24 stundir - 20.12.2007, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 24stundir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24 stundir.is
Það virtist ekki bara vera ys og þys
á borgarstjórnarfundinum 4. des-
ember vegna síðari umræðunnar
um fjárhagsáætlun og annarra
málefna, heldur einnig vegna tíðra
sætaskipta borgarfulltrúa og vara-
manna þeirra. Alls voru kallaðir
inn á fund átta varaborgarfulltrúar
sem ekki eru á föstum launum en
hver þeirra fær 20.706 þúsund
krónur fyrir fundinn, hvort sem
fundarsetan er löng eða stutt, að
því er Símon Hallsson borgarend-
urskoðandi greinir frá.
Fundurinn stóð frá klukkan 14
til 01.12. Athygli vekur að Sjálf-
stæðisflokkurinn kallaði oftast inn
til setu á fundinn varamenn sem
ekki eru á föstum launum eða alls
fimm.
Tíð sætaskipti borgarfulltrúa og
varamanna á þessum fundi og þar
á undan kunna að hafa verið vegna
þreytu eftir átökin í tengslum við
meirihlutaskiptin, að mati Jórunn-
ar Frímannsdóttur, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins. Jórunn bendir
jafnframt á að núverandi meiri-
hluti sé með fjóra varamenn á föst-
um launum en Sjálfstæðisflokkur-
inn aðeins einn.
Jórunn leggur á það áherslu að
undir venjulegum kringumstæð-
um sé ekki alltaf verið að hringja í
varamenn. Það sé bara gert þegar
nauðsyn krefur. „Stundum er við-
komandi varamaður á staðnum til
að fylgjast með og þá er hann beð-
inn um að koma inn.“
Samfylkingin kallaði inn á fund-
inn tvo varamenn sem ekki eru á
föstum launum. Oddný Sturlu-
dóttir borgarfulltrúi segir það
stefnu flokksins að aðalmenn sitji
alla fundi nema þegar þeir þurfi að
fara frá vegna sérstakra aðstæðna.
„Og ef það vill svo til að eitthvað
sérstakt er á dagskrá sem tengist
einhverri nefnd fáum við okkar
fulltrúa inn á fundinn til að taka
þátt í umræðu um málið.“
HEFUR ÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Á borgarstjórnarfundi Tíð
sætaskipti hafa vakið athygli.
Þreyta eftir
mikil átök
Tíð sætaskipti borgarfulltrúa og varamanna Sjálfstæðismenn
þreyttir eftir meirihlutaskiptin Stefnan að aðalmenn sitji fundi
➤ Borgarstjórn er skipuð fimm-tán borgarfulltrúum og jafn-
mörgum til vara.
➤ Reglulegir fundir borg-arstjórnar eru haldnir fyrsta
og þriðja þriðjudag hvers
mánaðar í Ráðhúsi Reykjavík-
ur.
➤ Fundirnir hefjast kl. 14 og eruhaldnir fyrir opnum tjöldum
nema annað sé ákveðið.
BORGARSTJÓRN
Hlaupið í
skarðið
Tíð sætaskipti á
fundi 4. desember
14.00 Fundurinn hefst.
14.06 Gísli Marteinn Baldursson
inn.
14.20 Þorleifur Gunnlaugsson
inn, Sóley Tómasdóttir út.
16.10 Björk Vilhelmsdóttir út,
Dofri Hermannsson inn.
16.45 Ólafur F. Magnússon út,
Margrét K. Sverrisdóttir inn.
17.17 Ólafur F. Magnússon inn,
Margrét K. Sverrisdóttir út.
Svandís Svavarsdóttir út, Sóley
Tómasdóttir inn.
18.10 Marta Guðjónsdóttir út,
Kristján Guðmundsson inn.
18.25 Svandís Svavarsdóttir inn,
Sóley Tómasdóttir út.
18.45 Hlé á fundi.
19.20 Fundi fram haldið. Marta
Guðjónsdóttir inn, Kristján
Guðmundsson út. Þorleifur
Gunnlaugsson út, Hermann
Valsson inn.
19.55 Gísli Marteinn Baldursson
út, Björn Gíslason inn.
20.50 Þorleifur Gunnlaugsson
inn, Hermann Valsson út.
