24 stundir - 09.02.2008, Blaðsíða 14
Röskva vann nauman sigur í
kosningum til Stúdentaráðs Há-
skóla Íslands í vikunni. Kosið verð-
ur í stúdentaráð í Kennaraháskóla
Íslands í mars. Eftir sameiningu HÍ
og KHÍ í júlí mun eitt stúdentaráð
stýra hagsmunamálum stúdenta,
en ekkert samráð var haft við stúd-
enta í KHÍ um kosningarnar í HÍ.
Stúdentar í HÍ eru þeir einu sem
nota listakerfi við að velja forystu
nemendafélagsins, en fyrir því er
lítill áhugi hjá KHÍ. „Við höfum
verið mjög ánægð með okkar fyr-
irkomulag og höfum engan áhuga á
pólitískum kosningum. Við kjósum
fólk en ekki lista,“ segir Birna
Hjaltadóttir, formaður Stúdenta-
ráðs KHÍ.
Ekki sátt
Birna segir að kosningar til stúd-
entaráðs HÍ hafi ekkert verið rædd-
ar á samráðsfundum með HÍ og
þau ekki höfð með í ráðum. Stúd-
entaráð KHÍ sé mjög meðvitað um
það. „Við höfðum ekki neitt um
þessar kosningar að segja og það er
auðvitað slæmt mál. Það eru að fara
2.700 manns úr KHÍ yfir í HÍ og
það var ekki haft neitt samband við
okkur vegna kosninganna.“ Birna
segir að það hljóti að vera ákveðin
brotalöm í kerfinu. ,,Við erum líka
að fara að kjósa í nýtt stúdentaráð í
næsta mánuði en hvað á það sér
langa framtíð?“ spyr Birna.„Það er
bókað mál að þau munu eiga full-
trúa inni í stúdentaráði, þetta er
bara útfærsluatriði sem þarf að
skoða betur,“ segir Pétur Georg
Markan, stúdentaráðsmeðlimur
fyrir Röskvu og formaður fjármála-
nefndar Stúdentaráðs HÍ. Stúdent-
ar KHÍ munu hafa mikið vægi og
allt kapp verður lagt á að gera öllum
jafn hátt undir höfði, segir Pétur.
Hann segir ennfremur að þótt
kosningarnar hafi kannski ekki ver-
ið ræddar sérstaklega á samráðs-
fundum þá hafi stúdentaráð KHÍ
mátt vera mjög meðvitað um kosn-
ingarnar í HÍ. Sú hugmynd að
fresta kosningum til stúdentaráðs
til næsta hausts hafi aldrei verið
nefnd. Ekki muni heldur verða kos-
ið aftur því kosningar séu þungar í
framkvæmd. Það verða því ekki
aðrar kosningar fyrr en að ári og því
verða stúdentar KHÍ að una.
Bæði Pétur og Birna eru þó á
einu máli um að báðir hópar leggi
mikla áherslu á samvinnu til að
tryggja sem best hagsmuni beggja
hópa og að KHÍ muni eiga rödd
innan stúdentaráðs.
Ekkert samráð
um kosningar
Röskva í meirihluta í Stúdentaráði eftir kosningar í HÍ Ekkert
samráð haft við stúdenta í KHÍ þótt sameining standi fyrir dyrum
➤ Röskva vann í kosningum tilstúdentaráðs HÍ í vikunni.
➤ Kosningar til stúdentaráðsverða í KHÍ í mars.
➤ KHÍ og HÍ sameinast 1. júlí, enekki verður kosið aftur.
STÚDENTAKOSNINGAR
ÁrvakurJim Smart
Nýkosið stúdentaráð HÍ mun stýra hagsmunum nemenda í sameinuðum háskóla.
14 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Barcelona
frá 19.990 kr.
Flugsæti með sköttum. Fargjald A. Netverð á mann.
Takmarkað magn sæta í boði á þessu verði. Lægsta fargjald
er uppselt á mörgum brottförum.
