24 stundir - 09.02.2008, Blaðsíða 2
➤ Samkvæmt reglugerð um tak-markanir á tóbaksreykingum
eru reykingar óheimilar í hús-
næði þar sem atvinnu-
starfsemi fer fram.
➤ Þó er heimilt, þegar um er aðræða þann hluta atvinnu-
húsnæðis sem almenningur
hefur ekki aðgang að, að hafa
sérstakt afdrep fyrir tóbaks-
reykingar.
REYKINGALÖGIN
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í
gær þá tillögu forseta Alþingis,
Sturlu Böðvarssonar, að banna
reykingar í Alþingishúsinu frá og
með 1. júní næstkomandi. Reyk-
ingar hafa verið leyfðar í sérstöku
herbergi í Alþingishúsinu sam-
kvæmt heimild í reglugerð tóbaks-
varnarlaganna.
Ákvað að taka af skarið
„Þetta hefur verið til umfjöllun-
ar í nokkurn tíma í forsætisnefnd-
inni og það hafa komið fram
ábendingar frá þingmönnum og
starfsmönnum sem hafa talið
óeðlilegt að þetta afdrep væri í Al-
þingishúsinu. Eftir að hafa farið
rækilega yfir málið þá taldi ég rétt
að taka af skarið með þetta, en gefa
reykingamönnum hins vegar
þennan aðlögunartíma,“ segir
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis.
Hann segir að þingmenn og
starfsfólk þingsins hafi aðallega
kvartað undan ólykt af þeim sem
notuðu herbergið.
„Við höfum ekkert fylgst með
því hverjir hafa notað herbergið, en
ég hef sjálfur aldrei reykt,“ segir
Sturla.
„Svona aðgerð gefur auðvitað
fordæmi. Alþingi tók ákvörðun um
tiltekið reykingabann og setti um
það lög. Það var gert vegna þess að
það er talið heilsuspillandi að
reykja og ég tel að það hljóti að
vera mjög skýr skilaboð sem við
sendum með því að þetta sé aflagt í
húsakynnum þingsins.“
Ákvörðunin fagnaðarefni
Baldvin Samúelsson, talsmaður
Félags kráareigenda, fagnar
ákvörðun forsætisnefndarinnar.
Félagið hefur meðal annars bent á
að reykingabann á skemmtistöðum
standist ekki jafnræðisreglu stjórn-
arskrárinnar á meðan Alþingi leyf-
ist að hafa sérstakt reykingaafdrep
en skemmtistöðum ekki.
„Við fögnum þessari ákvörðun
einfaldlega vegna þess að það er
rétt hjá þeim að gera þetta. Þetta
breytir kannski ekki svo mikið
okkar málum en við munum nú
vinna að lausn málsins í sátt og
samlyndi með yfirvöldum,“ segir
Baldvin.
Alþingi úthýsir
reykingafólki
Reykingaafdrepi í Alþingishúsinu verður lokað 1. júní til að gefa
gott fordæmi Félag kráareigenda fagnar ákvörðuninni
Dómkirkjan og Alþingishúsið Að-
allega hefur verið kvartað undan ólykt af
þeim sem notað hafa reykingaafdrepið.
2 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
VÍÐA UM HEIM
Algarve 17
Amsterdam 9
Ankara 8
Barcelona 14
Berlín 9
Chicago 0
Dublin 12
Frankfurt 10
Glasgow 10
Halifax 0
Hamborg 11
Helsinki 2
Kaupmannahöfn 7
London 13
Madrid 18
Mílanó 9
Montreal -9
München 5
New York 2
Nuuk -25
Orlando 18
Osló 3
Palma 22
París 10
Prag 9
Stokkhólmur 4
Þórshöfn 6
Dregur úr vindi og léttir til norðaustanlands,
en suðvestan 20-25 m/s við suður- og vest-
urströndina annað kvöld.
Kólnar með morgninum og víða vægt frost
síðdegis.S
VEÐRIÐ Í DAG
2
4
5 6
4
Suðvestan 20-25 m/s
Suðvestan 13-20 m/s og slydduél eða skúrir,
hvassast á Vestfjörðum. Heldur hægari og
bjart að mestu á Austurlandi.
Hiti 0 til 5 stig við ströndina, en annars ná-
lægt frostmarki.
VEÐRIÐ Á MORGUN
2
2
1 2
4
Slydduél eða skúrir
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins hefur lokið úttekt sinni á
brunavörnum í ólöglegu íbúðar-
húsnæði í Hafnarfirði. Af þeim
tæplega fjörutíu byggingum sem
slökkviliðið skoðaði í úttekt sinni,
reyndust þrettán þeirra vera með
brunavarnir í ólagi.
Húsráðendur þeirra húsa munu
fá viðvörun frá slökkviliðinu um að
þeim verði lokað verði ekki gerðar
tafarlausar úrbætur á brunavörn-
um. Húsráðendum er gefinn viku-
frestur til að andmæla og svo er
þeim veittur frestur til að koma lagi
á hlutina.
