Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Síða 16
16 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004
U
ndanfarið hefur verkefnaval og
stefna Sinfóníuhljómsveitar
Íslands verið til umræðu á
síðum Morgunblaðsins sbr.
skrif Bergþóru Jónsdóttur 10.
september, grein Jónasar Sen
í Lesbókinni 11. og viðtöl við ýmsa 15. s.m. og
síðast en ekki síst Reykjavíkurbréf sem birtist
hinn 19. Það er vel að slík umræða fari fram;
hún sýnir að mörgum er annt um hljómsveitina
og stendur ekki á sama um hvernig hún sinnir
hlutverki sínu.
Efling Sinfóníuhljómsveitarinnar
Allir sem fylgst hafa með starfi Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar hljóta að vera sammála um að hún
hefur eflst í hvívetna á undanförnum einum til
tveimur áratugum, þann-
ig að nú er hægt að bera
hana saman við rótgrón-
ar sinfóníuhljómsveitir í grannlöndum okkar. Í
raun er það kraftaverki líkast að unnt sé að
halda uppi slíku listrænu starfi í jafn fámennu
samfélagi og því íslenska. Árangurinn er fyrst
og fremst að þakka hljóðfæraleikurum og
hljómsveitarstjórum sveitarinnar en jafnframt
því að þeir sem að rekstri hennar standa, ríkið,
Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið og Seltjarnar-
nesbær, hafa búið henni mun betri starfsskil-
yrði en áður var. Þannig var unnt að fjölga
hljóðfæraleikurum, bæta kjör þeirra og nú síð-
ast var þungum bagga lífeyrisskuldbindinga
létt af hljómsveitinni. Hér hefur hljómsveitin
notið dugnaðar framkvæmdastjóra síns við að
afla stuðnings meðal ráðamanna. Það er þó sí-
felld ögrun að reka menningarstofnun eins og
sinfóníuhljómsveit og sjá til þess að reksturinn
standi í járnum. Ekki má mikið út af bera svo að
í óefni stefni. Þeir sem gagnrýna listræna
stefnu hljómsveitarinnar verða að hafa í huga
að fjármunir setja nýmælum skorður.
Til hvers rekum við Sinfóníuhljómsveit?
Þessari spurningu er svarað á hnitmiðaðan hátt
í lögum um hljómsveitina: „Starf Sinfóníu-
hljómsveitarinnar [skal miða] að því að auðga
tónmenningu Íslendinga, efla áhuga og þekk-
ingu á æðri tónlist og gefa landsmönnum kost á
að njóta hennar …“ Hér er notað orð sem tíð-
rætt er um í fyrrgreindum skrifum, orðið
„menning“. Fóstra Steins Steinars sagði það
vera rímorð sem þeir fyrir sunnan notuðu til að
ríma á móti þrenningunni. Heimspekingurinn
Páll Skúlason segir menningu vera allt sem
mannar mennina, en öndverðan, ómenning, það
sem skemmir þá. Í meginatriðum er auðvelt að
skilgreina hvað er menningarlegt efni fyrir sin-
fóníuhljómsveit m.a. vegna þess að það er ekki á
færi viðvaninga að semja tónlist fyrir slíkan
hóp. Og þegar til lengdar lætur er samhljómur
um það hvað sé bitastætt í þeirri tónlist.
Í ljósi þessa liggur beinast við að Sinfóníu-
hljómsveitin einbeiti sér að flutningi þeirra sin-
fónísku verka sem almennt hafa hlotið viður-
kenningu sem meistaraverk. Þetta sjónarmið
kann að flokkast undir það „að [Sinfóníuhljóm-
sveitin] legg[i] æ meira upp úr því að hafa sígild
verk sem flestir þekkja á efnisskránni …“ eins
og Jónas Sen fullyrðir. Slík verk ber þó að flytja
æ ofan í æ, þó ekki væri nema vegna þess að
nýjar kynslóðir vaxa úr grasi. Þannig er það á
ábyrgð þessarar einu atvinnuhljómsveitar
landsins að ekkert ungmenni fari frá bernsku til
fulls þroska án þess að eiga þess kost að heyra í
lifandi flutningi öndvegistónverk vestrænnar
menningar eins og t.d. hetjusinfóníu Beethov-
ens.
