24 stundir - 20.12.2007, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 2007 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Telja allnokkrir sem 24 stundir ræddi við að Her-
mann hafi fengið verðlaunin nú meira sem þakk-
læti fyrir vel unnin störf gegnum tíðina fremur en að
hann hafi átt sérstakt tímabil sem knattspyrnumaður.
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Ég get sagt þér að Hermann
Hreiðarsson var kosinn bestur með
afgerandi mun en aðrar upplýsing-
ar varðandi kjörið höfum við ekki
gefið og munum ekki gefa upp,“
segir Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Íslands.
Val sambandsins á knattspyrnu-
manni ársins kom fjölmörgum
verulega á óvart og margir knatt-
spyrnuáhugamenn spyrja sig hver
sé rökstuðningurinn fyrir því að
Hermann sem féll með liði sínu
Charlton í vor, hefur ekki átt fast
sæti hjá Portsmouth það sem af er
þessum vetri og hefur leikið undir
getu að flestra mati í landsleikjum
ársins vinnur sæmdarheitið knatt-
spyrnumaður ársins.
Valið er reyndar aðeins að hluta
til hjá KSÍ en yfir 200 aðilar tengdir
knattspyrnunni taka þátt. Engu að
síður furða margir sig á því að eng-
in rök þurfi fram að færa. Telja all-
nokkrir sem 24 stundir ræddu við
að Hermann hafi fengið verðlaun-
in nú fremur sem þakklæti fyrir vel
unnin störf gegnum tíðina en að
hann hafi átt sérstakt tímabil sem
knattspyrnumaður. Ennfremur
hafi þótt sýnt að illa liti út að verð-
launa Eið Smára fimmta skiptið í
röð. Sé þetta rétt eru verðlaunin
með öllu marklaus.
Hinn skeleggi Hermann Gunn-
arsson þúsundþjalasmiður er einn
þeirra sem gera athugasemdir við
valið. „Með mikilli virðingu fyrir
Hermanni sem er einhver sú besta
sál sem hægt er að finna auk þess
að vera baráttujaxl með hjartað á
réttum stað þá er erfitt að finna
rökin fyrir valinu á honum. Ég
hefði persónulega viljað sjá Eið
Smára valinn þó ekki sé nema
vegna þess að hann spilar með
stærsta félagsliði Evrópu jafnvel þó
þar eigi hann ekki fast sæti.“
Ásgeir Sigurvinsson, fyrrum
landsliðsmaður og þjálfari, fer var-
legar í sakirnar enda einn af þeim
er þátt tóku í valinu en segist skilja
þá sem setja spurningarmerki við
niðurstöðuna. „Slíkt val er eðlilega
alltaf erfitt því við hvað nákvæm-
lega á að miða? Er árangur Krist-
jáns Arnars Sigurðssonar sem varð
Noregsmeistari með Brann betri
eða verri en eitthvað annað? Brynj-
ar Björn lék mjög vel með Reading
og hefur tryggt sér fast sæti þar í
vetur. Hvað með hann? Þetta er
einfaldlega alltaf erfitt að meta.“
Bestur og næstbestur KSÍ vill ekki
gefa upp fjölda atkvæða sem Hermann
fékk sem knattspyrnumaður ársins
Erfitt að finna rök
fyrir Hermanni
Steinliggur Margrét
Lára var óumdeilt best í
kvennaflokki
2007 Hermann Hreiðarsson
2006 Eiður Smári Guðjohnsen
2005 Eiður Smári Guðjohnsen
2004 Eiður Smári Guðjohnsen
2003 Eiður Smári Guðjohnsen
2002 Rúnar Kristinsson
2001 Eiður Smári Guðjohnsen
2000 Hermann Hreiðarsson
MENN ÁRSINS
Sitt sýnist hverjum um valið á Hermanni Hreiðarssyni sem
knattspyrnumanni ársins KSÍ veitir engar upplýsingar
Þann fyrsta mars næst-
komandi stendur til að leggi
úr höfn í Valenciu á Spáni
hraðbátur einn allsérstæður
enda siglir hann eingöngu á
endurnýtanlegu lífrænu
eldsneyti, svokölluðu bíó-
dísel. Er hugmyndin að
bæta hraðametið kringum
hnöttinn án þess að menga
umhverfið á nokkurn hátt á
leiðinni.
