðferðir við föls- un þeirra. Meðal verka á sýningunni eru tvö málverk sem bárust til landsins með baróninum á Hvítárvöllum ár- ið 1898; Arion and The Dolphin (Arion og höfrung- urinn) og Orpheus Taming the Animals (Orfeus tem- ur dýrin). Verkin eru talin vera frá Flórens á Ítalíu en ekki hefur fengist óyggjandi svar um hver höf- undur þeirra er. Einar Benediktsson skáld eignaðist þessi verk eftir daga barónsins og komust þau í eigu Listasafns Íslands árið 1934 eftir hrakninga í Lond- on. Annað verkanna er fullviðgert og forvarið á sýn- ingunni, en hitt verkið er einungis forvarið. Sýning um forvörslu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.