Þáttur íslenskrar tónlistar
Í lögum um hljómsveitina segir: „Sérstaka
áherslu ber að leggja á flutning og kynningu ís-
lenskrar tónlistar, utan lands sem innan, ef til-
efni gefast.“ Í fyrrgreindum skrifum er stað-
hæft að hlutur íslenskrar tónlistar í tónleika-
skrá hljómsveitarinnar hafi farið rýrnandi.
„Færri og færri íslensk hljómsveitarverk eru að
verða til,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður
Tónskáldafélags Íslands, og bætir við „[að]
þátttaka Sinfóníuhljómsveitar Íslands [hafi]
mjög afgerandi áhrif á tilurð slíkra verka“. En
kannski er minna um að stór hljómsveitarverk
séu flutt vegna þess að færri séu skrifuð. Gagn-
rýna má að Sinfóníuhljómsveitin hefur ekki oft
haft frumkvæði að samningu verka, heldur
frekar látið það ráðast hvað íslensk tónskáld
hafa haft fram að færa hverju sinni. Því hefur
verið óskað eftir fjárveitingu til þess að geta
ráðið tónskáld tímabundið og semja fyrir hljóm-
sveitina, eins og heimilt er lögum samkvæmt.
Vonir standa nú til bragarbótar í þeim efnum.
Stjórn hljómsveitarinnar hefur látið gera
yfirlit um hlut íslenskra verka og kemur þá í
ljós að flutt hafa verið 8–9 íslensk verk á hverj-
um vetri á almennum tónleikum sveitarinnar en
á komandi vetri verða þau ívið fleiri eða 11. Á
hinn bóginn er meiri breytileiki í tölu þeirra
innlendu tónverka sem tekin eru fyrir með öðr-
um hætti; t.d. í sérstökum upptökum fyrir út-
varp. Þannig hefur heildartala íslenskra verka
verið allt frá 14 að 43 á ári hverju seinustu sex
starfsárin. Af þeim hafa 7 til 16 verk verið frum-
flutt árlega. Í vetur hefur það æxlast svo að tala
frumfluttra verka verður með lægsta móti. Í því
felst ekki stefnubreyting heldur ráða þar tilvilj-
anir. M.a. berast hljómsveitinni mismargar
ábendingar um verk, innlend sem erlend. Þá
geta upphafleg áform um skipan tónleika rask-
ast á síðustu stundu vegna þess að skyndilega
gefist tækifæri til að fá eftirsótta einleikara eða
hljómsveitarstjóra.
Það er eindreginn vilji núverandi stjórnar
hljómsveitarinnar að íslensk tónlist sé ekki fyrir
borð borin. Á því geta þó stundum verið vand-
kvæði: Þannig var hér aðalhljómsveitarstjóri
sem veigraði sér við að stjórna íslenskri tónlist
og m.a. af þeim sökum var samningur við hann
ekki framlengdur. Þeim stjórnendum sem til
álita komu sem arftakar hans var gerð glögg
grein fyrir skyldum hljómsveitarinnar gagnvart
íslensku tónlistarlífi og íslenskri tónlist. Sá sem
var ráðinn, Rumon Gamba, hefur með glöðu
geði undirgengist þessar skyldur. Stjórn hljóm-
sveitarinnar hefur og mun eiga frekari við-
ræður við Gamba um þetta hlutverk.
Það vill brenna við að áheyrendur láti á sér
standa þegar flutt er íslensk tónlist. Auðvitað
má aðsókn, eða skortur á henni, ekki verða til
þess að skyldurnar við íslenska tónlist séu van-
ræktar, en hér verður þó að fara hæfilegan
meðalveg. Margt hefur verið reynt í þessum
efnum. Lengi vel var innlendum verkum komið
fyrir t.d. í upphafi almennra tónleika. Nú í
nokkur ár hefur þess verið freistað að setja ís-
lenska tónlist í samhengi við samtíma hennar í
tónlist heimsins. Þannig var sérstök tónleika-
röð, bláa röðin svokallaða, þar sem einkum voru
flutt verk tuttugustu aldar, innlend sem erlend.
