Morgunblaðið - 22.08.2004, Síða 18
18 | 22.8.2004
Það er ósköp venjulegt kvöld. Allt er hljótt og litlikútur sofnaður. Pabbinn er að vaska upp eftirkvöldmatinn. Skyndilega fær hann innblástur og
býður mömmunni upp í dans – í tangó.
Þannig hefst stuttmynd norsk-íslenska kvikmyndaleik-
stjórans Kristínar Hauksdóttur, Past bedtime, sem verður
frumsýnd á Íslandi hinn 27. ágúst næstkomandi. Sýningin
er liður í tangóhátíð í Reykjavík sem hefst daginn á undan
og stendur til 29. ágúst. „Mig langaði að búa til mynd um
litlu augnablikin sem gera lífið stórt,“ segir Kristín þegar
slegið er á þráðinn til hennar til Ósló, þar sem hún starfar
og býr. „Myndin er um að vera opinn fyrir svolitlum töfr-
um í hversdagsleikanum og ég vona að hún komi ein-
hverju af seiðmagni tangósins til skila. Í staðinn fyrir að
sýna klisjukennda tangódansara með brilljantíngreitt hár-
ið fær kjarninn í dansinum að njóta sín í öllu sínu brjálæði
og ljóðrænu í senn.“
Leikararnir í myndinni eru tangódansparið Mariano „Chicho“ Frumboli og Eug-
enia Parrilla sem bæði eru frá Buenos Aires. Chicho er einn vinsælasti tangódansari
heims og að sögn Kristínar er það ekki af ástæðulausu. „Hann er mjög skapandi og
hefur leikið mikilvægt hlutverk í endurnýjun tangósins. Hann hefur brotið niður
ýmsar hindranir og prófað nýja hluti. Samt hefur hann náð að varðveita það sem er
einstakt við tangóinn og útvíkkað það. Bæði hann og Eugenia eru stórkostlegir dans-
arar og það er mikil tilfinningaleg nálægð í dansi þeirra. Fyrir tæpu ári voru þau á
tangóhátíð í Buenos Aires þar sem þau dönsuðu á stöðum sem gömlu tangóstjörn-
urnar hafa troðið upp í gegn um tíðina. Og þau fengu standandi lófatak.“ Þess má
geta að Chicho og Eugenia munu dansa hér á landi í tengslum við tangóhátíðina um
næstu helgi. Tónlistin í myndinni er síðan eftir landa þeirra Astor Piazzolla sem einn-
ig braut blað í þróun tangótónlistar á sínum tíma.
„Ég er mjög heilluð af tangó vegna þess að hann gefur möguleika á svo sérstökum
samskiptum milli þeirra sem dansa,“ heldur Kristín áfram.
„Í honum er eftirvænting, ástríða, dramatík og viðkvæmni,
allt á sama tíma. Dansinn er spunninn áfram þannig að
hann er mjög skapandi – þú og mótdansari þinn eruð sam-
an í augnablikinu með tónlistinni þannig að maður dansar
aldrei tvo dansa sem eru nákvæmlega eins. Það er hægt að
líkja þessu við djass – djassinn er ákveðin tónlistarstefna en
maður þarf að spinna tónlistina með þeim sem maður spil-
ar með. Þannig er tangóinn líka. Það eru til ákveðnar spor-
samsetningar sem maður getur nýtt sér en í miðri einni
slíkri getur maður byrjað á annarri ef stemningin er þann-
ig.“ Sjálf hefur hún dansað tangó í níu ár og um tíma
kenndi hún tangó þó að í dag sé dansinn fyrst og fremst til
gamans.
Eins og eftirnafn Kristínar gefur til kynna er faðir henn-
ar íslenskur en móðir hennar er norsk. Hún er uppalin í
Noregi en hefur dvalið á Íslandi á sumrin allt frá því hún
var sex ára. Hún er menntuð í Bandaríkjunum en áður en hún stofnsetti fyrirtæki sitt,
Totak árið 1997, starfaði hún við norska ríkissjónvarpið (NRK) og sem lausamann-
eskja í kvikmyndagerð. Í dag einbeitir hún sér hins vegar að eigin heimildamyndum
og listrænum kvikmyndum. „Starfið krefst þess að maður hafi frumkvæði til að setja
ný verkefni í gang sem er öðruvísi en þegar ég vann að annarra manna kvikmyndum.
Akkúrat núna er ég að vinna að heimildarmynd frá Grænlandi og svo er ég með ann-
að heimildarmyndarverkefni í startholunum.“ Hún segir það spennandi að vera nú
að kynna verk eftir sig í fyrsta sinn á Íslandi og vonast til að þar verði framhald á.
En aftur að dansinum. „Nú eru svo frábærir möguleikar á að læra tangó hjá góð-
um tangókennurum og það er um að gera að nýta það,“ segir Kristín. „Eða eins og
einn vinur minn sagði: Ef karlmenn hefðu minnstu hugmynd um hversu mikinn
áhuga konur fá á þeim þegar þeir kunna tangó þá myndu þeir rjúka á öll tangó-
námskeið sem eru í boði.“ ben@mbl.is
TÖFRAR TANGÓSINS
Kristín Hauksdóttir gerði stuttmynd um litlu augnablikin sem gera lífið stórt
„Í honum er eftirvænting,
ástríða, dramatík og við-
kvæmni, allt á sama tíma.“
DANSKVIKMYND | BERGÞÓRA NJÁLA GUÐMUNDSDÓTTIR