24 stundir - 06.02.2008, Blaðsíða 14
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Björgum
mannslífum!
• Ávallt tilbúið til notkunar
• Einfalt og öruggt
• Einn aðgerðarhnappur
• Lithium rafhlaða
• Íslenskt tal
PRIMEDIC hjartastuðtæki
14 MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Það eru 40.000 hlutastörf á land-
inu og undanfarin ár hefur verið
skortur á vinnuafli. Það er athug-
andi hvort ekki sé hægt að manna
sum þessara starfa með geðfötluð-
um,“ segir Pétur Reimarsson, for-
stöðumaður stefnumótunar- og
samskiptasviðs Samtaka atvinnu-
lífsins. Samtökin, ásamt aðilum frá
átaksverkefninu Straumhvörfum,
héldu fjölmennan fund um sam-
félagslega ábyrgð fyrirtækja á Hótel
Hilton í gær.
Ásta R. Jóhannesdóttir alþingis-
maður var fyrst mælenda. Hún
kynnti verkefnið Straumhvörf, sem
er átaksverkefni til fimm ára á veg-
um félagsmálaráðuneytisins um
þjónustu við geðfatlaða. „Okkur
ber að tryggja heilbrigðisþjónustu
og sérfræðiráðgjöf ásamt því að
efna til umræðu um málefni geð-
fatlaðra,“ segir Ásta.
Vilja jákvæða skilgreiningu
Pétur segir SA hafa á undanförn-
um árum haft miklar áhyggjur af
vaxandi fjölda öryrkja hér á landi.
Samtökin hafi rætt ítarlega um til-
lögur að nýju fyrirkomulagi áfalla-
trygginga þar sem fólk er skilgreint
út frá vinnugetu en ekki örorku.
Þannig væri t.d. sá sem skilgreind-
ur er sem 75% öryrki í dag skil-
greindur með 25% vinnugetu í
nýja kerfinu og þannig hvattur til
að hefja störf á ný.
„Viðræðum um þetta fyrir-
komulag er ekki lokið en vonast er
til að við gerð kjarasamninga sem
nú standa yfir verði fyrstu skrefin
stigin í þessa átt,“ segir Pétur.
Mannauður vannýttur
„Fundurinn var ágætur en það
vantaði fleiri frá atvinnulífinu,“
segir Nanna Þórisdóttir, starfsmað-
ur AE starfsendurhæfingar, sem
hélt erindi um veikindi sín og mik-
ilvægi álits notandans á geðheil-
brigðiskerfinu. Hún fjallaði m.a.
um gæðaþróunarverkefnið Not-
andi spyr notanda (Nsn). Þar gera
einstaklingar sem reynslu hafa af
geðheilbrigðiskerfinu úttektir á
þjónustu sambýla fyrir geðfatlaða
með því að spyrja notendur. „Fólk
er frjálsara að tala við notanda en
einhvern fræðing,“ segir Nanna.
„Það er margt fólk með ýmiss
konar reynslu og hæfni sem ekki
nýtur sín á vinnumarkaðnum. Í
sveigjanleikanum sem nú er að
skapast í þjóðfélaginu er tækifæri
til að nýta þennan mannauð og það
er samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
að sinna þessum málum. Ídag get-
ur vinnutíminn verið sveigjanlegur
auk þess sem fólk getur unnið
heima,“ segir Þórólfur Árnason,
forstjóri Skýrr, en hann fjallaði um
viðskiptalífið og mannauðinn sem
býr í geðfötluðum á fundinum í
gær.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða sendu
póst á vidskipti@24stundir.is
Vinnugeta í
stað örorku
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja að ráða geðfatlaða í vinnu
Fundur Um 100 manns
mættu á fundinn í gær
➤ Hófst árið 2006 og er greittmeð 1,5 milljörðum úr sölu
Símans og Framkvæmdasjóði
fatlaðra.
➤ Stefnan er að koma upp íbúð-um í sérbýlum fyrir geðfatl-
aða en verkefnið styður einn-
ig fjárhagslega við
fjölbreyttar nýjar leiðir í mál-
efnum geðfatlaðra.
STRAUMHVÖRF
Árvakur/Árni Sæberg
MARKAÐURINN Í GÆR
!!"
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>5?34555
@>A@ABAC@
D@53CB??D
34?B53354
>C3C>@4CD
43?CD?DC
@AD3BAA@
B44D?5D@33
?BA@5?A@4
@AD@A5A@
33D?5ADAD
3B>BB44?B
4B@5353A
4?ADB5A?
AAAAA
@3@4CCCC
>@?D?3
3CCBC@@
@44>C3D
DA535C
B454B5B
@D??
,
,
,
D3B4CCCC
,
,
?E@D
D>EDC
@3ECC
@CECC
@?EAC
3@EDC
B>ECC
>3DEC
BAE?C
AAE5C
4ECC
@3E@?
5ED>
ADE@C
@EAB
4E53
@?5EC
@DAA
DB5EC
@E@A
@3BEC
3E3C
B3EBC
,
,
34C5
,
,
?E@4
D?ECC
@3EC3
@CEC5
@?EA5
3@E>C
B>EB5
>35EC
BAE?5
@CCE5
4EC4
@3E3C
5E5D
ADE?C
@EAD
4E5?
@?>E5
@5C5
DDCEC
@EBC
@3>EC
3E3D
,
,
,
34DC
AE5C
4E5C
/
- @?