„Það er ansi hátt hlutfall að
þriðjungur húsanna sem við skoð-
uðum sé með alvarlega ágalla á
brunavörnum,“ segir Bjarni Kjart-
ansson, sviðsstjóri forvarnasviðs
slökkviliðsins. „Við erum að tala
um öryggi fólks og auðvitað er það
mjög alvarlegt ef þess er ekki gætt
nægilega.“
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins hyggst hefja samskonar úttekt á
brunavörnum í Kópavogi og
Garðabæ á næstunni, svo mun höf-
uðborgarsvæðið fylgja í kjölfarið.
„Núna vinnum við að því að
kortleggja svæðin sem við ætlum
að skoða næst en það tekur ein-
hverjar vikur. Maður veit auðvitað
ekki hvernig ástandið er þar en ef
þetta er marktækt, að þriðjungur
þessa húsnæðis sé ekki með nægj-
anlegar brunavarnir, þá er það
verulega slæmt ástand.“
aegir@24stundir.is
Úttekt slökkviliðs á ólöglegu íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði lokið
Brunavarnir þriðjungs í ólagi
Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði
Eitt þeirra húsa sem fengu aðvör-
un vegna lélegra brunavarna.
Norskur togari, Fiskeskjer að
nafni, sigldi upp á hafnarkantinn í
Neskaupstað eftir hádegið í gær.
Togarinn mun hafa leitað vars í
Neskaupstað og var verið að færa
hann til í höfninni svo annað skip
gæti tekið olíu.
Talið er að gírbúnaður togarans
hafi bilað og var ekki hægt að
stöðva hann í tæka tíð.
Ekki er vitað um skemmdir á
skipinu og höfninni. Þá er ekki vit-
að til að neinn hafi sakað.
Mikið af skipum er í höfninni í
Neskaupstað.
Skipið var dregið á flot að nýju
seinnipartinn og virtist sem litlar
skemmdir hefðu orðið á því. Þá
urðu ekki heldur miklar skemmdir
á hafnarkantinum.
mbl.is
Hvorki skip né bryggja skemmd
Skip sigldi á land í
Neskaupstað
„Ég hefði ekki viljað hafa meiri
vind,“ segir kona sem var á ferð um
Reykjanesbraut síðdegis í gær. Hún
segir fólk almennt hafa farið gæti-
lega.
Björgunarsveitir voru að störfum í
Keflavík, Grindavík, Sandgerði og
Njarðvík frá því í gærkvöldi.
Rúta á leið með flugfarþega frá
Keflavík til Reykjavíkur fór út af
Reykjanesbrautinni skammt sunnan
við Straumsvík síðdegis í gær. Hún valt ekki og engan sakaði. Smá-
vægilegar skemmdir urðu á rútunni, og önnur var fengin til að flytja
farþegana til Reykjavíkur. Þá varð að vísa flugvélum frá Keflavík-
urflugvelli vegna veðurs.
Vildi ekki hafa meiri vind
Mikill viðbúnaður var hafður eft-
ir að rúta fauk út af veginum ná-
lægt Hvanná á Jökuldal í gær.
Rútan valt á hliðina í vindhviðu
og lenti í skafli. Lögregla og
sjúkralið komu 16 ungmennum á
heilsugæslustöðina á Egilstöðum
en ekkert þeirra meiddist. mbl.is
Engin meiðsl
þegar rúta fauk
Hæstiréttur hefur fallist á þá
kröfu embættis ríkislög-
reglustjóra að fram fari húsleit
hjá embætti skattrannsókn-
arstjóra í því skyni að leggja hald
á tiltekin gögn vegna rannsóknar
á meintum skattalagabrotum
Óskars Magnússonar, fyrrum
stjórnarformanns Baugs. Skatt-
rannsóknarstjóri segir að gögnin
verði nú afhent.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í
janúar á kröfur ríkislög-
reglustjóra um húsleit hjá skatt-
rannsóknarstjóra. Sá úrskurður
var kærður til Hæstaréttar, sem
nú hefur kveðið upp dóm sinn.
mbl.is
Fallist á kröfu um húsleit
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.Opið 10-20 virka daga Laugard. 10-18 Sunnud. 12-18
Allt á sinn stað!
©
In
te
r I
KE
A
Sy
st
em
s B
.V
. 2
00
8
www.IKEA.is
695,-
KORALL FISK karfa,
rauð Ø35, H45 cm
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
STUTT
● Eldsneyti hækkar í verði
Eldsneytisverð hefur hækkað
hér á landi í morgun. Skelj-
ungur hækkaði verð á bensín-
lítra um 1,20 krónur og á dísil-
olíulítra um 2 krónur. Kostar
lítrinn af bensíni því 135,80 í
sjálfsafgreiðslu og lítri af dísil-
olíu nálgast nú illilega 140
króna markið. mbl.is
● Minkur á góðu verði
Gott verð fékkst fyrir minka-
skinn á uppboði í Kaupmanna-
höfn í vikunni. Einar K. Guð-
finnsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, og Sig-
urgeir Þorgeirsson ráðuneyt-
isstjóri voru viðstaddir upp-
boðið í Danmörku. mbl.is