Morgunblaðið - 21.09.2004, Síða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
„HLUTVERK okkar er að sjá um al-
menningssamgöngur á höfuðborg-
arsvæðinu og það þýðir að við sjáum
um meginlínur og ferðir milli fjölförn-
ustu svæða en náum ekki að sinna
hverri götu í hverju hverfi eða hverju
sveitarfélagi,“ segir Ásgeir Eiríks-
son, framkvæmdastjóri Strætós bs., í
samtali við Morgunblaðið. Ásgeir
segir að hugað verði að því hvort
bjóða þurfi aðra samgönguþjónustu á
jaðarsvæðum og nefnir skólaakstur
sem hugsanlega lausn á stöku stað en
hann segir hvert sveitarfélag um sig
verða að huga að slíkum sértækum
lausnum.
Sem kunnugt er á að taka upp nýtt
leiðakerfi hjá Strætó bs. með nýju
ári. Í tilefni samgönguvikunnar sem
nú stendur verða fulltrúar frá Strætó
á skiptistöðvum í dag milli kl. 14 og 18
til að veita upplýsingar og dreifa
bæklingi um nýja kerfið.
Byggist á sex stofnleiðum
Ásgeir segir að rauði þráðurinn í
breyttu leiðakerfi sé að gera stræt-
isvagna að raunhæfum valkosti og
sveitarfélögin sjö sem standa að
Strætó bs. vilji auka hagkvæmnina í
rekstrinum og bæta þjónustuna.
Nýja kerfið er byggt á sex stofnleið-
um sem þjóna í stuttu máli miðborg-
inni og svæðunum við háskólann og
Landspítalann með tíðum ferðum á
álagstímum úr Grafarvogi, Árbæjar-
og Seláshverfi, Breiðholti og síðan
Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.
Segir hann ætlunina að vagnar verði í
för á 10 mínútna fresti kvölds og
morgna virka daga. „Á þessum leið-
um komast vagnarnir hratt yfir, bið-
stöðvar eru ekki alltof þéttar og far-
þegar eiga að geta treyst því að
komast fljótt og vel á áfangastað.
Fleiri leiðir eru síðan í boði en þar
fara vagnar meiri útúrdúra og koma
við á fleiri biðstöðvum.“
Telja raunhæft
að fá fleiri í strætó
Hlemmur verður endastöð fyrir
stofnleiðirnar sex og er nú unnið að
nýju deiliskipulagi þar og nokkrar
breytingar fyrirhugaðar nái breyt-
ingarnar fram að ganga. Segir Ásgeir
að nú sé miðað við að kerfisbreytingin
taki gildi í ársbyrjun en því geti hugs-
anlega seinkað.
„Það er alveg hugsanlegt að fólk
sem hefur notið þess að búa nálægt
biðstöð eða strætisvagnaleið missi
eitthvað en við teljum að með þessu
séum við að þjóna heildinni mun bet-
ur og að með breytingunni sé raun-
hæft að fá fleiri til að ferðast með
strætó. Til að tryggja það þurfum við
að fá meiri forgang í umferðinni fyrir
strætisvagna og eru sveitarfélögin að
kanna hvar og hvernig það geti orð-
ið,“ segir Ásgeir og bendir á að við
slíkar breytingar geti þurft að breyta
gatnaskipulagi. Ásgeir leggur mikla
áherslu á skipulag og segir að reynt
hafi verið að hugsa allt leiðakerfið út
frá áðurnefndu sjónarmiði og megi
segja að það taki svolítið mið af lest-
arsamgöngum í borgum, þ.e. stofn-
leiðir eru skipulagðar milli fjölfarinna
svæða og öll áhersla er á að kerfið
geti afkastað sem mestum fjölda og á
sem stystum tíma á þessum að-
alleiðum. „Í rauninni þarf að hugsa
almenningssamgöngur inn í allt
skipulag borga og bæja. Þær snerta
gatnakerfi, skipulag umferðarljósa,
hringtorga og aðalleiða og slíkt skipu-
lag þarf að hugsa saman til framtíðar.
