Morgunblaðið - 27.11.2004, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 13
ÚR VERINU
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
NÝTT og glæsilegt fjölveiðiskip
bættist í flota landsmanna á fimmtu-
dag þegar Björg Jónsdóttir ÞH, sem
er í eigu Útgerðarfélagsins Langa-
ness hf. kom til heimahafnar á Húsa-
vík.
Langanes hf. keypti skipið, sem
áður hét Birkeland, frá Noregi fyrr
á þessu ári og hefur það verið í
gagngerum breytingum og end-
urbótum Gdynia í Póllandi. Hin nýja
Björg Jónsdóttir, hin sjöunda í út-
gerðarsögu Langaness hf., er smíð-
uð árið 1975 í Flekke-fjord í Noregi.
Skipið 70, 76 metrar að lengd og 12
metra breitt og er stærsta skip hús-
víska fiskiskipaflotans til þessa.
Að sögn Bergþórs Bjarnasonar,
útgerðarstjóra hjá Langanesi hf.,
var sett ný brú á skipið, ný togspil og
skipt var um aðalvél. Nýja aðalvélin
er 4.080 hestöfl. Í skipinu er frysti-
og flökunarbúnaður fyrir uppsjáv-
arfisk sem afkastar um 70–80 tonn-
um af frystum afurðum á sólarhring
og er sá búnaður nýlegur. Skipið ber
um 900 tonn í sex kælitönkum og
400 tonn af frystum afurðum.
Bergþór segir skipið fara til kol-
munnaveiða innan skamms og
skipta bræður hans Aðalgeir og Sig-
urður skipstjórninni með sér. Fyrsti
stýrimaður er Brynjar Freyr Jóns-
son og yfirvélstjórar verða Baldur
Sigurgeirsson og Eiður Pétursson.
Langanes hf. á fyrir nóta- og tog-
skipið Bjarna Sveinsson ÞH og hefur
hann verið á síldveiðum að und-
anförnu.
Eigendurnir Bjarni Aðalgeirsson út-
gerðarmaður og kona hans Þórhalla
Sigurðardóttir ásamt sonum sínum,
f.v. Bergþóri útgerðarstjóra og skip-
stjórunum Sigurði og Aðalgeir.
Ný Björg Jónsdóttir ÞH
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Björg Jónsdóttir ÞH siglir til heimahafnar á Húsavík í fyrsta sinn.
Ævisögurnar koma frá Hólum
FAÐIR HEIMA-
STJÓRNARINNAR
Maðurinn sem sagan gleymdi.
Dr. Valtýr tókst á við
Hannes Hafstein og íslenska
ættarveldið og tapaði.
Saga fátæka smaladrengsins
af Skagaströnd er ein
eftirminnilegasta og fróðlegasta
ævisaga seinni ára,
snilldarvel skrifuð af Jóni Þ. Þór
Kaktusblómið og nóttin lætur engan ósnortinn
SKÁLDIÐ SEM SKRIFAÐI
FJALLA-EYVIND
„Bók vikunnar“
Fréttablaðið 23. október sl.
„Rannsókn Jóns Viðars leiðir í ljós
margar áður ókunnugar staðreyndir
um líf þessa dáða leikskálds,
skýrir lífshlaup hans í sigrum
og áföllum lífsins …“
Páll Baldvin, DV 30. október sl.
„… með áhugaverðustu ævisögu
skálda sem ég hef lesið lengi …
mjög vel heppnað …“
Jón Yngvi Jóhannsson
Kastljósinu 21. nóvember sl.
BÓKAÚTGÁFAN HÓLARGle
ðileg jó
l!
UMDEILD
METSÖLUBÓK
„… Davíð gerir tilraun
til að skrifa fallegan texta
og tekst það oft mjög vel.“
Illugi Jökulsson, DV 15. september sl.
„… fróðleg og aðgengileg
og því óhætt að mæla
með henni við alla þá
sem áhuga hafa
á stjórnmálasögu
Íslendinga á 20. öld.“
Ómar H. Kristmundsson
Morgunblaðinu 30. október sl.
Alexander mikli er ævisaga
eins og þær gerast bestar
ÆVINTÝRALEGASTA
ÆVISAGAN
„Vegleg útgáfa …
[textinn] er sniðinn
að þörfum nútímalesenda …“
Erlendur Jónsson, Morgunblaðinu 20. nóvember sl.
Hér segir af hernaðarsnilld
Alexanders, togstreitunni
við harðan föður,
samskiptunum við hinn
fræga heimspeking Aristóteles,
kvennamálum og sorginni.
METSÖLUBÓK
NEW YORK TIMES
„Hrífandi en stundum
skelfilegur lestur.“
– Seattle Post-Intelligencer
„Stórkostleg gjöf handa
þeim sem unna list
Kurts Cobains.“
– Seattle Weekly
,,Í lok bókarinnar
gróf ég andlitið í höndum
mér og grét.“
– Globe and Mail
10.-11.
sæti
ævisö
gur
Mbl. 18
. nóv.
6.
sæti
ævisögur
Mbl. 25. nóv.