Sunnudagsblaðið - 03.04.1960, Blaðsíða 12

Sunnudagsblaðið - 03.04.1960, Blaðsíða 12
NOEL COWARD lýsti því eitt sinn yfir, að í veizlum fína fólksins hlustaði enginn á það, sem maður segði, — jafnvel þótt maður véki að ein stökum mönnum. Til þess að sanna réttmæti skoðunar sinn- ar gerði hann tilraun í einni meiriháttar veizlu ihjá ríku fólki. Hann kom dálítið of seint og afsakaði sig með þess um orðum: — Mér þykir þetta mjög leitt, en ég var því miður neyddur til þess að berja hana gömlu frænku mína og það tók lengri tíma en ég reiknaði með_ — Það gerir ekkert ti'l, kæri vinur, sagði frúin. — Að- alatriðið er, að þér gátuð kom ið, bætti hún við og þrýsti hönd hans hjartanlega. EF’TIRFARANDI gerðist í tíð Abrahams Lincolns. Charles Sumner öldungadeildarþign- maður frá Massachusetts kom snemma morguns í Hvíta hús- ið. Hann hitti Lincoln og for- setinn var að bursta skóna sína. Öldungadeildarþingmað- urinn varð furðu lostinn og gat ekki varizt að segéja: — Segið mér, herra forseti. Eruð þér að bursta stígvélin yðar? Lincoln Ihélt áfram að bursta skóna sína og sagði' án þess að líta upp: — Hvers stígvél hélduð þér eiginlega aö ég burstaði? DRENGUR einn sex ára fór í kirkju með foreldrum sínum og heyrði þar frásögnina um, hvernig Eva var búin til úr rifi Adams. Þennan sama dag var gildi heima hjá honum og át hann mjög mikið af sætindum, sem þar voru étin ti'l ábætis. Nokkru síðar sér mamma hans hann, hvar hann situr úti í horni með angistarsvip, og heldur höndunum í síðurnar. — Hvað gengur að þér, elskan mín? segir mamma hans. — Æi, segir hann, — mér er svo voðalega i'llt. Ég held ég ætli að fara að eignast konu! í viUu sinni í Florida hafði Edison komi ð fyrir öllum sín- um snjöllu uppfinningum, sem yfirleitt er hægt að halfa gagn af í húsum og görðum. Þegar vinir komu í heimsókn, áttu þeir engin orð til þess að lýsa aðdáun sinni á öllum þessum þægiiegheium og snilldarlegu uppfinningum. Úti í garðinum var 'hverfi- 'hlið, sem allir urðu að ganga í gegnum, en það var óvenju- lega þungt að snúa hliðinu. Enginn gestur komst hjá því að hugsa með sjálfum sér, að þetta væri hið eina, sem væri óþægilegt við húsið og garð- inn. Dag nokkurn kom ung stúlka í heimsókn. Einnig hún furðaði sig á þessu þunga hverfihliði, en andstætt öllum öðrum vogaði hún sér að minn ast á það. — Herra Edison, sagði hún. — Allt er svo dásamlegt og fullkomið hér hjá yður, —• nema þetta hverfihlið. Hvers vegna er svona þungt að snúa því, og hvers vegna hafið þér það hér yfirleitt? —Kæra barn, sagði Edison og hló. — Það má alls ekki fjarlægja þetta hlið. Það er ein alf mínum snjöllustu upp- finningum. Það er nefniiega þannig útbúið, að í hvert skipti sem einhver gengur í gegnum það, þá pumpar við- komandi 10 lítrum af vatni upp í vatnsþróna hér í garð- inum! ★ EDISON hafði á skrifstofu sinni vindlakassa til þess að bjóða gestum úr. Hann varð var við, að aðstoðarmenn hans gerðu sér tíðar ferðir inn til hans og fengu sér úr vindla- kassanum.. Dag nokkurn upp götvaði Edison, að kassinn var orðinn tómur. Hann boðaði þess vegna tó- baksframleiðanda, sem hann þekkti, til leynilegrar ráð- stefnu, og nokkrum dögum seinna stóð nýr vindlakassi á borðinu í skrifstofu Edisons. En hinar tíðu ferðir aðstoðar- mannanna ti’l hans lögðust al- veg niður. Edison hafði gert samstarfsmönnum sínum dá- lítinn grikk og hann hafði heppnazt. Tíminn leið og allt gekk sinn vanagang. Dag nokkurn gerir Edison þó þá uppgötvun, að aðeins nokkrir vindlar eru eftir í kassanum. Hann boð- ar tóbaksframleiðandann á sinn fund. — Jú, upplýsti hann. —• Vindlarnir voru búni'r til ná- kæmlega eins og þér sögðuð fyrir um, herra Edison: úr tei, hárum, þangi, brennisteini og seglgarni! — Ó, nei. Það er ómögulegt, hrópaði Edison upp yfir sig. — Þá er það sem sagt ég sjálf- ur, sem hef reykt þá alla! Krossgáta númer 13 FJÖLMARGAR ráðningar bárust Við krossgátu númer tíu. — Verðlaunin hlýtur að þessu sinni: Gestína Magnúsdóttir, Vesturgötu 143, Akranesi. Hér birtist verðlaunakross- gáta númer 13. Eins og áður eru veitt ein verðlaun, hundr- að krónur. Frestur til að skila lausnum er tvær vikur. Lausn ir sendist í lokuðu umslagi og utanáskriftin er: Sunnudagsblaðið, Hverfisgötu 8—10, Réykjavík. Lausn á krossgátu númer 10: HA F NA H U E E L F U R N S 0 L A F G S J'AL r s « GftOfi A N (M V, A R G NJU P\S 1 Or A M O g HflÆFA LMno Sö M A(? 0 AU F 0 F ( Nl’O anti r A -0 A L SUNNUDAGSBLAÐIÐ. Fylgirit Alþýðublaðsins. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Prcntun: Prentsmiðja Alþýðublaðsins. 12 Sunnudagsblaðið

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.