Morgunblaðið - 21.09.2004, Blaðsíða 28
MINNINGAR
28 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gestur Guð-mundur Þorkels-
son fæddist í húsinu
er kallað var Skál-
holt á Hellissandi 26.
desember 1933.
Hann lést á líknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi 12. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Sigurást Kristbjörg
Friðgeirsdóttir frá
Brimilsvöllum í
Vallnahreppi á Snæ-
fellsnesi, f. 12. ágúst
1899, d. 27. maí 1995
og Þorkell Sigurgeirsson sjómaður
frá Skarði í Neshreppi, f. 6. febrúar
1896, d. 28. október 1981. Sigurást
var elsta dóttir hjónanna Jóhönnu
Hansdóttur og Friðgeirs Friðriks-
sonar. Foreldrar Þorkels voru
Guðríður Ólafsdóttir og Sigurgeir
Sigurðsson.
Þau Sigurást og Þorkell eignuð-
ust tólf börn og eru systkin Gests
þau: Sigurvin, f. 1922, d. 1973;
Karl, f. 1924, d. 1995; Ólafur, f.
1925, d. 1942; Guðríður, f. 1928;
Sigurgeir, f. 1930; Gestur, f. 1931,
d. 1931; Kristján, f. 1936; Haukur,
f. 1936; Margrét, f. 1936, d. 1936;
Friðgeir, f. 1941; Lundberg, f.
dóttir. 4) Helena Rut, f. 24. júní
1971. Gestur fluttist 11 ára ásamt
foreldrum sínum og systkinum í
bæinn Laufás á Hellissandi. Hann
var nokkur sumur ungur drengur í
sveit að Barðastöðum, Snæfells-
nesi. Þar undi hann hag sínum vel
og minntist oft á þann stað. Gestur
reri nokkrar vertíðir frá Sandi en
síðar frá Vestmannaeyjum á ung-
lingsárum. Gestur kynntist Gerði
eiginkonu sinni í Stykkishólmi, en
þar ólst Gerður upp hjá þeim Guð-
mundi Jónssyni móðurafa sínum,
er kenndur var við Narfeyri, og
Kristínu Vigfúsdóttur ljósmóður,
seinni konu hans.
Leiðir Gests og Gerðar lágu aft-
ur saman í Reykjavík um 1954.
Gestur hóf nám í húsasmíði við Iðn-
skólann í Reykjavík og lauk sveins-
prófi þaðan með fyrstu einkunn
sumarið 1958 þá 24 ára að aldri.
Meistararéttindi í húsasmíði öðlað-
ist hann árið 1962. Þau hjónin
byggðu í sameiningu einbýlishús í
Árbæjarhverfi, en þangað fluttust
þau 1966. Gestur var lengst af sjálf-
stætt starfandi og kom að bygg-
ingu margra merkishúsa í Reykja-
vík og víðar. Ennfremur tók hann
að sér ýmis verkefni við endurbæt-
ur og breytingar á húsum síðari ár-
in. Síðustu tæpu 15 starfsárin var
Gestur umsjónarmaður fasteigna
hjá Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut.
Útför Gests fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
1942, d. 1995. Gestur
kvæntist í Reykjavík
Gerði Brynhildi Ívars-
dóttur (Jellý) 15. sept-
ember 1957 og hófu
þau sinn búskap þar.
Gerður lést 23. maí
2000. Foreldrar Gerð-
ar voru Gunnlaug
Guðmundsdóttir frá
Stykkishólmi og Ívar
Gíslason frá Gaul-
verjabæjarhreppi.
Hálfbróðir Gerðar er
Jóhann Viðar Ívars-
son, f. 1963.
Börn Gerðar og
Gests eru: 1) Ásta, f. 9. september
1955, maki Garðar Þorsteinsson, f.
4. september 1950. Börn þeirra eru
Garðar Þór, f. 29. júlí 1986, og
Tanja Bryndís, f. 11. desember
1991. 2) Kristinn, f. 9. september
1955, maki Sigríður Gröndal, f. 9.
febrúar 1956. Börn þeirra eru
Kristín Halla, f. 2. júlí 1984, og Atli
Þór, f. 17. október 1992. 3) Gunn-
laugur, f. 18. júní 1959, sambýlis-
kona hans er Hulda Haraldsdóttir,
f. 29. janúar 1962. Börn þeirra eru
Alma, f. 18. nóvember 1982, og
Ísak, f. 20. maí 1984. Sara Gabríella
Gunnlaugsdóttir, f. 8. júlí 1992,
móðir hennar er Katrín Magnús-
Er afi dáinn? endurtók lítil 12 ára
stúlka, vantrúa, þegar móðir færði
henni sorgartíðindin.