B3
D5
5A
5?
@D
@C
@C@
45
4
@@>
34
B@
@5
@
B
B
A
B
>
5
B
,
,
,
D
,
,
F#
-#-
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
5BBCC?
DBBCC?
A@BCC?
4@BBCC>
BB?BCC>
5BBCC?
B5@BCC?
@D@BCC?
● Mestu viðskiptin í Kauphöll
OMX í gær voru með bréf í Kaup-
þingi fyrir 2.465 milljónir króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
í Færeyjabanka eða um 0,74%.
Bréf í 365 hækkuðu um 0,52%.
● Mesta lækkunin var á bréfum í
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis, 9,09%. Bréf í Exista lækk-
uðu um 6,33% og bréf í P/F Atl-
antic Petroleum um 4,87%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
3,19% og stóð í 5.232,12 stigum í
lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
0,36% í gær.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 3,87%. Breska FTSE-
vísitalan lækkaði um 2,6% og
þýska DAX-vísitalan um 3,4%.
Raungengi, mælt sem hlutfallsleg
þróun verðlags á Íslandi í sam-
anburði við helstu viðskiptalönd,
lækkaði um 3,5% í janúar skv.
mælingu Seðlabankans og er vísi-
tala raungengis nú 103,8 stig.
Lækkunin er til komin vegna 4,3%
veikingar krónunnar í janúar.
Raungengi krónunnar fór hækk-
andi fram eftir síðasta ári en við-
snúningur varð þegar lausafjárkreppan fór að hafa áhrif á síðari hluta
ársins. Raungengið hefur lækkað um 8,6% síðan í júlí en á sama tíma
hefur nafngengið lækkað um 14%. Að sögn greiningardeildar Glitnis
hefur lægra raungengi alla jafna jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð þar
sem samkeppnisstaða útflutningsgreina og annarra greina sem eru í
samkeppni við innfluttar vörur batnar. Jafnframt ætti dýrari innflutn-
ingur að slá á einkaneyslu og þannig eykst samkeppnishæfni þjóð-
arbúsins með lækkandi raungengi. þkþ
3,5% lækkun á raungengi
Útflutningsráð skipuleggur nú
viðskiptasendinefnd til Mexíkó
dagana 11.-14. mars nk. í
tengslum við opinbera heimsókn
forseta Íslands til landsins. Mark-
miðið er að koma á tengslum við
háttsetta aðila í viðskiptalífi
landsins í gegnum fundi, kynn-
ingar og móttökur. „Það er skil-
virkara að fara með forsetanum í
svona ferðir. Menn fá auðveldari
aðgang að toppunum í viðskipta-
lífinu auk þess sem það er ákveð-
inn gæðastimpill fyrir fyrirtækin
að forsetinn sé með,“ segir Guð-
jón Svansson, forstöðumaður
nýrra markaða hjá Útflutnings-
ráði. Hann býst við að nefndin
verði fjölbreytt enda vaxandi
áhugi á Mexíkó meðal fyrirtækja í
ýmsum atvinnugreinum. Nú þeg-
ar hafa sex fyrirtæki skráð sig til
þátttöku. þkþ
Sendinefnd
fer til Mexíkó
Áætlað er að fjárlagahalli í Banda-
ríkjunum nái 410 milljörðum
dollara á þessu ári vegna tillögu að
fjárlögum 2009 upp á 3.100 millj-
arða dollara sem Bush hefur sent
þinginu, skv. Financial Times. Í
fjárlögunum er m.a. 7,5% aukning
á framlögum til hersins og 200
milljarða skerðing á næstu 5 árum
til heilsugæsluverkefna, t.d.
heilsugæslu fyrir fátæka. þkþ
Aukinn fjár-
lagahalli vestra
Hagnaður Icebank 2007 nam 1.616 milljónum og var arðsemi eigin
fjár 13,5% eftir skatta. Agnar Hansson bankastjóri segir að árangurinn
sé „viðunandi að teknu tilliti til markaðsaðstæðna“. Jafnframt segir
hann hræringar á hlutabréfamarkaði undanfarna mánuði undirstrika
nauðsyn þess að takmarka þá áhættu sem er samfara hlutabréfaeign.
Afkoma bankans hafi verið um of háð þróun á gengi hlutabréfa Exista
en stærstan hluta gengistaps bankans á seinasta ársfjórðungi má skrifa
á eign bankans í félaginu, sem lækkaði um 42,5% á tímabilinu. Agnar
segir að áfram sé stefnt að því að minnka eignarhlut bankans í félag-
inu. Hreinar vaxtatekjur bankans námu 2.341 milljón króna á árinu
sem er 87% aukning frá árinu á undan. Heildareignir bankans nær
þrefölduðust og voru 86,9 milljarðar í upphafi árs en 252,2 milljarðar í
árslok. þkþ
1.616 milljóna króna hagnaður
Stjórn Íslenska járnblendifélags-
ins réð í gær Þórð Magnússon,
framkvæmdastjóra fram-
leiðslusviðs, sem forstjóra til
bráðabirgða og mun hann gegna
stafinu þar til ráðið hefur verið
varanlega í það. ejg
Nýr forstjóri ÍJ
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Það er athugandi hvort ekki sé
hægt að manna sum þessara
starfa með geðfötluðum.