Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Page 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004 U ndanfarið hefur verkefnaval og stefna Sinfóníuhljómsveitar Íslands verið til umræðu á síðum Morgunblaðsins sbr. skrif Bergþóru Jónsdóttur 10. september, grein Jónasar Sen í Lesbókinni 11. og viðtöl við ýmsa 15. s.m. og síðast en ekki síst Reykjavíkurbréf sem birtist hinn 19. Það er vel að slík umræða fari fram; hún sýnir að mörgum er annt um hljómsveitina og stendur ekki á sama um hvernig hún sinnir hlutverki sínu. Efling Sinfóníuhljómsveitarinnar Allir sem fylgst hafa með starfi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar hljóta að vera sammála um að hún hefur eflst í hvívetna á undanförnum einum til tveimur áratugum, þann- ig að nú er hægt að bera hana saman við rótgrón- ar sinfóníuhljómsveitir í grannlöndum okkar. Í raun er það kraftaverki líkast að unnt sé að halda uppi slíku listrænu starfi í jafn fámennu samfélagi og því íslenska. Árangurinn er fyrst og fremst að þakka hljóðfæraleikurum og hljómsveitarstjórum sveitarinnar en jafnframt því að þeir sem að rekstri hennar standa, ríkið, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið og Seltjarnar- nesbær, hafa búið henni mun betri starfsskil- yrði en áður var. Þannig var unnt að fjölga hljóðfæraleikurum, bæta kjör þeirra og nú síð- ast var þungum bagga lífeyrisskuldbindinga létt af hljómsveitinni. Hér hefur hljómsveitin notið dugnaðar framkvæmdastjóra síns við að afla stuðnings meðal ráðamanna. Það er þó sí- felld ögrun að reka menningarstofnun eins og sinfóníuhljómsveit og sjá til þess að reksturinn standi í járnum. Ekki má mikið út af bera svo að í óefni stefni. Þeir sem gagnrýna listræna stefnu hljómsveitarinnar verða að hafa í huga að fjármunir setja nýmælum skorður. Til hvers rekum við Sinfóníuhljómsveit? Þessari spurningu er svarað á hnitmiðaðan hátt í lögum um hljómsveitina: „Starf Sinfóníu- hljómsveitarinnar [skal miða] að því að auðga tónmenningu Íslendinga, efla áhuga og þekk- ingu á æðri tónlist og gefa landsmönnum kost á að njóta hennar …“ Hér er notað orð sem tíð- rætt er um í fyrrgreindum skrifum, orðið „menning“. Fóstra Steins Steinars sagði það vera rímorð sem þeir fyrir sunnan notuðu til að ríma á móti þrenningunni. Heimspekingurinn Páll Skúlason segir menningu vera allt sem mannar mennina, en öndverðan, ómenning, það sem skemmir þá. Í meginatriðum er auðvelt að skilgreina hvað er menningarlegt efni fyrir sin- fóníuhljómsveit m.a. vegna þess að það er ekki á færi viðvaninga að semja tónlist fyrir slíkan hóp. Og þegar til lengdar lætur er samhljómur um það hvað sé bitastætt í þeirri tónlist. Í ljósi þessa liggur beinast við að Sinfóníu- hljómsveitin einbeiti sér að flutningi þeirra sin- fónísku verka sem almennt hafa hlotið viður- kenningu sem meistaraverk. Þetta sjónarmið kann að flokkast undir það „að [Sinfóníuhljóm- sveitin] legg[i] æ meira upp úr því að hafa sígild verk sem flestir þekkja á efnisskránni …“ eins og Jónas Sen fullyrðir. Slík verk ber þó að flytja æ ofan í æ, þó ekki væri nema vegna þess að nýjar kynslóðir vaxa úr grasi. Þannig er það á ábyrgð þessarar einu atvinnuhljómsveitar landsins að ekkert ungmenni fari frá bernsku til fulls þroska án þess að eiga þess kost að heyra í lifandi flutningi öndvegistónverk vestrænnar menningar eins og t.d. hetjusinfóníu Beethov- ens. Þáttur íslenskrar tónlistar Í lögum um hljómsveitina segir: „Sérstaka áherslu ber að leggja á flutning og kynningu ís- lenskrar tónlistar, utan lands sem innan, ef til- efni gefast.