Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 4

Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 4
TJNG finnsk stúlka, Lecna Sal- mela, frá Sahnela í Mið’-Finnlandi hefir dvalið hér í Iandi undanfarin tvö ár og kunnað Ijómandi vel við sigr að því er hún sjálf segir. Hún liefur teiknað nokkrar afbragðs- góðar myndir í Sunnudagsblað Al- þýðublaösins eins og flcstúMes- endur þess vita áreiðanlega, og þess vegna datt okkur ! hug, hvort hún myndi ekki ennfremur fús til að spjalla við okkur um dvöl sína hér og þó einkum jólahátíðina í Finnlandi. Varð Leena strax við þeirri bón. — Hvaðan úr Finnlandi ert þú, Leena? — Sýslan mín heitir Veteli. Það búa þar hálft sjötta þúsund manns. — Hvernig datt þér í hug, finnskri sveitastúlku, að leita hingað upp? — Jó, frænka mín ein dvaldist hérna um skeið og kom lieim full af sögum um það, hve dásamlegt allt væri á íslandi. Hún var alltaf að vegsama ísland og íslendinga og það ,,kveikti” í mér. — Og þú hefur ekki orðið fyrir vonbrigðum? -—- Nei, síður en svo. — Af liverju ertu hrifnust? — Ég er lirifnust af, hve fólkið hér er kátt og skemmtilegt. Finn- ar eru miklu þunglamalegri. Svo er ég ákaflega hrifin af sólarlag- inu. — Sólarlaginu .... ? — Já. — Þar kemur listamaðurinn upp í þér? — Kannski. — Þú ert við nám í Handíða- og myndlistarskólanum? — Já. — Og átt langt eftir? — Tvo vetur. — Ætlar þú þá heim? . — Eg veit það ekki. Það getur margt breytzt á tveimur árum. — Hvað hefurðu haft fyrir stafni síðan þú komst til íslands? —; Ég hef lengst unnið á ýms- mn sveitabæjum í Árnessýslu, en er nýkomin til bæjarins og vinn ræðir við finnska stúlku, Leenu Salmela, sem dvalizt hefur um hríS hérlendis við nám og starf. Texti: Guðjón Albertsson. Myndir: Leena Salmela. nú við framrciðslustörf í Hafnar- búðum. — Er mikill munur á landbún- aðinum á íslandi og í Finnlandi? — Já, hann er betur á vegi stadd ur hér, fleiri skepnur á bæjunúrn og meiri vélakostur. Húsnæðið á íslenzku sveitabæjunum, — ég á við liér sunanlands, því að til Norðurlands hef ég aldrei komið, — er líka miklu betra en gerist í Finnlandi. —■ Vita Finnar mikið um íslend- inga? — Nei, ég býst við, að íslend- ingar viti meira um Finna en Finn ar um þá. íslands er að litlu getið í kennslubókum um landafræði og sá fróðleikur um ísland, sem þær hafa að geyma er auk þess svo rækilega úreltur, að halda mætti, að íslendingar byggju enn í gömlu torfbæjunum. Ég man líka eftir því, að eina myndin frá íslandi, sem var í landafræðinni, sem ég lærði í menntaskóla, var af konum að þvö þvott við þvottálaugarnar í Reykjavík. Konurnar voru auð- vitað ákaflega gamaldags í klæða burði, enda myndin eldgömul og á alls ekki lengur við, sem kynn- ing á íslenzkum þjóðháttum. Ann- að dæmið um það, hve margir Finnar vita lítið um ísland, er það, þegar móðir mín byrjaði að senda mér bréf hingað tií íslands. Þá var stúlkan í pósthúsinu í sveit- inni ekki betur að sér en svo, að hún taldi ísland ekki vera á Norð- urlöndum og lét mömmu lengi vel borga burðargjald í samræmi við þá skoðun sína. — Hvað kom þér mest á óvart, þegar þú leizt ísland? — Hvað flest er hér tízkulegt. Einnig varð ég stcinhissa á Reykja vík. Hún er alveg furðuleg borg. Hér ægir öllu saman, gömlum hús- um, nýjum, iitlum húsum og stór- um liúsum. Þetta er ólíkt því, sem gerist í Heísinki. — Nokkrar ráölcggingar, scm þú vilt gefa ísleudingum? — Ja, í fyrsta lagi ættu þeir að kynna landið betur, því að þeir gætu haft óhemju tekjur af feröa mönnum, sem mundi langa að %

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.