24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 28

24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir LÍFSSTÍLLNEYTENDUR neytendur@24stundir.is a Það eru dæmi um það hér á landi að orðið líf- rænt hafi verið notað án þess að viðhlítandi vottun hafi legið þar að baki. Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Í Noregi eru dæmi þess að fram- leiðendur búi til eigin umhverf- ismerki svo sem græn blóm og laufblöð og setji á vörur sínar í því skyni að höfða til umhverf- isverndarsinna og annarra neyt- enda sem kjósa fremur vistvænar vörur. Ekki liggur þó formleg um- hverfisvottun að baki merkingun- um og því engin trygging fyrir að vörurnar séu í raun og veru jafn- góðar og framleiðendur vilja meina. Það borgar sig því að líta eftir viðurkenndum vottunarmerkjum á borð við Svaninn og Evrópu- blómið. Níels Jónsson, sérfræð- ingur hjá Umhverfisstofnun, kannast ekki við sambærileg dæmi hjá íslenskum framleiðend- um. „Villandi erlendar merkingar hafa kannski komið hingað en það hefur ekki tíðkast hjá inn- lendum aðilum,“ segir hann. „Ég hef ekki rekist á það að öðru leyti en því að menn hafa haldið því fram að hlutir séu vistvænir eða eitthvað slíkt,“ segir Níels. Vistvænt orkar tvímælis Orðið „vistvænt“ getur orkað tvímælis að mati Gunnars Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra Vott- unarstofunnar Túns, sem annast eftirlit og vottun lífrænnar fram- leiðslu hér á landi. „Við teljum að það sé mjög villandi að nota orð- ið vistvænt yfir hefðbundnar landbúnaðarafurðir vegna þess að orðið vistvænt er náskylt orðinu lífrænt. Það vísar til þess að vara sé framleidd í sátt við vistkerfi og umhverfi samkvæmt orðanna hljóðan,“ segir Gunnar. Neytendur ættu að taka inn- lendum vörum sem merktar eru lífrænar með fyrirvara ef þeim fylgir ekki fullnægjandi vottun. Lífrænt án vottunar „Það eru dæmi um það hér á landi að orðið lífrænt hafi verið notað án þess að viðhlítandi vott- un hafi legið þar að baki,“ segir Gunnar og bætir við að það sé mjög sjaldgæft. „Viðbrögð okkar þegar við heyrum af slíku eru þau að hafa samband við viðkomandi framleiðendur og hvetja þá til að lagfæra það og því er yfirleitt mjög vel tekið. Það vill enginn þurfa að lenda í einhverjum deilumálum út af óréttmætum merkingum á markaði,“ segir Gunnar. Merkingar skipta máli Það borg- ar sig að líta eftir viðurkenndum umhverfismerkingum við innkaup. Erlendir framleiðendur búa til eigin umhverfismerkingar Heimatilbúin umhverfisvottun Erlendis eru dæmi þess að framleiðendur búi til eigin umhverfismerki og klíni á vörur sínar. Það er því betra að líta eftir við- urkenndum vottunar- merkjum en gjalda var- hug við heimatilbúnum laufum og blómum. ➤ Algengustu umhverfismerkineru Svanurinn og Blómið. ➤ Svanurinn er opinbert um-hverfismerki Norðurlandanna og Blómið opinbert umhverf- ismerki Evrópusambandsins. ➤ Bra Miljöval, umhverfismerkiSænsku náttúruvernd- arsamtakanna, er einnig að finna á ýmsum vörum hér á landi. UMHVERFISVOTTUN Sumir framleiðendur reyna að höfða til neytenda með vistvænum merkingum af ýmsu tagi. Það borgar sig þó að líta eftir viður- kenndum opinberum merkjum á borð við Svaninn, Blómið og Tún. Svanurinn Norræna umhverfismerkið Svanurinn er opinbert umhverfis- merki Norðurlandanna. Þeir einir fá að nota merkið sem uppfylla strangar kröfur um gæði og tak- mörkun umhverfisáhrifa. Svanur- inn er bæði notaður um vörur og þjónustu. Blómið Blómið er opinbert umhverfis- merki Evrópusambandsins og gerir neytendum kleift að kaupa sann- anlega visthæfar vörur. Yfir 300 vörutegundir merktar Blóminu fást á Evrópska efnahagssvæðinu, allt frá málningu til ljósapera. Evr- ópublómið er þó ekki mjög algengt á vörum hér á landi. Vottunarstofan Tún Innlendar vörur sem bera merki Vottunarstofunnar Túns eru fram- leiddar með lífrænum aðferðum og hafa vottun stofunnar um það. Algengustu opinberu umhverfismerkin Örugglega umhverfisvænt Viðurkennd merki Þeir sem kjósa vistvænt ættu að líta eftir viðurkenndum merkjum á borð við Svaninn, Blómið og Tún. Nú er upplagt að skreppa til Prag og dekra við sig í aðbúnaði í þessari einstaklega fögru borg. Fararstjórar okkar gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Bjóðum frábært sértilboð á Hotel Corinthia Towers sem er glæsilegt fimm stjörnu hótel. Vorið í Prag er frábært og þetta er einstakur tími til að heimsækja borgina. Gríptu tæki- færið og skelltu þér til þessarar frábæru borgar og njóttu þess að hafa allan aðbúnað í toppi. Ath. aðeins fá herbergi í boði á þessum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Prag 24. eða 31. mars frá kr. 39.990 Vorið er einstakur tími í Prag! Verð kr. 39.990 ***** - 4 nætur Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel Corinthia Towers ***** með morgunmat. Munið Mastercard ferðaávísunina Frábært lúxustilboð 5 stjörnu gisting Hotel Corinthia Towers ***** Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Púl er kúl Kúlu fyrir kúlu verður byrjandinn að meistara Hágæða 6 vasa púlborð á einstöku verði www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 Reykjavík Sími 568 3920 & 897 1715 `tàâÜ Sérblað 24 stunda Auglýsingasímar: Katrín Rúnarsd. 510-3727 kata@24stundir.is Kolbrún Dröfn 510-3722 kolla@24stundir.is 15. febrúar 2008

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.