“ Í fyrrgreindum skrifum er stað- hæft að hlutur íslenskrar tónlistar í tónleika- skrá hljómsveitarinnar hafi farið rýrnandi. „Færri og færri íslensk hljómsveitarverk eru að verða til,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands, og bætir við „[að] þátttaka Sinfóníuhljómsveitar Íslands [hafi] mjög afgerandi áhrif á tilurð slíkra verka“. En kannski er minna um að stór hljómsveitarverk séu flutt vegna þess að færri séu skrifuð. Gagn- rýna má að Sinfóníuhljómsveitin hefur ekki oft haft frumkvæði að samningu verka, heldur frekar látið það ráðast hvað íslensk tónskáld hafa haft fram að færa hverju sinni. Því hefur verið óskað eftir fjárveitingu til þess að geta ráðið tónskáld tímabundið og semja fyrir hljóm- sveitina, eins og heimilt er lögum samkvæmt. Vonir standa nú til bragarbótar í þeim efnum. Stjórn hljómsveitarinnar hefur látið gera yfirlit um hlut íslenskra verka og kemur þá í ljós að flutt hafa verið 8–9 íslensk verk á hverj- um vetri á almennum tónleikum sveitarinnar en á komandi vetri verða þau ívið fleiri eða 11. Á hinn bóginn er meiri breytileiki í tölu þeirra innlendu tónverka sem tekin eru fyrir með öðr- um hætti; t.d. í sérstökum upptökum fyrir út- varp. Þannig hefur heildartala íslenskra verka verið allt frá 14 að 43 á ári hverju seinustu sex starfsárin. Af þeim hafa 7 til 16 verk verið frum- flutt árlega. Í vetur hefur það æxlast svo að tala frumfluttra verka verður með lægsta móti. Í því felst ekki stefnubreyting heldur ráða þar tilvilj- anir. M.a. berast hljómsveitinni mismargar ábendingar um verk, innlend sem erlend. Þá geta upphafleg áform um skipan tónleika rask- ast á síðustu stundu vegna þess að skyndilega gefist tækifæri til að fá eftirsótta einleikara eða hljómsveitarstjóra. Það er eindreginn vilji núverandi stjórnar hljómsveitarinnar að íslensk tónlist sé ekki fyrir borð borin. Á því geta þó stundum verið vand- kvæði: Þannig var hér aðalhljómsveitarstjóri sem veigraði sér við að stjórna íslenskri tónlist og m.a. af þeim sökum var samningur við hann ekki framlengdur. Þeim stjórnendum sem til álita komu sem arftakar hans var gerð glögg grein fyrir skyldum hljómsveitarinnar gagnvart íslensku tónlistarlífi og íslenskri tónlist. Sá sem var ráðinn, Rumon Gamba, hefur með glöðu geði undirgengist þessar skyldur. Stjórn hljóm- sveitarinnar hefur og mun eiga frekari við- ræður við Gamba um þetta hlutverk. Það vill brenna við að áheyrendur láti á sér standa þegar flutt er íslensk tónlist. Auðvitað má aðsókn, eða skortur á henni, ekki verða til þess að skyldurnar við íslenska tónlist séu van- ræktar, en hér verður þó að fara hæfilegan meðalveg. Margt hefur verið reynt í þessum efnum. Lengi vel var innlendum verkum komið fyrir t.d. í upphafi almennra tónleika. Nú í nokkur ár hefur þess verið freistað að setja ís- lenska tónlist í samhengi við samtíma hennar í tónlist heimsins. Þannig var sérstök tónleika- röð, bláa röðin svokallaða, þar sem einkum voru flutt verk tuttugustu aldar, innlend sem erlend. Að dómi flestra tókst hér listrænt vel til og margir af