Sunnudagsblaðið - 29.05.1960, Blaðsíða 1
V. ÁRGANGUR — SUNNUDAGUR 29. MAÍ — 18. TRL.
D
turheimsókn
Smásaga effir Jökul Jakobsson,
myndskreytt af Ragnhildi Óskarsdóttur
ÞEIR KOMU seint um kvöld-'
ið, voru hávaðasamir og heimt
uðu benzín Þeir voru tveir
sem börðu að dyrum og annar
þeirra blóðugur í framan og
hafði týnt jakkanum. Bóndinn
hafði verið háttaður en brá
sér í fötin og snaraðist fram.
Hann hafði með sér vasaljós,
og bað þá hafa hægt um sig,
hér væri fólk í svefni.
Sveitavargurinn, sagði sá
blóðugi, alltaf þarf hann að
sofa, sveitavargurinn þarf
ekki annað að gera en sofa.
Bara fá sér bjútíslíp. Hvar er
kvenmaðurinn?
Bóndinn ansaði ekki rausi
hans en sneri sér að hinum
manninum. Hann viitist vera
allsgáður og hlaut að vera bíl-
stjórinn.
Hváðan ber ykkur að?
Að sunnan, sagði bílstjór-
inn og fleygði sígarettu frá
sér. Vindurinn feykti henni
út í myrkrið og hann horfði
á eftir eldglæringunum.