24 stundir - 09.02.2008, Síða 17
sókn til valda. Svo komst Vilhjálmur í meirihluta aft-
ur. Það var Ólafur F. Magnússon sem sá til þess og
þaðan af síður var hægt að sjá að einn eða neinn væri
að axla ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut með þeirri
meirihlutamyndun heldur. Það sjálfsagða viðhorf að
stjórnmálamenn taki ábyrgð á gjörðum sínum fer hins
vegar ört vaxandi. En ekki er nein trygging fyrir því að
það dugi til. Þegar hangið er á völdunum hvað sem
það kostar gleymast grundvallaratriðin.
Stjórnmálamenn láta seint undan þrýstingi
„Vilhjálmur situr í súpunni, þrátt fyrir að skýrslan
hafi farið mildum höndum um hann, “ segir Gunnar
Helgi Kristinsson. Prófessorinn segir viðbrögð stjórn-
málamanna sem sökkva í fen oftast vera svipuð. „Þeir
hafa ríka tilhneigingu til að reyna að svamla áfram og
sitja af sér málið. Heiðursmannaafsagnir í pólitík eru
mjög sjaldgæfar bæði hér á landi og annars staðar,
miklu sjaldgæfari en afsagnir knúnar fram af ut-
anaðkomandi afli,“ segir Gunnar Helgi. „Stjórn-
málamenn herpa sig frekar saman og bíða eftir því að
fenni yfir sporin.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson situr uppi með að sú
skýring hans að hann hafi leitað álits borgarlögmanns
um ákvarðanir í REI er röng. Gunnar Helgi segir litla
hjálp í eftiráskýringu um að hann hafi leitað til fyrr-
verandi borgarlögmanns. Það sé eins og að leita til
hvaða lögfræðings sem er úti í bæ, eða til vinar síns, og
hafi enga vigt innan stjórnsýslunnar. Eftir stendur að
hvort sem þetta er rétt hjá Vilhjálmi eða ekki, þá hafa
réttar boðleiðir ekki verið notaðar.
Reyk-málið er í sjálfu sér smámál. REI-málið er
stórmál. En á hvort málið sem menn horfa þá er ljóst
að stjórnmálamenn starfa ekki í takt við viðurkenndar
leikreglur.
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Þegar hangið er á völdunum
hvað sem það kostar gleym-
ast grundvallaratriðin. Flest-
ir frétta af því strax í barn-
æsku að menn eigi að segja
satt og það á ekki að þurfa
neinar REI-skýrslur til að
læra það.
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 17
Stjórnarkreppan í Reykjavíkur-
borg ætlar engan endi að taka.
Hægri glundroðinn er svo gagnger
að í kjölfar klofnings F-listans gefa
borgarfulltúar Sjálfstæðisflokksins
út skýrslu með minnihlutanum um
framgöngu eigin oddvita og um að
borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hafi skort pólitískt, sið-
ferðilegt og lagalegt umboð til
stórra og óvenjulegra ákvarðana!
Sú veika borgarstjórn sem þetta af-
hjúpar er afleiðing af umboðsskorti
og skorti á lýðræði. Frá því Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir hætti sem
borgarstjóri í Reykjavík hefur eng-
inn borgarstjóri haft atkvæði
meirihluta borgarbúa og með svo
takmarkað umboð hafa þeir komið
og farið hver á fætur öðrum. Því
forsendan fyrir sterkum borgar-
stjóra í Reykjavík er beint umboð
frá borgarbúum. Við þetta bætist
að meirihluti Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks var byggður á minni-
hluta atkvæða borgarbúa og völd
Framsóknar í því samstarfi langt
umfram það sem þeirra lýðræðis-
lega umboð fól í sér. Nú er svo
kominn borgarstjóri sem enginn
myndi kjósa og meirihluti sem lítill
hluti borgarbúa styður. Og þessi
meirihluti er myndaður um tvö
mál sem kjósendur höfðu ekki
hugmynd um að stærsti stjórn-
málaflokkurinn í Reykjavík myndi
setja á oddinn eftir kosningar, þ.e.
friðun Laugavegar 4 og 6 og vot-
lendisins í Vatnsmýri. Þótt Reykja-
víkurlistinn hafi gengið sér til húð-
ar var það rétt sem lagt var upp
með. Nauðsyn þess að Reykvíking-
ar hefðu skýra valkosti og kysu
meirihluta og borgarstjóra beint í
kosningum en þyrftu ekki að sitja
uppi með niðurstöður úr vafa-
sömu baktjaldamakki eftir kosn-
ingar. Á næstsíðasta kjörtímabili
settum við líka ákvæði um að íbúar
gætu krafist atkvæðagreiðslu um
stórframkvæmdir og gerðum ýms-
ar tilraunir með beint lýðræði.
Þeirri þróun er mikilvægt að halda
áfram og augljóslega nauðsynlegt
að borgarbúar geti knúið fram
kosningar ef meirihlutinn bregst
algjörlega trausti. Sumir segja að
lýðræði okkar sé enn að slíta barns-
skónum, enda Ísland ungt lýðveldi,
og við höfum til þessa ekki vefengt
umboð sterka borgarstjórans frem-
ur en kóngsins áður, heldur bara
hlýtt hans ráðstöfunum. Það er
ekki bundið við borgarmálin held-
ur á það ekki síður við í landsmál-
um. Það er ótrúlegt að í sextíu ára
sögu lýðveldisins hafi þjóðin aldrei
nokkru sinni knúið fram eða feng-
ið að taka sjálf ákvörðun um eitt
einasta atriði er máli skipti. Aldrei.
