24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 16

24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is Design Centre Knightsbridge er í Knightsbridge-hverfinu, einu fín- asta hverfi London, en Dagmar og Magnús opnuðu verslunina árið 2005. Þá ákváðu þau að selja allt sitt heima á Íslandi og leita á ný mið erlendis. Magnús hafði áður starfað sem sölustjóri hjá Marvis en Dagmar hjá Sólóhúsgögnum og þekkir hún því vel til íslenska hús- gagnaheimsins. Þegar blaðamaður slær á þráðinn til Dagmarar er hún nýkomin heim af sýningu í Birm- ingham þar sem hún ásamt Sóló- húsgögnum setti upp sýningu til að kynna hönnun 5 íslenskra hús- gangahönnuða. Persónulegur stíll „Verslunin skiptist, má segja, til helminga þar sem við seljum ann- ars vegar húsgögn og hins vegar smávöru. Þeir hönnuðir sem selja hjá okkur húsgögn eru Pétur B. Lúthersson, Reynir Sýrusson, Erla Sólveig Óskarsdóttir, Þórdís- Zoëga, Guðbjörg Magnúsdóttir, Chuck Mack, Sigurður Gúst- afsson og Dögg Guðmundsdóttir. Hvert og eitt þeirra hefur sinn stíl og höfum við til sölu sófa, stóla og borðstofuborð, svo eitthvað sé nefnt. Við fáum Íslendinga til okk- ar í heimsókn í hverri viku og margir koma hingað til að skoða og sjá hvað er nýjast í íslenskri hönnun,“ segir Dagmar. Skandinavísk hönnun sækir á Aðspurð hvað laði fólk að ís- lenskri hönnun segir Dagmar hana vera mjög svipaða hinni skandinavísku hönnun þar sem léttleiki í hönnun, hreinar línur og mínimalismi sé í fyrirrúmi. Þessi stíll sé smám saman að ryðja sér til rúms í London og þar með eigi veggfóðrið, rósótta sófa- settið og gardínurnar í stíl því nú orðið undir högg að sækja. Meira sé orðið um að fólk blandi saman hinum klassíska, breska antíkstíl við skandinavískan stílinn. Aðstoða við sýningar Framundan hjá þeim Magnúsi og Dagmar eru fleiri sýningar, bæði innan verslunarinnar og ut- an. „Við höfum haldið sýningar í versluninni þar sem við kynnum hönnuði og listamenn en einnig höfum við aðstoðað þá við að taka þátt í alþjóðasýningum í London. Við bjóðum fólki ráðgjöf í tengslum við slíkt eins og hvaða sýningar henti þeim helst og hvernig sé best að haga uppsetn- ingu á sýningarbásnum,“ segir Dagmar. Fólk geti því byrjað á að leita til þeirra þar sem þau hafi viðað að sér mikilli þekkingu í þessum geira og hafi sambönd sem nýst geti til að koma hönn- uðum á framfæri. Skandinavísk hönnun sækir í sig veðrið Rósótta veggfóðrið og sófasettin á haugana ➤ Íslenskir hönnuðir geta feng-ið góð ráð hjá Dagmar og Magnúsi varðandi alþjóð- legar sýningar. ➤ Londonbúar eru í auknummæli farnir að blanda saman antík og skandinavískum stíl. ➤ Fjöldi íslenskra hönnuða sel-ur hönnun sína í versluninni og hefur hver sinn stíl. VERSLUNIN Hjónin Dagmar Þor- steinsdóttir og Magnús J. Magnússon reka De- sign Centre Knig- htsbridge í London, en verslunin sérhæfir sig í íslenskri hönnun. Í einu fínasta hverfi London DCK sérhæfir sig í íslenskri hönnun. Verslunin Skandium er rekin af þremur Skandinövum búsettum í London. Þeir ákváðu að opna verslunina þar sem þeim hafði hvergi á ferðum sínum tekist að finna verslun sem sérhæfði sig í skandinavískri nútímahönnun. Í Skandium eru sett saman í suðu- pott hin nýja hönnun svo og skandinavísk hönnun sem er þegar orðin þekkt og hefur fest sig í sessi. Í dag eru verslanirnar tvær, auk þess sem fyrirtækið rekur einnig Marimekko-verslun í London. Frægir hönnuðir Fyrsta Skandium-verslunin var opnuð árið 1999 á Wigmore Street í miðbæ London og þar eru seld húsgögn, ljós, glervara, keramík, efni, eldhúsvörur og lífsstílsbækur. Árið 2004 var Skandium-verslun einnig opnuð á Marylebone High Street en í verslununum má meðal annars finna vörur eftir Arne Ja- cobsen og Alvar Aalto. Innanhússhönnun Starfsfólk Skandium aðstoðar viðskiptavini einnig við innan- hússhönnun og gefur góð ráð hvað varðar lýsingu og hvers lags hús- gögnum, gardínum og auka- hlutum sé best að blanda saman til að skapa ákveðinn stíl eða stemn- ingu. Verslanirnar eru stílhreinar og látlausar en upplýsingar og myndir af vörunum má finna á heimasíðu verslunarinnar http:// www.skandium.com. Verslunin Skandium selur skandinavíska hönnun Suðupottur af gömlu og nýju Stílhreint Verslanir eru stílhreinar líkt og hönnunin sjálf. Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700 Upplýsingar á www.atlantskaup.is STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI ÚTI SEM INNI Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Gler-rennibrautir Hawa Junior 80 eru glæsilegar rennibrautir fyrir 8-10-12 mm hert gler eða timburhurðir. Eigum einnig rennibrautir frá fyrir skápa og tréhurðir. Útvegum hert gler eftir máli.. SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfur-plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. SENDUM Í PÓSTKRÖFU.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.