24 stundir - 09.02.2008, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 24stundir
Gleðifregnir
úr Eyjum
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Sjómaður einn varð forviða þegar komst í fullt GSM
samband þar sem hann var staddur ríflega 30 km
undan ströndum Vestmannaeyja. Hringdi hann í
kjölfarið í þjónustuver Vodafone og tilkynnti
hátíðlega að NMT símanum yrði hér eftir stungið
ofan í skúffu.
– Sönn saga frá 1414.
Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður
Vodafone nú stærsta þjónustusvæðið á Íslandi.
Skiptu yfir til Vodafone, án þess að skipta um
símanúmer, með einu símtali í 1414 – strax í dag.G
ar
ðs
ka
ga
vi
ti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Óskilorðsbundnar fangelsis-
refsingar sem bárust Fangelsis-
málastofnun til fullnustu voru
312 árið 2002 en 407 í fyrra.
Þeim hefur því fjölgað um 30
prósent á því tímabili.
Fyrra viðmiðunarárið voru 88
prósent allra óskilorðsbundinna
refsinga eitt ár eða styttri. Þeir
sem fengu þyngri dóma en eitt ár
voru því um tólf prósent fanga.
Árið 2007 hafði þetta hlutfall
breyst töluvert. Þá var 81 af
hverjum hundrað sem hlutu
refsivist dæmdur til eins árs refs-
ingar eða skemmri. Nítján pró-
sent fanga hlutu lengri dóma en
það. Þar af voru alls 20 manns
dæmdir til þriggja ára refsingar
eða lengri. Þeir höfðu verið átta
að meðaltali frá árinu 2002.
Þyngstu dómunum fjölgaði því
um 250 prósent á síðasta ári.
Heildarrefsitími sem berst
Fangelsismálastofnun til fullnustu
á hverju ári er einnig sífellt að
lengjast og hefur aldrei verið
lengri en hann var í fyrra. Á tí-
unda áratugnum var hann að
meðaltali tæp 179 ár. Á árunum
2000 til 2006 hækkaði meðaltalið
í 214 ár. Í fyrra var heildarrefsi-
tíminn hins vegar 302 ár, eða 70
prósentum lengri en hann var að
meðaltali á tíunda áratugnum.
Margir í gæsluvarðhaldi
Það sem af er þessu ári hafa
þegar fallið nokkrir þungir dóm-
ar. Tveir karlmenn voru dæmdir í
fimm ára fangelsi hvor fyrir
hrottafengna nauðgun og einn
hlaut fjögurra ára dóm fyrir kyn-
ferðisbrot síðastliðinn þriðjudag.
Þá verður kveðinn upp dómur í
stærsta fíkniefnamáli Íslandssög-
unnar, Pólstjörnumálinu, á næstu
vikum. Þar eru sex karlmenn
ákærðir og verður að teljast lík-
legt að þeir hljóti allir þunga
dóma. Auk þess eru fjórir menn í
gæsluvarðhaldi vegna hraðsend-
ingarsmyglsins svokallaða, sem
snýst um smygl á 4,6 kílóum af
amfetamíni og 600 grömmum af
kókaíni til landsins. Verði þeir
dæmdir má ætla að dómur
þeirra verði einnig þungur. Þá
var hollenskur karlmaður gripinn
í Leifsstöð á þriðjudag með 1,2
kíló af kókaíni í fórum sínum.
Hann hefur einnig verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald. Því
ætti langtímaíbúum íslensku
fangelsanna að fjölga töluvert á
árinu.
Föngum fjölgar
Í þeim fimm fangelsum lands-
ins sem vista refsifanga á Íslandi
eru í dag 128 pláss. Þeim mun
fjölga um tíu um næstu mán-
aðamót þegar fangelsið á Ak-
ureyri verður opnað að nýju. Á
móti kemur að Fangelsismála-
stofnun hefur lofað að hætta að
tvímenna í klefa, líkt og gert er í
þremur tilvikum á Litla-Hrauni
um þessar mundir, strax og Ak-
ureyrarfangelsið verður tekið í
gangið. Afplánunarplássin verða
því 135 talsins.
Alls eru 129 einstaklingar í af-
plánun í dag vegna óskilorðs-
bundinnar fangelsisrefsingar.
Nítján þeirra eru á Vernd, í með-
ferð, vistaðir á Sólheimum eða á
vegum Barnaverndarstofu. 110
þeirra sitja hins vegar í fang-
elsum landsins. Við þá tölu bæt-
ast þeir 23 sem sitja í gæslu-
varðhaldi um þessar mundir og
því dvelja alls 133 manns í þeim
128 plássum sem eru í íslenskum
fangelsum í dag. Samkvæmt
upplýsingum frá Fangelsismála-
stofnun voru þeir að meðaltali
109 á tímabilinu 1996 til 2006. Í
dag sitja rúmlega 20% fleiri í
fangelsunum en að meðaltali á
því tímabili.
