Morgunblaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 33
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 33
Heimildarmynd RóbertsDouglas, „Slá í gegn –Mjóddin“ eða „Smallmall“ eins og hún nefnist
á ensku, fékk hinar ágætustu við-
tökur í Toronto þar sem hún var tek-
in í söluumboð af Josh Braun og Rog-
er Kass, sem eru sömu söluaðilar og
sáu um myndirnar Spellbound, sem
tilnefnd var til óskarsverðlauna, og
Super Size Me. Myndin var sýnd á al-
mennum sýningum tvisvar fyrir fullu
húsi og komust færri að en vildu. Þá
urðu mikil fagnaðarlæti í seinna
skiptið sem myndin var sýnd. Einnig
var hún sýnd einu sinni á sýningu
sem er eingöngu ætlað fyrir blaða-
menn og kvikmyndageirann, þar sem
henni var afar vel tekið og klappað
mikið í lok sýningar, sem ku vera
sjaldgæft á slíkum sýningum.
Tímaritin Now Magazine og The
Festival Daily gáfu mynd Róberts
einnig mjög góða dóma og kveðst
hann afar ánægður með viðtökurnar.
„Við eigum í viðræðum við Jean
Doumanian Productions um sölu og
frekara samstarf, en þeir hafa séð um
framleiðslu mynda Woody Allen, frá
því hann gerði Bullets Over Broad-
way,“ segir Róbert. „Einnig hafa
önnur fyrirtæki sett sig í samband við
okkur útaf Mjóddinni og öðrum verk-
um.“
Róbert segir þó viðbrögð íslenskra
sjónvarpsstöðva ekki fagnaðarefni,
en Ríkissjónvarpið vilji ekki kaupa
myndina og Stöð 2 vilji ekki einu sinni
horfa á hana. Þá hafi kvikmynda-
húsin takmarkaðan áhuga á henni.
Hversu mikilvægar eru íslenskir
aðilar sem bakhjarlar kvikmynda-
gerðarmanna?
„Þeir skipta töluvert miklu máli,
sérstaklega Ríkissjónvarpið, að þeir
kaupi myndir sem við kvikmynda-
gerðarmenn erum að gera. Sérstak-
lega þar sem kvikmyndasjóður hefur
styrkt myndina og er þá talið að hún
eigi að eiga einhverja samleið við ís-
lenska áhorfendur. Kaup sjónvarps-
stöðva á myndum er vissulega nauð-
synlegur hluti af fjármögnun þeirra.
Auðvitað ræðst maður í gerð kvik-
mynda án þess að sjónvarpið sé til-
neytt til að kaupa þær, en ef myndin
er búin að fá góðar viðtökur erlendis
finnst manni að Ríkissjónvarpið ætti
að gefa Íslendingum tækifæri til að
sjá hana.“
Hvaða þýðingu hefur áhugi þess-
ara erlendu aðila fyrir þig?
„Þetta hefur auðvitað mikla þýð-
ingu. Til dæmis hefur verið auðveld-
ara að fjármagna „Strákana okkar“
erlendis. Mér var sýndur meiri áhugi
í Toronto, nú í annað skiptið sem ég
kom, en þessi hátíð er tekin mjög al-
varlega. Það skiptir máli, fyrir kvik-
myndagerðarmenn að geta lifað af
þessu og að maður eigi tækifæri til að
gera kvikmyndir eða fá erlendan pen-
ing til að gera íslenskar kvikmyndir.“
Kvikmyndagerð | Kvikmyndagerðarmaðurinn Róbert Douglas vakti athygli í Toronto
Afar þýðingarmikill meðbyr
Róbert
Douglas er
fæddur í
Reykjavík árið
1973. Hann
lauk stúdents-
prófi frá
Causeway Art
Institution í
Ulster og hefur
síðan unnið við
sjálfstæða kvikmyndagerð. Þá
vann Róbert einnig fyrir fyrir-
tækið Pegasus við gerð auglýs-
inga. Meðal kvikmynda Róberts
má telja Íslenska drauminn, Mað-
ur eins og ég og Slá í gegn –
Mjóddin. Róbert er í sambúð með
Li Yan Ping og eiga þau saman tvö
börn.
Skotthúfan á undanhaldi
ÉG er mjög ánægð að sjá að notkun
skotthúfu íslenska þjóðbúningsins
er á undanhaldi. Ég vona að hún
hverfi þeim sem vilja eins og skinn-
skórnir því hún er bæði óþægileg og
óklæðileg. Ég hef þá trú að með
frjálsri notkun hennar verði þjóð-
búningurinn vinsælli en hann er í
dag.
Ein á upphlut.
Símaskráin í afturför
ÉG vil koma á framfæri kvörtun til
Símans vegna símaskrárinnar sem
mér finnst alltof stór og þung og
letrið alltof lítið. Mér dugar tæplega
stækkunargler til að geta lesið í
henni. Finnst mér að þeir sem sjá
um þetta eigi að hugsa um eldra
fólkið þegar hugað er að prentun.
Dótturdóttir mín á jafnvel fullt í
fangi með að lesa símaskrána.
Finnst mér þetta mikil afturför og
vil að skráin sé löguð.
Ellilífeyrisþegi.
