24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 40
24stundir
www.nb.is
Nafnávöxtun 2007
Markaðsreikningur 12,31 – 14,59%
Verðtryggðir reikningar 12,04 – 12,75%
Framtíðarreikningur 12,94%
Lífeyrisreikningur 12,94%
Reikningar Netbankans skiluðu
framúrskarandi ávöxtun á síðasta
ári, eins og mörg undanfarin ár.
Gerðu samanburð!
Á SÍÐASTA ÁRI
Farðu inn á www.nb.is
Stofnaðu reikning og fjárfestu í sparnaði á réttum stað.
Við gerum enn betur
Markaðsreikningur ber nú allt að 15,05% vexti, sem er
með því allra besta sem gerist meðal sambærilegra reikninga.
TB
W
A\
RE
YK
JA
VÍ
K\
SÍ
A
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
? Allir lenda í því að gera mistök.Nema auðvitað íslenskir stjórn-málamenn. Þeir gera aldrei mistök endavita þeir hvað okkur er fyrir bestu.Reykingabannið var t.d. snilldin ein, al-veg þangað til Baddi í rugl.is og nú veit-ingamaður á Barnum, lét á það reyna.Þá kom bara í ljós að reykingalögin eru
marklaust drasl.
Hvað svo sem fólki kann að finnast
um reykingar hljóta allir að sjá að reyk-
ingalögin eru gölluð á marga vegu, at-
burðir síðustu daga sýna það svart á
hvítu. Og af hverju er ekki bara hægt að
viðurkenna það, laga það sem betur má
fara og snúa sér svo að einhverju öðru?
Jú, vegna þess að þingmenn gera ekki
mistök, jafnvel þótt þau séu öllum sýni-
leg. Þetta kom skýrt fram hjá Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur, þingkonu
Samfylkingarinnar, í Kastljósi á mánu-
dagskvöldið. Þar var hún að verja þessi
augljóslega meingölluðu reykingalög og
hafði fyrsta boðorð íslenskra pólitíkusa
eitt að vopni – þú skalt ekki mistök við-
urkenna!
Aðspurð að því hvort ekki mætti
endurskoða lögin í ljósi augljósra galla
svaraði hún því til að það væri ekki
sniðugt – það yrði mikill áfellisdómur
yfir þingheimi og nær væri að ganga
enn harðar fram gegn reykingabölinu.
Af orðum Ástu Ragnheiðar að dæma
skiptir það þingmenn greinilega miklu
meira máli að hafa haft rétt fyrir sér
heldur en að búa til lög sem fólk er sátt
við. Og svo finnst fólki skrítið að
ástandið sé eins og það er …
Þú skalt ekki mistök viðurkenna
Ágúst Bogason
veit að það er hollt að
viðurkenna mistök
Eru þingmenn
kannski ekki
mannlegir?
YFIR STRIKIÐ
24 LÍFIÐ
Söguþráður kvikmyndarinnar Be
Kind Rewind er grunsamlega líkur
atriði úr Svínasúpunni.
Sveppi talar um stuld.
Stelur Jack Black
úr Svínasúpunni?
»34
Athafnamaðurinn Óskar Eiríksson
frumsýnir Sexy Laundry í vikunni.
Kunnar stjörnur fara
með aðalhlutverkin.
Framleiðir sexí
leikrit í Hollywood
»38
Spjallþáttakóngurinn Jay Leno er
væntanlegur aftur á Skjá einn. 24
stundir ræddu við
ánægðan aðdáanda.
Jay Leno snýr aftur
á skjá landsmanna
»38
● Þingfréttir
„Ég hef aldrei hætt
sem blaðamaður,
ég hef alla tíð ver-
ið skráður blaða-
maður í síma-
skránni. En ég er
ekkert að hugsa
þetta mín vegna,“
segir Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sem hefur lagt
fram tillögu þess efnis að Alþingi
reki sjálft fjölmiðil til að fjalla um
það sem þar gerist.
„Maður er svolítið að klekkja á
veldi fjölmiðlanna, grípa fram fyrir
hendurnar á þeim. Það er ekkert af
hinu verra, það mundi bara hjálpa
og hvetja menn til að gera vel.“
● Þrákelkni Einn
ástkærasti leikari
þjóðarinnar Egg-
ert Þorleifsson
mun prýða skjá
landsmanna í
þáttunum Ríkið
sem sýndir verða
í vetur á Stöð 2.
Auk Eggerts verða þeir Sveppi og
Auddi Blöndal í þættinum ásamt
öðrum minna þekktum leik-
urum. „Ég hef ekki enn farið á
handritsfund, en mér skilst að
hlutverk mitt verði ekki stórt.
Annars líst mér bara vel á þetta,“
segir Eggert. Heimildir herma að
Stöð 2 hafi gengið á eftir Eggerti
með grasið í skónum og virðist
þrákelknin greinilega hafa virkað,
sem betur fer.
● Fúllyndi
„Það vona ég að
okkur takist að
berja okkur á
brjóst fyrir þenn-
an síðasta leik svo
ég verði ekki enn
fýldari en ég er
þegar orðinn,“
segir Ólafur Jóhannesson, lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu. Íslenska
liðið leikur lokaleik sinn á æf-
ingamóti á Möltu í dag en báðir
leikir liðsins hingað til hafa tapast
og árangurinn ekki eftir kokkabók-
um Ólafs sem gældi við talsvert
betri árangur fyrir mótið.
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við