Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 5

Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 5
kynnast fegurð íandsins. Og í öðru lagi téttu þeir að drekka minna. Ég hef hvergi í Finnlandi orðið vör við eins ógurlega al- mehnan drykkjuskap eins og hér á íslandi. Drykkjuskapurinn er blcttur á þjóðinni. — Ætlunin var nú sú, Leena,, að spjalla við þig um jólahald í Finn iandi, vegna þess að jólin eru á næstu grösum? — Já, það eru talsverð vand- kvæði á því. — Vegna hvers — Vegna þess að Finniand er stórt land og siðirnir margir í sambandi við jólin og brcytilegir cftir landshlutuúi. — Þá skulum við bara ræða finnska jólasiði í stórum drátt- ufn. — Við getum rcynt. — Er ekki jólaundirbúningur ykkar talsvert umfangsmikill, ekki síður en hér á íslandi? — Jú, það er reynt að undirbúa þau sem bezt, viða að sér matar- og drykkjarföngum og kaupa gjaf- ir. Nú, húsin eru au'ðvitað ræst hátt og lágt, svo að allt líti sóma- samlega út, þegar hálíðin gengur í garð. — Og svo hefst hátíðin. — Já, hún hefst með borðhaldi klukkan sex á aðfangadag. Áður, um fjögur- eða fimmleytið um dag- inn, hafa allir farið í gufubað, „sauna”, og eru því hressir og cndurnærðir^ þegar sezt er að borð um. Máltíðin á aðfangadagskvöld er yfirleitt svínslæri eða „kinkku” eins og við nefnum það, með til- heyrandi aukaréttum. Svo höfum við líka „möndlugraut” eins og þið íslendingarnir. Við köllum möndlugrautinn „riisipuuro”. — Hvernig verjið þið kvöldinu að öðru leyti? — Að máltiðinni iokinni horf- um við á sjónvarpið, sem á hverju aðfangadagskvöldi flytur lielgi- loikinn um fæðingu frelsarans, út- býtum og tökum upp jólagjafirn- ar, dönsum cf til vill í kringum jólatréð og förum í leiki. Klukk- an cllefu eða tólf er haldið í hátt- inn, vegna þess að fólkið þarf að vakna til messu, sem liefst klukk- an sex að morgni jóladags. Stund- um er alllangt til kirkjunnar og því nauðsynlegt að vakna snemma. — Akið þið til messu í bílum eða á sleðum cins og áður fyrr? — Flcstir á bílum en cinstaka á sleðum. — Hvað er lielzt notað til jóla- gjafa í Finnlandi? — Mest fatnaður. Miklu meira en hér á- íslandi. Leikföng og bæk ur falla svo i hlut barnanna. — Og þið hafið auðvitað jóla- sveina? — Já, þeir kallast „Joulupukki” og búa í Eyrarfjalli, „Korvatun- turi" í Lapplandi. Jólasveinapnir eru mikið á finnskum jólakort- um, miklu meira en tíðkast hér á Ísiandí. Finnsku jólakortín eru yfirleitt aldrei með landslags- myndum eins og hér er algengt. — Svo rennur jóladagurinn upp í „þúsund vatna landinu”? — Já, hann byrjar með messu klukkan sex að morgni og líður í ró og spekt með lystilega brösuðu svinakjöti og heimabrugguðu öli. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - LUNNUDAGEBLAÐ 221

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.