24 stundir - 09.02.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í borgar-
stjórn Reykjavíkur, fékk ekki álit
Kristbjargar Stephensen borgarlög-
manns á því hvort hann hefði um-
boð til þess að samþykkja samruna
REI og Geysis Green Energy áður
en hann fór á eigendafund Orku-
veitu Reykjavíkur 3. október. Í
Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld
margítrekaði Vilhjálmur að borg-
arlögmaður hefði staðfest umboð
sitt.
Álit frá forstjóra OR
Í yfirlýsingu sem Vilhjálmur
sendi frá sér í gær segir: „Í sama
viðtali talaði ég um ráðgjöf borg-
arlögmanns. Þar átti ég við fyrrver-
andi borgarlögmann, sem taldi að
ég hefði umboð til að taka þessa
ákvörðun sem fulltrúi eigenda.“
Ekki kom fram í ályktuninni um
hvern af fyrrverandi borgarlög-
mönnum Villhjálmur átti við, en
Hjörleifur Kvaran, fyrrverandi
borgarlögmaður og starfandi for-
stjóri Orkuveitunnar, staðfestir að
þeir hafi rætt málið. „Ég dró ekki í
efa að Vilhjálmur hefði heimild til
að taka þessar ákvarðanir á eig-
endafundinum,“ segir Hjörleifur
Kvaran. „Ég gaf ekki skriflegt álit
um það, ég geri ráð fyrir að það
hafi komið fram í okkar samtöl-
um..“ Hjörleifur var einn þeirra
sem áttu að fá kaupréttarsamning í
sameinuðu REI. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson var, auk þess að vera
borgarstjóri, stjórnarmaður í
Orkuveitunni þegar ákvarðanir um
REI voru teknar.
Vísar í borgarlögmann
Í yfirlýsingunni frá Vilhjálmi
sagði einnig: „Í áliti núverandi
borgarlögmanns á bls. 5 kemur
fram að borgarstjóri hafi stöðuum-
boð til að taka ákvarðanir fyrir
hönd eigandans, Reykjavíkurborg-
ar, á aðalfundum og eigendafund-
um OR.“ Þarna vísar Vilhjálmur til
svars borgarlögmanns við spurn-
ingum sem Umboðsmaður Al-
þingis beindi til borgarinnar vegna
REI-málsins. Þar segir: „Í þessu
felst að borgarjóri hafi stöðuum-
boð til að taka ákvarðanir fyrir
hönd eigandans, Reykjavíkurborg-
ar á aðalfundum eða eigendafund-
um. Það stöðuumboð verður þó
ekki talið vera án takmarkana.
Vangaveltur hafa komið upp í kjöl-
far sameiningarinnar að hvort
borgarstjóri hafi farið út fyrir
stöðuumboð sitt, þ.e. hvort borg-
arráð hefði þurft að samþykkja
sameininguna. Af því telefni m.a.
hefur borgarráð sett á laggirnar
sérstakan stýrihóp um málefni
OR.“ Það er því ekki annað að
skilja en að borgarlögmaður hafi
talið það hlutverk stýrihópsins að
dæma um umboð borgarstjóra.
Forstjóri OR
álitsgjafinn
Borgarlögmaður vildi að stýrihópurinn tæki afstöðu til þess
hvort borgarstjóri hefði umboð
➤ Gunnar Helgi Kristinsson,prófessor í stjórnmálafræði
og sérfræðingur í sveita-
stjórnarmálum, segir að fyr-
verandi borgarlögfræðingur
hafi sömu stöðu og hver ann-
ar lögfræðingur úti bæ.
➤ Í Kastljósþættinum á fimmtu-daginn rifjaði Sigmar Guð-
mundsson upp rangfærslur
Vilhjálms í tengslum við
kaupréttarsamninga sem
starfsmenn REI áttu að fá.
RIFJAÐ UPP
Borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarstjóri fór ekki
eftir viðurkenndum boðleiðum.