Heimsferða
Vorveisla
Síðustu sætin!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
Bókaðu
núna!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
19
97
Beint flug
7. mars - örfá sæti
10. mars
13. mars - örfá sæti
28. mars
31. mars
3. apríl - uppselt
7. apríl
10. apríl - örfá sæti
13. apríl
17. apríl - nokkur sæti
21. apríl
24. apríl - nokkur sæti
27. apríl
1. maí
5. maí
8. maí - nokkur sæti
12. maí
Beint flug
24. mars
28. mars - nokkur sæti
31. mars
4. apríl - örfá sæti
7. apríl
Beint flug
24. apríl - örfá sæti
28. apríl - UPPSELT
1. maí
5. maí - örfá sæti
8. maí - örfá sæti
8. júní - AUKAFLUG
Beint flug
11. apríl - örfá sæti
14. apríl
17. apríl - UPPSELT
Beint flug
23. apríl - örfá sæti
27. apríl
30. apríl - nokkur sæti
4. maí
9. maí - örfá sæti
Prag
frá 39.990 kr.
Flug, skattar og gisting í 4 nætur með morgunverði í tvíbýli
á Hotel Corinthia Towers *****. Sértilboð 24. og 31. mars.
Budapest
frá 61.690 kr.
Flug, skattar og gisting í tvíbýli með morgunverði á Hotel
Carat **** í 4 nætur 1. maí. Netverð á mann.
Kraká
frá 44.790 kr.
Flug, skattar og gisting í tvíbýli með morgunverði á Hotel
Chopin *** eða Hotel Wyspianski *** í 3 nætur 14. apríl.
Netverð á mann.
Vilnius
frá 40.790 kr.
Flug, skattar og gisting í tvíbýli með morgunverði á Hotel
Europa City *** í 3 nætur 27. apríl. Netverð á mann.
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
„Við viljum sýna að við séum á móti kynþáttahatri
og félagsskap eins og ÍFÍ [Ísland fyrir Íslendinga] sem
hefur verið mikið fjallað um upp á síðkastið, okkur
langar að sýna að það er fleira fólk gegn rasisma,“ segir
Sabine Høgh, en hún fer fyrir hópnum Ísland fyrir
alla.
Sabine segir þau verða vör við talsvert kynþáttahat-
ur á Íslandi og það hafi vaxið undanfarin ár. „Það er
eins og fólk sé hrætt við þá sem flytjast hingað nýir því
það veit ekki við hverju má búast,“ segir hún.
Félagsskapurinn Ísland fyrir alla varð til á vefsvæð-
inu facebook.com og eru meðlimir um 2000 talsins. Af
þeim hafa um 60 boðað komu sína á fyrsta fund hans
sem haldinn verður í húsnæði Norræna félagsins við
Óðinsgötu á morgun, sunnudag, klukkan 17. Þangað
eru allir velkomnir.
Að sögn Sabine ætla þau að nota fundinn til að kasta
milli sín hugmyndum um hvert þau vilja stefna með
félagsskapinn, hugmyndir eru uppi um alls kyns kúlt-
úrkvöld og jafnvel pólitískan þrýsting. „Við viljum
breyta rasismanum sem hefur verið í gangi og viljum
breyta viðhorfi fólks til útlendinga á Íslandi.“ aak
Nýr félagsskapur gegn kynþáttahatri, Ísland fyrir alla
Fólk hrætt við innflytjendur
Víðförul Sabíne á ferðalagi um Kenía
Sunnlendingum verður tryggður
aðgangur að sunnlenskum bjór í
vínbúðum í sinni heimabyggð um
leið og hann kemur á markað.
Þetta segir Einar S. Einarsson,
framkvæmdastjóri sölu- og þjón-
ustusviðs ÁTVR.
Í frétt í 24 stundum í gær var
sagt frá því að nýjar tegundir hjá
ÁTVR þurfi að fara í reynslusölu í
tveimur verslunum ÁTVR í Reykja-
vík, áður en þær fara í almenna
sölu. Einar segir það ekki gilda í
þeim tilfellum þar sem vara er
framleidd á Íslandi; þá sé leitast við
að framleiðslan sé seld í þeim vín-
búðum sem eru nálælgt fram-
leiðslustað.
„Við hlustum náttúrlega á óskir
viðskiptavina, sem þýðir að við
höfum alltaf haft framleiðsluna til
sölu nálægt framleiðslustað,“ segir
Einar.
Ennfremur bendir hann á að
viðskiptavinir geti pantað vörur úr
vöruúrvali ÁTVR í þær búðir þar
sem þær ekki fást, sér að kostn-
aðarlausu.
hlynurst@24stundir.is
Regla um reynslusölu gildir ekki um íslenska framleiðslu
Sunnlendingar fá bjórinn
Skjálfti Kemur á markað í lok mánaðarins.