24 stundir - 20.12.2007, Qupperneq 46
Miðasala á árlega tónleika til
styrktar Styrktarfélagi krabba-
meinssjúkra barna hefur farið
heldur betur hressilega af stað og
hafa miðarnir aldrei selst jafn hratt
í 9 ára sögu tónleikanna. „Ég tala
fyrir hönd allra sem að þessu
skipulagi og að þessari framkvæmd
koma. Við erum hrærð og þakklát
fyrir þessar frábæru viðtökur. Þetta
er auðvitað fyrst og síðast þessum
frábæru listamönnum að þakka.
Velvild þeirra og örlæti í garð
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna er ótrúlegt og við erum þeim
óendanlega þakklát,“ segir Einar
Bárðarson sem hefur skipulagt
tónleikana frá upphafi, en þeir
fóru fyrst fram árið 1998. Á þeim
tíma hafa hvorki meira né minna
en 23 milljónir króna runnið til fé-
lagsins.
Glæsilegur hópur listamanna
Allir sem koma að tónleikunum
gefa vinnu sínu og þá veitir Há-
skólabíó húsnæði undir tónleikana
án endurgjalds. Óhætt er að full-
yrða að sjaldan hafi dagskráin litið
jafn glæsilega út og nú en þeir tón-
listarmenn sem fram koma eru
Bubbi Morthens, Sprengjuhöllin,
Luxor, Dísella, Nylon, Magni & Á
móti sól, Guðrún Gunnarsdóttir
og Friðrik Ómar, Garðar Thór
Cortes, Land & synir, Klaufarnir,
Stebbi og Eyfi, SSSól, Birgitta
Haukdal, HARA-systur og Ragn-
heiður Gröndal. Árlega greinast að
meðaltali 10-12 börn og unglingar
með krabbamein á Íslandi. Mark-
miðið með stofnun félagsins var
meðal annars að styðja við bakið á
börnunum og aðstandendum
þeirra bæði fjárhagslega og fé-
lagslega. Tónleikarnir fara fram
sunnudaginn 30. desember og
hefjast klukkan 16 stundvíslega.
haukurh@24stundir.is
Styrktartónleikar krabbameinssjúkra barna
23 milljónir á níu árum
46 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 24stundir
MENNINGTÓNLIST
menning@24stundir.is a
Jólaundirbúningurinn felst aðallega í
því að taka upp úr kössum, en ég var að
finna aðventukassann þannig að það gæti
eitthvert skraut farið upp í glugga í kvöld.
Eftir Hauk Harðarson
haukurh@24stundir.is
„Upphaflega byrjuðum við að gera
þetta út af því að okkur fannst
þetta fyndið, en nú er þetta meira
gert af skyldurækni. Við getum
ekki svikið fólk um jólagleðina.
Svo höfum við líka gaman af
þessu,“ segir Bragi Valdimar
Skúlason, meðlimur og einn af að-
altextahöfundum Baggalúts.
Voru harðari í upphafi
Jólalag sveitarinnar, Ég kemst í
jólafíling, er það þrettánda í röð
jóla- og áramótalaga sem öll eiga
það sameiginlegt að hafa mjög
skondna texta. Lögin eru flest
tökulög en textasmíð er í höndum
liðsmanna sveitarinnar sem eru
Bragi, Guðmundur Kristinn Jóns-
son, Guðmundur Pálsson og Karl
Sigurðsson. Lögin voru í upphafi í
harðari kantinum en sveitin hefur
linast í seinni tíð að sögn Braga.
„Ég skal samt ná Slayer-lagi í gegn,
við hættum ekki fyrr en það verð-
ur eitt Slayer-lag í þrefalda jóla-
plötu.“
Tekur úr kössum á aðventu
En ætli Bragi sé kominn í jólafíl-
inginn sjálfur. „Ég get ekki sagt að
ég hafi mikið verið að velta jól-
unum fyrir mér, ég komst í mikinn
jólafíling fyrir mánuði, þegar við
vorum að gera þessi lög, en svo tók
ég upp á því að flytja og gera alls-
konar hundakúnstir þannig að ég
verð bara að koma mér í jólagírinn
á Þorláksmessu með þessu áfram-
haldi. Jólaundirbúningurinn felst
aðallega í því að taka upp úr köss-
um, en ég var að finna aðventu-
kassann þannig að það gæti eitt-
hvert skraut farið upp í glugga í
kvöld,“ segir Bragi en viðurkennir
þó að Baggalúts-
liðar séu mikil jólabörn.