Tilgangurinn er þó einnig
og aðallega að vekja athygli
á mengun í heiminum og þær leið-
ir sem færar eru til að láta að sér
kveða í þeim málum. Hefur útlit
hraðbátsins þegar vakið mikla at-
hygli enda er honum siglt milli
borga í Evrópu nú um stundir til
að vekja athygli á tilrauninni í
Kappsigling um hnöttinn á lífrænu eldsneyti
Til bjargar heiminum
mars. Þykir hann nútímalegur í
meira lagi og kemst hraðast í 40
hnúta hraða en ætlunin er að fara
kappsiglinguna á 25 - 35 hnúta
hraða og sigla þannig tiltölulega
mjúklega þá 65 daga sem hnatt-
ferðin á að taka.
Líkurnar á að Eiður SmáriGuðjohnsen spili meðBörsungum í stórleik
ársins á Þor-
láksmessu-
kvöld gegn
Real Madrid
eru meiri en
minni sam-
kvæmt
spænskum miðlum en sjálfur
bíður Eiður í ofvæni eftir kall-
inu. Íslendingurinn hefur að
öllu leyti lokað fyrir að fara frá
Barcelona en viðurkennir að
hafa leitt hugann að því í haust.
Sama gildir um Ronald-inho sem hefur vermtbekki Barcelona að und-
anförnu en
einhverra hluta
vegna er
ómögulegt að
ímynda sér
stórleik Barca
og Real án þess
að sú stórstjarna taki þátt.
Stórt skarð verður höggviðí lið Everton ef sögusagn-ir þess efnis að Atletico
Madrid vilji fá
Mikel Arteta
til sín eftir jól
eru sannar. Ar-
teta er nefni-
lega mjög op-
inn fyrir heim-
ferð að eigin sögn en hann er
lykilmaður hjá Everton.
Hinn afar litríki og at-hyglisverði Luiz Scol-ari, þjálfari Portúgals,
lýsir frati á val
FIFA á Kaká
sem knatt-
spyrnumanni
ársins og er
harður á að
Cristiano Ro-
naldo hafi átt þann heiður
skuldlaust skilinn. Allmargir
áhugamenn eru honum sam-
mála, ekki síst aðdáendur Man-
chester United.
Stangarstökkvarinn Þórey
Edda Elísdóttir og Óðinn
Björn Þorsteinsson kúluvarp-
ari eru frjálsíþróttafólk ársins
að mati stjórnar Frjálsíþrótta-
sambandsins.
Þórey Edda hefur þegar náð
ólympíulágmarkinu og Óðinn
stórbætti árangur sinn í kúlu-
varpi og er aðeins sentimetr-
um frá því að ná lágmarkinu
til Kína í sumar.
Þórey Edda og
Óðinn Björn
Körfuknattleikssambandið
hefur framlengt samning sinn
við Sigurð Ingimundarson um
að halda áfram þjálfun A-
landsliðsins til næstu tveggja
ára. Þá var Ágúst Björg-
vinsson ráðinn nýr þjálfari A-
landsliðs kvenna en Ágúst á
farsælan feril að baki með
yngri landslið kvenna og
kvennalið Hauka.
Sigurður
áfram stjóri
Það er ekki oft sem íshokkílið
koma heim eftir útileikjahrinu
með 100 prósent árangur í
farteskinu en það var raunin
hjá Calgary Flames.
Liðið sem var í meðallagi fyrir
sex leikja hrinu á útivöllum
vítt og breitt um Bandaríkin
og Kanada sneri heim sigri
hrósandi enda vann það alla
sex leiki sína.
100 prósent
Íslensku landsliðin í hand-
knattleik falla bæði á nýjum
listum Handknattleiks-
sambands Evrópu sem birtir
voru í vikunni. Karlaliðið er
nú í 24. sæti og kvennalands-
liðið í því 23.
Fram undan er erfitt verkefni
fyrir karlana á Evrópumótinu
í Noregi eftir mánuð en gengi
liðsins þar ræður úrslitum um
hvort Ísland verður meðal
þátttökuþjóða á Ólympíu-
leikunum í Kína.
Fall vonandi
fararheill
SKEYTIN INN
HEILL HEIMUR
AF SKEMMTUN
Opið sunnudaga til fimmtudaga
11.00 -24.00
Opið föstudagaoglaugardaga
11.00 - 02.00
Veiðikortið veitir aðgang að 31 vatnasvæði vítt og
breitt um landið og kostar aðeins 5000 kr.
K
R
A
FT
A
V
ER
K
Fæst hjá N1, veiðibúðum
og á www.veidikortid.is
Frí heimsending þegar verslað er beint á vefnum