Að dómi flestra tókst hér listrænt vel til og
margir af tónleikum í þessari röð voru meðal
þeirra bestu sem hljómsveitin hélt, en aðsókn
reyndist dræm. Seldir miðar voru eitt til tvö
hundruð í þúsund sæta sal. Nú í vetur verður
aftur horfið að fyrra fyrirkomulagi. En nýjar
leiðir hafa og verið ræddar og þær hljóta að
finnast, enda eru fordæmi þess í tónlistarhaldi
hérlendis að það takist að laða áheyrendur ekki
síður að nýrri tónlist en þeirri sem staðist hefur
tímans tönn. Þannig mátti glögglega heyra að
áheyrendur á tónleikum hljómsveitarinnar 16.
september sl. voru heillaðir af þeim tveimur
samtímaverkum sem þar voru flutt, verkinu
Grímu eftir Jón Nordal og fiðlukonsert Johns
Adams í snilldarflutningi Leilu Josefowicz.
Að síðustu er að því að hyggja að tónlistarlífið
íslenska er ekki aðeins fólgið í starfi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar. Undanfarna áratugi og
einkum seinustu ár hafa sprottið upp fjölmargir
tónlistarhópar sem hafa margir hverjir lagt
mikla rækt við íslenska tónlist. Nefna má Cap-
ut-hópinn, Kammersveit Reykjavíkur eða Sum-
artónleika í Skálholtskirkju, en þar hafa t.d.
verið frumflutt um 150 íslensk tónverk á 30 ára
ferli. Vera má að íslenskum tónskáldum henti
betur að semja fyrir kammerhópa en stóra
hljómsveit. Enda þótt Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands geti ekki þakkað sér stofnun og starf
þessara hópa er það engu að síður svo að þetta
starf væri gróskuminna ef hennar nyti ekki við,
einfaldlega vegna þess að hún er hinn fasti
starfsvettvangur flestra þeirra hljóðfæraleik-
ara sem veita þessum hópum lið.
Skortir djörfung?
Gagnrýnt er í margumræddum skrifum og við-
tölum að það skorti djörfung og metnað í verk-
efnavali. Er það skortur á djörfung að flytja
fyrrgreindan fiðlukonsert eða er metnaðarleysi
að flytja allar hinar viðamiklu sinfóníur eins
helsta tónskálds tuttugustu aldar, Dimitri
Sjostakóvitsj? Nú eða að tefla saman Jóni Leifs
og finnskri tónlist á tónleikum þar sem hinn
heimsfrægi hljómsveitarstjóri Osmo Vänskä
kemur á ný til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands? Önnur ögrun andstæðna verður þegar
þeir mætast Haydn og Ligeti. Það er metnaður
í því að frumflytja á Íslandi óperuna Fordæm-
ingu Fausts eftir Berlioz og djarft að frumflytja
hér nýjan víólukonsert eftir Benjamin Júsúpov
með sjálfum Maxim Vengerov. Þá eru á vetrar-
dagskránni stórvirki eins og 8. sinfónía Bruckn-
ers og 9. sinfónía Mahlers. Þá er það djarft að
taka til flutnings tónverk með heitinu Kára-
hnjúkar, a.m.k. finnst stjórnarformanninum
það! Þetta eru dæmi af handahófi og ekki tæm-
andi.
En stærsta „djörfungin“ felst kannski í því að
ráða fyrir nokkrum misserum ungan (þá 29 ára)
og efnilegan en kannski ekki heimsþekktan að-
alhljómsveitarstjóra, Rumon Gamba, og fela
honum um leið listræna stjórn hjómsveitar-
innar, sem hefur ekki alltaf fylgt í kaupbæti.
Það er nú almannarómur að hér hafi vel til tek-
ist, enda ákvað stjórn hljómsveitarinnar strax
eftir fyrsta fulla starfsár Gamba að framlengja
ráðningarsamning hans allt til ársins 2009.
„Undirleikur með popphljómsveitum“
Einn af þeim sem gagnrýna verkefnavalið telur
að Sinfóníuhljómsveitin eigi ekki að vera í
undirleikshlutverki fyrir popphljómsveitir.
Hugum að þessu nánar.
