Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Side 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004 | 11 Uppreisn, óeirðir og spillinginað baki þess er ríkið Kenýa var stofnað er bakgrunnur sög- unnar The In- Between World of Vikram Lall eftir M.G. Vass- anji. Athyglinni er þar beint að sögu Kenýa, jafnt á nýlendu- tímunum, sem og árunum sem á eftir fylgdu og loks þeirri eigin- legu nýlendustefnu sem í raun er enn í gildi. Sagan segir frá Vikrams Lall og fjölskyldu hans, en afi hans, sem er indverskur, sest að í landinu eftir að hafa komið þang- að með hópi indverskra verka- manna. Saga landsins er svo rakin áfram í gegn um afkomendur hans og setja fólksflutningar, innflytj- endur og kynþáttafordómar sterk- an svip á frásögnina. Að sögn gagn- rýnanda Guardian býr bókin yfir stillingu og mörgum öðrum kostum sem að hans mati ættu að prýða þær bækur sem fjalla um eftirmál nýlendustefnu breska heimsveldis- ins, enda segir hann Vassanji forð- ast rósrauða fortíðarsýn og nost- algíu.    Frumraun norska höfundarinsKnut Arnjlot Braa, Delete, er einkar vel heppnuð að mati danska dagblaðsins Berlingske Tidende. Delete byggist að hluta á veru höf- undarins sjálfs í hernum, en í skrif- um sínum nær hann að draga upp einskonar portrett af hörmungum stríðs. Söguþráðurinn er líka að sögn blaðsins einkar taugatrekkj- andi og heldur Braa lesandanum föstum í blóðugum raunveruleika Miðausturlanda, þar sem skilin milli skáldskapar og veruleika verða oft óljós.    Árásirnar á World Trade Centerí New York 11. september 2001 og áhrif þeirra á bandarískt lýðræði er við- fangsefni Corn- els Wests, pró- fessors í trúar- fræðum við Princeton-há- skóla, í nýjustu bók hans, Demo- cracy Matters: Winning the Fight Against Imperialism, eða Lýðræði skiptir máli: Að sigra í baráttunni gegn heimsvaldastefn- unni. Þar leitast West við að vega og meta bandarískt lýðræði og draga á sama tíma fram sagnfræði- legu tækifærin sem því fylgja. Kristin trú setur að sögn gagnrýn- anda New York Times töluverðan svip á skrif Wests, sem hvetur al- menna borgara til að hætta að beita sig sjálfsbekkingunum og horfast þess í stað í augu við núver- andi aðstæður og möguleikana sem í þeim felast með því að verða virk- ari í gagnrýni sinni á samtímann.    Tengsl Tony Blairs, forsætisráð-herra Breta, við stjórnvöld í Washington verða James Naughtie að umfjöllunarefni í nýjustu bók hans, Accidental American, eða Óvænti Bandaríkjamaðurinn eins og heiti hennar gæti útlagst á ís- lensku. Bókin er ekki ævisaga Blairs heldur er athyglinni ein- göngu beint að samskiptum for- sætisráðherrans við George W. Bush Bandaríkjaforseta og sér- staklega Íraksmálinu svo nefnda. Naughtie er þekktur í Bretlandi fyrir fréttaskýringarþætti í sjón- varpi auk þess að hafa á árum áður starfað sem blaðamaður. Bókin er að mati Guardian vel lestrarins virði og uppfull af áhugaverðum sögum, enda segir gagnrýnandi blaðsins Naughtie hafa augljóslega unnið heimavinnu sína í skrifum sem leitast við að varpa ljósi á stöð- ugan stuðning Blairs við áætlanir Bandaríkjastjórnar þrátt fyrir and- stöðu eigin kjósenda oft á tíðum. Erlendar bækur Cornel West M.G. Vassanji É g veit ekki hvað ég á að halda,“ segir Elizabeth Costello, aðal- persónan í nýjustu skáldsögu Nóbelsskáldsins suðurafríska, J.M. Coetzee, á einum stað. Þarna er í hnotskurn vandinn sem Costello stendur frammi fyrir