Morgunblaðið - 27.11.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 19
MINNSTAÐUR
Hafnarfjörður | Jóla-
þorpið í miðbæ Hafn-
arfjarðar verður opnað í
dag kl. 12, og verða ljósin
á jólatré frá Frederiks-
berg, vinabæ Hafnar-
fjarðar, tendruð við það
tilefni. Þorpið stendur nú
við Strandgötu, milli
Hafnarborgar og Fjarð-
ar. Það samanstendur af
20 litlum húsum þar sem
verða á boðstólum ým-
iskonar vörur sem tengj-
ast jólunum; sælgæti,
jólaglögg, handverk,
smákökur, jólaskraut,
heitt kakó og vöfflur o.fl.
Þorpið verður opið frá
kl. 12 til 18 allar helgar fram að jól-
um, og verður reynt að skapa
skemmtilega jólastemningu á að-
ventunni, segir Albert Eiríksson,
verkefnisstjóri jólaþorpsins. Hann
segir að miðað við reynsluna af
þorpinu í fyrra komi fólk þangað
bæði til að versla og eins til að upp-
lifa jólastemninguna sem myndast á
markaðnum. Hann segir að fólk
komi í heimsókn hvaðanæva, frá öllu
höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Leikskólabörn í Hafnarfirði hafa
skreytt fjölda jólatrjáa í þorpinu, og
setja heimagerðar skreytingar
barnanna skemmtilegan svip á
markaðinn, segir Anna Sigurborg
Ólafsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og
þróunarsviðs hjá Hafnarfjarðarbæ.
Hún segir að markaðurinn eigi að
höfða til fjölskyldna og vinahópa
sem komi gjarnan saman til að eiga
samverustund, og jafnvel kaupa ein-
hverjar jólagjafir. „Í fyrra var fólk
sem kom hingað aftur og aftur til
þess að upplifa þessa ævintýralegu
jólastemningu, hún er nefnilega
öðru vísi heldur en í verslunarmið-
stöðvunum. Það er ótrúleg stemning
sem myndast, fólk stígur inn í æv-
intýraheim.“
Boðið verður upp á skemmtiatriði
fyrir yngstu kynslóðina alla opn-
unardagana kl. 14, og munu hugs-
anlega einhverjir jólasveinar stelast
til byggða snemma til að heilsa upp á
börnin, auk þess sem heyrst hefur af
Grýlu í nágrenninu.
Jólaþorpið opnað í dag
„Fólk stígur
inn í ævin-
týraheim“
TENGLAR
..............................................
www.hafnarfjordur.is
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningur Sigurbjörg Karlsdóttir ætlar
að selja ýmiskonar jólavörur; þæfðar ullar-
kúlur, jólasveina, jólakerti, -svuntur og spil.
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
byggingu sjálfsafgreiðslustöðvar
fyrir bensín og olíu á horni Borg-
arbrautar og Hlíðarbrautar. Það er
Olíuverslun Íslands hf., Olís, sem
byggir sjálfsafgreiðslustöðina en
hún verður rekin undir merki ÓB.
Að sögn Páls Baldurssonar útibús-
stjóra Olís á Akureyri verður boðið
upp á ódýrara eldsneyti á ÓB stöð-
inni en á stöðvum með hefðbundinni
þjónustu. Þetta verður jafnframt ní-
unda bensínstöðin á Akureyri og
önnur sjálfsafgreiðslustöðin en Ork-
an er með slíka stöð á bílastæðinu við
Hagkaup.
Einnig verður byggt rúmlega 400
fermetra verslunarhús á lóðinni og
þar mun Samkaup opna matvöru-
verslun næsta sumar. P. Alfreðsson
ehf. byggir húsið en það verður í eigu
fasteignafélgasins Hymis, sem á
nokkrar eignir á Akureyri, m.a. Bón-
ushúsið við Langholt og húsnæði í
Skipagötu.
Umrædd lóð á horni Borgarbraut-
ar og Hlíðarbrautar er alls um 4.000
fermetrar og eru orðin um 10 ár frá
því Olís fékk lóðina. Páll sagði að Olís
hefði ætlað að byggja hefðbundna
þjónustustöð á lóðinni en landslagið
hefði breyst og að viðskiptavinirnir
gerðu ríkari kröfur um lægra verð.
Því hafi þetta orðið niðurstaðan og
lóðinni skipt á milli framkvæmda-
aðila.
Morgunblaðið/Kristján
Bensínstöð Framkvæmdir standa yfir á lóðinni á horni Borgarbrautar og
Hlíðarbrautar þar sem á að rísa bensínstöð og verslunarhúsnæði.
Níunda
bensín-
stöðin
AKUREYRI HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Aflið af stað | Aflið – systursamtök
Stígamóta á Norðurlandi hafa hafið
vetrarstarfsemina. Í frétt frá félaginu
segir að kynferðislegt ofbeldi gagn-
vart börnum sé ótrúlega algengt en
rannsóknir sýni að fjórða hver stúlka
og tíundi hver drengur verði fyrir
einhverskonar kynferðisofbeldi áður
en 18 ára aldri er náð. Þörfin fyrir að-
stoð er því afar brýn og því mikilvægt
að ekki þurfi að leita langt eftir henni.
Aflið hefur verið með starfsemi á Ak-
ureyri í tvö ár og byggist starfið á
hugmyndafræði og vinnuskipulagi
Stígamóta í Reykjavík. Samtökin eru
með opinn símatíma einu sinni í viku
og þar fyrir utan eru einkaviðtöl og
sjálfshjálparhópar. Símsvari samtak-
anna er opinn allan sólarhringinn. Á
síðasta ári voru á annað hundrað
einkaviðtöl og þrír sjálfshjálparhópar
verið í gangi. Í þessum hópum koma
konur saman til þess að sækja sér
styrk til að takast á við vandamál sem
rekja má til afleiðinga sifjaspella og
nauðgana.
Staða aldraðra | Heilbrigðishópur
Samfylkingarinnar og Lands-
samtökin 60+ boða til ráðstefnu um
stöðu aldraðra í dag, laugardaginn
27. nóvember á Fiðlaranum, Skipa-
götu 14 á Akureyri. Þar verða flutt
alls átta erindi um ýmis málefni er
varða eldri borgara. Allir eru vel-
komnir á ráðstefnuna sem hefst kl.
13 og er aðgangur ókeypis.
Sölusýning hjá Margréti |
Sölusýning verður nú um helgina í
Gallerí Margrétar Jónsdóttur leir-
listakonu að Gránufélagsgötu 48,
en þar eru á ferð hönnuðir frá
Verksmiðjunni að Skólavörðustíg 4
sem leggja land undir fót og halda
norður.
Hönnuðirnir Anna Guðmunds-
dóttir, María Kristín Magnús-
dóttir, Rósa Helgadóttir, Sunneva
Vigfúsdóttir, Þorbjörg Valdimars-
dóttir, Halldóra Emilsdóttir, Guð-
laug Halldórsdóttir og Hulda
Kristinsdóttir sýna fatnað, skó,
töskur, húfur og ýmsa aðra fylgi-
hluti.
Opið verður frá kl. 13 til 17 á
laugardag og sunnudag.