Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Page 15

Sunnudagsblaðið - 07.11.1965, Page 15
PYRIR sex áratugum lauk fyrstu stórstyrjöld þessarar aldar, styrj- öld Rússa og Japana. Friðarsamn- ingar voru undirritaðir í septem nermánúöi 1905, og höfðu Rússar bá farið hinar mestu hrakfarir f.vrir Japönum, sem nú voru í fyrsta skipti orðnir stórveldi á heimsmælikvaröa, ríki, sem Evr- ópuþjóðirnar urðu að fara að taka tillit til. Lokaorrusta styrjaldar- innar átti sér stað fyrr á árinu og stóð yfir í næstum því þrjár vik ur. Það var orrustan um Mukden, sem fræg er í hernaðarsögunni. Hér fer á eftir lýsing á þeirri orrustu, skrifuð af einum þátttak- anda, C. Platonov, sem síðar flutt ist til Englands og varð þar gam- all maður. Ilöfundur greinarinn- ar í rússneskum ein- kennisbúningi ári' 1904 ORRUSTAN V Ð MUKDEN Herir Rússa og Japana höfðu staðið andspænis hvor öðrum í bejá eða fjóra mánuði á sextíu til sjötfu mílna langri víglínu suður ^f Mukden, höfuðborg Mansjúríu. í febrúar 1905 blossuðu upp bar- ‘iagar víðs vegar á víglínunni, og þeir færðust smám saman í auk- ana og urðu að hinni svo kölluðu orrustu um Mukden. Þá höfðu báðir herirnir fengið mikla liðs- auka, og það virtist greinilegt að stórfelld orrusta var í vændum. En þrátt fyrir það, hve langvar- andi, hörð og umfangsmikil orr- hstan um Mukden varð, reyndist þún ekki yera úrslitaorrusta styrjaldar Rússa og Japana, held- Ul' aðeins síðasta orrustan. Þótt Japanir hrektu Rússa úr stöðvum Slnum við Mukden og tækju borg lr*a sjálfa, tókst þeim ekki að um ^ringja rússnesku herina.Þeim mis tókst tilrauniV sínar til að skera Hússa frá Austur-Kína-járn- ni-autinni og eyða þeim. Eftir orr- ústupa héldu báðjr herirnir hin- Um nýju vígstöðvum sínum þar ^ friður yar saminn. Þessir atburðir höfðu í stuttu máli orðið fyrir orrustuna um Mukden: 1896 fékk rússneska stjórnin leyfi hjá Kína til að leggja járnbraut í Mansjúríu, og 1898 fékk hún leigðan til langs tíma hjuta af Liaotungskaganum með vjggirtri höfn í Port Arthur. Rússar lögðu Mansjúríubrautina, sem tengdi Vladivostok við Síber- íubrautina og áhrif Rússa í Kína jukust óðfluga. Japanir voru á- fram um að halda stöðu sinni sem voldugasta ríkið í Austurlöndum fjær og undirbjuggu styrjöld á laun. í febrúar 1904 réðst japanski flotinn á rússneska flotadeild í Port Arthur án þess að lýsa j'fir stríði, og japanskar hersveitir stigu á land í Kóreu og Mansjúx-- ÍU. Til margs konar átaka kom í Mansjúríu vorið og sumarið 1904, og Japanir settust um Port Art- hur. Fyrsta stórorrustan átti sér stað við Liaoyang, þar var rússneski hei-inn undir stjórn Kuropatkins hershöfðingja hrakinn á flótta.en ekki yfii-bugaður. Hann hörfaði með fram Austur-Kína-járnbraut- inni í átt til Mukden og tók upp vígstöðu við ána Hun-he. í pktóber hafði Kuropatkin fengið liðsáuka og ákvað að gera gagnárás, en orrustunni, sem fór fram við ána Sha-he lyktaði með þæfingi og báðir herir tóku sér samhliða stöður mjög nærri hvor öðrum. í janúar 1905 gerði Kuro- patkin aðra tilraun til sóknar, þrátt fyrir mikinn kulda. Árásinni var beint að stöðvun Japana ná- lægt þorpi, sem hét Sandepoo. En Japönum var greinilega vel kunn- ugt um fyrirætlanir rússnesku herstj órnarinnar, en slíkt kom oft fyrir í styrjöldinni. Njósnastai-f- semi þeirra var hin árangursrík- asta. Kínversku ibúarnir voru beiskir: þeir ui-ðu fyrir þungum búsifjum af völdum þessara tveggja mikiu herja og átökum þeii-ra sín á milli; þorp þeirra voru lögð í rústir og uppskeran eyðilögð, þúsundir manna voru heimilislausir og sultu. Það var auðvelt, einkum fyrir Japani, að finna njósnara meðal þeirra. Við ALÞÝÐXJBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 559

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.