Morgunblaðið - 21.08.2004, Síða 4
ÓL Í AÞENU 2004
4 B LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SUÐUR-KÓREA leikur alla fimm leiki sína í riðla-
keppni Ólympíuleikanna á sama tíma, klukkan hálf-
tíu að morgni í Grikklandi, en það er á besta útsend-
ingartíma sjónvarps í Suður-Kóreu, þar sem farið er
að halla að kvöldi þar eystra um það leyti. Þá er
klukkan hins vegar hálfsjö að morgni á Íslandi.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari Ís-
lands, sagði að það væri ósanngjarnt að eitt lið í riðl-
inum fengi alltaf að spila á sama tíma. „Ég ætla ekki
að fara að afsaka tap okkar gegn Kóreubúunum með
þessu, en það er ekki réttlátt að þeir spili alltaf á
þessum tíma. Önnur lið þurfa að færa sig fram og til
baka á meðan þeir komu í dag í sinn fjórða leik í röð
á sama tíma, og gátu verið með sömu rútínu, sama
undirbúning, á meðan við höfum stöðugt spilað á
nýjum leiktímum. Þetta skiptir geysilega miklu máli
í svona keppni og mér finnst að á Ólympíuleikum
eigi allir keppendur að sitja við sama borð,“ sagði
Guðmundur Þ. Guðmundsson.
Kórea spilar alltaf
á sama tíma
Ólafur Stefánsson skoraði
10 mörk úr 11 skotum. Þar af
4 úr vítaköstum, 3 með lang-
skotum, 2 eftir gegnumbrot
og 1 af línu. Hann lék í 54,32
mínútur.
Jaliesky Garcia skoraði 6
mörk úr 9 skotum. Þar af 3
með langskotum, 2 eftir
hraðaupphlaup og 1 eftir
gegnumbrot. Hann lék í 46,25
mínútur.
Sigfús Sigurðsson skoraði
5 mörk úr 5 skotum. Þar af 4
af línu og 1 eftir hraðaupp-
hlaup. Hann fékk 3 brottvís-
anir og þar með rautt spjald,
og lék í 46,04 mínútur.
Guðjón Valur Sigurðsson
hraðaupphlaup. Hann lék í
28,43 mínútur.
Róbert Gunnarsson skor-
aði ekkert mark úr 3 skotum.
Hann lék í 15,53 mínútur.
Einar Örn Jónsson skoraði
ekkert mark úr 1 skoti. Hann
lék í 7,34 mínútur.
Ásgeir Örn Hallgrímsson
lék í 5,36 mínútur.
Kristján Andrésson kom
ekkert inná.
skoraði 3 mörk úr 7 skotum.
Þar af 2 úr horni og 1 eftir
hraðaupphlaup. Hann lék í 60
mínútur.
Gylfi Gylfason skoraði 3
mörk úr 6 skotum. Þar af 1 úr
horni, 1 eftir hraðaupphlaup
og 1 eftir gegnumbrot. Hann
lék í 52,26 mínútur.
Dagur Sigurðsson skoraði
1 mark úr 2 skotum, með
langskoti. Hann lék í 13,24
mínútur.
Snorri Steinn Guðjónsson
skoraði 1 mark úr 4 skotum,
eftir hraðaupphlaup. Hann
lék í 29,23 mínútur.
Rúnar Sigtryggsson skor-
aði 1 mark úr 1 skoti, eftir
Þetta gerðu þeir gegn
Suður-Kóreu
Morgunblaðið/Golli
Sigfús fær rauða
spjaldið.
SPÁNVERJAR héldu mikla flug-
eldasýningu í seinni hálfleik þegar
þeir gjörsigruðu Slóveníu, 41:28, í
A-riðlinum í handknattleikskeppni
Ólympíuleikanna í Aþenu í gær.
Þeir skoruðu þá 23 mörk gegn 13
mörkum Slóvena, eftir að nokkurt
jafnræði hafði verið með liðunum í
fyrri hálfleik.
Með þessum úrslitum er end-
anlega ljóst að Slóvenar enda í
sjötta og neðsta sæti riðilsins og
þar með er framundan annað kvöld
hreint einvígi milli Íslendinga og
Rússa um fjórða sætið, og þátt-
tökurétt í átta liða úrslitunum.
Spánverjar eru búnir að vinna
alla fjóra leiki sína og leikur þeirra
við Króatíu á morgun ræður úrslit-
um um hvort liðið vinnur riðilinn og
mætir því liði sem endar í fjórða
sætinu í B-riðli.