Tuttugu í viðbót
Það muna flestir eftir áramóta-
smellinum frá því fyrra, Gamlárs-
partý, en lagið sló rækilega í gegn
og fékk mikla spilun á öllum út-
varpsstöðvum. Það er ljóst að
landsmenn mega búast við því að
heyra jólalög frá Baggalúti næstu
árin. „Eigum við ekki að segja að
við gerum svona tuttugu í viðbót.
Þá hættum við,“ og eru það góðar
fréttir því það er fátt sem lýsir upp
skammdegið meira en jólalag frá
Baggalúti.
Nýjasta jólalag Baggalútsmanna heitir Ég kemst í jólafíling
Koma Íslending-
um í jólafílinginn
Sumir geta ekki komist í
jólaskap fyrr en þeir
heyra jólalagið frá
Baggalúti. Sveitin hefur
gert jóla- og áramótalög
frá 2001 og eru þau nú
orðin þrettán talsins. Nýj-
asta lagið, Ég kemst í
jólafíling, hefur hlotið
góðar viðtökur lands-
manna.
Bragi Komst í jólaskap
fyrir mánuði en flutti svo.
➤ Baggalútur hefur gert jólalögfrá árinu 2001.
➤ Söngur er aðallega í höndumGuðmundar Pálssonar og
Karls Sigurðssonar.
➤ Textarnir sem Baggalúts-menn eru svo þekktir fyrir eru
samdir af Braga Valdimar
Skúlasyni og Guðmundi Páls-
syni.
➤ Baggalútur starfrækir afarskemmtilega heimasíðu,
www.baggalutur.is
➤ Til gamans má geta að sam-kvæmt orðabók getur bagga-
lútur þýtt smástrákur eða lít-
ill kúlulaga steinn.
BAGGALÚTUR
24 Stundir/Kristinn Ingvarsson
Árlegir góðgerðatónleikar út-
varpsstöðvarinnar X-ins, X-MAS,
fara fram í kvöld. Fjöldi góðgerða-
mála hefur notið góðs af tónleik-
unum í níu ára sögu þeirra, en
þetta árið rennur allur ágóði til
Foreldrahúss. „Tónleikagestir í
kvöld mega búast við mikilli gleði
og hamingju og kærleikurinn mun
svífa yfir vötnum,“ segir Máni Pét-
ursson, dagskrárgerðarmaður á X-
inu. Hljómsveitirnar sem koma
fram í kvöld eru ekki af verri end-
anum en þær eru Mugison,
Sprengjuhöllin, Hjaltalín, Jakobín-
arína, Sign, Hooker Swing,
Seabear, Ultramegabandið Stefán,
Lada Sport, Dr. Spock, Strigaskór
nr. 42 og Our Lives og gefa allar
hljómsveitir vinnu sína. hh
Árlegir góðgerðatónleikar X-ins á Gauknum
Rokkað til góðs
Jakobínarína Ein af
hljómsveitunum sem
koma fram í kvöld.
Arnar Eggert Thoroddsen skrif-
aði nýlega bókina Öll trixin í
bókinni sem fjallar um störf Ein-
ars Bárðarsonar, umboðsmanns
með meiru, í tónlistargeiranum. Í
dag munu þeir félagar árita bók-
ina klukkan 17 í Kringlunni en 19
í Smáralind. Á föstudaginn verða
þeir á ferðinni í fæðingarbæ Ein-
ars, Selfossi, og árita í Bókakaffi
Bjarna Harðarsonar þingmanns.
Bókin þykir gefa skemmtilega
lýsingu á dægurmenningu lands-
ins síðustu tíu ár og gefur áhuga-
sömum tækifæri til að skyggnast
baksviðs í skemmtanageiranum.
hh
Umboðsmaður
Íslands áritar
Va t n s s t í g 3 I 1 0 1 R e y k j a v í k I 5 5 2 0 9 9 0
w w w. m u n t h e p l u s s i m o n s e n . c o m