24 stundir - 22.11.2007, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 24stundir
Skipulögð skemmdarverk voru
unnin á TGV-háhraðlestarkerfinu
í Frakklandi aðfaranótt gærdags-
ins, að sögn talsmanns hins rík-
isrekna lestarfyrirtækis SNCF.
Skemmdarverkin orsökuðu tafir á
lestarferðum, sem voru miklar
fyrir vegna verkfalls fjölda starfs-
manna almenningssamgangna.
Talsmaður SNCF segir eld hafa
verið borinn að tækjum og lest-
arteinar voru skemmdir á tugkíló-
metra löngum kafla í norður-,
austur- og suðvesturhluta lands-
ins. Skemmdarverkin hafi stefnt
öryggi farþega í voða og greini-
lega átt að skaða þær samninga-
viðræður sem miða að því að
binda enda á verkfallið.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti
segist ætla að standa við fyrirhug-
aðar breytingar sínar á lífeyr-
iskerfinu og hefur hvatt mótmæl-
endur til að snúa aftur til vinnu
þar sem samningaviðræður séu
nú komnar á skrið. Áætlað er að
verkfallið kosti franska ríkið um
40 milljarða króna á degi hverj-
um. atlii@24stundir.is
Skemmdir
unnar á
lestarkerfinu
Fjölmenn mótmæli Þúsundir manna mótmæla fyrirhuguðum breytingum Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta á lífeyriskerfinu. Starfsmenn í opinbera geiranum og stúdentar
gengu til liðs við starfsmenn almenningssamgangna og lögðu niður störf á þriðjudaginn. Frakkland hefur að miklu leyti verið í lamasessi síðastliðna viku vegna verkfallsins.
Náðun George Bush Bandaríkjaforseti náðar kalkúninn May í Rósagarðinum á lóð Hvíta hússins í Washington. Náðun þakkargjörð-
arkalkúnsins er hefð sem nær aftur til forsetatíðar Abrahams Lincoln, 1861-65. Þakkargjörðardagurinn er haldinn hátíðlegur í dag.
„Trémaðurinn“ Húðsjúkdómalæknir skoðar Indónesann Dede á heimili hans í Cililin,
en miklar vörtur sem líkjast berki vaxa á öllum líkama Dede. Fréttir herma að hugs-
anlegt sé að honum verði meinað að ferðast til Bandaríkjanna til að fá meðferð.
Skeggi Keisaratamaríninn Sancho í dýragarðinum í Berlín lítur upp til ljósmyndara.
Apategundin kemur upprunalega frá vesturhluta Suður-Ameríku.
Eyðilegging Írösk stúlka hjólar milli húsarústa í Sadr í úthverfum höfuðborgarinnar Bagdad. Fátækt, atvinnuleysi og hungur eykst
með hverjum deginum sem líður í Írak.
NordicPhotos/AFP
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Milljónir Frakka geta nú ekki tekið strætisvagn,
lest eða neðanjarðarlest heim til sín eftir vinnu
og þeir eru þreyttir á því að vera í gíslingu.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti