Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 27.08.2004, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 B 5 GYLFI Þ. GÍSLASON Á SJÖTUGSAFMÆLI dr. Gylfa Þ. Gísla- sonar, 7. febrúar 1987, ritaði Matthías Johann- essen, ritstjóri Morgunblaðsins, grein um af- mælisbarnið. Hér fara á eftir tveir kaflar úr greininni. Matthías er nú staddur á bókahátíð- inni í Edinborg í Skotlandi: Leiðir okkar dr. Gylfa lágu saman þeg-ar ég fylgdist með störfum hans semmenntamálaráðherra ungur viðreisn-arritstjóri og tókst með okkur góð vinátta upp úr því. Það var gaman að fylgjast með stjórnmálum í þá daga, svo margt viturlegt sem þá var gert til að losa um höft og opna þjóðfélagið, eins og nú er komist svo fjálglega að orði. Það var okkur sem ólumst upp við höft og skömmtunarkerfi og margvíslega aðför að frelsi einstaklingsins nán- ast opinberun að upplifa loks og eftir langa mæðu, hvernig unnt er að njóta þess besta sem lýðræði getur boðið þegnum sínum. Þess vegna var Viðreisnin vel metin breyting frá því sem verið hafði og fagnaðarefni. Ungt fólk nú á dögum sem þekkir ekki skömmtunarkerfi og því síður nánasarlega gjaldeyrisúthlutun til ferðalaga sem jaðraði við átthagafjötra getur varla gert sér í hugarlund, hvílík lausn þessi breyting var okkur og raunar fagnaðarefni. Nú um skeið hefur verið reynt að sverta þetta tímabil í augum þeirra sem þekkja ekki til og er það miður. En það sýnir einungis það lágkúru- lega plan sem stjórnmálaumræður eru á hér heima – og kannski eru þær ekkert betri er- lendis, ég efast um það! Þetta loðir einhvern veginn við pólitískar umræður og engu líkara en til þess sé ætlast. Engum datt víst í hug að Viðreisnarstjórnin héldi velli á annan áratug og var það raunar ein- stætt í íslenskum stjórnmálum. Ein aðalástæða þessa langlífis voru heilindi og gagnkvæmt traust milli þeirra sem beittu sér fyrir þessari breytingu, bæði þeirra sem mótuðu stefnu Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokksins, en þar var dr. Gylfi í fylkingarbrjósti, eins og kunnugt er. For- ystumenn þess tíma voru sterkir og ábyrgir brautryðjendur. Þeir horfðu af háum sjónarhóli, en ekki persónulegum eða flokkslegum hunda- þúfum, eins og oft vill verða í návígi. Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur höfðu borið gæfu til að slíðra sverðin eftir væringar og illvígar deilur á fjórða áratugnum og naut þjóð- in þess í ríkum mæli um og eftir miðja öldina. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hafa reynt að feta þetta einstig gagnkvæms trausts, en gengið heldur brösuglega, þótt ýmislegt hafi unnizt í þeim efnum. Nú eru jafnvel farnar að heyrast ábyrgar raddir um samstarf milli Al- þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks og er það vel, svo hættulegt sem það er lítilli þjóð að vera sjálfri sér sundurþykk til eilífðarnóns, einungis til að þóknast skammsýnum og metnaðarfullum leiðtogum sem telja að meira geti á unnizt með ópum og ólátum, en manneskjulegu viðmóti og heiðarlegum samtölum manna á milli. Þegar Gylfi Þ. Gíslason var á hátindi stjórn- málaferils síns, töluðu forystumenn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks hver við annan af gagnkvæmri virðingu og nærgætni, sem var ný- lunda í stjórnmálabaráttu hér á landi. Að vísu höfðu flokkarnir orðið svo lík sjónarmið að þeir hefðu nánast getað sameinazt þess vegna! Það var mikill léttir eftir hræðslubandalag og illindi á sjötta áratug, sem hjuggu nærri rótum þing- ræðisins, og er mér nær að halda, að dr. Gylfi hafi ekki kunnað eins vel við sig á þeim pólitíska fleka og margir héldu. Kannski hélt hann líka sjálfur að þessi fleki væri eftirsóknarvert björg- unartæki, svo lítið sem við þekkjum sjálf okkur í raun og veru! En á því er þó enginn vafi að hann naut sín ekki til fulls fyrr en á sjöunda áratugn- um, þegar hann varð einlægur talsmaður þeirr- ar öryggisstefnu sem hefur dugað okkur jafn vel og raun ber vitni og þess frelsis ein- staklingum til handa sem er lágmarkskrafa í lýðræðisþjóðfélagi. Og kannski mátti hann og félagar hans þakka sínum sæla að lifa hræðslu- bandalagsprammann af og komast heilir á húfi til lands. En það var þeim mikil og þroskandi lexía, á því er enginn vafi. Og dr. Gylfi kunni að meta þennan lærdóm og draga ályktanir af hon- um. Hann varð einn helsti talsmaður þjóð- arinnar í baráttunni fyrir frjálsum við- skiptaháttum og verzlunarfrelsi sem okkur er sæmandi. Það er engin tilviljun, hvað ég hef staldrað við þennan þátt og minnt á hann. Niðurlægingin var með þeim hætti að hún verður okkur lýð- veldiskynslóðinni ævarandi áminning. Þegar minn árgangur lauk stúdentsprófi 1950, var okkur gefinn kostur á að kaupa ein spariföt og efni í stúdentshúfur, en sækja þurfti um inn- flutningsleyfi fyrir herlegheitunum og bannað að fara yfir kvótann! Síðan hefur þetta orð verk- að illa á mig. Gylfi Þ. Gíslason átti ekki minnstan þátt í því að þetta ríkisbákn var brotið niður. Fyrir það mun hans ekki sízt minnzt. Og þá ekki síður eld- heitrar og einlægrar forystu í mennta- og menningarmálum á sjötta áratugnum. Að vísu greindi okkur Morgunblaðsmenn eitthvað á við hann um skeið, þegar við gerðum harða atlögu að skólakerfinu, sem hafði gengið sér til húðar, en þá gerði dr. Gylfi sér lítið fyrir og hóf forystu um breytingar á kerfinu sem voru til bóta, þótt sumt hafi farið úrskeiðis og margt mætti enn taka til gagngerrar endurskoðunar.“ Tilfinningamaður „Gylfi Þ. Gíslason er tilfinningamaður mikill eins og raunar allt hans fólk. Þá er gripið til þeirrar skeljar sem náttúran ætlazt til að sé slíku fólki hlíf og skjöldur í óvægnu umhverfi. En það er líka mikið listamannsblóð í þessu fólki eins og sjá má á „músíkalíteti“ afmæl- isbarnsins án þess að ég sé að krefjast þess beinlínis að hann semji lag við eitthvert af ljóð- um mínum! Aftur á móti vil ég ekki láta undir höfuð leggjast að minnast hér í lokin á Gunnlaug Scheving, frænda dr. Gylfa, þann öðling, sem bar listrænum hæfileikum ættar sinnar það vitni sem aldrei fyrnist. Ég átti því láni að fagna að kynnast honum og njóta vináttu hans og hann kom oft á heimili okkar Hönnu og þá var alltaf hátíð. Þegar hann lézt langt um aldur fram, vorum við í Kaupmannahöfn og líkaði mér ekki, hve þessa andlega risa var lítið minnzt hér heima, svo ég strengdi þess heit að skrifa um hann bók, þótt síðar yrði, enda höfðum við Gunnlaugur það á prjónunum. Ég stóð við fyrirheitið, sendi dr. Gylfa ritið, þegar það kom út, og fékk frá honum þakkarbréf sem ég geymi og met mikils. Þegar slíkir menn sem Gylfi Þ. Gíslason senda mann þakkir og hlýjar kveðjur, þarf ekki annan ritdóm.“ Heilindi og gagnkvæmt traust að ríkja traust milli þeirra. Þá mega engin brögð vera í tafli.