Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 7

Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 7
ÓL Í AÞENU 2004 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 B 7 ROMAN Sebrle, heimsmethafinn í tugþraut, á jafnframt bestan ár- angur á þessu ári af þeim sem keppa í þraut- inni í Aþenu. Sebrle fékk 8.842 stig fyrr á árinu en heimsmet hans er 9.026 stig. Aðeins tveir aðrir hafa gert betur í ár en Jón Arnar Magnússon gerði þegar hann setti Ís- landsmet sitt fyrir sex árum, 8.573 stig. Það eru þeir Tom Pappas frá Bandaríkjunum, sem fékk 8.732 stig, og landi hans, Bryan Clay, sem fékk 8.660 stig en það er hans besti árangur frá upphafi. Næstur á eftir þeim er hinn bráðefnilegi Kasaki, Dmitriy Karpov, sem setti Asíumet fyrr á þessu ári þegar hann hlaut 8.513 stig. Karpov sló í gegn í fyrra þegar hann fékk bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu. Ólympíumeistarinn frá Sydney, Eistlendingurinn Erki Nool, hefur fengið 8.317 stig í ár og er alltaf líklegur til að blanda sér í topp- baráttuna. Þá gæti fyrrverandi heimsmethafi, Tomas Dvorák frá Tékklandi, gert vart við sig á ný en hann hefur aðeins náð 8.211 stigum í ár. Dean Macey frá Bret- landi, fyrrum silfur- og brons- verðlaunahafi frá heimsmeist- aramótum, fékk aðeins 7.842 stig í sinni einu þraut í ár, reyndar sinni fyrstu í þrjú ár, en hann gæti samt sem áður gert góða hluti í Aþenu. Þá er hinn reyndi Lev Lobodin frá Rússlandi ávallt ofarlega þeg- ar mikið liggur við og aðrir sem hafa náð ágætum árangri í þraut- inni í ár eru Bandaríkjamennirnir Phil McMullen (8.285) og Paul Terek (8.312) og Hollendingurinn Chiel Warners (8.301). Sebrle er bestur á þessu ári Roman Sebrle JÓN Arnar Magnússon sleppti setn- ingarhátíð Ólympíuleikanna síðasta föstudagskvöld og mætti til Aþenu á sunnudagskvöldið. Hann ætlar síðan að fara heim strax á miðviku- dag, eða morguninn eftir að tug- þrautarkeppninni lýkur, og sleppir því líka lokahátíðinni. „Þetta verður stysta viðvera mín á Ólympíuleikum en ég er ekki mik- ið fyrir að vera lengi í burtu og vil frekar vera sem mest heima með fjölskyldunni. Ég fór frekar í berja- mó á laugardaginn en að flýta mér til Aþenu. Ég er orðinn reyndur í þessu og finn hvað hentar mér best, og það er fínt að vera sem styst og drífa sig strax í burtu,“ sagði Jón Arnar við Morgunblaðið í gær. Fór frekar í berjamó GUÐMUNDUR Karlsson, landsliðsþjálfari í frjálsum íþróttum, kveðst vera bjartsýnn fyrir hönd Jóns Arnars Magnússonar, tugþrautar- kappa. „Við erum búnir að leggja talsvert á okkur til að hann toppi hérna á réttum tíma og vonandi gengur það upp,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið. Hann segir að Jón Arnar sé í ágætu standi. „Hann er með skekkju í hryggj- arliðum en Elís Þór Rafnsson, sjúkraþjálfari ís- lenska hópsins, sér um að halda því í horfinu og það háir honum ekkert. Hann fer því heill inn í keppnina og markmiðið er fyrst og fremst að ljúka þrautinni og gera betur en í Atlanta 1996 þegar hann varð tólfti. Ef hann lýkur þrautinni stórslysalaust er hann örugglega í hópi tólf efstu, og allt betra en það er frábært. Möguleikarnir eru galopnir, það er mjög breiður hópur sem getur hafnað á bilinu þriðja til tuttugasta sæti af þeim 43 