Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 13.03.1960, Qupperneq 2

Sunnudagsblaðið - 13.03.1960, Qupperneq 2
Hún haföi fengið það, sem hún vildi - og séð um, að ég varðveitti leyndarmálið... FYRST hélt ég að vetrar- stormurinn væri orsök hinna undarlegu hljóða, sem ég heyrði í gamla húsinu í há- skólabænum, þar sem ég bjó. .Síðan hélt ég að stúdentarn.r í nágrenninu væru að skemmta sér við lélega grammófónplötu. Mér gramd- ist þetta undarlega, ókenni- lega hljóð. Það var eins og . bumbusláttur ásamt bergmáli af glamrandi málmi. Þetta var laust eftir miðnætti að vetri til, og ég stundaði nám við háskólann. Herbergið mitt var þakherbergishola. Á dag- inn merlaði í kirkjuturna og í fjarska greindi ég nokkur engi. Þetta var einfalt, lát- iaust herbergi.. Mér geðjaðist vel að því þannig. Þessi ókunnu hljóð gerðu mér stöðugt ónæði. Eftir stutta stund stóðst ég ekki mátið, en gekk að gluggan- um og dró fornfálegu glugga- tjöldin til hliðar. Ég gægðist niður á auða hliðargötu, götu, sem ekki hafði breytzt mikið í iðu tímans. Hún var ennþá lýst með gasljósi, og ljósið hreyfðist eftir vindáttinni. Hljóðið kvað við hinum meg- in götunnar, og allt í einu gat ég greint hvaðan það kom. MiIIi gömlu lyfjaverzlunarinn ar og prentsmiðjunnar var út'bú frá stórum banka. Það var í þessum banka, sem ég geymdi mitt lítilfjörlega sparifé, í þennan banka lét ég styrkinn minn, og þangað fór ég að sækja peninga fyrir nauðsvnlegum útgjöldum. Hljóðið barst frá hinum dimmu gluggum, sem ef til vill skýldu þrjátíu þúsund gáðum, lúnum pundsseðlum. Þetta var kyrrlát gata, úti- búið virtist tilval’ð til ráns, og nú vissi ég, að eitthvað var að ske þar inni. Ef ég hefði haft síma. myndi ég hafa > hringt á Iögregluna. Én það var enginn sími í húsinu. Næsti símklefi var neðar í • götunni, geng ð framhjá hinu daufa gasljósi. Ég var jafnvel að hugsa um að draga glugga- ■ tjöldin fyrir aftur og halda áfram að lesa. Bankarnir eru ríkir og voldugir. Þeir ættu ’ sjálfir að sjá um öryggi sitt. ' — Samt var einhver þörf í . roér eins og öllum góðum borgurum, fyrir að vernda lög og reglu samfélagsins, þö”f fy.rir að vernda eignir náungans og hjálpa bezta v:ni þjóðfélagsins, lögreglunni. Ég fann að ég gat ekki lesið meira, ef ég gerði ekki eitt- ; hvað. — Ég fór í gamla frakk- ann minn og gekk niður stig- ann. Hinir leigjendurnir sváfu. Sumir voru stúdentar eins og ég, aðrir unnu í verk- sm'ðjunum, sem uxu ört í út- jaðri bæjarins. Ég gekk í skugga húsanna í áttina að símaklefanum. Það lýsti af hvítum gluggaumgerðunum í myrkiúnu. í fjarska heyrðist barn gráta. Skyndilega kvað við hvell hringing, eins og einhver hefði brotið bruna- boða. Ég hélt áfram eftir gangstéttinni og opnaði dyrn- ar að símaklefanum. Þá heyrði ég rödd utan úr myrkr- inu, lága og niðurbælda: — Snúðu við! Ég snerist á hæl og gat naumast greint veru, sem stóð á gangstéttinni. Ég ætlaði að halda áfram inn í símaklef- ann. — Snúðu strax við! Röddin var nú mun hvass- ari. Maður gekk fram í ljósið við símaklefann. Ég sá skugg- ann af handlegg hans, þegar hann lyfti honum og beindi að mér svartri skammbyssu. Ég er friðsamur maður, sem þurfti alls ekki að vera próf- essor í vopnaburði til að skilja — að ég stóð við dauðans dyr. Ég gekk til móts við mann- inn. í ljósglætunni gat ég séð að hann hafði dregið nylon- sokk yfir höfuðið. Ég flýtti mér að segja: — Hver eruð þér? Er þetta árás? Maðurinn hristi höfuðið og svaraði rólega: — Nei. ég er aðeins