Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Síða 3

Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Síða 3
Ótímabært jólahald DJÚP og innileg var hún, tilhlökkunin fyrir jólin í gamla daga. Á hana gat fátt skyggt nema ef skorturinn og jóla- kötturinn biðu gráðug við dyrnar. Strax með jólaföstu- byrjun fóru börnin að telja dagana til hinnar miklu hátíð- ar, sem reis einS' og skær viti úr sorta skammdegismyrkurs- ins. Því að jólin voru kölluð hátíð ljósanna; þá mátti helzt hvergi bera skugga á í híbýlum manna eða álfa, og ekki eru margir áratugir síðan, að íbúð- ir manna voru dimmar og skuggsælar og jafnvel draug ur eða ann að ódresi í hverju skugga skoti- Ekkert hreysi var svo aumt, að ekki væri þar ljós tendrað á helgri nótt, og „það var venja að láta Ijósin loga á jólanótt.“ Nú skuluð þið ekki fara að halda, að ég ætli að fara að boða með gamalmennisraust þann vísdóm, að allt hafi verið betra hér áður og að veröldin fari versnandi. Það ætla ég ekki að gera. Augljóst mál er það, að nú eru ljósin þúsund sinnum fleiri; nú má með sanni segja, að hvergi beri skugga á. Enda hafa draugaskammirnar hrökklast úr skotum sínum fyr- ir fullt og allt, og álfarnir sneiða hjá hfbýlum mannanna, og þykir þeim þó gaman að ljósunuin greyjunum. Raf- magnsljósin eru meira að segja komin inn í Ijóð skáldanna. — Svo segir Jakobina Johnson: „Og þó rafljósin rjúfi myrkur heillar heimsálfu á helgri nóttu, eru mér kærust kertaljósin góðra minninga.” Jakobína er orðin roslfin kona, og man hin gömlu jól, hin fátæklegu jól, sem voru þá svo auðug, þótt kertin væru færri, og þótt ekki ,,stirndi á flos og fægða eik, á fáséða hluti og valda,” eins og Guðmund- ur Böðvarsson segir í snilldar- kvæði sínu „Hin gömlu jól.” Svo fagurlega minnizt hann þeirra: „Við munum og geymum með miklum yl þær menjar, án nokkurs skugga, um lítinn torfbæ með lágreist Þil og ljós úti í hverjum glugga, um baðstofuhlýjunnar blíðu- seið, sem bræddi af rúðunni klak- ann, um dýrðlega kvöldið, sem kom — óg leið, um kerti, sem brann on’í stjakann.” Hið dýrmætasta og fegursta við allar góðar liátíðir er til- hlökkunin. Sá maður, sem glatað hefur hæfileikanum til að hlakka til, á sér fárra gæða að vænta í tilverunni. Það er illt verk og ógeðfellt að spilla tilhlökkun nokkurs barns, ___ manns eða konu. En erum vér, nútímamenn, ekki einmitt að spilla jólatil- hlökkuninni, og það í stórum stíl, og skipulagðri markvísi? Jólin geta nú tæpast lengur kallast „hátíð ljósanna,” öðrum hátíðum fremur. Við erum orð- in svo rik _ svo rík, að öll viljum við verða miklu, miklu Frh. á bls. ÍS8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAÐ 219

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.