Morgunblaðið - 21.08.2004, Síða 8
8 B LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
RÚSSNESKA liðið sem sækir okk-
ur Íslendinga heim á sunnudag er
með sterkari liðum sem hingað hafa
komið. Rússar léku fyrst kvenna-
landsleik árið 1990, 9 árum á eftir Ís-
lendingum, og hafa rússnesku stúlk-
urnar hafa tekið þátt í úrslitakeppni
bæði HM,EM og ÓL.
SKEMMST er að minnast þess að í
síðustu Heimsmeistarakeppni
kvenna sem fram fór í Bandaríkjun-
um 2003 lék liðið gegn Þjóðverjum í
undanúrslitum.
RÚSSNESKA liðið er afar leik-
reynt. Meðalaldur þeirra 20 leik-
manna sem tilkynntir hafa verið
hingað til lands er 28,5 ár. Þær hafa
leikið 43 leiki að meðaltali og hver
leikmaður skorað að meðaltali 10
landsliðsmörk.
HÆTTULEGASTI leikmaður
rússneska liðsins er án efa hin 31 árs
gamla Natalia Barbachina. Hún hef-
ur verið mesti markahrókur liðsins
um langt árabil og á 105 leiki og 88
mörk að baki.
OLGA Letiouchovu, Irina Grigor-
ievu og Tatiana Egorovu hafa leikið
235 leiki og skorað í þeim 54 mörk.
TIL samanburðar er meðalaldur
íslensku leikmannanna 22,5 ár, þær
hafa leikið 15 leiki að meðaltali og
skorað í þeim tæplega 2 mörk.
Markahæsti leikmaður íslenska liðs-
ins er Olga Færseth en hún hefur
skorað 14 mörk í 46 landsleikjum.
Næst markahæsti leikmaður liðsins
er hins vegar yngsti leikmaður þess,
Margrét Lára Viðarsdóttir sem er
aðeins 18 ára en hún hefur skorað 10
mörk í 9 A-landsleikjum.
ÍSLAND hefur ekki ennþá tekist
að leggja Rússa að velli. Liðin hafa
mæst sex sinnum, þrisvar sinnum í
undanriðlum Evrópukeppninnar,
tvisvar í undariðlum Heimsmeist-
arakeppi og einu sinni í vináttulands-
leik í Algarve í Portúgal.
RÚSSAR hafa sigrað í tvisvar í
þessum sex leikjum en fjórum sinn-
um hafa liðin skilið jöfn og þá alltaf
með markatölunni 1-1. Rússar hafa
náð að skora mark í hverjum einasta
leik og hafa alls skorað 12 mörk gegn
Íslendingum.
JÓHANNES Jóhannesson, hand-
knattleiksmaður, sem lék á síðustu
leiktíð með Stjörnunni hefur ákveðið
að spila með Gróttu/KR í vetur. Jó-
hannes, sem er línumaður og bróðir
Patreks Jóhannessonar landsliðs-
manns í handknattleik, er 25 ára
gamall og mjög sterkur varnarmað-
ur. Hann hittir fyrir hjá Gróttu/KR,
línumanninn Björn Friðriksson sem
lék með Jóhannesi í Stjörnunni á
síðasta vetri.
Í GÆR náðist samkomuleg milli
Ian Jeffs og forráðamanna ÍBV um
að Ian Jeffs leiki með ÍBV sumarið
2005, eftir því sem fram kemur á
heimasíðu félagsins. Þetta er annar
leikmaður liðsins sem tekur ákvörð-
un sem þessa því að Atli Jóhannsson
skrifaði undir framlenginguna á sín-
um samningi til 2006 á dögunum.
ÞAÐ er allt sem bendir til þess að
siglingamaðurinn Hafsteinn Ægir
Geirsson endi í 40. sæti í keppni á
laserbátum á Ólympíuleikunum í
Aþenu.
