Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Page 2

Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Page 2
178 SUNNUDAGSBLAÐIB Þau sátu á bekk við alfaraveg í sumarhita. Hann: — Kæra fröken, gefið þér mér einn koss. Hún: — Eruð þér galinn, hvað haldið þér að sagt væri, ef einhver kæmi að og sæi það? Hann: — Hér er enginn maður nálægt. Hún: — Guð sér það þó. Hann: — Þá skulum við spenna regnhlífina yfir okkur. Hann fék ósk sína uppfyllta. Læknirinn: „Þér fáið aldi'ei heilsuna nema^ þér steinhættið að drekka“. Sjúklingurinn andvarpaði mæðulega: „Ég er þá með öðrum orðum ólæknandi“. Gesturinn: „Ég þarf að koma á framfæri umkvörtun. Hver haldið þér að hafi bankað á dyrn- ar hjá mér í gærkvöldi, þegar ég var háttaður?“ Hótelstjórinn: „Það veit ég ekki — hver var það?“ Gesturinn: „Enginn, helvískur hótelvörðurinn stöðvaði hana í fordyrinu“. Prófessorinn: „Þér fáið ekki að ganga til prófs“. Stúdentinn: „Hvers vegna ekki?“ Prófessorinn: „Líferni yðar hef- ur verið þannig, að þáð hæfir ekki að þér vígist hinu háleita prests-- embætti.“ Stúdentinn: „Þá verðið þér að taka afleiðingunum af þessu, því að þetta getur kostað marga menn lífið“. Prófessorinn: „Hvað eigið þér við?“ Stúdentinn: „Ég er að hugsa ura að snúa mér þá að læknisfræð- inni“. Hann: „Svo að þú elskar mig þá ekki eftir allt saman; og þó hef- urðu látið mig bera í þig konfekt og blóm í fjóra mánuði“. Hún: „Já, en ég elska líka kon- fekt og-blóm“. Hún: „Ég er háttvís stúlka,. og læt ekki aðra en' bræður mína kyssa mig“. , . •v ' Hann: „Já, einmitt; í hvaða stúku-ertu?“ Vorið er komíð — og í-suðrænum löndiun er fólkið farið að njóta sólar og útíveru.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.