þegar ævi- kvöldið nálgast. Ekki svo að skilja, Costello hefur alveg nóg af skoðunum og er óspör á þær. En það sem hún er farin að finna að hana skorti er eigin- leg sannfæring. Hver er nákvæmlega munurinn á skoðun og sannfæringu? Kannski má segja að hann sé sá, að maður getur tiltölulega auðveldlega skipt um skoðun, en manni finnst einhvernvegin eins og sannfæring hljóti að vera eitthvað djúpstæðara en svo að því verði skipt út með lítilli fyrirhöfn. Sannfæring er eiginlega eins og hugmynd sem maður hefur og getur ekki ímyndað sér að kunni að vera röng. Skoðun, aftur á móti – maður er alltaf meðvitaður um að skoðan- ir manns eru breytilegar (jafnvel frá degi til dags) og ráðast af breyttum aðstæðum, nýjum upplýs- ingum og nýjum rökum. Sannfæring er aftur á móti meira eins og grundvöllur skilnings manns og skoðana. Elizabeth Costello er heimsþekktur, ástralskur rithöfundur sem er orðin 66 ára þegar sagan hefst og er aðallega í því að fara heimshorna á milli á ráðstefnur og til fyrirlestrahalds. Það er eitthvað minna orðið sem hún er að skrifa skáldskap. Þeg- ar hún var ung sló hún í gegn með skáldsögunni Húsið við Ecclesstræti, og það pirrar hana að all- ar götur síðan hefur hún verið kynnt sem höfund- ur Hússins við Ecclesstræti. Hún er pirruð á fleiru. Í upphafi bókar er hún stödd í litlum há- skólabæ í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum til að taka við frægum verðlaunum. Með henni í för er sonur hennar, sem er eðlisfræðingur en virðist líka gegna hlutverki skósveins hinnar frægu og miklu skáldkonu (og um leið lesandans). Hann hefur líka með höndum eins konar þjálfarahlut- verk. „Hann ímyndar sér að hún sé selur, gamall og þreyttur sirkusselur. Enn eina ferðina verður hún að lyfta sér upp úr kerinu, sýna einu sinni enn að hún geti haldið boltanum á nefinu. Hans hlut- verk er að fá hana til þess, telja í hana kjark, ýta henni í gegnum leikþáttinn.“ Elizabeth Costello er líklega ein af þessum skáldsögum sem aldrei hefðu fengist gefnar út, og því síður komist í sölu um allan heim, nema af því að höfundurinn er heimsfrægur fyrir og hefur fengið Nóbelinn. Það er ekki spennandi þráður í bókinni, þótt hún sé samt merkilega grípandi, heldur er þarna fléttað saman hugmyndum og vangaveltum um þær, eins og til dæmis um hlut- verk skáldsagnahöfunda, réttindi dýra, grænmet- isætur, ást, sannfæringu. Kaflarnir kallast lexíur og virðast vera byggðir á áður birtum skrifum Coetzees, sem hér hafa þá væntanlega verið færð í skáldsögubúning. Það er ekki gott að átta sig á hvort aðalsöguhetjan, hún Elizabeth, á eitthvað skylt með Coetzee, þótt hann muni reyndar vera einbeitt grænmetisæta og mjög umhugað um rétt- indi dýra, líkt og Elizabeth er í sögunni. Vonandi á Coetzee þó ekki í sömu kröggum og Elizabeth með rithöfundarhlutskipti sitt. Því að Elizabeth lendir á endanum í alvarlegri sálarkreppu vegna þess að hún kemst ekki undan þeirri hugsun að hún þarfnist þess að vera sannfærð um eitthvað til að fylla tómið í sálinni sem hún er farin að finna alvarlega fyrir. En um leið kemst hún ekki heldur undan þeirri hugsun að það að vera rithöfundur feli einmitt í sér að hafa enga endanlega sannfær- ingu heldur að vera opin fyrir öllum hugmyndum, geta tjáð allar hugmyndir. „Starf mitt er að skrifa, ekki að vera sannfærð,“ segir hún þegar mikið liggur við. Hún er meira að segja ekki alveg einlæg og sönn í