varð- maður. Ég stóð í dyrum bank- ans og sá að þér komuð út og genguð að símaklefanum. — Bankinn, sagði ég sak- levsislega. Sögðuð þér bank- inn? — Já, bað stemmir. Þér heyrðuð hlióð fx’á bankanum, er bað ekki? Éfí sá, að bér dróguð gluggatiöldin til hlið- ar og gægðust niður. Svo sá ég — að bér komuð út augsýni- lega í leit að síma. Komdu nú mei’S mér. kæri vinur! Ég áleit bezt að fetta ekki fingur út í hetta með vinátt- una og snurði: — Hvert förum við? — Inn í banka. Ég óskaði nf öllu hiarta — brátt fvrir lög og rétt, að ég sæti inni í herberginu mínu með bækurnar mínar. En stúd ent með slæma samvizku. en lifandi, var vissulega betra að vera. en lát;nn. góður borgari. — Við fórum sömu leið og ég kom. Ég gat ennþá heyrt barnagrátinn og huggunar- söng móðurinnar. Bíll ók fram hjá. Það var gott að sjá eitt- hvað ljós. Maðurinn með grím una dró mig í flýti inn í and- dyri húss nokkurs. Síðan héld um við áfram til bankans. — Maðurinn opnaði dyrnar með fætinum og við gengum inn. Það var dimmt í andyrinu, á gljáandi borðunum lágu penn ar og pappír í röð og reglu. Við gengum inn lítinn gang, að einkaskrifstofu bankastjór- ans. Ég vissi að þar var örvgg- isklefinn. Ég hafði oft tekið eftir grindunum og dyrunum, þegar ég var inni hjá banka- stjóranum að undirskrifa ým- is skjöl. Þarna var allt upp ljómað, en ljósið gat ekki sézt utan frá. Eini glugginn þarna var rækilega byrgður með þykk- um pappír. Maður og kona bogruðu við dyrnar á öryggisklefanum. — Maðurinn var hávaxinn og vel klæddur. Stúlkan var einnig hávaxin, ljós yfirlitum. Hár- ið hafði hún vafið í hnút í hnakkanum. Hún var í fallegri dragt, bryddri dýrindis skinn um. Maðurinn var með hvítan silkitrefil um hálsinn, sem hann áreiðanlega notaði sem grímu úti. En nú notaði hann trefilinn til að þurrka svitann af enninu. Stúlkan hafði enga grímu. Hún hafði fallegt, góð- legt andlit, blá augu og töfr- andi fæðingarblett á annarri kinninni. — Hvað hefurðu nú náð í Jimmy, spurði hún. Maðurinn með nylonsokks- grímunni svaraði glaðlega: — Þessi' náungi sá okkur, en ég var honum viðbragðs- fljótari. Stúlkan brosti til mín, og ég óskaði að hún væri mín meg- in við lögin. Ég óskaði jafnvel að ég tiliheyrði hennar heimi. Að brjótast inn í banka með slíkri dís hlaut að vera hrein- asta dásemd! — Þú hefðir átt að halda þig við rúmið, sagði hún. — Halt þú þér að vinnunni, Betty, sagði' hávaxni maður- inn óþolinmóður. Þau voru með óvenju full- komin verkfæri. Þeim geðjað- ist augsýnilega ekki að því, að ég horfði á vinnu þeirra, og fylgdarmaður minn sagði: — Seztu þarna út í horn og hreyfðu þig ekki. Annars lóð- ar Betty saman á þér hnén. Er það ekki, Betty? Betty hækkaði röddina til að yfirgnæfa borinn: — Ekki, ef hann verður þægur. Þau unnu hratt. Öðru hvoru gekk Jimmy út í dyr og gætti að hvort allt væri með kyrr- um kjörum. Betty og hávaxni maðurinn héldu áfram að sýsla við klefann. Ég gat séð, að þau voru engir viðvaning- ar. Þau iboruðu langa rifu nið- ur eftir hurðinni hjá lásnum. Þetta var svo spennandi vinna, að jafnvel ég fann til æsings. Ég horfði á Betty, með an hún strauk bláum loga eft- ir hurðinni'. Af og til sló mað- urinn á hurðina með járn- karli. Það var þetta hljóð, sem ég hafði heyrt. — Eftir rúman klukkutíma sneri Bet- ty sér að háa manninum og sagði: — Við erum komi'n í gegn, Davíð. Farðu og sæktu vatn Framhald á bls. 10. Smásaga eftir Gledwyn Hughes £ gSttpnudagsfalaöið^

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.