Með grátkökk í röddinni sagði
hún: „Hann verður þá ekki við ferm-
inguna mína …“ Í þessum orðum
fólst mikil sorg.
Það voru varla liðnar tvær vikur
síðan við tvær, dóttir og dótturdótt-
ir, höfðum kvatt afa á Íslandi. Og á
sama tíma var lagður undirbúningur
fyrir ferminguna að vori.
Milli þeirra tveggja hafði alltaf
verið einstaklega sterkur strengur.
Það mátti sjá þegar þau horfðu sín-
um aðdáunaraugum á hvort annað,
hvenær sem þau hittust.
Nú verður afi aldrei framar á flug-
vellinum að taka á móti litlu stúlk-
unni sinni með Ameríkuvélinni.
Hann, sem eitt sinn var næstum bú-
inn að keyra út í snjóskafl á Kefla-
víkurleiðinni í stormi og byl, er hann
gat ekki sleppt augunum af litla
barnabarninu, sem bara horfði á
móti úr barnastólnum, með sínum
himinbláu aðdáunaraugum. Jú, þessi
sérstaka tenging var til staðar alveg
frá upphafi.
Nú er stundaglasið hans afa runn-
ið á enda. Það ber ótal gullkorn
minninga, sem ætíð verða vistaðar í
minningarbanka litlu stúlkunnar
hans afa.
Hljóðlega fór hún yfir hugsanir
sínar í einrúmi, eftir að hafa með-
tekið fréttirnar af láti hans. Eftir
stutta stund kemur hún fram með
blað í hendi og réttir móður sinni.
Hún hafði þá ritað þær á blað, í
formi ljóðs. Það var ritað á hennar
eigin tungumáli „íslensk-amerísku“
og undir skrifar hún: In Honor of
My Afi, With all my love, Tanja
Thorsteinsson. Og svona ritar hún:
“My Afi“
My afi was a great guy.
It was hard to say good bye.
But when the clock stroke 8:07,
my afi went to heaven.
He went to see my amma,
my beautiful, wonderful amma.
Just because he’s gone,
doesn’t mean hés really gone.
He will always be within me,
all throughout my life.
My afi was a great guy,
but now it’s time to say good bye.
Elsku faðir, tengdafaðir og afi,
Hafðu þakkir fyrir ótal gleðistundir
og allan þinn kærleik.
Þín
Ásta, Garðar, Tanja Bryndís
og Garðar Þór.
Mér er það ljúft að minnast
tengdaföður míns, Gests Guðmund-
ar Þorkelssonar sem við kveðjum nú
í dag.
Það var seint á sjöunda áratugn-
um sem ég kom inn í fjölskylduna í
Þykkvabæ 4, en þá hafði ég kynnst
manninum mínum tilvonandi og við
farið að búa saman. Gestur kom mér
fyrir sjónir sem mikið ljúfmenni,
lágvaxinn og svolítið þrekinn og með
glettnisglampa í augum. Hann var
hæglátur maður sem gerði ekki
miklar kröfur til lífsins eða lífsgæða
en undi vel við sitt. Barnabörnunum
var hann sérstaklega góður og
hændust þau mjög að honum, þau
kunnu vel að meta hið ljúfa skap
hans og rólyndi.
Lífið fór ekki alltaf um hann
mjúkum höndum en tengdamóðir
mín heitin átti við mikil veikindi að
stríða í mörg ár. Hjúkraði hann
henni af stakri natni og ljúfmennsku
svo aðdáunarvert þótti. Þrátt fyrir
mikla erfiðleika kvartaði hann aldrei
eða lét bugast.
Síðastliðið haust veiktist Gestur af
þeim sjúkdómi sem varð til þess að
hann lést en á tímabili leit út fyrir að
bati væri í sjónmáli en svo reyndist
þó ekki vera.
Gestur minn, ég vil þakka þér
ljúfa samfylgd í gegnum þau 26 ár
sem við höfum þekkst og ég mun
ætíð minnast þín með hlýju og kær-
leika, þakklát fyrir að hafa fengið að
eiga þig að tengdaföður. Guð blessi
minningu þína.
Þín tengdadóttir,
Sigríður.
Elsku Gestur.
Mig langar í fáum orðum að minn-
ast þín og þakka þér samfylgdina
sem tekur tæpan aldarfjórðung. Ég
minnist þess í nóvember 1982 þegar
Alma dóttir okkar Gulla fæddist,
fyrsta barnabarnið þitt, hversu
stoltur og glaður þú varst. Þið
mynduðuð strax svo náin tengsl sem
döfnuðu og uxu til þíns síðasta dags.
Aðeins 18 mánuðum eftir fæðingu
Ölmu, fæddist okkur Ísak og það var
stoltur afi sem hélt honum undir
skírn og hefur allar götur síðan
hvatt hann til dugnaðar og dáða.