rithöfundarhlutverkinu. Það er nefnilega, þegar nánar er að gáð, hlutverk sem hún, Eliza- beth Costello, leikur. Lesandinn áttar sig á þessu með hjálp sonar hennar, skósveinsins, sem veit allt um konuna á bak við rithöfundinn. (Man til dæmis eftir því þegar hann og systir hans voru lít- il og móðir þeirra var á æstum hlaupum um íbúð- ina að reyna að flýja undan börnunum sínum sem eins og börnum er eðlilegt kröfðust óskiptrar at- hygli hennar en hún var allsendis ófær um að veita þeim, enda kunni hún sig ekki í móðurhlut- verkinu fremur en öðrum hlutverkum, og öskraði bara á börnin sín: Þið eruð að drepa mig! – En svona er jú hið nöturlega hlutskipti afkvæma sjálfhverfra stórmenna.) Hún fer meira að segja í sérstakan búning: „Klukkan hálf sjö bankar hann á dyrnar hjá henni. Hún er reiðubúin, bíður, full efasemda en tilbúin að mæta andstæðingnum. Hún er í bláa búningnum sínum og silkijakka, kvenrithöfundareinkennisbúningnum, og hvítum skóm sem alls ekkert er athugavert við en gera samt einhvernveginn að verkum að hún lítur út eins og Andrésína önd […] Blái búningurinn, fit- ugt hárið, smáatriðin, þetta eru merki um hófsamt raunsæi.“ Þeir sem sjá Elizabeth Costello utanfrá – bókmenntafræðingarnir og fjölmiðlafólkið sem tekur viðtöl við hana – sjá „hinn mikla rithöfund“ og hefja hann á stall. En þeir sem sjá á bak við þennan rithöfund (sonur Elizabethar, sem og les- andi bókarinnar) vita að kvenrithöfundarein- kennisbúningurinn er bara ein útgáfan af nýju fötunum keisarans. Það sem eftir er af bókinni snýst eiginlega um það að sýna fram á að þrátt fyrir að Elizabeth geti betur en aðrir komið orð- um að gáfulegum og háleitum hugmyndum er hún þegar allt kemur til alls vitsmunalega nakin vegna þess að þótt hún geti – eins og rithöfundi sæmir – orðað þessar hugmyndir þá veit hún í rauninni ekki hvað það er að finnast að einhver hugmynd sé óhjákvæmilega rétt. „Rithöfundurinn mikli“ er hlutverk sem Eliza- beth Costello kann út í hörgul, en finnur sig ekki lengur í. Í fyrstu lexíunni tekur hún upp á því í fjölmiðlaviðtölum að bregða út af hefðbundnum svörum við hefðbundnum spurningum. Hún er að leita á ný mið. Í lexíunum sem á eftir fylgja kemur örvænting hennar smám saman betur í ljós – þrá hennar eftir einhverju sem ekki er hlutverk held- ur sannfæring. Hún hafnar hinu augljósa svari, sem er að hið eiginlega hlutskipti sannfærðs rit- höfundar sé einmitt þessi örvæntingarfulli efi og leit að sannfæringu – að sannir rithöfundar séu þeir sem taka að sér fyrir okkur hin að efast og leita í örvæntingu að sannleikanum, til að við get- um á meðan dundað okkur áhyggjulaus í gegnum lífið. Svona svolítið eins og Jesús tók að sér að bera syndir okkar til að við gætum notið lífsins. Í annarri lexíu bókarinnar hittir Elizabeth afrískan rithöfund sem heitir því hljómmikla nafni Emm- anuel Egudu og er alveg laus við upphafnar hug- myndir um göfugt en svo óskaplega þungbært hlutskipti „rithöfundarins mikla“ og nýtur í stað- inn lífsins. Elizabeth hneykslast á honum og reyn- ir að vera sannfærð um að hann sé lítilmótlegur, en hvorki hún né lesandinn geta horft framhjá því að hún er bara bitur og öfundsjúk út í hann, og rifjar upp með söknuði þegar hún var ung og eyddi þrem nóttum í röð með Emmanuel Egudu í Kuala Lumpur. Í lexíum fjögur og fimm hriktir alvarlega í stoð- um enn einnar afstöðunnar sem Elizabeth hefur tekið í lífinu: Að dýr hafi