Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Page 7

Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Page 7
menn, sem höfðu verið í báti með honum. Þeir eru að niðurlotum komnir, en ehn eiga þeir langa ferð fyrir höndum. Vistirnar eru hins vegar komnar að þrotum og matarskammtarnir eru minnkaðir eins og frekast er hægt. Alexey — annar cskimóinn, — skýtur tvö hrcindýr, en aðra veiði fá þeir ekki. Þeir rífa hreindýrakjötin í sig, og þegar það þrýtur, skjóta þcir hundínn, sem hafði verið gefið lif, og leggja hann sér til munns. Og áfram reyna þeir að komast, þótt þeir séu orðnir svo þrekaðir að þeir geti ekki gengið ncma fáein skrcf í einu. Einn úr hópnum fær kalsár á fæturna, og hinir verða að draga hann á sleða með sér. Hann biður þá að skilja sig eftir, en enginn þeirra vill hlusta á þau tilmæli. Þeir telja sér skylt að hlúa að félaga sinum til hins siðasta. 9. október er de Long farinn að sjá, að útilokað sé að koma ölium hópnum til byggða. Hann sendir þess vegna tvo menn á und- an til að sækja lijálp. Til þeirrar fcrðar eru þeir valdir, sem mest cíga eftir af þreki, og eftir 14 daga strit rekast þeir á hóp inn- fæddra manna. En þeim tckst ekki að gera sig skiljanlega og verða að fara með þessum mönn- um lengra inn i landið. Þar hitta þcir sér til mikillar undrunar Melville. Hann hafði tekið land talsvert austar en de Long, og fundið innfædda menn mjög fljót- lega og farið með þeim upp i landið. Tveimur dögum síðar er hann lagður af stað norður á bóg- inn með hundasleða og innfædda fylgdarmenn. Hann leitar í þi’jár vikur að foringja sinum, en árang- urslaust. Liðsm'enn Melvilles snua aítur lieímleiðis, en sjálfur verður hann eftir og með honum mennirnir tveir, sem de Long hafði sent eftir hjálp. Vorið 1882 gera þeir út nýján leiðangur, og að þcssi sinni finna þeir siðasta áfangastað de Longs. Þeir finna lík lians og sið- ustu félaga hans, og við hliðina á líki foringjans liggur dagbók hans, sem hann hefur skrifað í fram á hinztu stund. Dagbókarfrásögn- in, þött stuttorð sé, gefur kann- ski betri bugmyhd en nókkuS anwað um það, sem de Long hefur orðið að þola, áður en sulturinn og frostið lögðu hann að velli. Síðustu tvær síðurnar í dagbók- inni eru á þessa leið: Föstudagur 21. október. 131. dagur. Kaack fannst látinn milli læknisins og mín á miðuætti. Lee dó um hádegisbil. Las bænir, þeg- ar við sáum, að hann var að deyja. Laugardagur 22. október. 132. dagur. Of máttfarnir til • að bera lík Lees og Kaacks út á ísinn. Læknirinn, Collins og ég bárum þau aðeins úr augsýn. Svo féllu augu mín saman aftur. Sunnudagur 23. október. 133. dagur. Allir mjög máttfarnir, — sváfu eða hvíldu sig allan daginn. Sótti eldivið fyrir myrkur. Las nokkuð af guðspjalli dagsins. Okkur verkjar í fæturna. Engir skór eru til. Mánudagur 24. október 134. dagur. Nóttin erfið. Þriðjudagur 25. október. 135. dagur. Miðvikudagur 26. dagur. 136. dagur. Fimmtudagur 27. október. 137. dagur. Iveson búinn að vera. Föstudagur 28. október. 138. dagur. Iveson dó snemma i morg- un. Laugardagur 29. október. 139. dagur. Dressler dó í nótt. Sunnudagur 30. október. Boyd og Gertz dóu í nótt. Collins að dcyja. IV. Leiðangri de Longs lauk með algjörum ósigri. Lifandi sluppu úr ferðinni aðeins Melville og þeir, sem með honum höföu ver- ið, auk þeírra tveggja manna, sem de Long sendi frá sér eftir land- tökuna við Lenuósa. Um þi’iðja bátinn, sem Chipp stjórnaði hefur aldrei neitt spurzt. En þrátt fyrir það að svona tækist til, var leiðangurinn ekki með öllu þýðingarlaus. í fyrsta lagi sýndi ferðin að ekki var hægt að fara á skipi um íshafið þar, sem de Long hafði ætlað að fara. í öðru lagi kom greinilega i ljós, að ekki var vænlegt til árangurs að gera út stóra leiðangra mcð mikinn og þungan farangur til lieimskautasvæðanna. Síðari vís- indamenn drógu líka lærdóm af þessu og leituðu til íbúa lieim- skautasvæðanna um ráðleggingar og fyrirmyndir að ferðum um ís- auðnirnar. En meginárangurinn af leiðangrinum var hvorugt þetta. Sumarið 1884, þremur árum eft- ir að Jeanette sökk, fundu sel- fangarar við sunnanvert Græn- land talsvert af fötum, leiíum af tjaldi og ýmislegt fleira á isjaka, sein þar var á reki. Það leyndi sér ckki hvaðan þetta var komið, þvi að meðal annars fundust á jakanum skrár og bréf undirrit- uð af de Long sjálfum. Þetta hlaut að hafa rekiö þvert yfir ís- haíið á þrernur árurn, suður meö austurströnd Grænlands og fyrir Hvarf. Þar með var sanuað að hafstraumur liggur yfir íshafið frá Siberiu til Grænlands. Það var þetta sem kom Frið- þjófi Nansen til aö leggja af slað i liina frægu ferð sína þvert yfir íshafið á Frem, en sá leiðangur stóð yfir í þrjú ár, frá 1893—96. Og reyiisla hans staðfesti það, sem .leiðangur de Longs hafðí leitt i ljós, lóngu eftir að foi’ingi þess leiðangurs- var allur. ALÞ’ÝÐUBLABIÐ - SUNNUDA&SBLAÐ 55}

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.