Það er hvarvetna í hinum vestræna heimi
áhyggjuefni þeirra sem vilja veg klassískrar
tónlistar sem mestan að þekking á slíkri tónlist
virðist fara þverrandi. Þeir sem komnir eru yfir
miðjan aldur bjuggu við það að hér var ein út-
varpsstöð en nutu þar uppeldisstarfs Páls Ís-
ólfssonar sem lét „sinfóníugargið“, sem sumir
kölluðu svo, yfir alla ganga. Þótt ekki hafi allir
hlustað af áfergju seytlaði tónlistin inn í eyrun
og skilaði sér a.m.k. í vitneskju um að fleira er
til af tónlist en tímabundin afþreying. Nú er
öldin önnur. Upp eru vaxnar kynslóðir sem
aldrei hafa heyrt menúettinn eftir Boccherini
sem iðulega var leikinn í morgunútvarpinu á ár-
um áður. Þeim sem reka sinfóníuhljómsveitir
og vilja ná til nýrra eða ungra áheyrenda er því
vandi á höndum. M.a. hafa margir gripið til þess
ráðs að brúa bilið og ná til nýrra áheyrenda að
nokkru á þeirra eigin forsendum. Sinfóníu-
hljómsveit Íslands hefur reynt þetta með ýms-
um hætti. Þannig hafa um langt árabil verið
haldnir vinsælir Vínartónleikar. Um hríð var
lögð nokkur áhersla á söngleikjatónlist, en hún
verður reyndar fyrirferðarlítil í vetur. Efnt hef-
ur verið til samstarfs við Kvikmyndasafn Ís-
lands um flutning gamalla kvikmynda við lif-
andi tónlist. Síðasta tilraunin til þess að ná til
breiðara hóps felst í því að bjóða völdum popp-
hljómsveitum að koma fram með Sinfóníu-
hljómsveitinni. Þetta er tilraun og sýnist sitt
hverjum hvernig til hefur tekist og raunar er
þessi stefna umdeild meðal ráðamanna hljóm-
sveitarinnar.
Spyrja má um tilganginn með þessari „brú-
un“. Ég hygg að flestir þeir sem um málið véla
telji tilganginn ekki felast í „undirleik með
popphljómsveitum“ heldur ekki síst að gefa
þeim sem sækja í slíka tónlist tækifæri til að
kynnast því sem stór sinfóníuhljómsveit hefur
upp á að bjóða, enda hafa ætíð verið sinfónísk
verk í og með á tónleikum þessum. Í þessu felst
ekki e.k. markaðshyggja eins og sumir gagn-
rýnendurnir telja, enda hafa þessir tónleikar
ekki nema rétt staðið undir sér. Þessi viðleitni
til að ná til fjöldans er ekki fyrirferðarmikil í
starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar og kapp
hefur verið lagt á að hún íþyngi ekki hefð-
bundnu tónleikahaldi fjárhagslega.
Hvernig eru verk valin?
Það er gagnlegt þegar deilt er á starf Sinfóníu-
hljómsveitarinnar að átta sig á því hvernig
verkefnavalið fer fram. Í grófum dráttum koma
fjórir aðilar að málum. Fyrst er það stjórn
hljómsveitarinnar sem markar heildarstefnu;
svo sem um fjölda tónleika og samsetningu og
gerð tónleikaraða. Síðan tekur verkefnavals-
nefnd við, en hún starfar lögum samkvæmt. Í
henni sitja fulltrúar þeirra sem kosta hljóm-
sveitina en líka fulltrúar Tónskáldafélags Ís-
lands og hljóðfæraleikara og konsertmeistarar
sveitarinnar og síðast en ekki síst aðalhljóm-
sveitarstjórinn, hinn listræni stjórnandi. Fjórði
aðilinn sem að málinu kemur er skrifstofa
hljómsveitarinnar enda þurfa starfsmenn þar
að útfæra tónleikaskrárnar, gera samninga og
gæta að fjárhagsrammanum. En stjórnin ber
lokaábyrgð á gerð tónleikaskránna.
Stjórn hljómsveitarinnar reiðir sig mjög á
verkefnavalsnefndina, ekki síst þar sem í henni
sitja ýmsir „hagsmunaaðilar“, m.a. fyrir Tón-
skáldafélagið. Ef fram koma á þeim vettvangi
ábendingar eða kvartanir um að einhverju sé
ábótavant eða áherslur rangar tekur stjórnin að
sjálfsögðu á því. Það var á hinn bóginn ein-
kennilegt fyrir stjórnina að lesa slík skilaboð frá
fulltrúum í verkefnavalsnefnd í Morgunblaðinu
hafandi ekki fengið þau fyrr eftir innanbúð-
arleiðum. Greinilega þarf að bæta samskiptin!