réttindi og það sé rangt að drepa þau. Í samræmi við þetta er Elizabeth grænmetisæta, en viðurkennir sjálf að hún gangi í leðurskóm og með tösku úr leðri, og getur þannig borið af sér ásakanir um siðferðilegan sjálfbirg- ingshátt. Í þessum lexíum lendir Elizabeth í erfið- um rökræðum við gestgjafa sína og þarf eiginlega að verja og útskýra af hverju hún er grænmetis- æta og telur rangt að drepa dýr. Sú sem þjarmar harðast að henni er tengdadóttir hennar, heim- spekingurinn Norma, sem aldrei hefur þolað tengdamömmu og lætur hana því hafa það óþveg- ið. Gagnrýni Normu er hvað beittust þegar hún spyr tengdamóður sína hvort þeir sem einungis borða grænmeti og hafna kjöti séu ekki með því í rauninni einfaldlega að skilgreina sig sem úrvals- hóp: „Við erum fólkið sem neitar sér um A eða B eða C, og með valdinu sem fylgir þessari afneitun sýnum við fram á æðri stöðu okkar: að við tilheyr- um æðri stétt, til dæmis í þjóðfélaginu. Eins og brahmanirnir.“ Þessi rökræða endar með uppgjöf Elizabethar, eins og vitnað var til hér í byrjun: „Ég veit ekki hvað ég á að halda.“ Nokkru seinna útskýrir Norma fyrir syni Elizabethar (og þar með lesandanum) hvers vegna Elizabeth er að þrotum komin. Afstaða Elizabethar, segir Norma, endar óhjákvæmilega í algerri vitsmunalegri löm- un: Þessi afstaða kalli á að maður beri virðingu fyrir heimsmynd allra. „Heimsmynd kýrinnar, heimsmynd íkornans og svo framvegis […] Maður eyðir svo miklum kröftum í að bera virðingu að maður á enga orku afgangs til að geta hugsað.“ Þessi útskýring Normu hefur stundum verið orð- uð sem svo, að ef hugur manns sé of opinn geti heilinn dottið úr manni. En vitsmunalömun Elizabethar er ekki alger, og svo fer að hún les bók sem ofbýður henni og hún getur ekki borið virðingu fyrir. Svo að hún rís upp á afturlappirnar (á bókmenntaráðstefnu í Amsterdam) og segir höstug: Skamm! Þetta má ekki! En þetta fer einhvernveginn allt í handa- skolum hjá henni; svo óheppilega vill til að höf- undur bókarinnar sem hún veitist að er sjálfur á ráðstefnunni þannig að þetta lítur helst út fyrir að ver persónuleg árás á hann, og framsetningin hjá henni er klaufaleg og ekki verður betur séð en hún sé að reyna að réttlæta ritskoðun. Sjálfur kvenréttindarithöfundurinn að mæla með þöggun. Henni er þó vorkunn. Hingað til hefur hún aldrei haft neina eiginlega sannfæringu og veit þar af leiðandi ekki að þetta er einmitt verkurinn við að hafa slíka: Það mun óhjákvæmilega einhver sjá sannfæringu manns eins og örgustu fordóma. Það er mikil vinna að hafa sannfæringu og standa á henni hvað sem tautar og raular. Þess vegna er auðvitað auðveldara að skjóta sér á bak við rithöf- undarhlutverkið og segja að sem rithöfundur starfi maður við að skrifa en ekki við að vera sann- færður um eitt eða neitt. Nýju fötin rithöfundarins Skáldsaga nóbelshafans J.M. Coetzee, Elizabeth Costello (2003), fjallar um virtan kvenrithöfund sem er hættur að vita hvað hann á að halda um hlutina. Að endingu kemst Elizabeth að því að sannfæring manns getur verið skilin sem helber- ir fordómar. Eftir Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is Reuters Elizabeth Costello „Er líklega ein af þessum skáldsögum sem aldrei hefðu fengist gefnar út, og því síður komist í sölu um allan heim, nema af því að höfundurinn er heimsfrægur fyrir að hafa fengið Nóbelinn.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.