Sunnudagsblaðið - 31.03.1957, Side 4

Sunnudagsblaðið - 31.03.1957, Side 4
106 voru ákveðin fisksöluhorn, og voru beztu staðirnir taldir vera á horn- inu hjá Óla norska, en svo var hús kallað á horni Klapparstígs og Laugavegar; hjá Jóni á Hjalla var annað fisksöluhornið en það var á mótum Laugavegs og Frakka- stígs, og loks var þriðji staðurinn inn við Vitastíg, en heldur þótti hann lélegur, því að þegar svo innarlega var komið, var orðið svo strjálbýlt og umferð lítil. Síðar mynduðust svo torg, þar sem fisk- salar voru með vagna sína, t.d. Óðinstorg og Káratorg.“ — Hve lengi höfðuð þið aðset- ur á fisksöluplaninu við Hafnar- straeti? ,,Til 1015, en þá misstum við allt, som við áttum á malarkamb- irnnn framan við Edinborg. Það var í brunanum mikla, þegar Hót- el Reykiavík, Landsbankinn. Hafn arhvoll, Edinborg og fleiri hús brunnu í miðbænum. Þá fór eld- urinn yfir Hafnarstrætið, svo að girðingin umhverfis fisksöluplan- ið og allt. sem þar var, brann. Þá fengum við svæði niður af verzl- un Ellingsen, upp af gömlu Stein- bryggjunni, og þar vorum við í nokkur ár, en þá byggði bærinn fisksölutorg framan við Haupnes- pakkhúsiðn, cða þar sem nú er þvot.taplan RP neðan við Borgar- bílastöðina. í>etta fisksölutorg var básað niður í 8 bása, sem skipt var milli fisksalanna í bænum. Þarna ætlaði bærinn að láta byggja þak yfir torgið, en þá fór Haupnes- verzlun í mál út af því, að missa útsýnið til sjávar úr pakkhúsirtu, og vann málið, svo að bærinn varð að hætta við áform sitt að byggja yfir fisksölutorgið. Við stóðum því úti eftir sem áður. — Nokkru eftir að vjð Ólafur Grímsson byrjuðum félagsverzlun okkar, bættist þriðji maður í fyrir- tækið, en það var Benoný Beno- nýsson, og þegar við höfðum ver- ið þrír nokkur ár, þættust enn í SUNNUDAG S B L A ÐIÐ félag okkar þeir Jón Guðnason og Eggert Brandsson, en þeir höfðu áður haft á hendi forstöðu fisksölu á vegum alþýðusamtakanna, og vorum við þá orðnir fimm í fé- lagi. Okkur tókst nú að ná yfir- tökum yfir öllu fisksölutorginu, að undanteknum einum bás, en þá tilheyrði þetta athafnasvæði höfninni og vorum við leig'jendur hennar. Fórum við nú sjálfir að láta byggja yfir torgið 'í áföng- um, enda var Haupnisverzlun þá hætt störfum og höfðum við feng- ið pakkhús hennar. En þó að þak kæmist yfir fisksölutorgið, vár það þó alltaf opið að framan, og var næðingurinn þar oft svalur, þegar hann var á norðan. Árið 1935 átti Þórarinn heitinn Kristjánsson þáverandi hafnar- stjóri tal við mig, og sagði hann mér, að þar sem við værum elztu leigjendur hafnarinnar, teldi hann skyldu hennar að sjá okkur fyrir framtíðarathafnasvæði, og bað mig svipast um eftir hentugum stað við höfnina fyrir fisksölumiðstöð. Var hugmynd hans sú, að höfnin kostaði bygginguna, og yrðum við þrír aðilar að leigunni, — það er að segja við Jón Guðnason, Haf- liði Baldvinsson og JCristinn Magn ússon. Ég festi fljótt auga á stað, þar sem pakkhús Lofts LoftSson- ar var, og nú eru bílaverkstæði Eimskipafélagsins og járna- geymsla H. Ben., beint gegnt Fiskhöllinni. Lét ég svo gera riss að fyrirhugaðri fisksölumiðstöð, með afgreiðslu — og verkunar- stöð, fiskbúðum og frystihúsi, og lagði þessa hugmynd fyrir hafn- arstjóra. Honum þótti ég helzt til bjartsýnn, og kvað slíka bygg- ingu myndi kosta 140 þúsund krónur, en ég hafði raunar reikn- að með henni allt að 200 þús- und krónum. Spurði hann þá, hvort við treystum okkur til að bera.svo mikla leigu, sem höfnin þyrfti að fá til ávöxtunar á svo miklu fé, og tjáði ég, að við Jón myndum reiðubúnir að greiða í leigu allt að 10 prósent, þótt bygg* ingin kostaði um 200 þúsund krón- ur. — Nú leið og beið og ekkert gerðist í málinu, og 1938 var ekk- ert farið að bóla á framkvæmd- um, en óðum gengu úr greipum öll hentug athafnasvæði við höfn- ina. Þá hafði um langt skeið stað- ið autt og ónotað hús það, þar sem nú er Fiskhöllin, en það var upp- haflega byggt sem sláturhús árið 1906 af Gunnari Einarssyni, og var nú eign Sigfúsar Blöndal. Ég frétti að húsið væri til sölu, og hefði Útvegsbankinn umráð með því. Dag einn hitti ég svo Elías Halldórsson, starfsmann Útvegs- bankans, á götu, og spurði hann um þessa eign. Hann kvaðst skyldi færa málið í tal við Ilelga Guð- mundsson bankastjóra, og er ekki að orðlengja það, að daginn eftir fór ég á 1‘und bankastjórans og tókust samningar greiðlega. Hann sagði, að húsið ætti að kosta 75 þúsund krónur, en ég bað um að fá að gera tilboð í það. Bauð ég 65 þúsund krónur í eignina, með þeim skilyrðum að ég fengi 25 þúsund króna lán hjá bankanum til nauðsynlegra breytinga og end- urbóta á húsinu. Þetta varð svo úr og við Jón Guðnason undir- skrifuðum samninga, og þá konist ég loks undir þak með fisksöluna eftir 25 ára norp úti undir beru lofti í öllum veðrum. Eftir þetta spruttu svo upp fiskverzlanir víða um bæinn og höfðum við Jón 12 útsölustaði, þegar þeir voru flestir, en alls munu nú vera um 40 fisk- verzlanir í bænum. Annars er Fiskhöllin alls ekki útbúin á þann hátt, sem ég hafði ætlað mér í fyrgtu. Ég ætlaði a® hafa þar frystihús og ýmislegt haganlegra fyrirkotnulag. I þein* tilgangi keypti ég húsið Vestur- götu 18, sem er beint upp af, ætlaði að leggja samfellt miili

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.