“ Minning mín um þetta farsæla, langvinna samstarf ólíkra manna úr ólíkum flokkum er á þennan veg. Fjölskyldur okkar tengdust einnig öðrum böndum og vil ég enn á kveðjustundu þakka Gylfa og Guðrúnu Vilmundardóttur, eigin- konu hans og stoð hans og styttu, þá samfylgd alla, sem á stundum hefur snortið okkur mjög djúpt. Ég flyt frú Guðrúnu, sonum þeirra hjóna og öllum ástvinum þeirra inni- legar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Gylfa Þ. Gísla- sonar. Björn Bjarnason. Einn merkasti stjórnmálamaður liðinnar aldar á Íslandi er látinn. Með Gylfa Þ. Gíslasyni hverfur úr hópi lif- enda síðasti ráðherra viðreisnar- stjórnarinnar, farsælustu ríkisstjórn- ar, sem Ísland hefur átt. Sú ríkisstjórn varð fyrst til þess að brjóta fjötra einangrunar og leysa helsi ófrelsis af viðskipta-, atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar. Sagt er, að Ísland sé eitt af síðustu ríkjum Evr- ópu til þess að losa sig við hagkerfi austantjaldslanda – ef sú niðurstaða hefur þá náðst að fullu enn sem komið er, sem um má deila. Sú þarfa breyt- ing hefði gerst mun fyrr og gengið greiðar ef sjónarmiða viðreisnar- stjórnarinnar hefði lengur gætt en raunin varð. Ekki síst ef áhrifa Gylfa Þ. Gíslasonar hefði lengur notið við um landsstjórnina. Breskir jafnaðarmenn kenna flokk sinn við „nýja jafnaðarstefnu“ og telja sig hafa endurnýjað og endurskapað stefnu jafnaðarmanna í Evrópu til móts við breytta tíma. Sú „nýja jafn- aðarstefna“ er löngu til orðin hér á Ís- landi. Hana skapaði Gylfi Þ. Gíslason. Vilmundur, sonur hans, festi hana svo í sessi. Sá, sem þetta ritar, átti því láni að fagna að fá að fylgjast með þeirri vegferð. Hún var ekki fyrirhafnarlaus og því síður átakalaus; hvorki innan flokks né á hinum pólitíska vettvangi yfirleitt. En þvílík umbreyting! Var sú umbreyting í anda „hægri“ eða „vinstri“ stefnu? Svipa merkingar- lausra orða í samtímanum! Gylfi Þ. Gíslason bar ekkert pólitískt stein- barn undir sínu belti. Hans styrkur var sá, að hann gat ekki aðeins metið heldur ávallt endurmetið afstöðu sína í ljósi nýrrar þekkingar, reynslu og breyttra aðstæðna. Leiðarljós hans voru annars vegar skynsemi hans, gáfur og þekking og hins vegar sam- úð, góðvild og djúpstæð virðing fyrir manngildi. Greind og góðvild gerðu hann að jafnaðarmanni. Sem slíkur var hann maður allra tíma, allra nýrra strauma í heimsmynd jafnaðarmanna á sínum lífsferli. Mikil ritverk liggja eftir Gylfa Þ. Gíslason. Jafnt á sviði hagvísinda, menningar, mennta og stjórnmála. Eins má þó sakna. Hann ritaði fátt frásagna um eigið æviskeið. Um kynni sín af mönnum og málefnum. Enga palladóma um samferðamenn, sjálfan sig, og verk sín eins og margra stjórnmálamanna er siður við starfs- lok. Bókin hans um viðreisnarárin er fróðleg. En hún veitir ekki slíka inn- sýn. Hún greinir frá staðreyndum en hvorki frá persónulegum samskiptum né áliti höfundar á frammistöðu leik- enda á sviði viðburðanna. Af nógu hefði þó verið hægt að taka. Gylfi hafði náin kynni af öllum stjórnmála- foringjum Íslendinga um margra ára- tuga skeið. Að honum var sótt harðar og af meiri heiftrækni en flestum öðr- um samtímamönnum. Margir hefðu freistast til þess að gera upp þá tíð. Lýsa viðburðum og samskiptum við samferðamenn frá sínu sjónarhorni. „Réttlæta“ sig og verk sín í skjóli eft- irlaunaáranna. En ekki Gylfi. Skorti hann þó hvorki til þess ritfærni né minni. Eftir að margra ára langt samstarf okkar hafði þróast upp í góða vináttu sagði hann mér oft frá atburðum og samskiptum við fólk, sem sannarlega hefði verið forvitnilegt að sjá einhvers staðar skráð. Þó ekki væri nema til þess að varpa ljósi á viðburði, sem án þess verða ekki skýrðir rétt. Ég spurði hann einhverju sinni hvort hann ætlaði ekki að skrifa ævisögu sína og skilja þessa fjársjóði frásagn- ar eftir fyrir síðari tíma áhugamenn um stjórnmálasögu landsins. Svar hans var afdráttarlaust nei. Ævisögu sína vildi hann ekki skrifa. Hvers vegna ekki? Vegna þess, sagði hann, að oft verður rás viðburða, sem leiddu til markverðra atburða í stjórnmála- sögu Íslendinga, ekki skýrð nema út frá persónulegum samskiptum milli einstaklinga, vildar