Hafsteinn varð 39. í 9. umferð í
gær og bætti sig síðan um þrjú sæti
í 10. umferð síðdegis í gær er hann
varð 36. Í samanlögðum árangri er
Hafsteinn Ægir í 40. sæti af 42
keppendum.
Miðað við stöðu hans núna þarf
mikið að fara úrskeiðis hjá honum
eigi hann að missa þá sem eru fyrir
aftan hann fram úr sér í loka-
umferðinni, þeirri 11., sem fram fer
á sunnudaginn.
Litlar líkur eru á því að Haf-
steinn Ægir nái að saxa á forskot
þeirra sem eru fyrir ofan hann
þessa stundina. Í síðari umferðinni í
gær var Hafsteinn Ægir Geirsson á
meðal fremstu manna í upphafi
keppninnar en náði ekki að fylgja
því eftir.
Hafsteinn Ægir í 40. sæti
Morgunblaðið/Golli
KARLALIÐ Grikkja í körfuknatt-
leik teflir fram í sínu liði leikmanni
sem íslenskir körfuboltaáhuga-
menn ættu að kannast eitthvað við.
Sá heitir Konstantinos Tsartsaris,
lék með Grindvíkingum eitt tímabil
og varð bikarmeistari. Tsartsaris
er 25 ára gamall framherji og er á
mála hjá Panathinaikos í Aþenu.
Eftir tímabilið heima á Fróni
reyndi hann að komast að í NBA en
var ekki valinn en gekk í stað þess í
raðir Panathinaikos árið 2002 þar
sem hann hefur unnið tvo meistara-
titla og einn bikarmeistaratitil.
Tsartsaris hefur tekið gríðarlegum
framförum frá því hann lék listir
sínar með Grindvík og líkamlegt at-
gervi hans hefur mikið breyst. Frá
því að vera mjór sláni, en Tsarts-
aris er 2.09 metrar á hæð, hefur
leikmaðurinn bætt á sig miklum
vöðvamassa og er framtíðarmaður í
gríska liðinu. Tsartsaris er sagður
vera 96 kg. í dag.
Grikkir hafa leikið þrjá leiki á
ÓL til þessa, unnið einn leik en tap-
að tveimur.
Grindvíkingur í
körfuboltaliði Grikkja
HELENA Ólafsdóttir, þjálfari
kvennalandsliðsins, hefur tilkynnt
eina breytingu á landsliðshópnum
sem mætir Rússlandi á sunnudag.
Erna B. Sigurðardóttir er meidd og
kemur Ásta Árnadóttir í hennar
stað. Þrír nýliðar eru í landsliðs-
hópnum, þær Ásta Árnadóttir og
Pála Marie Einarsdóttir úr Val og
Erla Steinunn Arnardóttir, Statt-
ena IF.
Aðrir leikmenn eru: Þóra B.
Helgadóttir (Kolbotn) og María
Björg Ágústsdóttir (KR) mark-
menn. Útileikmenn eru Olga Fær-
seth (ÍBV), Erla Hendriksdóttir
(Breiðablik), Guðlaug Jónsdóttir
(KR), Edda Garðarsdóttir (KR),
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir (KR),
Laufey Ólafsdóttir (Val), Málfríður
Erna Sigurðardóttir (Val), Dóra
Stefánsdóttir (Val), Margrét Lára
Viðarsdóttir (ÍBV), Íris Andrés-
dóttir (Val), Hólmfríður Magnús-
dóttir (KR), Dóra María Lárusdóttir
(Val) og Nína Ósk Kristinsdóttir
(Val).
Liðin gerðu jafntefli í fyrri leik lið-anna út í Rússlandi en alls hafa
þjóðirnar mæst þrisvar og í öll skipt-
in hafa liðin skilið jöfn, 1:1. Eins og
áður sagði er íslenska liðið þegar bú-
ið að tryggja sér sæti í umspili en
mjög mikilvægt er að tryggja sér
annað sætið í riðlinum til að sleppa
við að spila við sterkustu þjóðirnar
þegar í umspilið er komið.