Fleiri á leiðinni
Þá hafa alls 144 einstaklingar
verið dæmdir til óskilorðsbund-
innar refsingar en ekki enn hafið
afplánun. Auk þess hafa á þriðja
tug einstaklinga þegar hlotið
dóm en ekki verið formlega boð-
aðir til afplánunar.
Árið 2007 var 71 prósent allra
óskilorðsbundinna dóma sex
mánuðir eða styttri. Öllum sem
hljóta slíka dóma er boðið að
taka refsingu sína út með sam-
félagsþjónustu. Það þýðir að 29
prósent hlutu dóma sem voru
lengri en sex mánuðir. Ef sama
hlutfall myndi eiga við þá 144
einstaklinga sem hafa verið
dæmdir en ekki hafið afplánun
þá má ætla að um 42 einstakling-
ar til viðbótar væru á leiðinni í
fangelsi.
Meðalnýting íslenskra fangelsa
á síðasta ári var 94,83 prósent á
síðasta ári. Þrjú þeirra: Litla-
Hraun, Kvíabryggja og Kópa-
vogsfangelsi voru með yfir 95
prósenta nýtingu. Árið 2006 var
heildarnýting þessara sömu fang-
elsa 85,94 prósent, eða tæplega
níu prósentum minni. Þar sem
farið er að setja fanga saman í
klefa verður að ætla að nýting
þeirra sé alger í dag.
Fjölgun erlendra fanga
Alls situr 21 erlendur ríkis-
borgari í íslenskum fangelsum í
dag, sextán í afplánun og fimm í
gæsluvarðhaldi.
Í fyrra sátu samtals átján er-
lendir einstaklingar að meðaltali í
fangelsum hérlendis, annað hvort
í afplánun eða gæsluvarðhaldi, og
höfðu þá aldrei verið fleiri. Þeir
sátu inni fyrir fíkniefna-, kyn-
ferðis-, ofbeldis- eða auðgunar-
brot auk þess sem einn sat inni
fyrir manndráp eða tilraun til
manndráps.
Miðað við að fimm þeirra sem
sitja í gæsluvarðhaldi um þessar
mundir séu erlendir má ætla að
þessi hópur muni einnig stækka
innan fangelsisveggjanna.
Tími til aðgerða
Íslensk fangelsi eru full. Dómar
eru að þyngjast og alvarlegum af-
brotum er að fjölga. Fleiri dvelja í
lengri tíma í fangelsum. Tilraunir
fangelsismálayfirvalda til að
bregðast við þessum vanda eru af
hinu góða. En þær eru fjarri því
að leysa hann. Til þess þarf nýtt
fangelsi. Um það hefur verið rætt
áratugum saman án efnda. Því
hefur meira að segja verið fund-
inn samastaður á Hólmsheiði,
þarfagreining unnin fyrir það en
engin áætlun liggur fyrir né hefur
fjármagni verið heitið til fram-
kvæmdarinnar.
Fangelsi Mikill skortur er á
rýmum fyrir fanga á Íslandi
Kominn
tími á
fangels-
ismálin
Dómar þyngjast verulega Á sama tíma
fjölgar óskilorðsbundnum refsingum mikið
og þeir sem taka út slíkar refsingar verða
fleiri Íslensk fangelsi eru að springa
24 stundir spurðu dóms-
málaráðherra: Verður eitthvað
gert vegna ástandsins í vistun
refsifanga?
„Það hefur þegar verið gripið til
þeirra ráðstafana að tvísetja í
nokkra fangaklefa. Í byrjun
mars kemur endurbætt fangelsi
á Akureyri í gagnið. Næstu
skref eru framkvæmdir á Litla-
Hrauni.“
Hvenær verður byggt nýtt fang-
elsi á höfuðborgarsvæðinu?
„Ný fangelsisaðstaða á höf-
uðborgarsvæðinu er lokaskref-
ið samkvæmt vinnuskjali ráðu-
neytis og
Fangelsismálastofnunar.“
Er ástand fangelsismála ásætt-
anlegt að þínu mati? „Ávallt má
gera betur í öllum málum.“
FJÖLDI ÓSKILORÐSBUNDINNA REFSINGA 2002-2007
2002 2003 2004 2005 2006 2007 Hlutfallsbreyting
0-6 mánuðir 242 275 265 263 283 291 20,2 %
6-12 mánuðir 36 42 44 47 38 40 11,1%
12-36 mánuðir 33 44 44 53 33 56 69,7%
Yfir 36 mánuðir 8 7 8 7 10 20 250%
Alls 312 368 361 370 364 407 -
FJÖLDI FANGA
Í FANGELSUM
og heildarrefsitími þeirra í árum talið.
Fjöldi Heildarrefsing
fanga* í árum
2001 107 241
2002 103 179
2003 116 215
2004 120 209
2005 116 235
2006 118 220
2007 120 302
2008 133 -
* Tölur fyrir tímabilið 2001 til 2007 eru meðaltal-
sfjöldi fanga í fangelsum á dag. Tölur fyrir 2008
eru sá fjöldi sem er í fangelsum í dag
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@24stundir.is
FANGELSISMÁL
Má gera betur