eða óvildar milli manna, geðslags þeirra eða annars þess, sem „ekki er vert að segja frá“, eins og hann orðaði það. Gylfa Þ. Gíslasyni var það víðs fjarri að skilja eftir sig slík ummæli um annað fólk. En hvílíkur hafsjór af fróðleik um menn og málefni hann var! Einhverju sinni á síðari samstarfsárum okkar vorum við á ferð í ferju milli Hels- ingjaeyrar í Danmörku og Helsingja- borgar í Svíþjóð ásamt eiginkonum okkar á leið á norræna samkomu en við störfuðum þá saman á þeim vett- vangi; hann sem formaður Norræna félagsins og ég sem framkvæmda- stjóri þess. Þá hóf hann að segja mér frá samskiptum sínum við stjórn- málaforingja á frumbýlingsárum Al- þýðuflokksins; frá mönnum eins og Jóni Baldvinssyni, Jóni Blöndal, Jóni Axel Péturssyni, Stefáni Jóhanni Stefánssyni, Ásgeiri Ásgeirssyni – og síðan barst talið að forystumönnum annarra flokka af þeirra kynslóð. Svo hugfangin vorum við hjónin að hlusta og svo hugfanginn var hann að segja frá að fyrr en varði var ferjan komin til Helsingjaborgar og lögð af stað þaðan aftur til fyrra lands og urðum við því að fara leiðina fram og til baka til þess að ná í áfangastað. Þessar frá- sagnir og fleiri, sem ég naut í sam- fylgd okkar, voru aldrei og verða ekki festar á blað. Það var ekki hans vilji og því réð góðgirni hans. Gylfi var ein- staklega orðvar maður og vildi heldur liggja „óbættur hjá garði“ eða leyfa sagnfræðingum að túlka atburðarás eftir „heimildum“ en að bæta sinn hlut með því að skrá atburðarás, sem ef til vill myndi smækka aðra. Góð- girni hans skóp honum vini langt út fyrir raðir eigin flokksmanna og ekki síst sakir þeirrar vináttu og virðing- arinnar sem hann naut var hann ein- róma valinn sem forseti Alþingis Ís- lendinga á þjóðhátíðinni 1974; fulltrúi minnsta þingflokksins, sem þá var, og auk þess í stjórnarandstöðu. Mér hæfari menn munu skrifa um stjórnmálaferil Gylfa Þ. Gíslasonar; framlag hans, sigra hans og töp í stjórnmálum. Fræðimenn í hagfræði eru mér fremri í að skrifa um störf hans á þeim vettvangi. Listamenn og menningarfrömuður munu gera betri skil en ég get gert menntamanninum og listelskendanum; menntamálaráð- herranum, sem allir seinni mennta- málaráðherrar verða að miða sig við svo vitnað sé til orða Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem snerist á þá sveifina eftir að hafa fengið saman- burðinn. Ég skrifa þessi minningar- orð því einungis til þess að kveðja góðan vin. Okkar kynni hófust fyrir hartnær 40 árum. Kornungur var ég þá gerður að ritstjóra Alþýðublaðsins fyrir tilverknað Benedikts Gröndals og Gylfa. Sá síðarnefndi var þá búinn að vera ráðherra viðreisnarstjórnar- innar í átta ár og var önnum kafinn. Síminn var hins vegar jafnan mikið notað samskiptatæki hans. Þannig hélt hann sambandi við flokksfólk víða um land; ekki síst Ísafjarðar- krata, enda voru þeir í þeim armi flokksins, sem þeir leiddu saman, Gylfi og Hannibal. Síminn varð raun- ar bæði upphaf og endir okkar löngu samskipta. Þannig hófust þau; með því sem næst daglegum samtölum ráðherrans og ritstjórans um símalín- una. Og þannig lauk þeim með síma- samtölum milli fyrrum stjórnmála- manna, sem báðir höfðu lagt stjórnmálastörfin á hilluna að eigin frumkvæði; annar aldraður og nær þrotinn líkamlegum kröftum og hinn skemmra kominn á sama vegi. Á milli þessa upphafs og endis samskipta fyrir tilverknað símalínunnar lágu mörg ár náins samstarfs fyrst á stjórnmálasviðinu og síðan á vett- vangi Norræna félagsins og norrænn- ar samvinnu; samstarfs, sem þróaðist í djúpa og einlæga vináttu. Mér eru kærar minningarnar um samstarf okkar Gylfa á stjórnmála- vettvangi. Sem