24 stundir - 09.02.2008, Side 4
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Farþegar strætisvagna losna við að
skafa af bílum og festast í snjósköfl-
um á morgnana. Magnús Gunn-
arsson strætisvagnsstjóri segir fleiri
freistast til að taka strætó þegar
færðin er þung. „Maður kannast
gjarnan við fastakúnnana en þegar
veðrið er svona sér maður fleiri ný
andlit,“ segir hann.
05.00 Vaknaði, fór í sturtuog fékk mér ab-
mjólk og múslí í morgunmat.
06.10 Ég var sóttur heim tilmín í Grafarvoginn
og keyrður upp á Hestháls þar sem
vagnarnir bíða. Við vorum á
Kirkjusandi fram til áramóta en
fluttum þá á Hesthálsinn.
06.40 Var lagður af stað ogmættur á fyrstu
stoppistöðina á leið 12, sem ég var
að keyra á þessari vakt. Venjulega
keyri ég leið 3, 5 og 6 en ég var að
taka aukavakt þennan morguninn.
Framan af var lítil umferð en eins
og venjulega þyngdist hún verulega
milli klukkan 8 og 9 og þar sem
mikill snjór var á götunum seink-
aði mér um örfáar mínútur. En
fólk sýndi því skilning enda varla
við öðru að búast í svona færð.
11.00 Aukavaktinni varlokið og ég fékk mér
hádegismat.
13.00 Næsta vakt hófst ogað þessu sinni keyrði
ég leið 15.
18.30 Seinni vaktinni varlokið og ég skellti
mér í ræktina. Ég æfi í Hreyfingu
og mér líkar það vel. Eftir það fór
ég heim og tók því rólega.
Fleiri ný andlit
í strætisvögnum
24stundir með Magnúsi Gunnarssyni vagnstjóra
➤ Hefur verið strætisvagnsstjórií tæp 11 ár og líkar starfið
mjög vel.
➤ Áður var hann búsettur á Pat-reksfirði. Hann þurfti því að
læra að rata um borgina þeg-
ar hann hóf störf hjá Strætó.
MAGNÚS
Árvakur/Árni Sæberg
Haldið af stað
Magnús að störfum.
Vagnstjórar þurfa að
passa upp á að halda
áætlun hvernig sem viðr-
ar. Það er erfiðast á
morgnana og um eft-
irmiðdaginn þegar um-
ferðin er þyngst.
4 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Stórsýning á Hobby hjólhýsum og Isabella
fortjöldum í Vetrargarðinum Smáralind
Nú er rétti tíminn til að skoða og panta
Stórsýning í Vetrargarðinum!
Sýningunni lýkur
sunnudaginn 10 febrúar kl:18:00
Opnunartími á sýningu
Laugardag 11-18 og sunnudag 13-18
Hinir vinsælu Hobby húsbílar.
Sýningabílar á staðnum
Erum að taka á móti pöntunum núna.
Pantanir til afgreiðslu í viku 12 og13
Hobbyhúsið ehf
Dugguvogi 12 - S: 517-7040
opið virka daga 10 - 18
laugardag og sunnudag 13 - 16
ATH Seljum sýningarvagnana, til afhendingu
strax eftir sýningu. Eigum einnig örfá hjólhýsi
560 Ufe Excelsior, Rollsinn í hjólhýsum
á góðu verði og fjármögnun.
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
Á BAK VIÐ
FALLEGT BROS ERU
VEL HIRTAR
TENNUR!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
59
11
0
1/
07
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á bio-
mjólk með jarðarberjum frá MS.
Biomjólkin er seld í 1/2 lítra umbúðum. Munur á
hæsta og lægsta verði var 43,6% eða 44 krónur.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
44% verðmunur
á biomjólkinni
Jóhannes
Gunnarsson
NEYTENDAVAKTIN
biomjólk með jarðarberjum frá MS
Verslun Verð Verðmunur
Nettó 101
Melabúðin 119 17,8 %
Hagkaup 131 29,7 %
Samkaup-Strax 133 31,7 %
Þín verslun Seljabraut 133 31,7 %
11-11 145 43,6 %
Hæstiréttur dæmdi í dag Lög-
reglustjórann á höfuðborgarsvæð-
inu til þess að hætta að fylgjast með
manni en hann kærði lögmæti
rannsóknar sem hann sætti til hér-
aðsdóms Reykjavíkur.
„Hann óskaði fyrst eftir rann-
sókn hjá ríkissaksóknara sem sagði
eftirlitið heimilt með vísan til
reglna ríkissaksóknara sem hafa
hvergi lagastoð. Þegar ríkissak-
sóknari synjaði erindinu um op-
inbera rannsókn kærði lögmaður
málið til héraðsdóms á grundvelli
75. greinar laga um meðferð op-
inberra mála sem kveður á um það
að borgarar geti borið lögmæti
rannsóknaraðferða lögreglu undir
héraðsdóm,“ segir Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, verjandi mannsins.
Hann segir niðurstöður héraðs-
dóms merkilegar að því leyti að
hann úrskurði að lögreglustjórinn
notist við rannsóknarathafnir sem
eru ekki lögfestar og ekki er laga-
heimild fyrir.
Hæstiréttur gengur ekki svo
langt heldur segir ekki hægt að úr-
skurða um lögmætið þar sem lög-
reglan neitar að upplýsa nokkuð
um rannsóknina. Þar af leiðandi
dæmdi hann manninum í vil.
„Það er skýrt kveðið á um það í
dómi héraðsdóms að þessar að-
gerðir falli undir stjórnarskrár-
ákvæði í 71. grein og lögreglan var
þarna að brjóta lög og stjórnar-
skrá,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir framhaldið að óska
eftir því að ríkið viðurkenni skaða-
bótaskyldu og greiði manninum
skaðabætur. „Það fer eftir því hvert
svarið verður við því hvert fram-
haldið verður. “
fifa@24stundir.is
Lögreglan notaðist við rannsóknarathafnir sem ekki er lagastoð fyrir
Dæmd til að hætta rannsókn
STUTT
● Ökumenn taka tillit til að-
stæðna Brot 51 ökumanns var
myndað á Kringlumýrarbraut
frá miðvikudegi til föstudags en
fylgst var með ökutækjum sem
var ekið í norðurátt, þ.e. yfir
gatnamót Kringlumýrarbrautar
og Miklubrautar. Vöktunin
stóð yfir í tæpar 45 klukku-
stundir og óku aðeins 0,02%
yfir afskiptahraða en aðstæður
til aksturs voru slæmar, hálka
og snjókoma. Þessi niðurstaða
ber það með sér að ökumenn
hafa greinilega tekið tillit til að-
stæðna og er það vel.
Meðalhraði hinna brotlegu var
rúmlega 71 km/klst. Sá sem
hraðast ók mældist á 84 km/
klst. en þarna er 60 km há-
markshraði. Við sömu vöktun
var á þriðja tug ökutækja ekið
gegn rauðu ljósi.