sem skráðir eru til leiks. Honum þarf að ganga sæmilega til að ná því en forsendurnar eru til staðar. Tug- þraut er fullorðins keppnisgrein, tíu íþrótta- greinar, og þær þurfa að ganga upp,“ sagði Guðmundur Karlsson. Allt betra en tólfta sæti er frábært JÓN Arnar Magnússon, tugþraut- arkappi, hefur ekki tekið endan- lega ákvörðun um hvernig útlit sitt verði þegar tugþrautarkeppni Ól- ympíuleikanna hefst á mánudags- morguninn. Jón Arnar hefur bryddað upp á ýmsu hvað varðar skeggvöxt sinn og eitt sinn skartaði hann skeggi í íslensku fánalitunum. Hann er skeggjaður eins og er, en segir ekki öruggt hvort hann raki sig fyrir keppnina. „Mann klæjar svolítið í þetta, það er svo heitt hérna,“ sagði Jón Arnar og hló þeg- ar Morgunblaðið spurði hann um þetta í gær. Skeggjaður eða skegglaus? því styðja menn við bakið hver á öðrum og reyna að hjálpa eins og hægt er. Ég á marga góða vini í þessum hópi og er alltaf í sambandi við nokkra þeirra. Mest við þá Roman Sebrle og Erki Nool. Þetta eru ekki stöðug samskipti, en við heyrum hver í öðrum af og til. Þetta eru allt saman fjölskyldumenn og þegar við hittumst, spyrjum við ekki hver annan um íþróttina, heldur um fjöl- skylduna, hvað sé að gerast, og svo skoða menn fjölskyldumyndirnar hver hjá öðrum. Það er virkilega gaman að þessu.“ Engin ástæða til að slengja skónum á hilluna strax Jón Arnar er nýorðinn 35 ára og hefur marga fjöruna sopið í tug- þrautinni. Hann er ekki með nein ákveðin takmörk um hvenær ferl- inum ljúki. „Ég læt þetta ráðast, en eflaust hægi ég dálítið á æfingunum eftir Ólympíuleikana. Ef ég slepp vel í gegnum þá og er ómeiddur, er engin ástæða til að slengja skónum upp á hilluna strax. Ef allt er eðli- legt, kemst ég sjálfkrafa á Evrópu- mótið innanhúss næsta vetur, fer á Erki Nool mótið í Eistlandi, og keyri mig hægt og rólega niður á þessu. Svo kemur bara framhaldið í ljós.“ Spurningunni um næstu Ólympíu- leika, í Peking 2008, svaraði Jón með því að gretta sig. „Nei, fjandinn hafi það maður, ég verð orðinn 39 ára þá. Ætli það?“ Jón Arnar bjó í Svíþjóð um skeið en kom þaðan alkominn um síðustu áramót og flutti þá á ný með fjöl- skyldunni í Kópavog þar sem hann æfir og keppir undir merkjum Breiðabliks. „Það er búin að vera hrein snilld að æfa heima í sumar, svo ég tali nú ekki um vikuna áður en ég kom hingað til Aþenu. Sú hita- bylgja var frábær aðlögun fyrir hit- ann hérna. Það er virkilega gott að vera kominn aftur á fornar slóðir í Kópavogi.“ Jón Arnar, sem er íþróttakennari að mennt, starfar við íþróttamið- stöðina Lauga í Laugardalnum í Reykjavík. „Þar vinn ég fullan vinnudag, frá sex til tvö, og fer svo og æfi sjálfur. Það geta vissulega verið langir dagar og maður getur fengið nóg af því að þjálfa aðra og svo sjálfan sig í kjölfarið, en þetta er samt ágætt. Ég held eitthvað áfram í þessu, til að læra meira á þessu sviði. Það er kominn tími til að ég píni aðra.“ Og fyrir mánudaginn er allt til reiðu. „Ég er raunsær en bjartsýnn, stefni á 8. til 10. sætið og allt fram- yfir það er mikill plús,“ sagði Jón Arnar Magnússon. Morgunblaðið/Golli Tugþrautarmaðurinn Jón Arnar Magnússon er tilbúinn í slaginn í tugþrautakeppnini, sem hefst á mánudaginn. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.