Þegar skoðaðar eru gamlar myndir
af þér á svipuðu reki og hann er
núna kom það okkur skemmtilega á
óvart hversu ótrúlega líkur þér hann
er.
Já, það er margs að minnast og
þakka fyrir, þú varst svo stór hluti í
lífi okkar að það leið nánast aldrei
dagur án þess að við annaðhvort
heyrðum í þér eða sáum þig og oftar
en ekki fengum við okkur bita sam-
an, einhvern íslenskan sveitamat
eins og súrmat, svartfugl, hákarl og
signa grásleppu eða gellur við mis-
munandi fögnuð annarra á heim-
ilinu. Við deildum einnig saman ást
okkar á náttúrunni og landinu okkar
og sömuleiðis áhuga okkar á dulræn-
um málefnum, þú hafðir ekki haft
hátt um hæfileika þinn á því sviði og
oftar en ekki ræddum við drauma,
kíktum í bolla eða rifjuðum upp ís-
lenskar þjóðsögur. Nærvera þín var
alltaf svo hlý og þú hafðir einstakt
lag á því að láta öllum líða vel í ná-
vist þinni. Þú varst bæði lítillátur og
hógvær, börn og dýr hændust að þér
og er skemmst að minnast ferða
okkar í sumarbústaðarlandið í Ei-
lífsdal þar sem systrabörn mín löð-
uðust strax að þér og voru fljót að
lauma lítilli hendi í lófa þér.
Já, það er stórt höggvið skarð í til-
veru okkar þar sem aðein eru um 4
ár síðan Jellý konan þín kvaddi
þessa jörð. En við huggum okkur við
að nú séuð þið saman á ný og laus úr
viðjum sjúkdóma og sársauka. Þú
varst mér sannur faðir, elsku Gest-
ur, og ég kveð þig með virðingu og
þökk og minnist þín með þessum
texta sem minnir svo vel á þig:
Þar sem hlý hönd er rétt til hjálpar og
huggunar, þar er engill Guðs að verki.
Þar sem bros breiðist yfir andlit og augu,
ljóma í gleði og hláturinn streymir frá
hlýju hjarta, læknandi, svalandi, þar
standa hlið himinsins opin upp á gátt.
Í kyrrð bænarinnar,
í þögn hjartans,
syngja englarnir lofsöng,
höfugri kyrrð og hljóðlátum tærleik.
Þar sem orð tjá hið ósegjanlega,
mynd hrífur áhorfandann,
tónlistin huggar þann sem syrgir,
þar eru þeir í nánd,
englar Guðs.
(Höf. ók.)
Og við sem syrgjum þig og sökn-
um, skulum minnast þess, að við er-
um sem englar með einn væng, við
getum aðeins flogið með því að halda
utan um hvert annað.
Þín tengdadóttir,
Hulda.
GESTUR GUÐMUND-
UR ÞORKELSSON
Fleiri minningargreinar um Gest
Guðmund Þorkelsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Alma, Kristín
Halla og Garðar Þór.
Í PERLUNNI
Erfidrykkjur
Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.250 kr. á mann.
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
www.englasteinar.is
Englasteinar
Legsteinar
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RAGNAR BJÖRNSSON
trésmiður,
Brú á Eskifirði,
sem lést aðfaranótt þriðjudagsins 14. septem-
ber, verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju
miðvikudaginn 22. september klukkan 14.00.
Börn, tengdabörn og afabörn.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi • 564 4566 • www.solsteinar.is
SÓLSTEINAR erum fluttir á KÁRSNESBRAUT 98
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, tengdadóttir og amma,
HALLDÓRA INGIBJÖRG INGÓLFSDÓTTIR,
(Inga),
Lyngbrekku 1,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 13. september, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju fimmtudaginn
23. september nk., kl. 10.30.
Jarðsett verður í Torfastaðakirkjugarði, Biskupstungum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Kr. Ragnarsson,
Ásta Salný Sigurðardóttir, Viðar Snær Sigurðsson,
Sonja Erna Sigurðardóttir, Tómas Guðmundsson,
Jónína Salný Stefánsdóttir,
Ásta Sigurðardóttir, Garðar Ásbjörnsson,
Ragnar Runólfsson, Gertrud Johansen
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar,
SOFFÍU ÞORKELSDÓTTUR,
Bröttugötu 1,
Hólmavík.
Jóhann Guðmundsson og fjölskylda.
Kæru ættingjar og vinir!
Okkar hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
HALLDÓRS SIGURÐAR HARALDSSONAR.
Sólveig Helga Björgúlfsdóttir,
Haraldur Þór Halldórsson,
Sigrún Halldórsdóttir, Ágúst Ármann Þorláksson,
Björgúlfur Halldórsson, Halla Höskuldsdóttir,
afabörn og langafabarn.