Þeir sem sinna almennings-
samgöngum verða að geta treyst því
að helstu leiðum sé ekki breytt á einni
nóttu og að ekki verði meginbreyt-
ingar á umferðarskipulagi án þess að
tekið sé tillit til þeirra en auðvitað
verður að laga þetta allt að byggða-
þróun á viðkomandi svæðum.“
Auka þarf forgang
Meðal staða sem Ásgeir segir
brýnt að gefa strætisvögnum forgang
sé Hverfisgata í báðar áttir, óskað
hefur verið eftir sérakrein í Lækj-
argötu sem hann segir að sé unnt að
koma fyrir, að ein akreinin á þriggja
akreina kafla Hringbrautar verði ein-
göngu fyrir strætó og sömuleiðis
þurfi að greiða leið strætó á kafla
Miklubrautar milli Rauðarárstígs og
Kringlumýrarbrautar. Einnig þurfi
að veita strætó forgang í vinstri
beygju frá Kringlumýrarbraut í vest-
ur. „Hér þurfa Vegagerðin og lög-
reglan að leggjast á eitt með borg-
aryfirvöldum að finna þessu einhvern
farveg.“
Í dag fara farþegar 8,5 milljónir
ferða á ári með strætó á höfuðborg-
arsvæðinu. Með einni ferð er átt við
ferðalag milli tveggja staða og þurfi
farþegi að skipta um vagn telst hvor
leggur ein ferð. Ásgeir segir að sam-
kvæmt rannsóknum sé þetta 4% hlut-
deild allra ferða á svæðinu og er þá
átt við akandi fólk, hjólandi og gang-
andi. Tölurnar eru einkum byggðar á
víðtækri umferðarkönnun frá árinu
2002 þegar 8 þúsund manns voru
spurð um ferðavenjur. „Stærsti hóp-
ur farþega okkar er aldurshópurin 16
til 25 ára, fólk í framhaldsskólum og
háskólum og farþegar eru flestir í
september og janúar og að jafnaði
heldur færri yfir sumarið en að vetr-
inum,“ segir Ásgeir. Hann segir þetta
hlutfall langt undir því sem gerist hjá
sambærilegum borgum erlendis.
Skammtímamarkmið Strætós bs.
er að auka ferðafjöldann með stræt-
isvögnum þannig að markaðs-
hlutdeildin fari í 6% eftir fimm ár sem
þýða myndi kringum 12 milljónir
ferða. Langtímamarkmið segir Ás-
geir vera 8% markaðshlutdeild eftir
20 ár sem þýðir um 16 milljónir ferða.
Hann segir seint hægt að búast við að
fargjöld standi undir öllum rekstr-
inum, í dag standi þau undir 40% af
2,1 milljarðs kostnaði og því greiði
sveitarfélögin sex um 1,3 milljarða
með rekstrinum. Markmiðið segir
hann vera að fargjöldin standi undir
að minnsta kosti 60% kostnaðarins.
Er bjartsýnn
„Ég er bjartsýnn á að okkur takist
að lokka fleiri til að ferðast með
strætisvögnum. Það er ódýrari sam-
göngumáti en einkabíllinn, áhyggju-
lausari og umhverfisvænni og með
auknum forgangi vagnanna verður
það einnig fljótlegra.“
Sex stofnleiðir í nýju leiðakerfi Strætós bs.
Strætisvagnar verði
raunhæfur valkostur
Morgunblaðið/Golli
Ásgeir Eiríksson, forstjóri Strætós bs., notar stundum meiraprófið og gríp-
ur í akstur við sérstök tækifæri.
Ásgeir Eiríksson,
framkvæmdastjóri
Strætós bs., telur að
farþegum strætis-
vagna fjölgi þegar
búið verður að skapa
vögnunum meiri for-
gang í umferðinni.
STRÆTÓ bs. hefur fengið um 500 fyrirspurnir, ábendingar, hrós og
skammir og allt þar á milli vegna hins nýja leiðakerfis, segir Ásgeir Eiríks-
son framkvæmdastjóri. Hann segir ábendingarnar í mörgum tilvikum
gagnlegar og reynt hafi verið að nýta þær og að í öðrum tilvikum hafi tekist
að eyða misskilningi, upplýsa fólk og ráðleggja því. Kortið sýnir stofnleið-
irnar sex en Ingi Gunnar Jóhannsson hjá Hugarflugi ehf. teiknaði kortið.