ritstjóri Alþýðublaðs- ins öðlaðist ég sæti í þingflokki Al- þýðuflokksins þegar árið 1968, þegar enn lifðu rúm þrjú ár eftir af tímabili viðreisnarstjórnarinnar. Sæti á þingi tók ég 1974 og sat þar í þingflokknum undir stjórn Gylfa til ársins 1978 þeg- ar hann dró sig í hlé. Saman beittum við okkur þá um haustið gegn mynd- un hinnar ógæfusömu samstjórnar Framsóknarflokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags, en lentum í minni- hluta í miðstjórn Alþýðuflokksins. Draumurinn um nýja viðreisn varð ekki að veruleika fyrr en 13 árum síð- ar en varð þá því miður ekki nægilega farsæll okkur báðum til vonbrigða. Atvikin urðu hins vegar þau, að þetta ár; árið 1978; tók ég við þingflokks- formennskunni af Gylfa og átti síðar eftir að gegna ýmum þeim störfum, sem hann hafði áður sinnt á stjórn- málavettvangi. Á allri þeirri vegferð naut ég eindregins stuðnings hans, velvildar og hollra ráða. Einna vænst þótti mér þó um stuðning hans í að- dragandanum að stofnun Samfylk- ingarinnar, sem okkur var báðum ljóst að ef tækist myndi hafa í för með sér brotthvarf Alþýðuflokksins af vettvangi stjórnmálanna – flokksins, sem við höfðum báðir helgað lífsstarf okkar í stjórnmálum. Þegar Jón Bald- vin Hannibalsson flestum á óvart tók þá ákvörðun að draga sig í hlé frá stjórnmálum árið 1996 og bað mig að taka við Alþýðuflokknum og leiða hann til loka sameiningarferilsins leit- aði ég álits Gylfa eins og svo oft áður. Hann vissi, að mér var þá næst skapi að hætta stjórnmálastarfi; var búinn að fá nóg. – Þér ber engin skylda til þess að taka þetta verk að þér, sagði hann, en ef þú samt gerir það þá skal ég styðja við bakið á þér. Það gerði hann af ein- lægni og áhuga. Þann stuðning þakka ég sérstaklega nú að leiðarlokum. Gylfi Þ. Gíslason átti marga strengi í hörpu sinni. Hann var óvenjulega fjölhæfur. Maður búinn svo mörgum og ríkulegum hæfileikum naut lífsfyll- ingar á mörgum sviðum utan stjórn- málanna. Hann naut lífsins í heimi lista og menningar; var enda sjálfur maður lista og menningar. Þessa heima; heim stjórnmála og heima lista og menningar; sameinaði hann í störfum sínum sem menntamálaráð- herra en í daglegu starfi sem stjórn- málaforingi hélt hann þeim aðgreind- um. Hann flíkaði ekki listrænum hæfileikum sínum í vafstri stöðu- stjórnmálanna. Með vaxandi vinfengi okkar fékk ég tækifæri til þess að kynnast einnig þeim hliðum. Mér er minnisstætt þegar frú Svava Storr bauð Gylfa og Guðrúnu, konu hans, ásamt okkur hjónunum og nokkrum öðrum í heimsókn á glæsilegt heimili sitt við Laugaveg eftir fund í Nor- ræna félaginu. Gylfi settist þá við pí- anóið og lék nokkur af þekktustu lög- unum sínum; kátur og glettinn og ljómaði af gleði. Það var eftirminnileg og skemmtileg stund. Gylfi Þ. Gíslason varð minn póli- tíski „mentor“. Reyndar miklu meira. Hann var einlægur vinur og reyndist mér ávallt vel. Gamlir stjórnmálafor- ingjar eru eins og gamlir herforingj- ar. Þeir deyja ekki. Þeir líða burt. Nú líður hann Gylfi burtu. Eftir situr far- sælt og eftirminnilegt lífsstarf, sem verður skráð í sögubækur og gleym- ist því aldrei. Eftir situr hjá okkur, sem vorum vinir hans og lifum hann, minningar um góðviljaðan mann, sem var glaður og skemmtilegur á góðri stund, kunni frá mörgu að segja, var óvenjulega ríkum hæfileikum búinn, sáttfús og heiðarlegur og vildi engum manni illt – jafnvel ekki þeim, sem vildu honum illt á því tímabili ævi- skeiðins þegar harðast var að honum sótt. Góðgjarn maður og öllum velvilj- aður. Þannig er mín geymd um Gylfa. Við hjónin sendum Guðrúnu, ekkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.