Sunnudagsblaðið - 29.05.1960, Blaðsíða 12

Sunnudagsblaðið - 29.05.1960, Blaðsíða 12
. PÁSKAGÁTAN TÆPLEGA fjögur huntlruð lausnir bárust við mynda- getraunina, sem birtist í páskablaðinu. Rétt iausn gát- unnar var þessi: ME — STAF (UR) — RÍM — ANNA (R) — Á — ÁR — INU — ERU — P — ÁS — KAR —< NIR : Mesta frf manna á árinu eru páskarnir. — Dregið var úr lausnunum. sem langflestar voru réttar og upp kom lausn Kristins Sigurðssonar, Hlíðarhvammi 11, Kópavogi. Ilann getur vitjað verðlaunanna, sem cru 500 Hrónur, á ritstjórnarskifstofu SUNNUDAGSBLAÐSINS. MAÐUR NOKKUR skrifaði bréf til gistihúss erlendis,. pantaði herbei'gi og spurði ’hvort hann mætti' hafa hund- inn sinn með sér. Hann fékk svohljóðandi bréf frá veitinga manninum: „Ég hef fengizt við rekstur gistihúsa í meii'a en þrjátíu ár. Aldrei hefur það borið við, að snemma morguns hafi ég orðið að hringja á lögregluna til þess að fjarlægja hund, sem hefur komið drukkinn í gistihúsið og viljað brjóta allt og bramla. Enginn hundur hefur heldur nokkru sinni far ið án þess að greiða reikning- inn eða borgað með falskri á- vísun. Og aldrei hefur það komið fyrir að hundur hafi brennt sængurföt gistihúss míns með því að reykja í rúminu. Sem sagt: Iíundur- inn yðar er veikominn. P.S. Ef hundurinn er á yðar vegum, þá eruð þér að sjálf- sögðu líka velkominn! . ..“ 'k UNGA FÓLKIÐ er hreinskilið og raunsætt nú á dögum, — og verður það snemma. Foreldrar Michaels litla fóru kvöld nokkurt út að skemmta sér og amma hans .yar fengin til þess að sitja hjá Uonum á meðan. Hún háttaði Michael litla og settisL- yið rúmstokkinn hjá honum. — Og nú ætla ég að segja þér sögu, sagði hún vingjarn- lega. - Á ég ekki að gera það?“ Kú, einu sinni var björn, sem lxét Putte-Nutte. Putte-Nutte var með sítt og fallegt hár. Og Putte-Nutte var feitur ... Michael sagði ekki orð. — Ertu ekki sammála því, að Putte-Nutte haíi verið feit ur? sagði amrnan og þótti' strákur taka sögunni helzt til þurrlega. Þá leit Michael alvarlegur á hana og sagði: — Amma! Hefurðu drukk- ið? ★ GAMALL maður var í kvöld- boði að ræða um konur. Féllu honum orð á þá leið, að hann hefði aldrei á ævi sinni séð konu, sem hefði í raun og' veru verið falleg. — Það er þó ómögulegt, sagði stúlkan, sem var í kvöld verðarboðinu. Hún var með kartöflunef. — Finnst yður ég vera ljót? spurði hún og reigði sig. — Ég held nú síður, svaraði gamli maðurinn. — Þér eruð engill, sem hefur fallið af himnum ofan. Þér hafið bara verið svo óheppin að detta á nefið! FYRIR NOKKRU sögöum vi'ð frá frægu aprílgabbi í Eng- landi árið 1889. Hér eru tvær gamlar sögur til viðbótar af aprílgabbi: 1. apríl 1931 birti New Yorkblaðið „Sun“ fregn um kíki' einn, sem væri nýlega fundinn upp. Blaðið fullyrti, að íueð þessum kíki mætti sjá allra minnstu hluti á tungl- inu og sagði, að við fyrstu til- raunir hefði komið í ljós, að á mánanum byggju litlar verur, sem líktust öpum. Lesendurn- ir gleyptu við þessari frétt og hún kom í öllum heimsblöð- unum. Pétur mikli hafði gaman af að láta þegna sína hlaupa apr- íl. Eina nóttina var kirkju- klukkunum í Pétursborg hringt. Menn hrukku upp með andfælum og litu út um gluggana. Sáu þeir þá loga bera við himin í útjaðri borg- arinnar. Menn klæddu sig í dauðans oíboði og þutu á brunasvæðið. En þegar að var komið, hafði þar verið hlað- inn gríðarstór bálköstur og síðan kveikt' í. Zari'nn sjálfur var viðstaddur og tilkynnti þeim sem komu, að það væri 1. apríl í dag. ★ SKRIFSTOFUMAÐUR nokk- ur kom til forstjóra síns og bað hann um frí frá vinnu í nokkra daga. Hvers vegna? Jú, konan hans þurfti að gera hreint og hann vildi gjarnan hjálpg. henni dálítið. — Ungi maður, sagði for- stjórinn. — Konan yðar var einmitt að hri’ngja til mín og sagði mér í fullri hreinskilni, að þér væruð til lítils gagns hei’ma fyrir og þvældust bara fyrir. Þess vegna bað hún mig um að neita yður um fríið. Skrifstofumaðurinn hneigði sig og ætlaði að fara. Við dyrxx ar stanzaði hann og sagði: —Herra forstjóri! Það eru hér á skrifstofunni tveis menn, sem meðhöndla sann- leikann af fyllstu varfærni. Ég er annar þei’rra. Eftir stutta þögn bætti hann við: — Ég er ógiftur! ★ HINN IiEIM’SFRÆGI amer- íkanski rithöfundur Mark Twain var ei’nu sinni ritstjóri smáblaðs lengst úti í hinu villta vestri. Honum bárust möre< handi'it og hánn sat kóf sveittur við að lagfæra þau og leiðrétta. Dag nokkurn kom kunningi hans inn til hans td þess að rabba við hann stundarkorn. — Eru það fremur léleg handrit, sem berast til þín? spurði kunninginn. — Já, það verð ée að segja, svaraðl Mark Twain. — Núna upp á síðkastið hef ég orðið að margumskrifa þau, áður en ég hef getað fleygt þeim í ruslakörfuna. 3 ORÐA MYNDAGÁTA MYNDAKROSSGÁTAN er að þessu sinni aðcins þrjú orð, eitt mydatákn fyrir hvert þeirra. En þar með er vandinn ekki leystur. Lesenúur verða sjálfir að finna út, hvar hvert þeirra á að vera í reitunum hér að neðan. Verðlaunin eru eins og áður 100 krónur og frestur til að skila lausnum þrjár vikur. 12 Sunnudagsblaðið

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.