„Skýrslan varpar fyrst og fremst
ljósi á að fyrrverandi borgarstjóri
hafði ekki um-
boð til þeirrar
ákvörðunartöku
sem hann taldi
sig hafa,“ segir
Guðni Ágústs-
son, formaður
Framsókn-
arflokksins, að-
purður um álit
sitt á REI-skýrslunni. Aðspurður
um framtíð Villhjálms í borginni
segir hann að sjálfstæðismenn
verði sjálfir að ráða fram úr því.
„Ég tel að auðugir menn hafi ver-
ið komnir inn í helg vé almenn-
ingseigna og það tókst sem betur
fer að hverfa frá því og bakka
málinu.“
Guðni Ágústsson
Umboðsleysi
borgarstjóra ljóst
„Í framhaldi af þessari skýrslu
finnst mér það skipta mestu máli
að þeir beri póli-
tíska og siðferð-
islega ábyrgð sem
hana eiga að
bera. Það eru
viðkomandi ein-
staklingar sem
voru aðalger-
endur í þessu
máli og það eru
þeir flokkar eða stjórnir þeirra
fyrirtækja á hverra ábyrgð þeir
starfa,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
um REI-skýrsluna. Hann segir að
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og
Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að
axla þessa ábyrgð. ejg
Steingrímur J. Sigfússon
Ábyrgðin hjá
Sjálfstæðisflokki
„Það er álitamál. Ég veit að sam-
kvæmt lögfræðilegri ráðgjöf sem
hann fékk á sín-
um tíma var talið
að hann hefði
ekki farið út fyrir
umboð sitt. Síð-
an hafa aðrir lög-
fræðingar komið
til sögunnar sem
eru ósammála
því eða telja það
vera álitamál,“ segir Kjartan
Magnússon, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og formaður
stjórnar Orkuveitunnar, að-
spurður um það hvort hann telji
að fyrrverandi borgastjóri hafi
samþykkt samruna REI og GGE
án þess að hafa umboð til þess.
Kjartan Magnússon
Umboð borg-
arstjóra álitamál
„Fyrir mér er þetta eitthvað sem
við vissum fyrir nokkru síðan,
þannig að þetta
er bara staðfest
þarna af þessum
lögfræðingum,“
segir Þorbjörg
Helga Vigfús-
dóttir, borg-
arfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins,
um það sem
kemur fram í REI-skýrslunni um
skort á umboði Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar, fyrrverandi borg-
arstjóra, til að samþykkja sam-
runa REI og GGE. Hún vildi ekki
tjá sig um það hvort hún teldi
Vilhjálm eiga afturkvæmt í borg-
arstjórastólinn. ejg
Þorbjörg Helga Vigfúsd.
Staðfestir það
sem var vitað „Orð mín frá því í fyrradag
hafa verið mistúlkuð í fjölmiðl-
um. Þau verður að skoða í því
ljósi að það var aldrei hlutverk
stýrihópsins að draga menn til
ábyrgðar. Ég hef ekki í hyggju að
benda á einn eða neinn í þessum
efnum,“ segir Ólafur F. Magn-
ússon borgarstjóri og vísar þar til
ummæla sem höfð voru eftir
honum þess efnis að hann teldi
að einhver ætti að bera ábyrgð í
REI-málinu.
Er ekki að taka neinn fyrir
„Vegna þess hvernig hlutirnir
voru túlkaðir í fyrradag þá liggur
það alveg fyrir að ég er ekki að
taka ákveða einstaklinga fyrir. Þá
liggur fyrir að ég hefði ekki farið
að starfa með núverandi meiri-
hluta ef ég hefði ekki treyst þeim
til áframhaldandi starfa.“
Ólafur segir að það eigi eftir að
koma í ljós hvert næsta skref
verði nú þegar skýrslan skýrsla
starfshópsins hefur verið kynnt.