Iker Romero skoraði 7 mörk fyr-
ir Spánverja og þeir Juan Garcia og
Jon Belaustegui 5 hvor. Allir leik-
menn Spánverja skoruðu og allir
spiluðu mikið að vanda. Spánverjar
skipta gríðarlega mikið inná í öllum
sínum leikjum og enginn af 12 úti-
spilurum þeirra lék í minna en 17
mínútur að þessu sinni.
Tomaz Tomsic og Ales Pajovic
voru atkvæðamestir Slóvena í
leiknum og skoruðu 7 mörk hvor.
Sýning
hjá Spán-
verjum
„VIÐ spiluðum mjög vel. Þetta var
hörkuleikur og ég er afar ánægður
með þessi úrslit. Við höfum staðið
okkur með miklum sóma á leik-
unum og erum búnir að vinna tvo
leiki, en því miður töpuðum við
tveimur leikjum vegna þess hve illa
við byrjuðum þá. Ég er viss um að
við eigum eftir að spila enn betur í
átta liða úrslitunum,“ sagði Tae-
Hoon Kim, þjálfari Suður-Kóreu,
eftir sigurinn gegn Íslendingum í
gærmorgun.
„Höfum
staðið okkur
með sóma“
Morgunblaðið/Golli
Vonbrigði. Gylfi Gylfason,
Dagur Sigurðsson, Ólafur
Stefánsson og Guðmundur
Hrafnkelsson.
Guðmundur Hrafnkelsson lék í 24,35 mínútur og varði 4 skot (þar
af fór 1 aftur til mótherja). Það var 1 langskot, 1 úr horni, 1 eftir
gegnumbrot og 1 (1) af línu.
Roland Valur Eradze lék í 35,25 mínútur og varði 9 (6) skot. Þar af
7 (6) eftir gegnumbrot og 2 langskot.
Kyung-Tai Han lék í 46,39 mínútur og varði 15 (5) skot. Þar af 4 eft-
ir gegnumbrot, 4 (3) eftir hraðaupphlaup, 3 (1) úr horni, 3 (1) af línu
og 1 langskot.
Chang-Woo Lee lék í 13,21 mínútur og varði 2 skot, 1 eftir hraða-
upphlaup og 1 langskot.
Þannig vörðu þeir
ÓLAFUR Stefánsson gekk þungum skrefum
leikvelli eftir ófarirnar gegn S-Kóreru í gær
Ólafur sá draum sinn um að ná langt á Ólym
íuleikunum hverfa út í veður og vind en han
hélt að möguleikar Íslands á að komast í 8-li
úrslitin væru úr sögunni eftir tapleikinn geg
S-Kóreumönnum. Eftir að Morgunblaðið ha
upplýst hann um að enn væri von og með sig
Rússum á morgun væri sæti í fjórðungsúrsli
unum tryggt þá færðist smá bros yfir andlit
Ólafs.
„Ég þakka þér fyrir að upplýsa mig um
þetta. Ég var alveg pottþéttur á að þetta væ
búið hjá okkur og draumur minn orðinn að
martröð,“ sagði Ólafur þegar Morgunblaðið
leitaði eftir viðbrögðum hans eftir ósigurinn
móti S-Kóreu.
Hélt að
möguleik-
inn væri út
Guðmundur Guðmundsson lands-liðsþjálfari gerði eina breytingu
á byrjunarliði sínu. Gylfi Gylfason var
í horninu í stað Ein-
ars Arnar sem þýddi
að Dagur Sigurðsson
hóf leikinn í skyttu-
stöðunni á kostnað
Jaliesky Garcia.
Fljótlega í leiknum mátti merkja
stirðleika á leik íslenska liðsins gegn
framliggjandi vörn S-Kóreumann-
anna. Það tók Íslendinga fjórar mín-
útur að komast á blað þegar Gylfi
skoraði úr horninu – lagaði þá stöð-
una í 2:1. Íslendingar náðu eftir það
þokkalegum leikkafla og þar fór Sig-
fús Sigurðsson mikinn. Hann skoraði
þrjú mörk af fyrstu átta mörkum Ís-
lendinga og eftir ákveðna byrjunar-
örðugleika virtist svo sem íslenska
liðið væri að ná áttum þegar staðan
var orðin 5:3 eftir tíu mínútna leik. En
smám saman fór að síga á ógæfuhlið-
ina. Eins og stundum áður gekk Ís-
lendingum illa að færa sér liðsmuninn
í nyt og einum manni færri náðu S-
Kóreumenn að skora þrjú mörk og
það virtist gefa þeim blóð á tennurn-
ar. Risinn Kyung-Shin Yoon rumsk-
aði heldur betur síðari hlutann í hálf-
leiknum og með hann í fararbroddi
breyttu S-Kóreumenn stöðunni úr
11:11 í 15:11 og eftir það höfðu þeir
undirtökin allt til leiksloka.