Og hvaða rugl er það? Hefur á heil-
um mannsaldri ekkert það álitamál
verið uppi á Íslandi að almenning-
ur ætti að taka afstöðu til þess
fremur en ríkisstjórnin? Í vikunni
fengum við sem fyrr fréttir af því
að árið 2006 hefði matvöruverð
enn verið tveimur þriðju hlutum
hærra á Íslandi en að meðaltali í
Evrópu. Við vitum að svipað á við
um marga aðra vöru s.s. lyf, barna-
vörur og ýmsar nauðsynjar fyrir al-
þýðu manna. Þetta er auðvitað sér-
staklega íþyngjandi fyrir venjulegt
fólk með lágar og meðaltekjur og
þá ekki síst barnafjölskyldur. Miklu
alvarlegri eru þó þau erfiðu skilyrði
sem hið séríslenska vaxtaokur
skapar almenningi og venjulegum
fyrirtækjum. En stýrivextir Seðla-
banka Íslands eru 10 prósentum
hærri en evrópska bankans. Af
þessum ástæðum og ýmsum öðr-
um, ekki síst menningarlegum,
hafa æ fleiri hallast að því að við
eigum að bindast bandalagi við
aðrar evrópskar þjóðir og sækjast
eftir þeim vöru- og vaxtakjörum
sem þar tíðkast og efla evrópsk
menningaráhrif á Íslandi um leið.
Aldrei hefur þjóðin staðið frammi
fyrir stærri ákvörðun en þessari.
Alþingi hefur enga burði til að taka
á málinu. Umræðan sem þarf að
fara fram verður ekki fyrr en við
tökum afstöðu til aðildar. En
ennþá árið 2008 bíðum við og
frestum ákvörðunum og ólíkt nær
öllum þjóðum í Evrópu höfum við
ekki tekið afstöðu til Evrópusam-
vinnunnar. Jafnvel Norðmenn hafa
ekki sjaldnar en tvívegis gengið til
þjóðaratkvæðagreiðslu um stefnu
sína í málinu. Við aldrei. Ekki fyrr
en við neyðumst til þess og höfum
glatað allri samningsstöðu. Svolítið
eins og sveitamaðurinn sem aldrei
skal flytja á mölina nema nauð-
beygður.
Höfundur er alþingismaður
Örlítið meira lýðræði, takk
VIÐHORF aHelgi Hjörvar
Aldrei hefur
þjóðin staðið
frammi fyrir
stærri
ákvörðun en
þessari. Al-
þingi hefur
enga burði til að taka á
málinu.
FEBRÚAR
TILBOÐ
x4
USB MINNISLYKILL 1GB
Minnislykill frá Corsair sem rúmar allt að 1000
myndir. Inneign fylgir á 100 mynda stafræna
framköllun (10 x 15) hjá Hans Petersen.
OG 100 MYNDA FRAMKÖLLUN
2.490 kr. Safnkortshafar borga aðeins
auk 1000 punkta
Punktar
gilda fjórfalt
Fullt verð: 6.490 kr. Tilboðið gildir til 31.03. 2008 eða á meðan birgðir endastVr. 85060633
x2
MÁNAÐAR ÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2
Safnkortshöfum gefst tækifæri til að kaupa sér
áskrift að Stöð 2 í mánuð til að geta horft á fyrstu
þættina af “Bandið hans Bubba”. Eins er þetta
frábært tækifæri til að kynna sér fjölbreytta dagskrá
Stöðvar 2 áður en keyptur er stærri áskriftarpakki.
3.590 kr. Safnkortshafar borga aðeins
auk 1000 punkta
Punktar
gilda tvöfalt
Fullt verð: 5.590 kr. Tilboðið gildir til 31.03. 2008 eða á meðan birgðir endastVr. 85060636
x6
REMINGTON HÁRSNYRTIR
Vatnsheldur hársnyrtir frá Remington sem má nota
í sturtu. 2 stillanlegir kambar 3 mm - 18 mm.
Hleðslurafhlaða dugar í 40 mín. notkun.
Snyrtitaska fylgir, ásamt spegli, greiðu og skærum.
3.900 kr. Safnkortshafar borga aðeins
auk 1000 punktaPunktar gilda sexfalt
Fullt verð: 9.900 kr. Tilboðið gildir til 31.03. 2008 eða á meðan birgðir endastVr. 85060634
x3
ULTIMATE TOPGEAR Á DVD
Það besta úr frábærum sjónvarpsþætti um
magnaða bíla. Flottustu, heitustu, hröðustu og
dýrustu bílarnir fá það sem þeir eiga skilið og
stundum meira en það þegar þáttastjórnendur
TopGear stíga bensínið í botn.
1.990 kr. Safnkortshafar borga aðeins
auk 1000 punkta
Punktar
gilda þrefalt
Fullt verð: 4.990 kr. Tilboðið gildir til 31.03. 2008 eða á meðan birgðir endastVr. 89159416
x3
TOPPASETT 42 STK
Toppa- og bitasett með T-skralli. 42 stykki í
kassanum ¼” toppar 5 mm - 13 mm ásamt 30
bitum. Mjög hentugt á öll heimili.
1/4” SKRÚFBITAR OG TOPPAR
1.490 kr. Safnkortshafar borga aðeins
auk 1000 punkta
Punktar
gilda þrefalt
Fullt verð: 4.490 kr. Tilboðið gildir til 31.03. 2008 eða á meðan birgðir endastVr. 85060635
Febrúartilboðin fást á þjónustustöðvum N1 og í verslun N1
Bíldshöfða 9. Allar nánari upplýsingar á www.n1.is
TIL SAFNKORTSHAFA
Serblad 24 stunda
Auglysingasimi
Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is
KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is
Heilsa
26.FEBRuar 2008
Auglysingasimi Katrin s.510 3727 / kata@24stundir.is KOLLA s. 510 3722 / kolla@24stundir.is