Morgunblaðið - 27.11.2004, Page 12
12 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS - NÖKKVAVOGUR 1, rishæð
Vorum að fá í sölu fallega 4ra herb.
rishæð í 3-býlishúsi við Nökkvavog.
Íbúðin skiptist m.a. í tvær stofur, her-
bergi, forstofuherbergi, eldhús og
baðherbergi.
Svalir eru á íbúðinni. Húsið stendur
innst í botnlanga. Verð 13,2 millj.
Íbúðin verður til sýnis
í dag, laugardag, frá kl. 12-15.
Leiðin að
sjóðunum
á morgun
Fréttaskýring í
sunnudagsblaði
Morgunblaðsins
eftir Agnesi
Bragadóttur.
MAX Mosley, forseti FIA, alþjóða-
sambands akstursfélaga og aksturs-
íþróttafélaga, sagði á Umferð-
arþingi í gær að Íslendingar hefðu
stigið gæfuríkt spor þegar málefni
umferðaröryggismála hefðu verið
flutt undir samgönguráðuneytið.
Jafnframt sagði hann áætlanir
ráðuneytisins í þessum málaflokki
uppörvandi og að litið yrði til Ís-
lands í alþjóðlegum samanburði
þegar fram liðu stundir.
Mosley sagði að FIA, sem auk
þess að vera leiðandi á heimsvísu í
umferðaröryggismálum, aksturs-
prófunum á nýjum bílum og sem
regnhlífarsamtök 160 aðildarfélaga
út um allan heim, heldur utan um
eina stærstu íþróttakeppni heims,
Formúlu 1, hefði á síðustu tíu árum
beint athygli sinni í æ ríkari mæli að
umferðaröryggismálum.
Mosley sagði að upphaf þess
mætti rekja til einnar helgar árið
1994 þegar tvö banaslys urðu sömu
helgina í Formúlu 1 keppni. Atburð-
urinn hefði leitt til þess að samtökin
hófu mikla innri skoðun á öllum ör-
yggismálum og leituðu jafnframt
fanga innan aðildarríkja Evrópu-
sambandsins í þeim efnum.
„Okkur til mikillar undrunar kom
í ljós að innan sam-
bandsins hafði kröfum
sem gerðar eru í
reglugerðum ESB um
árekstravarnir í bílum
ekki verið breytt síðan
1974, að því und-
anskildu að árið 1985
var slakað verulega á
kröfunum.“
FIA hóf þá herferð
fyrir því innan Evr-
ópuþingsins að fyrri
reglugerð yrði tekin
upp á ný en mætti mik-
illi mótstöðu frá því
sem Mosley kallar arm
bifreiðaiðnaðarins inn-
an þingsins. Þó hafði
FIA sitt fram en sá hængur var á að
reglugerð um auknar kröfur í
árekstravörnum átti ekki að taka
gildi fyrir nýjar gerðir bifreiða fyrr
en árið 1998 og allar bifreiðar sem
eru til sölu árið 2003. Í framhaldi af
því voru samtökin Euro NCAP
stofnuð, þar sem Mosley hefur þar
til nýlega verið forseti, og fyrsta
árekstraprófunin var gerð árið
1996. Prófanir Euro NCAP hafa
leitt til stóraukinnar áherslu bíla-
framleiðenda um árekstravarnir í
bílum og í þeim próf-
unum eru gerðar enn
ríkari kröfur um
árekstravarnir í bílum
en reglugerðir ESB
mæla fyrir um.
Mosley segir tregðu
stjórnmálamanna um
að beita sér í þágu auk-
ins umferðaröryggis
óskiljanlega, ekki síst í
ljósi þess að á hverju
ári látast 1,2 milljónir
manna um allan heim í
umferðarslysum.
„Á Íslandi er póli-
tískur vilji og frum-
kvæði fyrir því að tak-
ast á við þetta
vandamál. Það er mikið framfara-
spor að færa þennan málaflokk frá
dómsmálaráðuneyti til samgöngu-
ráðuneytis og ég tel að þetta muni
leiða til árangurs sem aðrar þjóðir
geta miðað sig við. Ég hlakka mikið
til að koma aftur til Íslands innan
tveggja til þriggja ára og sjá þá með
eigin augum þann mikla árangur
sem ég vona að þetta mikilvæga
frumkvæði leiði til. Ég óska öllum
sem að því máli komu til hamingju,“
segir Mosley.
Max Mosley, forseti FIA, á Umferðarþingi
Árekstravarnir
að frumkvæði FIA
Max Mosley,
forseti FIA.
„ÞAÐ er mikið áfall að búið sé að
strika út Mannréttindaskrifstofuna
með einu pennastriki,“ segir Guðrún
Dögg Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mannréttindaskrif-
stofu Íslands. Vísar hún þarna til
þess að ekki sé gert ráð fyrir sér-
stökum framlögum til skrifstofunnar
í breytingartillögum við fjárlaga-
frumvarp næsta árs, sem samþykkt-
ar voru á Alþingi í gær.
Í fjárlagafrumvarpinu, eins og það
lítur út núna, er gert ráð fyrir fram-
lögum til mannréttindamála al-
mennt, þ.e. framlögin eru ekki
eyrnamerkt Mannréttindaskrifstofu
Íslands, eins og áður.