tónleikum í þessari röð voru meðal þeirra bestu sem hljómsveitin hélt, en aðsókn reyndist dræm. Seldir miðar voru eitt til tvö hundruð í þúsund sæta sal. Nú í vetur verður aftur horfið að fyrra fyrirkomulagi. En nýjar leiðir hafa og verið ræddar og þær hljóta að finnast, enda eru fordæmi þess í tónlistarhaldi hérlendis að það takist að laða áheyrendur ekki síður að nýrri tónlist en þeirri sem staðist hefur tímans tönn. Þannig mátti glögglega heyra að áheyrendur á tónleikum hljómsveitarinnar 16. september sl. voru heillaðir af þeim tveimur samtímaverkum sem þar voru flutt, verkinu Grímu eftir Jón Nordal og fiðlukonsert Johns Adams í snilldarflutningi Leilu Josefowicz. Að síðustu er að því að hyggja að tónlistarlífið íslenska er ekki aðeins fólgið í starfi Sinfón- íuhljómsveitarinnar. Undanfarna áratugi og einkum seinustu ár hafa sprottið upp fjölmargir tónlistarhópar sem hafa margir hverjir lagt mikla rækt við íslenska tónlist. Nefna má Cap- ut-hópinn, Kammersveit Reykjavíkur eða Sum- artónleika í Skálholtskirkju, en þar hafa t.d. verið frumflutt um 150 íslensk tónverk á 30 ára ferli. Vera má að íslenskum tónskáldum henti betur að semja fyrir kammerhópa en stóra hljómsveit. Enda þótt Sinfóníuhljómsveit Ís- lands geti ekki þakkað sér stofnun og starf þessara hópa er það engu að síður svo að þetta starf væri gróskuminna ef hennar nyti ekki við, einfaldlega vegna þess að hún er hinn fasti starfsvettvangur flestra þeirra hljóðfæraleik- ara sem veita þessum hópum lið. Skortir djörfung? Gagnrýnt er í margumræddum skrifum og við- tölum að það skorti djörfung og metnað í verk- efnavali. Er það skortur á djörfung að flytja fyrrgreindan fiðlukonsert eða er metnaðarleysi að flytja allar hinar viðamiklu sinfóníur eins helsta tónskálds tuttugustu aldar, Dimitri Sjostakóvitsj? Nú eða að tefla saman Jóni Leifs og finnskri tónlist á tónleikum þar sem hinn heimsfrægi hljómsveitarstjóri Osmo Vänskä kemur á ný til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Ís- lands? Önnur ögrun andstæðna verður þegar þeir mætast Haydn og Ligeti. Það er metnaður í því að frumflytja á Íslandi óperuna Fordæm- ingu Fausts eftir Berlioz og djarft að frumflytja hér nýjan víólukonsert eftir Benjamin Júsúpov með sjálfum Maxim Vengerov. Þá eru á vetrar- dagskránni stórvirki eins og 8. sinfónía Bruckn- ers og 9. sinfónía Mahlers. Þá er það djarft að taka til flutnings tónverk með heitinu Kára- hnjúkar, a.m.k. finnst stjórnarformanninum það! Þetta eru dæmi af handahófi og ekki tæm- andi. En stærsta „djörfungin“ felst kannski í því að ráða fyrir nokkrum misserum ungan (þá 29 ára) og efnilegan en kannski ekki heimsþekktan að- alhljómsveitarstjóra, Rumon Gamba, og fela honum um leið listræna stjórn hjómsveitar- innar, sem hefur ekki alltaf fylgt í kaupbæti. Það er nú almannarómur að hér hafi vel til tek- ist, enda ákvað stjórn hljómsveitarinnar strax eftir fyrsta fulla starfsár Gamba að framlengja ráðningarsamning hans allt til ársins 2009. „Undirleikur með popphljómsveitum“ Einn af þeim sem gagnrýna verkefnavalið telur að Sinfóníuhljómsveitin eigi ekki að vera í undirleikshlutverki fyrir popphljómsveitir. Hugum að þessu nánar. Það er hvarvetna í hinum vestræna heimi áhyggjuefni þeirra sem vilja veg klassískrar tónlistar sem mestan að þekking á slíkri tónlist virðist fara þverrandi. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur bjuggu við það að hér var ein út- varpsstöð en nutu þar uppeldisstarfs Páls Ís- ólfssonar sem lét „sinfóníugargið“, sem sumir kölluðu svo, yfir alla ganga. Þótt ekki hafi allir hlustað af áfergju seytlaði tónlistin inn í eyrun og skilaði sér a.m.k. í vitneskju um að fleira er til af tónlist en tímabundin afþreying. Nú er öldin önnur. Upp eru vaxnar kynslóðir sem aldrei hafa heyrt menúettinn eftir Boccherini sem iðulega var leikinn í morgunútvarpinu á ár- um áður. Þeim sem reka sinfóníuhljómsveitir og vilja ná til nýrra eða ungra áheyrenda er því vandi á höndum. M.a. hafa margir gripið til þess ráðs að brúa bilið og ná til nýrra áheyrenda að nokkru á þeirra eigin forsendum. Sinfóníu- hljómsveit Íslands hefur reynt þetta með ýms- um hætti. Þannig hafa um langt árabil verið haldnir vinsælir Vínartónleikar. Um hríð var lögð nokkur áhersla á söngleikjatónlist, en hún verður reyndar fyrirferðarlítil í vetur. Efnt hef- ur verið til samstarfs við Kvikmyndasafn Ís- lands um flutning gamalla kvikmynda við lif- andi tónlist. Síðasta tilraunin til þess að ná til breiðara hóps felst í því að bjóða völdum popp- hljómsveitum að koma fram með Sinfóníu- hljómsveitinni. Þetta er tilraun og sýnist sitt hverjum hvernig til hefur tekist og raunar er þessi stefna umdeild meðal ráðamanna hljóm- sveitarinnar. Spyrja má um tilganginn með þessari „brú- un“. Ég hygg að flestir þeir sem um málið véla telji tilganginn ekki felast í „undirleik með popphljómsveitum“ heldur ekki síst að gefa þeim sem sækja í slíka tónlist tækifæri til að kynnast því sem stór sinfóníuhljómsveit hefur upp á að bjóða, enda hafa ætíð verið sinfónísk verk í og með á tónleikum þessum. Í þessu felst ekki e.k. markaðshyggja eins og sumir gagn- rýnendurnir telja, enda hafa þessir tónleikar ekki nema rétt staðið undir sér. Þessi viðleitni til að ná til fjöldans er ekki fyrirferðarmikil í starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar og kapp hefur verið lagt á að hún íþyngi ekki hefð- bundnu tónleikahaldi fjárhagslega. Hvernig eru verk valin? Það er gagnlegt þegar deilt er á starf Sinfóníu- hljómsveitarinnar að átta sig á því hvernig verkefnavalið fer fram. Í grófum dráttum koma fjórir aðilar að málum. Fyrst er það stjórn hljómsveitarinnar sem markar heildarstefnu; svo sem um fjölda tónleika og samsetningu og gerð tónleikaraða. Síðan tekur verkefnavals- nefnd við, en hún starfar lögum samkvæmt. Í henni sitja fulltrúar þeirra sem kosta hljóm- sveitina en líka fulltrúar Tónskáldafélags Ís- lands og hljóðfæraleikara og konsertmeistarar sveitarinnar og síðast en ekki síst aðalhljóm- sveitarstjórinn, hinn listræni stjórnandi. Fjórði aðilinn sem að málinu kemur er skrifstofa hljómsveitarinnar enda þurfa starfsmenn þar að útfæra tónleikaskrárnar, gera samninga og gæta að fjárhagsrammanum. En stjórnin ber lokaábyrgð á gerð tónleikaskránna. Stjórn hljómsveitarinnar reiðir sig mjög á verkefnavalsnefndina, ekki síst þar sem í henni sitja ýmsir „hagsmunaaðilar“, m.a. fyrir Tón- skáldafélagið. Ef fram koma á þeim vettvangi ábendingar eða kvartanir um að einhverju sé ábótavant eða áherslur rangar tekur stjórnin að sjálfsögðu á því. Það var á hinn bóginn ein- kennilegt fyrir stjórnina að lesa slík skilaboð