Morgunblaðið - 27.11.2004, Síða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Í dag fæst opinbert leyfi á jólaundirbúning
Egilsstaðabúa og nærsveitunga, þegar
kveikt verður á hæsta jólatré landsins fyrir
utan kaupfélagið í bænum. Undanfarna
daga hafa myndarleg jólaljós verið hengd í
ljósastaura og bæjartrén og býr það jóla-
undirbúningi íbúanna notalega umgjörð í
skammdeginu.
Það vekur undrun að verktakafyrirtæki
skuli láta sér detta í hug að bjóða starfs-
mönnum upp á að búa í ósamþykktum íbúð-
argámum, þar sem ekki er einu sinni inn-
angengt á klósett. Fimm slíkir gámar
standa í Miðhúsalandi við Egilsstaði og
hafa sex menn búið þar í einhverjar vikur,
en þeir vinna við byggingu leikskóla fyrir
Íslenska aðalverktaka. Nokkrir Lettar
bjuggu við sömu aðstöðu af hendi fyrirtæk-
isins á Reyðarfirði en ÍAV segjast munu
bæta úr þessu hið snarasta.
Nýlega var á ferðinni hér útlenskur mað-
ur við mælingar á hljóðum norðurljósa.
Hann hefur farið víða um landið með tæki
sín og tól og telur sig geta hljóðritað ým-
islegt snark og bresti sem stafa af leik ljós-
anna um himinhvelið. Áhugaverð iðja í
meira lagi og eflaust hávísindaleg. Kannski
getum við Íslendingar farið að selja erlend-
um ferðamönnum norðurljósaferðir „með
hljóði“ hér í skammdegissortanum við ysta
haf?
Húsasmiðjan á Egilsstöðum býður upp á
sérstæðan glaðning fyrir jólin. Nefnilega
kvenkyns jólasvein sem dillar rassinum og
berar brjóst sín undir gjallandi jólatónlist
þegar ýtt er á takka. Sem sagt búið að
klámvæða jólin fyrir okkur og hugsi nú
hver sitt. Kannski væri sanngjarnt að biðja
fyrirtækið að selja einnig hefðbundinn karl-
kyns jólasvein sem gyrti niður um sig
brækurnar og dillaði sprellanum hressi-
lega? Ómengaður nútímajólaboðskapur til
litlu telpnanna okkar og drengjanna sem
nema umhverfi sitt af skilyrðislausri for-
vitni?
Að öðru leyti standa þeir Húsasmiðju-
menn sig vel í slagnum og gott að hafa tvær
ágætar byggingarvöruverslanir í þeirri
framkvæmdahrinu sem hríslast nú um bæ-
inn.
Úr
bæjarlífinu
EGILSSTAÐIR
EFTIR STEINUNNI ÁSMUNDSDÓTTUR
BLAÐAMANN
Menningarhátíðverður haldin ígrunnskólanum
á Breiðdalsvík í dag,
laugardag, og hefst kl.
16.30.
Gunnlaugur Stefánsson
flytur ávarp og Guðjón
Sveinsson les úr nýút-
kominni bók sinni, Njóla
nátttröll býður í afmæli
en Einar Árnason mynd-
skreytti bókina. Myndir
Einars og smáhlutir sem
hann bjó til verða einnig
til sýnis. Þá les Magnús
Stefánsson frá Félagi
ljóðaunnenda úr nýút-
komnum ljóðabókum og
skólahljómsveitin leikur
jólalög undir stjórn Eyj-
ólfs Ólafssonar, tónlistar-
kennara. Kaffihlaðborð
verður í boði Breiðdals-
hrepps.
Blysför verður farin frá
grunnskólanum að jóla-
trénu, sem stendur við
Ásveg. Kveikt verður á
jólatrénu og dansað í
kringum það.
Menningarhátíð
Víkingar tryggðu sérAkureyrarmeist-aratitilinn í krullu
2004 (curling) með sigri á
Grænjöxlum í síðustu um-
ferðinni, 5-4. Mótið hefur
staðið yfir í Skautahöllinni
undanfarnar vikur en 9 lið
tóku þátt að þessu sinni. Í
öðru sæti mótsins urðu
Fálkar og Ísmeistarar í
því þriðja. Víkingar byrj-
uðu fremur illa í mótinu
og náðu aðeins þremur
stigum í fyrstu þremur
leikjunum en unnu svo
fimm leiki í röð og náðu 13
stigum þegar upp var
staðið, unnu 6 leiki, gerðu
eitt jafntefli og töpuðu ein-
um leik. Fálkar hlutu 12
stig og Ísmeistarar 10 stig.
Akureyrarmeistarar í krullu með sigurlaunin, f.v. Birg-
itta Reynaldsdóttir, Jón S. Hansen, Gísli Kristinsson og
Björn Arason en á myndina vantar Hallgrím Indriðason.