Fjöldi fyrirspurna
í tölvupósti
BRSB, BHM og KÍ munu standa
sameiginlega að samningum um
réttindamál í komandi kjarasamn-
ingum, og meðal áhersluatriða sem
samtökin boða er að dregið verði
úr kynbundnum launamun, gerð er
krafa um að tekjutenging við laun
maka öryrkja og lífeyrisþega verði
afnumin og atvinnuleysisbætur og
bætur almannatrygginga stór-
auknar.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir að aðildarfélög BSRB
muni að öllum líkindum semja
hvert í sínu lagi um launamál, en
samningar um önnur réttindi verði
sameiginlegir, og er það sama fyr-
irkomulag og var haft í síðustu
samningum. Flest aðildarfélög
BSRB sem semja við ríkið eiga
lausa samninga í lok nóvember.
„Auðvitað vildum við helst sjá
það gerast að samningar væru frá-
gengnir áður en nýtt samnings-
tímabil hefst. Það er náttúrlega
þannig sem ég held að allir vildu
hafa hlutina. Þess vegna höfum við
sett fram mjög vel undirbúnar,
rökstuddar og vel unnar tillögur,“
segir Ögmundur.
Dregið verði úr
kynbundnum launamun
Tillögur BSRB, BHM og KÍ
voru afhentar viðsemjendum á
föstudag, og voru fundir boðaðir
milli viðsemjenda á gær og dag.
Ögmundur segir að helstu atriðin
sem félögin vilja ná fram lúti að
bættri stöðu trúnaðarmanna, mál-
efnum foreldra langveikra barna,
tryggingarmálum starfsmanna,
bættum veikindarétti, eflingu
styrktarsjóða, lengingu uppsagn-
arfrests, lífeyrismálum o.fl.
Einnig verður lögð áhersla á að
draga úr kynbundnum launamun
og gerð krafa um að tekjutenging
við laun maka öryrkja og lífeyr-
isþega verði afnumin og atvinnu-
leysisbætur og bætur almanna-
trygginga stórauknar.
BSRB, BHM og KÍ í samfloti
Krefjast hækk-
unar bóta
ÞAÐ var mikið að gera í útibúum Ís-
landsbanka í gærmorgun, en þá voru
þau opnuð kl. 8.30 og var boðið upp á
kaffi og léttan morgunverð af því til-
efni. Þetta er í fyrsta skipti í rúma
þrjá áratugi sem bankaútibú eru
opnuð fyrr en kl. 9.15.
Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri ís-
landsbanka, segir augljóst að við-
skiptavinir kunni vel að meta þessa
nýbreytni. Aðstæður í samfélaginu
hafi breyst verulega og fólk virðist
kunna að meta að geta skotist í
banka á leið til vinnu sinnar.
Nýr afgreiðslutími gildir fyrir öll
útibú Íslandsbanka, nema í þjón-
ustumiðstöðvum, sem oft eru opin
lengur og á öðrum tímum.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigríður Gunnarsdóttir, gjaldkeri í útibúi Íslandsbanka við Lækjargötu,
tók á móti erlendum ferðamönnum kl. hálf níu og skipti fyrir þá gjaldeyri.
Bankaútibú opnuð
fyrr en áður
UM HELGINA var brotist inn
í félagsmiðstöðina Tópas við
Hafnargötu í Bolungarvík en
þar einnig grunnskóli bæjarins
til húsa. Talsverðar skemmdir
voru unnar þegar millihurðir
voru brotnar upp á nokkrum
stöðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Bolungarvík var
stolið Hewlet Packard-borð-
tölvu, Playstation-leikjatölvu,
nýlegu myndbandstæki og af-
ruglara fyrir Stöð 2. Þá var
einnig stolið lítilræði af pening-
um og tösku með aukafatnaði
frá einu barnanna í grunnskól-
anum.
Þeir sem hafa orðið varir við
mannaferðir við félagsmiðstöð-
ina á tímabilinu frá hádegi á
laugardag til mánudagsmorg-
uns eða hafa einhverjar upplýs-
ingar varðandi þetta innbrot
eru beðnir að hafa samband við
lögregluna í Bolungarvík.
Brotist
inn í
Tópas