„Meira að segja þeir sem unnu
þetta hafa ekki gefið skýr svör og
jafnvel vantar að þeir hafi talað
við alla aðila um málið,“ segir
Ólafur og bætir við: „Þetta var
ekki kynnt endanlega fyrr enn í
fyrradag.“
Meginniðurstaðan skýr
Ólafur segist ánægður með
meginniðurstöðu starfshópsins.
„Hún er sú að það hefur náðst
þverpólitísk samstaða um vinnu-
brögð, opna stjórnsýslu og eign-
arhald almennings, sem eru allt
mál sem ég ber mjög fyrir brjósti
og fagna því,“ segir hann.
Ólafur sagðist hvorki vilja tjá
sig um efasemdir um umboð Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar þann 3.
október né um þær rangfærslur
sem komið hafa fram í máli Vil-
hjálms í fjölmiðlum.
elias@24stundir.is
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri um REI-skýrsluna:
Segir orð sín vera mistúlkuð
24 stundir reyndu að ná í alla
borgarfulltrúa í Reykjavík auk
formanna stjórnmálaflokkanna
á Alþingi.
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, og Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, vildu ekki tjá
sig um málið að svo stöddu.
Ekki náðist í Jórunni Frímanns-
dóttir, Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur og Gísla Martein Bald-
ursson, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, Björk Vil-
helmsdóttur, borgarfulltrúa
Samfylkingarinnar, Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur, formann
Samfylkingarinnar, og Guðjón
Arnar Kristjánsson, formann
Frjálslynda flokksins. ejg
Fáir vildu tjá sig
um skýrsluna
„Þetta er áfell-
isdómur yfir
Vilhjálmi Þ. og
það sem er
mikil tíðindi er
að fulltrúar
allra flokka
fella þann
dóm,“ segir
Oddný Sturlu-
dóttir, borgarfulltrúi Samfylking-
arinnar, spurð um álit sitt á REI-
skýrslunni. „Árið 1995 keypti
Mona Sahlin óvart Toblerone og
bleyjur með krítarkorti ríkisins,
og sagði af sér sem ráðherra í
kjölfarið,“ bætir hún við en segir
að þetta séu hlutir sem Sjálfstæð-
ismenn verði að eiga við sína
samvisku. ejg
Áfellisdómur
yfir Vilhjálmi
Oddný Sturludóttir
a„Ég ber auðvitað svona mál undirborgarlögmann. Ég fer ekki til lög-
fræðinga úti í bæ. Það kemur fram í
hans áliti að ég hafi haft þetta umboð.
Mér hefði ekki dottið í hug að undirita
svona nema ég hefði skýrt umboð til
þess.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi
borgarstjóri í Kastljósi 7. febrúar 2008
a„Ég fer ekki til svona máls fyrr en éghef það alveg á hreinu að ég hafi
svona umboð. Mér bara dettur það
ekki í hug. Það er auðvitað alveg ljóst
að aðilar í kerfinu hefðu nú aldeilis að-
varað borgarstjóra ef hann hefði ekki
slíkt umboð.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrverandi
borgarstjóri, í Kastljósi 7. febrúar 2008.
a„Já, ég fékk úr þessu skorið [áður enfarið var í samningagerðina]. Og það
kemur líka fram í áliti borgarlögmanns
að þetta sé viðtekin venja. Og það
hefði ekki hvarflað að mér, Sigmar, að
ég hefði farið að undirrita svona
samninga ef ég hefði ekki haft þetta
umboð.“
Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi
borgarstjóri, í Kastljósi 7. febrúar 2008.
a„Ég þarf auðvitað að bera mig samanvið borgarlögmann um þetta mál. Ég
hafði þetta umboð. Ég er náttúrlega
ekki að tala við Andra fyrirfram eða
Láru V. Júlíusdóttur. […]Að sjálfsögðu
hafði ég það[umboðið]. Annars hefði
ekki hvarflað að mér að gera þetta.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi
borgarstjóri í Kastljósi 7. febrúar 2008