Helena er nokkuð bjartsýn fyrir
leikinn og telur að íslenska liðið eigi
góða möguleika á að ná sigri. „Mark-
miðið var að ná öðru sæti og við ætl-
um okkur að ná því. Til þess þurfum
við að vinna leikinn. Þessir leikir við
Rússa hafa verið mjög jafnir enda
alltaf gert jafntefli við þá. Þetta er
álíka sterkt lið og við en þeir hafa
náð lengra. Við erum á heimavelli og
viljum gera vel þar.“ Aðspurð út í
andstæðingana segir Helena að
rússneska liðið hafi verið mjög
sterkt í gegnum árin en telur samt
að íslenska liðið sé síst lakara. „Þetta
er líkamlega sterkt lið með hættu-
legan framherja. Þær spila á mörg-
um leikmönnum og eru búnar að
undirbúa sig gríðarlega vel. Þær eru
búnar að spila nokkra æfingaleiki á
stuttum tíma, nú síðast við Englend-
inga á fimmtudagskvöld, sem mér
finnst mjög stuttur fyrirvari fyrir
okkar leik, en þær eru búnar að vera
í stífum æfingabúðum fyrir þetta
dæmi.“
Helena segir íslenska hópinn mjög
sterkan og til alls líklegan enda séu
þær í mjög góðu líkamlegu formi.
„Þetta er mjög sterkur hópur og
munurinn á liðinu frá því í vor er sá
að þær hafa verið að spila frá því í
sumar og margir leikmenn hafa ver-
ið að stíga upp og spila vel enda eru
nokkrir nýir leikmenn þarna inni.
Mér líst mjög vel á hópinn og nú
þurfum við að þjappa hópnum saman
og rífa upp stemmningu í liðið. Við
komum til með að spila svipað og við
höfum gert en kannski með breytt-
um áherslum.“
Ásthildur Helgadóttir, sem verið
hefur einn besti leikmaður liðsins
undanfarin ár, sleit krossband í hné í
mars síðastliðnum og verður ekki
klár í slaginn fyrr en á næsta ári.
Helena segir að hún sé á góðum
batavegi og að endurhæfingin gangi
vonum framar.
Helena segir að hún sé lítið farin
að huga að umspilinu. „Við viljum
klára þennan leik fyrst og einbeita
okkur að honum. Þetta er bara bik-
arkeppni þegar komið er út í umspil
og það skiptir ekki máli hver and-
stæðingurinn er heldur þarf bara að
vera klár. Auðvitað vill maður allra
síst Noreg en þetta verður allt
spennandi.“
Auglýsingar íslenska liðsins fyrir
leikina hafa vakið mikla athygli og er
leikurinn á morgun engin undan-
tekning. „Það verður að sjálfsögðu
haldið í hefðina. Ég fæ aldrei að vita
hvert þemað er. Ég fletti bara
blaðinu þegar auglýsingin birtist og
bíð jafnspennt og aðrir.“
Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari
fyrir þýðingarmikinn leik gegn Rússum á Laugardalsvellinum í EM
Morgunblaðið/ÞÖK
Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari í leik gegn Frökkum á Laugardalsvellinum.
„Ætlum
að ná öðru
sætinu“
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu mætir Rússlandi í
undankeppni Evrópumótsins á
morgun og fer leikurinn fram á
Laugardalsvelli. Íslenska liðið
er í öðru sæti riðilsins og hefur
þegar tryggt sér sæti í umspili
en segja má að þetta sé úrslita-
leikur um annað sætið í riðl-
inum en Rússar eru í þriðja sæti
riðilsins, fimm stigum á eftir Ís-
landi. Frakkar hafa þegar tryggt
sér sæti í úrslitakeppninni.
Morgunblaðið ræddi við Helenu
Ólafsdóttur, landsliðsþjálfara,
og spurði hana út í leikinn.
Landsliðshópurinn gegn Rússum