Gullarmband týndist
í miðbænum
FANN einhver gullarmbandið mitt
sem ég tapaði í miðbæ Reykjavíkur
17. september sl.? Armbandið er
með fiðrildamynstri, frekar stórt og
er hluti af upphlut. Þetta er erfða-
gripur með mikið tilfinningalegt
gildi og er sárt saknað. Skilvís finn-
andi er beðinn að hafa samband við
Siggu í síma 899 7792. Fund-
arlaunum heitið!
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar
héldu tombólu og söfnuðu kr. 5.088 til
styrktar Rauða krossi Íslands. Þau
eru talið frá vinstri: Margrét Lára
Baldursdóttir, Ásta Bergrún Birg-
isdóttir, Hjörtur Már Ingason, Snorri
Örn Birgisson og Svanlaug Guðjóns-
dóttir.
Listhús Reykjavíkur
Höfum verið beðin að útvega verk eftir
Louisu Matthíasdóttur og
Kristján Davíðsson.
Höfum einnig til sölu töluvert úrval af
smámyndum eftir Kristján Davíðsson.
Listhusreykjavikur.is • Lækjargötu 2a
101 Reykjavík • sími 517 3606
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. c3 Rf6 4. Be2 Bd7
5. Dc2 Bc6 6. d3 Rbd7 7. Rbd2 Hc8 8.
d4 cxd4 9. Rxd4 g6 10. 0–0 Bg7 11.
Rxc6 bxc6 12. Rb3 0–0 13. Be3 c5 14.
Had1 Dc7 15. f4 Dc6 16. Rd2 Hb8 17.
Bf3 Da6 18. b3 Re8 19. Rc4 Rb6 20.
Be2 Rxc4 21. Bxc4 Da5 22. e5 dxe5 23.
f5 Rd6 24. fxg6 hxg6
Staðan kom upp á sterku skákmóti
sem lauk fyrir skömmu á Indlandi.
Heimsmeistari alþjóðlegu skák-
samtakanna FIDE, Rustam Kas-
imdzhanov (2.640), hafði hvítt gegn
Emil Sutovsky (2.676). 25. Hxd6! exd6
26. Dxg6 Dxc3 27. Bh6! Dd4+ 28. Kh1
e4 29. Bxf7+ Hxf7 30. Dxf7+ Kh8 31.
Dh5 Bxh6 32. Dxh6+ Kg8 33. h3 Dg7
34. De6+ Kh8 35. Hf5 og svartur gafst
upp saddur lífdaga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson
Hvítur á leik.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Reykjanesvirkjun — Útboð
Hitaveita Suðurnesja hf. leitar eftir tilboðum
í eftirfarandi vegna byggingar 100 MW raforku-
vers á Reykjanesi.
Útboð F 0215-8, Stjórnlokar (Control
Valves)
Óskað er eftir tilboðum í framleiðslu og fob-af-
hendingu á stjórnlokum með loftdrifi, stöðu-
stilli, stöðugjafa og vara handdrifi. Um er að
ræða 26 loka í stærðum frá DN40 til DN500.
Æskilegur afgreiðslutími er maí/júní 2005.
Útboðsgögn er unnt að nálgast á heimasíðu
Hitaveitunnar, www.hs.is. Tilboðum skal skilað
á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja hf., Brekku-
stíg 36, 260 Reykjanesbæ, eigi síðar en þriðju-
daginn 19. október 2004 kl. 10.00.
Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahags-
svæðinu.
Hitaveita Suðurnesja hf., Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ,
sími 422 5200, fax 421 4727, netfang hs@hs.is
TILKYNNINGAR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör fulltrúa Verkalýðsfé-
lagsins Hlífar á ársfund Alþýðusambands
Íslands, sem haldinn verður á Nordica Hotel
í Reykjavík dagana 28. og 29. október 2004.
Tillögum með nöfnum 7 aðalfulltrúa og 7 vara-
fulltrúa ber að skila á skrifstofu Hlífar fyrir
kl. 16.00 föstudaginn 1. október 2004.
Tillögunum ber að fylgja meðmæli minnst 50
til 60 félagsmanna.
Kjörstjórn Hlífar.
I.O.O.F. Rb. 4 1539218 -
Í kvöld kl. 19.00
Alfanámskeið 1 og 2.
Nýr söfnuður í Reykjavík!
Við bjóðum þér að vera með á
skemmtilegum samkomum sem
marka upphaf nýs safnaðar í
Reykjavík!
Oslo Kristne Senter er þekkt fyrir
að miðla fagnaðarerindinu í
frelsi og gleði í Noregi og ætlar
nú að stofna nýjan söfnuð í
Reykjavík.
Þú ert velkomin/n á allar sam-
komur sem haldnar verða í Ými
tónlistarhúsi Karlakórs Reykja-
víkur í Skógarhlíð 20 dagana
21.—24. september kl. 20:00 og
einnig helgina 25.—26. septem-
ber kl. 14:00.
TIL SÖLU
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
Lagersala
Í dag og næstu daga
seljum við handfæraöngla, 25 og 50 önglar
í pakka, „MUSTAD“, stærðir 4/0 til 12/0.
„GUMMIMAK“ á sérstöku tilboðsverði
meðan birgðir endast. Einnig seljum við öll
leikföng með 50% afslætti. Ýmsar fleiri vörur
eru á boðstólum á mjög hagstæðu verði. Við
erum að hreinsa til og hætta með þessar vörur.
Opið er frá kl. 13.00 til 17.00 alla daga nema
föstudaga, þá lokum við kl. 16.00. Lítið við og
gerið góð kaup.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25,
105 Reykjavík.
mbl.is
ATVINNA
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is