24 stundir - 06.02.2008, Qupperneq 4
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Ásgeir Hrafn Ólafsson sem rændi
útibú Glitnis í Lækjargötu í fyrra-
dag hefur áður gerst sekur um
bankarán. Ásgeir rændi útibú
SPRON við Álfabakka, 17. maí árið
2004. Hann ógnaði gjaldkerum
með hnífi og hafði á brott með sér
tæpa eina milljón króna. Hann var
handtekinn skömmu síðar og
fundust allir peningarnir. Fyrir
dómi bar Ásgeir að hann hefði ver-
ið í mikilli neyslu fíkniefna og verið
hótað af handrukkurum sem hann
skuldaði peninga vegna kaupa á
fíkniefnum.
Litla hjálp að hafa
Ásgeir hefur samkvæmt heim-
ildum 24 stunda neytt fíkniefna frá
fjórtán ára aldri og neysla hans far-
ið stigvaxandi. Fjölskylda hans hef-
ur ítrekað reynt að koma honum í
meðferð og leitað annarrar hjálpar
en mætt litlum skilningi innan
kerfisins. Ásgeir dvaldi meðal ann-
ars í Byrginu í tvígang árið 2004.
Að sögn fjölskyldu hans hafði sú
dvöl tímabundin áhrif til hins betra
en svo seig á ógæfuhliðina aftur.
Ásgeir rauf með ráninu í fyrra-
dag skilorð og hefur verið færður í
afplánun. Hann játaði jafnframt
við yfirheyrslur að hafa rænt versl-
un Select í Hraunbæ síðasta
fimmtudag. Þá ógnaði hann starfs-
fólki með hnífi. Frá árinu 2004 hef-
ur Ásgeir verið dæmdur fyrir fjölda
þjófnaðarbrota, sem tengja má
neyslu fíkniefna og fjármögnun
hans á þeirri neyslu.
Ekki fremja hetjudáðir
Jakob Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri VSI öryggishönnun-
ar og ráðgjafar, segir mestu skipta
að vernda líf og limi fólks þegar rán
eru framin. Fyrirtækið sinnir ör-
yggisráðgjöf fyrir fjölda stórra fyr-
irtækja og stofnana og hefur meðal
annars komið að öryggisráðgjöf
fyrir Glitni.
„Bankarnir hafa almennt verið
mjög duglegir við að fræða sitt
starfsfólk og búa sig undir svona
uppákomur sem aldrei er hægt að
útiloka. Við höldum námskeið um
viðbrögð fyrir bankastarfsmenn
jafnframt því að fara á staðina og
gera viðbragðsáætlanir.“
Jakob segir að almenningur sem
lendir í því að vera viðstaddur
svona atburði eigi að hlýða því sem
ræningjarnir segja. „Fólk á alls ekki
að reyna að fremja neinar hetju-
dáðir í svona tilfellum, bara láta lít-
ið fyrir sér fara og hlýða.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Annað banka-
rán ræningjans
Glitnisræninginn rændi útibú SPRON í Mjóddinni árið 2004
Fólk á að hlýða ræningjum segir sérfræðingur í öryggismálum
➤ Ásgeir hlaut tvívegis dóm ár-ið 2004, annars vegar fyrir
þjófnað og hins vegar fyrir
þjófnað og bankarán.
➤ Árið 2006 var hann dæmdurfyrir þjófnað og tilraunir til
þjófnaðar á lyfjum í þremur
aðskildum apótekum.
➤ Ásgeir hefur margoft reynt aðhætta eiturlyfjaneyslu en ekki
tekist það nema til skamms
tíma í einu.
BROTAFERILL
Vettvangur Engan sakaði þegar rán
var framið í útibúi Glitnis í fyrradag.
Árvakur/Frikki
4 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÍS
L
E
N
S
K
A
SI
A.
IS
FL
U
40
78
2
01
.2
00
8
1 kr. aðra leiðina + 490 kr.
(flugvallarskattur)
Aðeins 1 króna fyrir börnin
www.flugfelag.is | 570 3030
Gildir til 29. febrúar - bókaðu á
www.flugfelag.is
Girnileg nýjung með 2 í pakka.
Fæst í næstu verslun.
Meistara-flokkssúpur
Masterklass
Nýjung
Öskudagur í IKEA
Allir krakkar velkomnir
söngur & sætindi
www.IKEA.isOpið 10-20 virka daga │ Laugard. 10-18 │ Sunnud. 12-18
Halldór Sævar Guðbergsson
hefur ákveðið að bjóða sig fram
til formanns Öryrkjabandalags
Íslands (ÖBÍ) en kosið verður um
formann á aukaaðalfundi þess
þann 14. febrúar næstkomandi.
Halldór er formaður Blindra-
félags Íslands og hefur verið það
síðan 2005. Enn sem komið er
hafa ekki fleiri gefið kost á sér í
starfið. aak
Halldór Sævar
formaður ÖBÍ?
„Það er heilmikill fengur að þess-
um fyrirlesurum og ég held það sé
engin spurning um að þetta skili
sér í skólastarfið,“ segir Sigrún
Björnsdóttir upplýsingafulltrúi
Menntasviðs Reykjavíkurborgar
um ráðstefnuna Halakörtur og
Hagnýt ráð sem haldin er á Hótel
Hilton í dag, Öskudag.
Fyrirlesarar eru dr. Laura Riffel,
bandarískur sérfræðingur í bekkj-
arstjórnun og hegðunarfrávikum
og Hohn Morris skólastjóri í Ar-
dleigh Freen Junior School í Essex
í Bretlandi.
Dr. Laura Riffel kynnir aðferðir til
að fyrirbyggja og takast á við
hegðunarvanda en hún leggur
mikla áherslu á jákvæða hegðun
og segir það laða fram það besta í
öllum.
Skóli John Morris hefur vakið
mikla athygli í Bretlandi fyrir góð-
an árangur í kennslu, ekki síst hjá
strákum. Þau munu jafnframt
stjórna málstofum þar sem hagnýt
ráð verða viðfangsefnið. aak
Halakörtur á Hótel Hilton
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Bankabygg er lífrænt ræktuð íslensk framleiðsla og er
mikið notað í matseld m.a. morgungrauta.
Tæplega 20% munur er á hæsta og lægsta verði, þar
sem bankabyggið er ódýrast í Fjarðarkaupum.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
20% munur á bankabyggi
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Bankabygg frá Móðir jörð 1000 gr.
Verslun Verð Verðmunur
Fjarðarkaup 210
Hagkaup 224 6,67 %
Maður lifandi 225 7,14 %
Heilsuhúsið 230 9,52 %
Yggdrasill 249 18,57 %
Blómaval 251 19,52 %