24 stundir - 20.12.2007, Blaðsíða 29
24stundir FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 29
Búsæld, félag kjötframleið-
enda í Eyjafirði, Þingeyj-
arsýslum og á Austur- og Suð-
austurlandi hefur gengið frá
kaupum á 45,45% hlut KEA
og kaupi einnig hluti Akureyr-
arbæjar, Norðurþings og
Eignarhaldsfélagsins Sam-
vinnutrygginga. Frá þessu var
greint á mbl.is. Búsæld greiðir
rúmar 400 milljónir króna
fyrir hlut KEA og alls samtals
tæplega 570 milljónir króna
fyrir hlut allra.
mbl.is
Steingrímur Árnason hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri efnisveitunnar D3.
Hann tekur við starfinu af
Stefáni Hjörleifssyni frá og
með 1. janúar. Steingrímur er
einn stofnenda Humac sem á
og rekur 20 Apple-sérverslanir
á Norðurlöndum ásamt Apple
IMC á Íslandi. Hann hefur
starfað við hugbúnaðarþróun
og markaðsmál síðastliðin 9
ár. Á árinu tók hann við sem
framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs Apple á Íslandi
og mun gegna því starfi þar til
hann tekur við starfi fram-
kvæmdastjóra D3.
FL Group hefur ákveðið að
halda ekki áfram viðræðum
við breska hugbúnaðarfyr-
irtækið Inspired Gaming Gro-
up (Inspired). Hinn 7. sept-
ember síðastliðinn staðfesti
FL Group að það ætti í við-
ræðum við félagið um hugs-
anlegt yfirtökutilboð til hlut-
hafa þess. Í ljósi núverandi
markaðsaðstæðna er það
ákvörðun félagsins að gera
ekki yfirtökutilboð í félagið að
svo stöddu. FL Group mun
áfram vinna með stjórn Inspi-
red og styðja við framtíð-
arvöxt þess.
Norðlenska til bænda
Greiða 570
milljónir fyrir
Stjóraskipti hjá D3
Steingrímur í
stað Stefáns
Inspired Gaming Group
FL hættir
við yfirtöku
Samkeppniseftirlitið hefur lagt 310 milljóna
króna stjórnvaldssekt á Eimskip vegna alvar-
legra brota á samkeppnislögum á árunum 2001
og 2002. Segir stofnunin að Eimskip hafi mis-
notað markaðsráðandi stöðu sína á sjóflutn-
ingamarkaði og brotið þannig gegn bannákvæð-
um samkeppnislaga.
Mál þetta hófst vegna kæru frá Samskipum
árið 2002 og var vegna hennar framkvæmd hús-
leit hjá Eimskipi. Samkeppniseftirlitið segir að
Eimskip hafi gert þetta annars vegar með að-
gerðum, sem miðuðu markvisst að því að koma
Samskipum út af markaðnum og hins vegar
með því að gera fjölmarga sk. einkakaupasamn-
inga við viðskiptavini sína.
Fram kemur í niðurstöðu Samkeppniseftir-
litsins að af hálfu Eimskips hafi þessar aðgerðir
verið skilgreindar sem árás og markaðsatlaga að
Samskipum. Gögnin sýni jafnframt að ákveðið
hafi verið að „máttur“ Eimskips yrði nýttur í
þessu skyni til þess að tryggja ráðandi stöðu fé-
lagsins á markaðnum. Markmið Eimskips með
aðgerðunum hafi verið að koma í veg fyrir sam-
keppni eða takmarka hana verulega og gera fyr-
irtækinu kleift að hækka verð í kjölfar aðgerð-
anna. Þetta sé sérstaklega skýrt þegar haft er í
huga umfang aðgerðanna.
Samkeppniseftirlitið telur að brot Eimskips
hafi verið alvarleg og til þess fallin að valda at-
vinnulífinu og almenningi miklu samkeppnis-
legu tjóni.
Stjórnendur Eimskips segja að ákvörðuninni
sé ranglega beint gegn núverandi félagi. Bæði
hafi orðið eigendaskipti og allir stjórnendur
Eimskipafélagsins eldra hafi látið af störfum. Því
hafi verið ákveðið að áfrýja til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála.
Eimskip sagt hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína
Fær 310 milljóna króna stjórnvaldssekt
GEFÐU ÖÐRUVÍSI
JÓLAGJÖF
Barnavernd er yfirgripsmesta trygging sem í boði er fyrir börn á
Íslandi og er í senn sjúkdómavernd, áfallavernd, framtíðarvernd og
aðhlynningarvernd fyrir börn á aldrinum sex mánaða til átján ára.
SÆKTU UM BARNAVERND Á WWW.SJOVA.IS
SJÓVÁ | KRINGLUNNI 5 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 440 2000 | SJOVA.IS | BARNAVERND@SJOVA.IS
Fæst í
Lyf og heilsu
í Glæsibæ