Víkingar meistarar
Ósk Þorkelsdóttirgaf nýverið útvísnakverið
Kvöldglettur. Hún er
vísnaunnendum að góðu
kunn af fjölmörgum hag-
yrðingakvöldum, en þar
hafa karlar verið í meiri-
hluta við háborðið. Til
marks um það yrkir hún:
Ferskeytlur fljúga að kveldi,
feimin er unga daman.
Komst inn í karlaveldi
á kjaftinum einum saman.
Ósk yrkir í orðastað
eiginmannsins:
Kaldur er vetur og komið er
hér
kvefið að ásækja frúna.
Ó heilagi Drottinn nú þakka ég
þér
að þögnuð er kerlingin núna.
Davíð Hjálmar Har-
aldsson las í Morg-
unblaðinu að til stæði að
breyta á reglum um
kattahald á Álftanesi.
Skylt yrði að hafa ketti
innandyra að næturþeli.
Hann yrkir:
Er fá læðan öfundsverð
ef hún verður breima.
Komin er ný kröfugerð:
Kettir sofi heima.
Kvöldglettur
pebl@mbl.is
Blönduós | Nonni er hundur og
á heima á Blönduósi, nánar til-
tekið á Aðalgötu 8. Nonni heitir
ekki Nonni svona af því bara.
Hann heitir fullu nafni Jón Sig-
urðsson í höfuðið á Idol-
stjörnunni frá í fyrra.
Nonni er unglingur í hunds-
legu tilliti og þráir hann ósköpin
öll að komast út fyrir lóðamörkin
og kanna heiminn. Í lífi hunds og
manns eru margar biðskyldur og
grípur hundurinn Nonni stund-
um til þeirra ráða til að mótmæla
takmörkum sínum, að hefja upp
raust sína líkt og alnafni hans og
eru menn mishrifnir eins og
gengur. En Nonni er hundur og
hundur er hundur eins og Bjart-
ur í Sumarhúsum sagði. Svo ein-
falt er það.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Nonni hundur
Hundalíf
Hornafjörður| Bæjarráð Hornafjarðar
fjallað á fundi sínum í vikunni um beiðni
um framkvæmdaleyfi við vegarstæði við
Dynjanda í Nesjum. Ætlunin er að leggja
nýjan vegarkafla um 1,4 km langan sem
yrði framlenging á endurbyggingu vegar-
ins að Almannaskarði. „Mikil bót verður að
þessari framkvæmd því blindbeygjan nið-
ur fyrir Krosshraunsklettinn verður löguð
og einnig beygjan við heimreiðina að Dynj-
anda,“ segir í vef sveitarfélagsins. Á fundi
bæjarráðs lá einnig fyrir bréf frá Skipu-
lagsstofnun þar sem óskað var eftir áliti
hvort framkvæmdin væri háð umhverfis-
mati. Bæjarráð lagði í framhaldi af því
fram bókun þar sem segir að það telji ekki
ástæðu til mats á umhverfisáhrifum þar
sem framkvæmdin hafi ekki umtalsverð
umhverfisáhrif, hvorki vegna eðlis né um-
fangs hennar. Þó telur bæjarráð rétt að
bíða umsagnar annarra aðila um hvort
framkvæmdin sé háð umhverfismati áður
en framkvæmdaleyfi er veitt, sbr. bréf
Skipulagsstofnunar.
Héraðsverk ehf. hefur að mestu lokið við
undirbyggingu vegarins beggja vegna Al-
mannaskarðsganga þ.e. neðra burðarlag er
komið á mestan hluta vegarins. Fyrstu
undirstöður vegskálans við göngin að
sunnanverðu voru steypt í vikunni og síð-
asta steypa í vegskála að norðan var steypt
í gær. Í göngunum er unnið að uppsetningu
vatnsklæðninga.
Ekki ástæða
til umhverf-
ismats
Eyjafjörður | Samkomulag hefur náðst
um að hætta starfrækslu Sauðfjársæð-
ingastöðvar Norðurlands á Möðruvöllum
en bændum á Norðurlandi er jafnframt
tryggður aðgangur að hrútasæði frá
stöðvunum í Borgarnesi og Laugardælum
á komandi árum, til jafns við aðra við-
skiptavini stöðvanna. Jafnframt er frystu
hrútasæði dreift á þau svæði sem fjærst
liggja sæðingastöðvunum svo sem Austur-
land, Norður-Þingeyjarsýslu og Strandir.
Gert er ráð fyrir sameiginlegum pöntun-
um á fersku sæði fyrir Þingeyjarsýslur og
Eyjafjörð og að afgreiða megi allt að 500
skammta á dag á þetta svæði. Frá þessu er
greint á vef Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar.
Starfsemi
verður hætt
♦♦♦