Stefnumótun
Stjórn og starfsfólk Sinfóníuhljómsveitarinnar
hefur undanfarin misseri unnið að stefnumótun
fyrir hljómsveitina en árangurinn má finna á
vef sveitarinnar (www.sinfonia.is). Þar segir í
inngangi um listræna stefnu sveitarinnar:
„Markmiðið er að Sinfóníuhljómsveit Íslands
eflist að listfengi og að hún standist samanburð
við erlendar úrvalshljómsveitir um leið og hún
haldi séreinkennum sínum sem íslensk þjóðar-
hljómsveit.“
Það mikla traust sem stjórnin setur á núver-
andi aðalhljómsveitarstjóra endurspeglast í eft-
irfarandi ákvæði í þessari stefnumótun: „Treyst
verði í ríkari mæli á forystu listræns stjórnanda
hljómsveitarinnar. Stjórnandanum verði eftir
föngum skapað svigrúm til að ráða ferðinni
jafnt í verkefnavali sem og varðandi kröfur til
hljómsveitarinnar.“ Og öndvert við það sem
mætti halda af fyrrgreindri gagnrýni stendur
ennfremur í þessari stefnumótun: „Áræði á að
ríkja í verkefnavali og flytja skal jöfnum hönd-
um höfuðverk tónbókmenntanna sem og minna
þekkt en áhugaverð verk svo og samtímaverk
innlend og erlend.“
Þjóðarhljómsveitin
Í skrifunum í Morgunblaðinu kemur réttilega
fram að Sinfóníuhljómsveitin er máttarstólpinn
í íslensku tónlistarlífi. Hún er nánast eini starfs-
vettvangur þeirra sem helga sig tónlistariðkun
og hafa af því lifibrauð. Hljómsveitin hefur líka
lagalegum og menningarlegum skyldum að
gegna við íslenska tónsköpun. Sama á við um
þær skyldur hennar að þjóna landinu öllu en
ekki aðeins höfuðborgarsvæðinu. Þeim sem
marka stefnu Sinfóníuhljómsveitarinnar er það
fullljóst að þetta – og fleira – þarf til að hljóm-
sveitin verði áfram þungamiðjan í íslensku tón-
listarlífi og um leið þjóðarhljómsveit. Fyrr-
greind gagnrýni verður vissulega gaumgæfð,
enda þótt hún sé ekki studd sterkum rökum og
– eins og gerist í íslenskri þjóðmálaumræðu –
byggð á fullyrðingum sem hver hefur eftir öðr-
um. En ekki er að efa að þeir sem gagnrýna
vilja hljómsveitinni vel og fyrir það ber að
þakka.
Þess er vænst að langþráð tónlistarhús rísi
innan fárra ára. Þar verða heimkynni Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Í því húsi munu verk Jóns
Leifs hljóma ekki síður en Beethovens!
Sinfónían vill vera þjóðarhljómsveit
Deilt hefur verið á verkefnaval og stefnu
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í greinum í
Morgunblaðinu að undanförnu. Í svari for-
manns stjórnar sveitarinnar segir að í ljósi
þess að samhljómur er um það hvað sé bita-
stætt í sinfónískum verkum liggi beinast við
að Sinfóníuhljómsveitin einbeiti sér að flutn-
ingi þeirra sinfónísku verka sem almennt
hafa hlotið viðurkenningu sem meistaraverk.
Morgunblaðið/Ásdís
Sinfóníuhljómsveit Íslands „Fyrrgreind gagnrýni verður vissulega gaumgæfð, enda þótt hún sé ekki
studd sterkum rökum og – eins og gerist í íslenskri þjóðmálaumræðu – byggð á fullyrðingum sem hver
hefur eftir öðrum.“ Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, tekst á við
allar sinfóníur Sjostakovitsj með hljómsveitinni á næstu þremur árum.
Höfundur er formaður stjórnar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Eftir Þorkel Helgason
thh@os.is