21.00 Júlíus Vífill Ingvarsson út,
Áslaug Friðriksdóttir inn. Björk
Vilhelmsdóttir inn, Oddný
Sturludóttir út.
21.20 Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son út, Elínbjörg Magnúsdóttir
inn. Sigrún Elsa Smáradóttir út,
Stefán Benediktsson inn.
21.55 Svandís Svavarsdóttir út,
Sóley Tómasdóttir inn.
22.10 Björn Ingi Hrafnsson út,
Óskar Bergsson inn.
22.30 Svandís Svavarsdóttir inn,
Þorleifur Gunnlaugsson út.
22.40 Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son inn, Elínbjörg Magnúsdóttir
út. Björk Vilhelmsdóttir út og
Oddný Sturludóttir inn.
22.55 Björk Vilhelmsdóttir inn
og Dofri Hermannsson út. Björn
Ingi Hrafnsson inn, Óskar Bergs
út.
23.05 Gísli Marteinn Baldursson
inn, Björn Gíslason út. Marta
Guðjónsdóttir út, Elínbjörg
Magnúsdóttir inn. Svandís Svav-
arsdóttir út, Þorleifur Gunn-
laugsson inn.
23.20 Marta Guðjónsdóttir inn,
Elínbjörg Magnúsdóttir út.
23.55 Oddný Sturludóttir út,
Guðrún Erla Geirsdóttir inn.
00.17 Hlé á fundi
00.50 Fundi fram haldið. Oddný
Sturludóttir inn, Guðrún Erla
Geirsdóttir út. Björn Ingi
Hrafnsson út, Óskar Bergsson
inn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
út, Elínbjörg Magnúsdóttir inn.
01.12 Fundi slitið.
Kona var dæmd til að greiða
áttatíu þúsund krónur í sekt
fyrir umferðar- og fíkniefna-
lagabrot í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra á þriðjudaginn.
Hún reyndist undir áhrifum
amfetamíns og kannabisefna
þegar lögregla stöðvaði akstur
hennar á Akureyri í ágúst.
Þá hafði hún í fórum sínum
smáræði af amfetamíni og
marijúana, sem lögregla fann
við leit í bifreið hinnar
ákærðu.
Auk þess að vera dæmd til
greiðslu sektar var hún svipt
ökuréttindum í þrjá mánuði
og gert að greiða sakarkostnað
upp á tæpar 150 þúsund krón-
ur. Konan hefur ekki áður
hlotið dóm.
Sakfelling í héraðsdómi
Ók undir áhrif-
um fíkniefna
Karlmaður á fertugsaldri er
ákærður fyrir innsiglisrof og
þjófnað, en mál gegn honum
var þingfest fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Maðurinn rauf innsigli Orku-
veitu Reykjavíkur sem sett
hafði verið í kjölfar þess að
lokað hafði verið fyrir raf-
magn og hita í íbúð sem mað-
urinn hafði umsjá með.
Þá er manninum gefið að sök
að hafa tengt á milli röra til að
hleypa heitu vatni á íbúðina
og einnig opnað að nýju fyrir
rafmagn og með þessu stolið
orku fyrir um eitt hundrað
þúsund krónur.
Orkuþjófur ákærður
Stal rafmagni
og heitu vatni
Þjófur, búinn kústskafti sem á
var fest skrúfjárn, var á ferli í
gærmorgun og stal veski úr húsi í
miðborginni með þessu verkfæri.
Þjófurinn spennti upp glugga á
jarðhæð og krækti í veskið sem
var þar á borði innandyra.
Að sögn lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu er tjón eigand-
ans, sem hafði brugðið sér frá
stundarkorn, allnokkurt en í
veskinu voru peningar, greiðslu-
kort og snyrtivörur. Í því var
einnig iPod-spilari en hann datt
úr veskinu áður en því var smeygt
út um gluggann. Þjófurinn er
ófundinn en að sögn vitna var
hann í rauðri hettupeysu. mbl.is
Veskjakrækir á ferð
Sjöl, sokkar,
vettlingar,
húfur,
silkitöskur,
bolir,
sparipeysur,
hversdagspeysur
Fallegar
prjónavörur
fyrir fallegar
konur!
Mjúkar
gjafahugmyndir!
Laugavegi 44
S: 561-4000 www.diza.isDiza