„Þetta fyrirkomulag veikir fjár-
hagslegan grundvöll skrifstofunnar
þar sem ekki er hægt að sjá fyrir
hver fjárframlög verða,“ segir í
áskorun sem stjórn Mannréttinda-
skrifstofunnar sendi þingmönnum í
vikunni. „Ennfremur er alvarlega
vegið að sjálfstæði skrifstofunnar
þegar ákvörðun um framlag til henn-
ar hefur verið færð frá löggjafar-
valdinu til framkvæmdavaldsins.“
Skorar stjórnin á Alþingi að fella
ekki niður framlög til skrifstofunnar.
Að sögn Guðrúnar var skrifstofan
rekin fyrir um það bil átta milljónir á
síðasta ári.
Stofnunin sé
sjálfstæð og óháð
Í áskorun sinni ítrekar stjórn
skrifstofunnar mikilvægi þess að hér
á landi starfi óháð og sjálfstæð stofn-
un sem sinni mannréttindamálum.
„Að mati stjórnarinnar væri það
mikill álitshnekkir fyrir Ísland ef sú
yrði raunin að skrifstofunni væri
ekki lengur tryggt fast framlag á
fjárlögum og yrði að draga sig út úr
þeim samstarfsverkefnum sem hún á
aðild að á alþjóðavettvangi. Stjórn
Mannréttindaskrifstofu Íslands
skorar því á hæstvirta þingmenn að
beita sér fyrir því að framlag til
Mannréttindaskrifstofunnar verði
ekki skert frá fyrra ári.“
Rekstur til framtíðar
verði tryggður
Stjórn Íslandsdeildar Amnesty
International hefur sent frá sér
áskorun til Alþingis um að rekstr-
argrundvöllur Mannréttindaskrif-
stofu Íslands verði tryggður. Þar
segir að á tíu ára starfstímabili
Mannréttindaskrifstofunnar hafi
hún margsannað gildi sitt, staðið fyr-
ir fjölmörgum málþingum, yfirgrips-
miklar umsagnir um lagafrumvörp
hafi verið lagðar fram ásamt viðbót-
arskýrslum til eftirlitsnefnda Sam-
einuðu þjóðanna, komið hafi verið á
fót bókasafni með efni um mannrétt-
indi, stuðlað hafi verið að fræðslu á
sviði mannréttindamála og ýmsar
bækur og rit verið gefin út á vegum
Mannréttindaskrifstofunnar.
Í ályktuninni segir: „Tillögur fjár-
laganefndar Alþingis eins og þær
liggja nú fyrir, þar sem gert er ráð
fyrir framlögum til mannréttinda-
mála almennt, fela í sér þá hættu að
þeir fjármunir nýtist illa og dreifist á
marga aðila og einstaklinga. Eins og
fram hefur komið standa flest ef ekki
öll þau félög sem starfa á vettvangi
mannréttinda á Íslandi að Mannrétt-
indaskrifstofunni og stjórn Íslands-
deildar Amnesty International telur
að fjármagni til mannréttindamála
sé vel varið með því að tryggja
traustan rekstrargrundvöll Mann-
réttindaskrifstofu Íslands og tryggja
þannig sjálfstæði skrifstofunnar
gagnvart framkvæmdavaldinu,
þannig að Mannréttindaskrifstofan
geti áfram verið sú sjálfstæða og
óháða stofnun sem sinnir þessum
málaflokki á breiðum grundvelli.
Í ljósi þessa hvetur stjórn Íslands-
deildar Amnesty International Al-
þingi til að tryggja fastan rekstrar-
grundvöll Mannréttindaskrifstofu
Íslands til frambúðar.“
Stjórn Mannréttindaskrifstofunnar
Vegið að
sjálfstæði
skrifstofunnar
FLUGFÉLAGIÐ Air Atlanta hefur
látið teikna nýtt merki félagsins í
tilefni af sameiningunni við Íslands-
flug frá næstu
áramótum.
Auglýs-
ingastofan
Himinn og haf
teiknaði merkið
sem er hnatt-
laga og vísar á
þann hátt til alþjóðlegrar starfsemi
félagsins.
Magnús Stephensen, fram-
kvæmdastjóri viðskiptasviðs eign-
arhaldsfélagsins Avion Group, seg-
ir að ákveðið hafi verið að
endurnýja merki Atlanta á þessum
tímamótum. Byggt væri á gömlum
grunni en um leið farið af stað á
ferskan hátt. Ómar Benediktsson,
verðandi forstjóri hins sameinaða
félags, tilkynnti starfsmönnum Atl-
anta og Íslandsflugs um merkið í
gærmorgun.
Nýtt merki
Air Atlanta
SAMKVÆMT könnun sem Gallup
gerði fyrir 112 vita 98,4% lands-
manna að neyðarnúmerið á Ís-
landi er 112.
Það er svipuð
niðurstaða og
árið 2001.
Í frétta-
tilkynningu frá
112 eru lands-
menn afar já-
kvæðir í garð
fyrirtækisins, jákvæðnin mældist
4,7 á kvarðanum 1–5 en yfirleitt
fá fyrirtæki hérlendis 3,6 í ein-
kunn. Þá kemur fram að um þrír
af hverjum tíu höfðu þurft að
hringja í 112 og voru þeir al-
mennt ánægðir með þjónustuna,
einungis 0,5% voru óánægð.
Könnunin var gerð 18. október
til 2. nóvember. Hringt var í
1.350 manna slembiúrtak sem
tekið var úr þjóðskrá og voru
þátttakendur á aldrinum 16–75
ára. Ekki mældist munur á af-
stöðu fólks eftir kyni, aldri, bú-
setu eða öðru.
98,4% þekkja
neyðar-
númerið 112