24 stundir - 09.02.2008, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Er bíllinn
þinn ekki lengur í ábyrgð?
Bíll sem ber merki um Bílaábyrgð Varðar er betri bíll vegna þess að hann er tryggður
fyrir óvæntum bilunum og göllum þó hann sé ekki lengur í verksmiðjuábyrgð.
Kynntu þér kosti Bílaábyrgðar í síma 514 1000 eða á vordur.is
Landsbankinn hefur fært
SÍBS, Sambandi íslenskra
berkla- og brjóstholssjúkl-
inga, tvær milljónir króna í
tilefni af 40 ára afmæli Árbæj-
arútibús Landsbankans.
Björgólfur Guðmundsson,
formaður bankaráðs, afhenti
SÍBS gjöfina í gær á afmæl-
ishátíð útibúsins. SÍBS fagnar
sömuleiðis tímamótum í ár en
í haust verða 70 ár liðin frá
stofnun sambandsins. Starfs-
menn Árbæjarútibús héldu
opið hús með gestum. bee
SÍBS fær stuðning
Tvær milljónir
vegna afmælis
STUTT
● Formaður vísindaráðs Svein-
björn Björnsson hefur verið skip-
aður formaður vísindaráðs Há-
skólans á Akureyri. Þorsteinn
Gunnarsson rektor skipaði ráðið
nýlega, en hlutverk þess er að vera
háskólaráði og yfirstjórn til ráð-
gjafar um eflingu vísindalegra
rannsókna við Háskólann á Ak-
ureyri. Sveinbjörn Björnsson er
eðlisfræðingur og fyrrverandi
rektor Háskóla Íslands. Verkefni
vísindaráðs eru m.a.: Stefnumót-
un og að vera rektor, háskólaráði,
háskólafundi og yfirstjórn til ráð-
gjafar um málefni vísinda við Há-
skólann á Akureyri. bee
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Þórarni Inga Péturssyni og fjöl-
skyldu hans hefur verið gert að
flytja íbúðarhús sitt af jörðinni
Laufási í Grýtubakkahreppi. Jafn-
framt hefur þeim verið synjað um
leigu á jörðinni til lengri tíma en
fjögurra ára.
Fólk segi sig úr þjóðkirkjunni
Benedikt Steinn Sveinsson,
bóndi í Ártúni í Grýtubakkahreppi,
spáir fjöldaúrsögnum úr þjóðkirkj-
unni ef Þórarni og fjölskyldu hans
verður gert að flytja frá Laufási.
Benedikt situr bæði í sveitarstjórn
og sóknarnefnd. „Það yrði gífurleg
blóðtaka fyrir sveitarfélagið ef fjöl-
skyldan þyrfti að flytja burt. Við
myndum missa stærsta og yngsta
fjárbóndann úr sveitinni, kennara
við skólann og þrjú ung börn. Ég
fullyrði að nánast allir íbúar hér í
sókninni standa með Þórarni og
fjölskyldu hans.“
Benedikt segir að málið sé fjarri
því búið. „Ég heyri á skotspónum
að það verði fjöldaúrsagnir úr
þjóðkirkjunni. Ég held að kirkj-
unnar menn geri sér enga grein
fyrir því hvernig verður fyrir nýjan
prest að koma hingað ef vilji sókn-
arbarnanna verður hunsaður.“
Heldur jörðinni í gíslingu
Halldór Gunnarsson, prestur í
Holti, sem situr í kirkjuráði, segir
að prestar eigi að fá prestssetur
með öllum gæðum sem þeim
fylgja. „Við höfum komið mjög á
móts við Þórarin. Okkur finnst því
óskaplega erfitt að Þórarinn skuli
líta svo á að hann geti gert ein-
hverjar kröfur um áframhaldandi
búsetu í Laufási því hans búskapur
tengdist prestskap föður hans.
Hann er ekki í stöðu neins við-
semjanda og það er óviðeigandi að
kirkjustjórn þurfi að taka tillit til
sífelldra krafna hans.“
Halldór segir að Þórarni sé gert
að flytja hús sitt af jörðinni vegna
þess að leigusamningur sé útrunn-
inn. „Ef Þórarinn myndi fá að
halda húsinu á jörðinni þá myndi
hann festa sig í sessi og sami barn-
ingurinn upphefjast þegar leigu-
samningurinn rynni út næst.“
Halldór segir að ef það sé vilji
sóknarbarna að Þórarinn búi
áfram á jörðinni þá verði að skoða
það vandlega að selja jörðina og
flytja aðsetur prests á Grenivík.
„Það er ekki inni í myndinni að
Laufás verði áfram prestssetur ef
prestur fær ekki að njóta gæða
jarðarinnar. Það má segja að Þór-
arinn haldi jörðinni í gíslingu
gagnvart því að hægt sé að auglýsa
prestakallið með prestssetrinu.“
„Ekki svaravert“
Þórarinn sagði í samtali við 24
stundir að hann vildi reyna að ná
lendingu í málinu. „Ég vil reyna til
þrautar að semja um áframhald-
andi búsetu okkar í Laufási. Hvað
varðar ummæli Halldórs um að ég
haldi jörðinni í gíslingu þá eru þau
ekki svaraverð og ég vísa þeim
beina leið til föðurhúsanna.“
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á 24@24stundir.is
Fjöldaúrsagnir úr
þjóðkirkjunni?
Kirkjuráðsmaður segir Laufási haldið í gíslingu Vísa þessu til föðurhúsanna, segir bóndi
Laufás Þórarni Inga Péturssyni og
fjölskyldu hefur verið gert að flytja
íbúðarhús sitt frá Laufási.
➤ Þórarinn og fjölskylda hanshafa stundað búskap í Laufási
síðan faðir hans, séra Pétur
Þórarinsson, varð að hætta
búskap vegna veikinda. Séra
Pétur lést á síðasta ári.
➤ Gríðarleg óánægja er í Grýtu-bakkahreppi yfir því að fjöl-
skyldan þurfi að flytja frá
Laufási. Á undirskriftalista
þeim til stuðnings skráðu sig
97 prósent íbúa sem náðist í,
alls um 500 manns.
ÓÁNÆGJA
Árvakur/Þorkell
Sveinbjörn Björnsson, eðlisfræð-
ingur og fyrrverandi rektor Há-
skóla Íslands, hef-
ur verið skipaður
formaður vís-
indaráðs Háskól-
ans á Akureyri.
Hlutverk ráðsins
er að vera há-
skólaráði og yf-
irstjórn til ráðgjafar um eflingu
vísindalegra rannsókna við Há-
skólann á Akureyri, að beita sér
fyrir mótun og endurskoðun
stefnu um vísindi við Háskólann
á Akureyri og skapa bætt um-
hverfi til rannsókna fyrir kennara
háskólans. mbl.is
Háskólinn á Akureyri
Sveinbjörn stýrir
vísindaráði
Fíkniefnaleitarhundar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu
hafa staðið í ströngu undanfarið
og hafa enn og aftur sannað gildi
sitt. Óvíst er að án þeirra hefði
jafn vel tekist til við að upplýsa
fíkniefnabrot og raun ber vitni.
Hundarnir hafa komið við sögu í
nokkrum handtökum upp á síð-
kastið, meðal annars í fyrradag
þegar hass fannst við fíkniefnaleit
á heilbrigðisstofnun á höf-
uðborgarsvæðinu. aak
Fíkniefnaleitarhundar
Hass á heil-
brigðisstofnun