Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Blaðsíða 10

Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Blaðsíða 10
#@1111 Hítardalur, Iiöfuðból séra Jóns Halldórssonar. rækinn, lítillátur, hóglyndur, friðsamur, með hinu kennimannlegasta siðferði í framgangi, ávarpi og klæðnaði, gekk ei hraðar í einn tíma heldur en ann- an, hvort sem úti var hret eður hiti, skúr eður skin, og varla mátti segjast hann riði hesti skeið. Hann var á vöxt með liærri mönnum og hafði þykkt eftir hæð, meðan hann hélt heilsu sinni; hataði allt óskikk. Ekkert féll honum miður en það hann sæi á mannfundum drykkjuskap eður vanskikkun presta sinna. Hann fastaði hvern föstudag, var guðs- þakkarverkagjarn við hina fátæku og nauðstöddu; vildi engan láta synjandi frá sér fara.. Hvorki var hann hraðmæltur né hámæltur, en vandaði sem bezt allt sitt embættisverk og úrskurði, þá nokkuð á reið, hafandi til þess tóm og umhugs- unartíma, og fylgdi í flestu fótsporum M. Brynj- óifs síns forverjara. Og þótt hinir eldri menn þætt- ust í sumu sakna röggsemdar hans og skörulegra ráða, samt var þessi elskaður og virtur bæði af prestunum og öðrum góðum mönnum. . . . JÓN VÍDAEÍN. M. Jón Vídalín var að persónu, ásýnd og vexti tyrirmannlegur, vel á fót kominn, ypparlega lærð- ur í latínu og grísku sem og fleirum framandi tungumálum, forfarinn í flestum lærdóms og bók- 554 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ legum konstum, eitt hið liðugasta og bezta latínU- skáld hér í landi, hafði hreint og skýrt málfæri, hinn röksamlegasti og áheyrilegasti predikari, og þótt hann væri vel talandi og stórgáfaður, samt vand- aði hann jaínan sínar predikanir, og var því vand- látur um þær við aðra. Hann var skýr og skorin- orður diktari. M. Brynjólfur Sveinsson, herra Oddur Einarsson og hann hafa verið þeir lærðustu biskupar hér í landi..... Engan nauðstaddan, sem til hans leitaði, lét hann synjandi frá sér fara, jafnvel þó áður í óþóknan hans verið hefði. Við kunningja sína og vini var hann sléttur og glaðsinnaður; við aðra út í frá eða almúga ávarpsgóður og lítillátur; við stæriláta og þá, er á hans hluta vildu ganga, stórhugaður og kappsamur; og utan öls varð honum varla komið til að skipta sinni sínu. Á fyrstu ái’um hans, meðan allt lék honum svo sem í lófum, þótti hann í sumu heldur hneigjast að veraldlegum, hverra uppgangur þá var í meira lagi um stund. En þá hann tók að setjast og mæðást, snerist hann því meir til and- legra, sem lengur á leið, helzt á hans seinustu ár- ujn; vildi þá lifa í kyrrðum, lagði sig til að þéna nytsemdum íóðurjands með bókagerðum sínum. Var stiftinu og kennidóminum mesti söknuður að sjá á hans bak í þessari hans iðju og hugarfari.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.