frá fulltrúum í verkefnavalsnefnd í Morgunblaðinu hafandi ekki fengið þau fyrr eftir innanbúð- arleiðum. Greinilega þarf að bæta samskiptin! Stefnumótun Stjórn og starfsfólk Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur undanfarin misseri unnið að stefnumótun fyrir hljómsveitina en árangurinn má finna á vef sveitarinnar (www.sinfonia.is). Þar segir í inngangi um listræna stefnu sveitarinnar: „Markmiðið er að Sinfóníuhljómsveit Íslands eflist að listfengi og að hún standist samanburð við erlendar úrvalshljómsveitir um leið og hún haldi séreinkennum sínum sem íslensk þjóðar- hljómsveit.“ Það mikla traust sem stjórnin setur á núver- andi aðalhljómsveitarstjóra endurspeglast í eft- irfarandi ákvæði í þessari stefnumótun: „Treyst verði í ríkari mæli á forystu listræns stjórnanda hljómsveitarinnar. Stjórnandanum verði eftir föngum skapað svigrúm til að ráða ferðinni jafnt í verkefnavali sem og varðandi kröfur til hljómsveitarinnar.“ Og öndvert við það sem mætti halda af fyrrgreindri gagnrýni stendur ennfremur í þessari stefnumótun: „Áræði á að ríkja í verkefnavali og flytja skal jöfnum hönd- um höfuðverk tónbókmenntanna sem og minna þekkt en áhugaverð verk svo og samtímaverk innlend og erlend.“ Þjóðarhljómsveitin Í skrifunum í Morgunblaðinu kemur réttilega fram að Sinfóníuhljómsveitin er máttarstólpinn í íslensku tónlistarlífi. Hún er nánast eini starfs- vettvangur þeirra sem helga sig tónlistariðkun og hafa af því lifibrauð. Hljómsveitin hefur líka lagalegum og menningarlegum skyldum að gegna við íslenska tónsköpun. Sama á við um þær skyldur hennar að þjóna landinu öllu en ekki aðeins höfuðborgarsvæðinu. Þeim sem marka stefnu Sinfóníuhljómsveitarinnar er það fullljóst að þetta – og fleira – þarf til að hljóm- sveitin verði áfram þungamiðjan í íslensku tón- listarlífi og um leið þjóðarhljómsveit. Fyrr- greind gagnrýni verður vissulega gaumgæfð, enda þótt hún sé ekki studd sterkum rökum og – eins og gerist í íslenskri þjóðmálaumræðu – byggð á fullyrðingum sem hver hefur eftir öðr- um. En ekki er að efa að þeir sem gagnrýna vilja hljómsveitinni vel og fyrir það ber að þakka. Þess er vænst að langþráð tónlistarhús rísi innan fárra ára. Þar verða heimkynni Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. Í því húsi munu verk Jóns Leifs hljóma ekki síður en Beethovens! Sinfónían vill vera þjóðarhljómsveit Deilt hefur verið á verkefnaval og stefnu Sinfóníuhljómsveitar Íslands í greinum í Morgunblaðinu að undanförnu. Í svari for- manns stjórnar sveitarinnar segir að í ljósi þess að samhljómur er um það hvað sé bita- stætt í sinfónískum verkum liggi beinast við að Sinfóníuhljómsveitin einbeiti sér að flutn- ingi þeirra sinfónísku verka sem almennt hafa hlotið viðurkenningu sem meistaraverk. Morgunblaðið/Ásdís Sinfóníuhljómsveit Íslands „Fyrrgreind gagnrýni verður vissulega gaumgæfð, enda þótt hún sé ekki studd sterkum rökum og – eins og gerist í íslenskri þjóðmálaumræðu – byggð á fullyrðingum sem hver hefur eftir öðrum.“ Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, tekst á við allar sinfóníur Sjostakovitsj með hljómsveitinni á næstu þremur árum. Höfundur er formaður stjórnar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Eftir Þorkel Helgason thh@os.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.