Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Síða 7

Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Síða 7
StJNNDD AGSBLAÐIÐ 183 Unnið að skurðaðgcrð við meinsemd í maga. auðig er. En það eru þarmarnir °S ekki magapokinn, sem öflug- ast viðnám veita, og orsaka því ^Uestar kvalir, við matareitranir °S veirusjúkdóma. Magapokinn liggur ekki eins og Uiargir halda, að baki hins mjúka Ve8gjar kviðarholsins, heldur inn- au undir neðsta rifinu, ofurlítið Vlnstra megin við miðju líkamans. Ekki er hægt að mæla hann af heiuni nákvæmni, því hann breyt lr stöðugt um lögun. Þegar hann er tómur, hangir hann niður af yélindinu líkt og blaðra, sem loft- ið er farið úr, og er þá um það bil 40 cm. langur enda milli, frá vélinda fil skeifugarnar. Þegar magapokinn er hraustur og hefur fæðu til að fást við, dregst hann saman og er þá einna líkastur af- arstórri baun. Þá er hann ekki nema 20 cm. langur, en er aftur á móti orðinn tíu cm. að þvermáli. Fyrsta munnfylli máltíðarinnar er ekki einu sinni komin niður í magapokann, þegar hann fer að kippast til eins og af eftirvænt- ingu og gefa frá sér magasafa. Þessar hreyfingar koma frá tauga- kerfinu eftir að heilinn hefur orðið fyrir sjón, lykt eða jafnvel einungis hugsun um mat. Enda þótt engin fæða sé á leið niður í magapokann, dregst hann þó sam- an þriðju eða f jórðu hverja klukku stund. Þessar hreyfingar eru hluti af sultarkenndinni. . Hið athyglisverðasta við maga- pokann er magasafinn, en kunn- asta efni hans er saltsýra. Jafnvel seigasta kjöt tekur miklum breyt- ingum við að baðast í þessari sýru. Jafnframt mala meltfhreyfingar magans það í mauk er nefnist kymus. Loks örvast meltingin af kemiskum efnum í magasafan- um. HVernig getur magapokinn kom, izt hjá því að eyðast upp af sinni eigin sýru? Það er bersýnilega að þakka öílugri slímhúð, er þekur veggi magans að innanverðu. Þetta slím afsannar allar hugmyndir um að vissar fæðutegundir erti maga- pokann. Ekkert af því sem við kyngjum við máltíð er nándar nærri eins sterkt og sýra sú, er alltaf fyrirfinnst í magapokanum, — ekki einu sinni svo beizk efni sem spænskur pipar, karrý, edik eða reykt síld. Og það hafa rann- sóknir leitt í ljós að slímið veiti jafn mikla vörn gegn „ertandi fæðutegundum“ sem gegn maga- saftinni sjálfri. Jafnvel þótt magapokinn hafi miklu og margþættu hlutverki að Gjörið svo vel að fletta á bls. 187.

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.