Íslendingar sýndu smá baráttuvilja
í upphafi síðari hálfleiks og góður
leikur Jaliesky Garcia gerði það að
verkum að Ísland minnkaði muninn
niður í eitt mark. Garcia skoraði fjög-
ur mörk á fyrstu 13 mínútunum og
hélt Íslendingum inni í leiknum en
mistök á mistök ofan í sókninni hjá ís-
lensku leikmönnunum voru það sem
skildi liðin að. Á meðan léttleikandi
liðsmenn S-Kóreu smeygðu sér í
gegnum götótta vörn Íslands eða
komu þrumuskotum framhjá henni
og í netið fyrir aftan Roland Eradze
þá gerðu leikmenn Íslands sig seka
um að klúðra hverju dauðafærinu á
fætur öðru og ef s-kóreski markvörð-
urinn varð ekki fyrir skotum Íslend-
inganna þá töpuðu þeir boltanum frá
sér á klaufalegan hátt. Íslenska liðið
játaði sig sigrað þegar það lenti fimm
mörkum undir, 29:24, og lokamínút-
urnar voru hálfgerð píning fyrir ís-
lensku leikmennina.
Ekki er auðvelt að útskýra hvað fór
úrskeiðis í leik Íslendinga en sá neisti
og sigurvilji sem var svo allsráðandi í
leiknum við Slóvena kviknaði aldrei.
Liðið komst aldrei í gang, baráttan
var í orðum en ekki í verki og það var
nær óþekkjanlegt borið saman við
títtnefndan Slóveníuleik. Lið getur
ekki leyft sér að fara svona illa með
færin og leikmenn verða að taka sig
saman í andlitinu hvað þetta varðar.
Miklar brotalamir voru á varnar-
leiknum. Asíumennirnir fótfráu göt-
uðu íslensku vörnina allt of oft og
hvorki Guðmundur Hrafnkelsson né
Roland Eradze náðu sér á strik í
markrammanum. Spurning er hvort
ekki hefði átt að klippa út stórskytt-
una Yoon í síðari hálfleik en hann
reyndist okkar mönnum mjög erfiður.
Ólafur Stefánsson var eini leikmað-
urinn í íslenska liðinu sem lék af eðli-
legri getu leikinn út í gegn. Hann að
minnsta kosti lagði sitt af mörkum og
kannski hefði hann átt að ljúka öllum
sóknum Íslands í leiknum miðað við
skotnýtingu hans samanborið við
samherjanna. Sigfús átti ágætan
kafla í fyrri hálfleik og Garcia í upp-
hafi síðari hálfleiks en aðrir voru und-
ir pari.
Íslenska liðið vinnur ekki Rússa
með frammistöðu eins og það sýndi í
gær. Svo mikið er víst. Af fjórum
leikjum Íslands í keppninni var þetta
sá lélegasti og vonandi hefur botnin-
um nú verið náð. Með sigri á Rússum
á morgun geta strákarnir bjargað sér
fyrir horn en til þess þurfa þeir hver
og einn að líta í eigin barm og bæta
verulega leik sinn frá því í gær. Getan
er fyrir hendi og með viljann, barátt-
una og einbeitinguna að vopni þá er
vel mögulegt að leggja rússneska
björninn að velli.
Íslendingar mæta Rússum í hreinum úrslitaleik eftir ósigur
gegn S-Kóreu í gær á Ólympíuleikunum í Aþenu
Enginn neisti og
hræðileg nýting
dauðafæra
ÍSLENDINGAR heyja úrslitaorustu við Rússa á morgun um að kom-
ast áfram í 8-liða úrslit á Ólympíuleikunum í Aþenu eftir ósigur
gegn S-Kóreumönnum, 34:30, í gær. S-kóreska hraðlestin var hæg-
gengari í gær en í leikjunum þremur á undan en engu að síður var
hún nógu hröð til að keyra yfir íslenska liðið. Allt frá upphafi til enda
var íslenska liðið skrefi á eftir Asíumönnunum og með frammistöðu
sinni átti það ekkert annað skilið en ósigur. Afar slök nýting góðra
færa ásamt lélegri vörn og markvörslu einkenndi leik íslenska liðs-
ins og olli leikur þess miklum vonbrigðum eftir sigurinn sæta á
Slóvenum á miðvikudaginn.
+# ')#
+# ')#
0
5
4
!
"
4
/
44
#
!$%&
' (
)*)+ ,
!"
#!
Íslenski „Berlínamúrinn“ var engin
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar frá
Aþenu